Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 12
VIDSIOFTIMVINNULÍF FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 Fólk Ráðnir til Norðuráls • Pétur Andersen hefur verið ráð- inn yfirmaður í skautsmiðju hjá NorðuráM hf. Pétur útskrifaðist sem vélstjóri frá Vélskóla íslands árið 1978, vélvirki 1975 og sem iðnrekstr- arfræðingur frá Tækniskóla Islands 1991. Hann rak eigið fyrirtæki í fjög- ur ár en starfaði áður við uppsetn- ingu spilkerfa hjá Gróttu hf. Þar áð- ur vann hann sem yfirverkstjóri í véladeild hjá Skipalyftunni hf. Pétur er kvæntur Andreu Gunn- arsdóttur og eiga þau tvö börn. • Lárus Hjalte- sted hefur verið ráðinn vaktstjóri hjá Norðuráli hf. Lárus lauk 4. stigs prófi frá Vélskóla Islands árið 1980 og sveinsprófi í vél- virkjun 1981. Lár- us starfaði í Áburðarverksmiðju rík- isins sem vaktsjóri 1981-1998. Lárus á tvö börn. • Páll E. Ólafs- son hefur verið ráðinn vaktstjóri hjá Norðuráli hf. Páll lauk 4. stigs próf frá Vélskóla Islands árið 1979 og sveinsprófi í vélvirkjun 1983. Starfaði sem 1. vélstjóri og yfirvélstjóri hjá Eim- skipafélagi íslands frá 1979-1998. Páll er kvæntur Hólmfríði Bjarka- dóttur og eiga þau þrjú börn. • Ingólfur Ing- ólfsson hefur ver- ið ráðinn vakt- stjóri hjá Norður- áli hf. Ingólfur lauk 4. stigs prófi frá Vélskóla ís- lands árið 1979 og sveinsprófi í vél- virkjun sama ár. Hann starfaði sem vélstjóri hjá Landsvirkjun um tíma en vann sl. 10 ár hjá Haraldi Böðvarssyni á Akur- eyri. Ingólfur er kvæntur Ragnheiði B. Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn. • Júníus Guð- jönsson hefur verið ráðinn vakt- stjóri hjá Norður- áli hf. Júníus lauk 4. stigs próf frá Vélskóla Islands árið 1984. Júníus vann sem vél- stjóri á loðnuskip- um og í smiðju árin 1984-1988. Hann hefur starfað sem yfirvélstjóri á F/T Hrafni Sveinbjarnarsyni sl. 10 ár. Júníus er kvæntur Þóru Péturs- dóttur og eiga þau þrjú böm. • Ivar Már Jóns- son hefur verið ráðinn yfirmaður stjómkerfis fram- leiðslu í kerskál- um. Ivar lauk raf- magnsverkfræði- prófí frá Háskóla Islands, 1988 og M.A.Sc. prófi, 1991 í stýri- og reglunartækni frá University of British Columbia í Vancouver, Kanada. Starfaði á Kerf- isverkfræðistofu Háskóla íslands 1988-189. Árið 1991-1992 starfaði hann sem stýriverkfræðingur við rannsóknarstofnun Pulp and Paper Centre í Vancouver. Frá 1992 - árs- ins 1994 var hann kerfis- og stýri- verkfræðingur hjá Measurex Devron Inc. í North Vancouver. Árið 1994 hóf hann störf hjá RARIK í Reykja- vík sem verkfræðingur á þróunar- deild síðar á Orkuviðskiptadeild. Ivar er kvæntur Svandísi Irisi Hálfdánardóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö böm. • Halldór Guð- mundsson málm- efnisfræðingur hefur verið ráðinn yfirmaður rann- sóknarstofu hjá NorðuráM. Hall- dór lauk B.Sc. gráðu í eðlisfræði frá Háskóla ís- lands 1986 og lauk M.Sc. gráðu í efn- isfræði (materials science) frá Uni- versity of Virginia í ágúst 1988 með völsun áls sem sérsvið. Halldór vann á ámnum 1988-1998 á efnistækni- deild Iðntækistofnunar íslands við rannsóknir og ráðgjöf. Einnig var hann stundakennari og aðjúnkt við vélaverkfræðiskor HÍ á áranum 1993-1998. Halldór er kvæntur Birnu Magn- úsdóttur. • B e r g 1 i n d Söebech hefur verið ráðin birgðastjóri hjá Norðuráli hf. Berglind er stúd- ent frá MK. Hún er iðnrekstrar- fræðingur af framleiðslusviði frá Tækniskóla íslands og lauk B.Sc. gráðu af þróunar- og sálfvirknisviði frá Tækniskóla Islands. Berglind starfaði sem framleiðslustjóri hjá leðuriðjunni Aston frá 1994 - 1997. • Aksel Jansen hefur verið ráðinn innkaupastjóri hjá Norðuráli hf. Áksel útskrifaðist sem iðnrekstrar- fræðingur frá Tækniskóla Is- lands 1989. Aksel starfaði sem markaðsstjóri hjá Stálhúsgögnum Steinars 1989-1992, hann var sölu- stjóri hjá Umbúðasölunni 1993-1995 og í innflutningsdeild Samskipa 1995-1998. Aksel er í sambúð með Völu Hauksdóttur. • Þorsteinn Stefánsson hefur verið ráðinn fræðslustjóri hjá NorðuráM hf. Hann mun skipu- leggja