Morgunblaðið - 28.03.1999, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reutcrs
BRESK Harrier-þota á herflugvelli á Italíu. Flugmennirnir óttast mest skammdrægar flaugar, sem einstakir
hermenn geta skotið, verði ráðist gegn herliði á jörðu niðri, einkum í Kosovo.
Litlar varnir Serba
vekja mikla furðu
London. The Daily Telegraph.
VAKIÐ hefur athygli hvað herþotur
NATO-ríkjanna hafa mætt lítilli
mótstöðu af hálfu serbneska hers-
ins. Þeir hafa beitt loftvarnabyssum
og sent á loft MiG-flugvélar en á
þriðja degi loftárásanna höfðu þeir
enn ekki beitt loftvamaflaugum.
Vestrænir hernaðarsérfræðingar
búast þó við, að það verði gert og
spá því, að hernaðurinn muni af
þeim sökum dragast á langinn.
Því hafði verið spáð, að Serbar
myndu snúast til varnar með loft-
varnaflaugum sínum nú um helgina
og meðal annars vegna veðurútlits-
ins. Spáð var þungbúnu veðri og við
þær aðstæður verða NATO-þoturn-
ar að fljúga lægra en ella. Um leið
verða þær auðveldari skotmörk fyr-
ir loftvarnirnar.
Óttast mest skammdrægu
flaugamar
Talið er, að Milosevic reiði sig á,
að það takist að skjóta niður nokkr-
Ráða yfír færan-
legnm skotpöllum
og talið að þeir
séu að bíða eftir
hentugu tækifæri
ar NATO-flugvélar. Það muni verða
til að styrkja þær raddir innan
NATO, sem vilji hætta árásunum.
Sumir vestrænir sérfræðingar
benda hins vegar á, að Milosevic
skjátlist í þessu. Áður fyrr voru
fiugmenn þjálfaðir í að koma inn
hratt og lágt en nú séu baráttuað-
ferðirnar allt aðrar. Með nýjum
vopnum og nýrri tækni sé unnt að
hæfa skotmörkin úr 12.000 feta hæð
eða meira.
Ástæða er þó til að óttast loft-
vamir Serba. Flugmennirnir segj-
ast þó ekki óttast mest hinar eigin-
legu loftvamaflaugar, heldur
smærri og skammdrægari flaugar,
sem einn einstakur hermaður getur
skotið. Hættan á að verða fyrir
slíkri flaug eykst um leið og farið
verður að ráðast gegn serbneska
herliðinu á jörðu niðri, einkum í
Kosovo. Þá verða flugmennirnir að
koma inn og fljúga í allt að hálfa
mínútu að skotmarkinu.
SA-flaugar í felum
Lofthernaðarsérfræðingurinn
Andrew Brooks telur, að Milosevic
hyggist bíða með að svara loftárás-
unum þar til hentugt tækifæri gefst
og vitað er, að serbneski herinn er
búinn færanlegum loftvarnaskot-
pöllum, einkum SA-6. Þær hafa hins
vegar ekki sést hingað til og em
þess vegna einhvers staðar í felum.
„Hann hefur ákveðið, að best sé að
kveikja ekki á ratsjánum fyrr en á
síðustu stundu.“
Serbar herða útrýmingarherferðina f Kosovo
Konum og börnum hald-
ið í vopnaverksmiðju
Reuters
KONUR í Pristina ganga fram hjá verslunarmiðstöð, sem brann til
grunna í árásum NATO-þotnanna.
VAXANDI óöld er í Kosovo og
fréttir em um mikil morðverk
Serba. Þá er sagt, að þeir hafi smal-
að saman konum og börnum á staði,
sem líklegir em til að verða fyrir
árásum NATO-herþotnanna.
Fréttir era um, að vopnaðar
sveitir Serba hafi framið fjöldamorð
á Kosovo-Albönum. Fari þær um
mplandi og rænandi, kveiki í húsum
og skjóti fólk. Þá er haft eftir frétta-
mönnum, Kosovo-Albönum, sem
em flúnir en hafa enn samband við
sitt fólk, að serbneskir hermenn
hafi smalað saman konum og börn-
um og rekið inn í vopnaverksmiðju
og málmvinnslu, sem notuð er sem
bækistöð fyrir brynvarða herbfla.
Hafa fréttir um þetta vakið óhug og
bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í gær, að þeir, sem gerðust
sekir um stríðsglæpi, yrðu lánir
svara til saka fyrir stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag.
Drepa meðan tími gefst til
Háttsettur foringi í UCK, Frels-
isher Kosovo, sagði í viðtali við The
Daily Telegraph, að um 20.000
flóttamenn frá Drenica-héraði
hefðu verið neyddir til að koma sér
fyrir í vopnaverksmiðju í Srbica og
aðrir segja, að konum og börnum sé
haldið í verksmiðju í Glogovac. Um
allt héraðið standa þorp og bæir í
ljósum logum.