þjálfun og kennslu hjá fyrir- tækinu og vinna að því að innleiða liðsvinnu hjá starfsmönnum þess. Þorsteinn er stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð 1990. Hann stundaði nám í vélaverkfræði við HI frá 1989-1991. Frá 1991-1997 var hann við nám og störf við TU Berlin í Þýskalandi og lauk þar Dipl.Ing. gráðu í vélaverkfræði árið 1997, með áherslu á framleiðslutækni og fram- leiðslustjórnun. Hann starfaði frá árinu 1997 hjá Marel hf. sem verk- fræðingur á framleiðslusviði. Þor- steinn hóf störf hjá Norðuráli 1. maí sl. Hann er í sambúð með Margréti Leifsdóttur og eiga þau eitt barn. Breytingar hjá Sjóvá-Al- mennum • Einar Guð- mundsson gegnir nú stöðu for- varnafulltrúa. Einar útskrifaðist frá KHÍ. Hann hóf störf hjá Ábyrgð hf. 1989 sem deildarstjóri tjónadeildar og hóf störf í tjónadeild Sjóvá-Al- mennra 1992. Hann gegndi síðast starfi fræðslustjóra. • Helga Her- mannsdóttir gegnir nú stöðu deildarstjóra í fjármálaþjónustu. Helga er með sér- hæft verslunar- próf og hefur starfað hjá fyrir- tækinu frá 1981. 9 Hrönn Þor- móðsdóttir gegnir nú stöðu fræðslu- stjóra. Hrönn er kerfisfræðingur frá Tietgenskolen, EDB-skolen í Odense 1985 og starfaði áður við hugbúnaðargerð. • Lilja Sigurðar- dóttir gegnir nú stöðu deildar- stjóra í fjármála- þjónustu. Lilja er með sérhæft verslunarpróf og hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1987 ávallt í fjár- málaþjónustunni, síðast sem fulltrúi innheimtustjóra. • Ómar Svavarsson hefur tekið við stöðu deildar- stjóra markaðs- deildar. Ómar er viðskiptafræðing- ur. Hann hóf störf hjá félaginu 1995 og gegndi starfi markaðs- fulltrúa. Tilfærslur og mannabreyt- ingar hjá Eimskip • Sigríður Hrólfsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem forstöðu- maður fjárreiðudeildar Eimskips. Sigríður útskrif- aðist sem cand. oecon af stjórn- unarsviði frá Háskóla Islands árið 1990. Árið 1994 lauk hún MBA gráðu frá University of Califomia, Berkeley. Hún hefur sótt ýmis námskeið á sviði gjaldeyrismála m.a. námskeið hjá ACI alþjóða- samtökum gjaldeyrismiðlara og tók í framhaldi af því alþjóðlega viðurkennt próf í gjaldeyrisvið- skiptum. Sigríður hefur starfað hjá við- skiptastofu íslandsbanka frá 1994 við fjárstýringu og miðlun. Frá 1990 til 1991 vann hún sem ráð- gjafi hjá Verðbréfamarkaði ís- landsbanka hf. Árið 1992 starfaði hún í endurskoðunardeild Ernst & Young í Canada. 9 Sveinbjörn n Sveinbjörnsson oecon. prófi af endurskoðunarsviði frá Háskóla íslands árið 1990 og varð löggiltur endurskoðandi árið 1993. Sveinbjörn hefur unnið sem for- stöðumaður fjármálasviðs OMu- dreifingar ehf. frá janúar 1996. Hann var skattstjóri í Norður- landsumdæmi eystra á árunum 1992 til 1995. Sveinbjörn starfaði hjá KPMG Endurskoðun hf. á Ákureyri og í Reykjavík á árunum 1987 til 1992. Torgið EKKI BARA RÍKISINS AÐ AUKA SPARNAÐ SAMTÖK iðnaðarins stóðu í gær fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni „Hvernig eiga stjórnvöld að örva sparnað?“. Framsögumenn voru þeir Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, og Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. í erindi sínu rakti Sveinn m.a. niður- stöður úr yfirliti sem Samtök iðnaðar- ins tóku saman um rekstur og af- komu 18 iðnfyrirtækja á fyrri hluta árs 1998 sem bornar voru saman við sambærilegar tölur frá fyrra ári. Fram kemur að rekstrartekjur vaxa að með- altali um 1,1% á milli ára, rekstrar- kostnaður hækkar um 4,5% á milli ára, hagnaður fyrir fjármagnsliði minnkar úr 8,3% af veltu f 5,2% og hagnaður af reglulegri starfsemi minnkar úr 6,1% af veltu niður í 2,3%. Sveinn segir ástæður þessa felast í hækkandi launakostnaði, háu gengi íslensku krónunnar og háum vöxtum sem vegi að samkeppnis- stöðu og markaðshlutdeild innlends samkeppnisiðnaðar. Hann segir ein- kenni þenslu augljós í íslenskum þjóðarbúskap: „Innlendar vörur og þjónusta hækka langt umfram er- lenda, vextir eru háir, krónan styrkist, atvinnuleysi er horfið og viðskipta- hallinn er orðinn uggvænlegur. Það