Wesley Clark, yfirmaður NATO,
sagði í fyrradag, að vitað væri, að
Serbar beittu fyrir sig flokkum
harðsnúinna glæpamanna og létu
þá sjá um útrýmingarherferðina
gegn Kosovo-AIbönum. Benti flest
til, að liðsmenn Milosevics hygðust
láta hendur standa fram úr ermum
við manndrápin meðan þeir hefðu
enn tíma til.
Skiptar skoðanir
á loftárásunum
London. Reuters.
SKIPTAR skoðanir eru á því hvert
framhaldið muni verða á stri'ðinu í
Júgóslavíu. Henry Kissinger, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, lét til dæmis svo um
mælt í gær, að iiann hefði ekki
fyrr haft meiri áhyggjur af banda-
rískum hernaðarafskiptum.
Kissinger segist óttast, að stríð-
ið geti dregist á langinn og haft í
för með sér mannfall í NATO-lið-
inu. Það muni aftur verða til að
valda sundrungu í bandalaginu.
Segir hann, að þetta sé mjög flókið
stríð og eigi eftir að verða enn
flóknara.
Sir Michael Rose hershöfðingi
og fyrrverandi yfirmaður gæslu-
liðs SÞ í Bosníu segir hins vegar í
grein í breska dagblaðinu Mirror,
að nú sé kominn tími til að senda
landher til Kosovo, jafnvel þótt
það þurfi að senda 100.000 manna
lið eins og sumir telja. „Því lengur
sem loftárásirnar standa án þess,
að NATO nái markiniði sínu, þeim
mun minni verður trúverðugleiki
þess,“ segir hann í greininni.
Ljóst er, að meðal almennings
era skoðanir á loftárásunum mjög
skiptar, ólíkt því, sem var í
Persaflóastríðinu.
Reuters
KEVORKIAN yfirgefur réttarsalinn eftir að hann var fundinn sekur
um annarrar gráðu morð. Með honum er systir hans, Flora.
Kevorkian dæmd-
ur fyrir morð
Segist hafa hjálp-
að 130 dauðvona
sjúklingum
að binda
enda á líf sitt
Pontiac. Reuters.
BANDARÍSKI læknirinn Jack
Kevorkian, sem hefur hjálpað
mörgu dauðvona fólki að segja skil-
ið við lífið, var fundinn sekur í
fyrradag fyrir annarrar gráðu
morð. Var hann dæmdur fyrir að
hafa gefið manni banvæna sprautu
en dauði hans var sýndur í sjón-
varpi.
Kevorkian hélt því fram, að hann
hefði ekki myrt Thomas Youk, 52
ára gamlan mann, sem var dauð-
vona og þjáðist af svokölluðum Lou
Gehrig-sjúkdómi. Kviðdómurinn,
sem skipaður var sjö konum og
fimm karlmönnum, hafnaði þeirri
fullyrðingu hans eftir tveggja daga
vangaveltur.
Tekið upp á myndband
Kevorkian lét taka dauða Youks
upp á myndband til að ögra yfir-
völdum og neyða þau til að fá úr
þessum málum skorið fyrir dómi.
Segist hann aðeins hafa hjálpað
Youk við að losna undan óbærilegri
þjáningu en hann var í hjólastól og
átti erfitt með að nærast og anda.
Kevorkian, sem meinafræðingur
að mennt, sjötugur að aldri, varði
mál sitt sjálfur og sýndi engin svip-
brigði þegar dómurinn var kveðinn
upp. Segja saksóknarar, að hann
eigi 10-25 ára fangelsi í vændum og
hugsanlega ævilangt. Var hann
einnig dæmdur fyrir að hafa afhent
efnin, sem ollu dauða Youks, en það
varðar sjö ára fangelsi.
Kevorkian var látinn laus gegn
tryggingu, tæplega 52 milljónum ísl.
kr., en refsingin verður ákveðin 14.
apríl nk. Kevorkian eða „Doktor
Dauði“ eins og hann hefur verið
kallaður sagði í nóvember sl., að
yrði hann dæmdur í fangelsi, myndi
hann svelta sig til bana. í nýlegu
viðtali kom þó fram, að honum hefði
snúist hugur hvað það varðar og
hyggst hann áfrýja dómnum. Mála-
ferlin gegn honum geta því enn tek-
ið nokkur ár.
„Verða að ákæra mig“
Kevorkian, sem segist hafa að-
stoðað 130 manns við að binda enda
á líf sitt frá 1990, lét taka mynd af
því er ,hann gaf Youk þrjár banvæn-
ar sprautur og kom upptökunni síð-
an til sjónvarpsþáttarins „60 mín-
útna“. Var hún sýnd að hluta í nóv-
ember sl.
„Eg verð að neyða þá til að hafast
eitthvað að,“ sagði hann í viðtali við
„60 mínútur". „Þeir verða að ákæra
mig.“
Yfirvöldin hafa lengi verið á hött-
unum eftir Kevorkian en kviðdómur
hefur sýknað hann þrisvar sinnum
og fjórða málið ónýttist. Segist
hann alltaf hafa látið sjúklingana
sjálfa taka lokaskrefið eða þar til
sprautaði Youk.