er samdóma álit allra þeirra sem um málið fjalla að til þess að takast á við þá miklu hættu sem stafar af þensl- unni er brýnast að auka þjóðhagsleg- an sparnað m.a. með hvötum tengd- um skattheimtu." Sveinn vísaði í álit margra hagfræðinga sem telja að hægt sé að auka sparnað með breyt- ingum innan skattkerfisins, án þess að hreyfa við heildarskatttekjunum. Dæmi um það væri tilfærsla á skatt- lagningu frá fyrirtækjum yfir á ein- staklinga sem væri líkleg til að auka sparnað í Ijósi þess að tilhneiging fyr- irtækja til að kyrrsetja hagnað og nýta til uppbyggingar rekstursins væri meiri en heimila til að spara og fjár- festa. Geir H. Haarde sagði þann árangur sem nú hefur náðst í hagstjórn hér á landi, byggjast á aukinni framleiðni, tækninýjungum og atvinnuuppbygg- ingu á nýjum sviðum, s.s. hugbúnað- argerð og lífefnaiðnaði samhliða meiri aga í hagstjórn en áður. Hann sagði að mikill viðskiptahalli ætti ekki að koma á óvart, né vekja ótta um of- þenslu og benti á að gert væri ráð fyrir að ríkissjóður geti greitt niður er- lendar skuldir sínar um 20-25 millj- arða króna á þessu ári og því næsta. Árleg vaxtagreiðsla ríkisins til útlanda gæti þannig lækkað um 1-1,5 millj- arða króna. Viðskiptahallann mætti því með öðrum orðum rekja til einka- aðila og ekki síst til aukinnar fjárfest- ingar í atvinnulífinu og engar vísbend- ingar væru um annað en að þær verði til að auka enn á framleiðni og sam- keppnishæfni íslenskra fyrirtækja á næstu árum. Geir sagði hækkun vaxta án efa vera árangursríkustu leiðina til að auka sparnað þar sem hækkunin geri hvort tveggja í senn, að auka fram- boð og draga úr eftirspurn eftir láns- fé. Opnun hagkerfisins setji þessari leið hins vegar skorður, en geri um leið meiri kröfur til þátttakenda á markaðnum, hvort heldur þeir eru að veita eða taka lán. Geir taldi orðið brýnt að endur- skoða lagaákvæði um eignarskatt og vissulega gæti það orðið til að örva sparnað og eignamyndum í þjóðfé- laginu ef skatthlutfallið yrði lækkað um leið og skattstofninn væri breikk- aður. Núgildandi undanþágur ýmissa peningalegra eigna og verðbréfa fælu í sér mismunun og gerðu kerfið bæði flókið og óréttlátt. Hann lagði áherslu á að til að skattaívilnanir auki þjóð- hagslegan sparnað, bendi athuganir til þess að mæta þurfi tekjuskatts- lækkuninni sem í þeim felst og tryggja að afkoma ríkissjóðs versni ekki. Þá væri mikilvægt að skattaí- vilnanir sem ætlað væri að örva sparnað væru eins almennar og kost- ur væri, þær yrðu að vera auðskiljan- legar og mættu ekki flækja skattkerfið um of. Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, lagði áherslu á mikilvægi þess við endurskoðun á skattkerfinu að huga ekki síður að þeim þáttum sem virka letjandi á sparnað til jafns við þá þætti sem eru hvetjandi. Hann sagði að menn yrðu að gera sér grein fyrir því að allur undirbúningur og framkvæmd sparn- aðaraukandi aðgerða af hálfu hins opinbera tæki langan tíma sem taka yrði tillit til í þessari umræðu. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, sagði þá þróun sem hefur átt sér stað á íslenskum hluta- bréfamarkaði, þar sem skráning fyrir- tækja á Verðbréfaþingi hefur farið stöðugt vaxandi, virka sem sjálfstæð- an hvata til kaupa á hlutabréfum og þ.a.l. sparnaðar. Sú þróun væri já- kvæð og áform yfirvalda um hlutafjár- útboð í Landsbankanum og Búnaðar- bankanum á þessu ári myndu efla þann markað og leiða til enn frekari sparnaðar. Segja má að þeir framsögumenn sem tóku til máls á fundi Samtaka iðnaðarins hafi allir verið sammála um að auka þurfi þjóðhagslegan sparn- að. Menn greinir auðvitað á um áherslur og leiðir en þó má Ijóst vera að möguleikar ríkisins til að hafa bein áhrif á gang mála eru takmarkaðir. Þeirra framlag felst fyrst og fremst í að leggja grunninn og gefa fordæmi. Það er síðan í höndum einstaklinga, fyrirtækja og ekki hvað síst íslenskra sveitarfélaga að draga úr ofþenslu í íslensku hagkerfi. EG.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.