Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 1
BAUCUR Endurskoðandi gerist forstjóri /4 _______ESKUVIO Fyrirs ætuskrifstofa opnar i Siberíu /5 FORNBÆKUR Tvær verslanir renna saman /6 msapammmSF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER1998 BLAÐ Urvalsvísi- tala hækkar á nýjan leik HLUTABRÉF hækkuðu í verð á ný í gær. Úrvalsvísitala Aðallista Verð- bréfaþings Islands hækkaði um l, 86% en hún lækkaði sem kunnugt er um 2,76% í fyrradag. Viðskipti á Verðbréfaþingi í gær námu 1.392 milljónum króna. Mest viðskipti voru með húsbréf, alls 573 m. kr., og spariskírteini, 257 milljón- ir og lækkaði ávöxtunarkrafa mark- flokkanna um 4-7 punkta. Viðskipti með hlutabréf voru nokkuð lífleg í gær. Þau námu alls 98 milljónum kr., mest með bréf Samherja 22 milljónir króna, Har- aldar Böðvarssonar 14 milljónir og Síldarvinnslunnar 9 milljónir kr. Verð hlutabréfa SR-Mjöls hækk- aði um 5,9% og íslandsbanka um 5,5% en bréf þessara félaga lækk- uðu nokkuð í verði á þriðjudag. Einnig varð umtalsverð hækkun á hlutabréfum í Haraldi Böðvarssyni og Nýherja. Á móti lækkuðu bréf nokkurra hlutafélaga, til dæmis Fóðurblöndunnar, Samvinnusjóðs íslands, Skinnaiðnaður og Sláturfé- lags Suðurlands. SÖLUGENGIDOLLARS S Hagnaður Islenskra aðalverktaka mun minni en á síðasta ári 50 millj. tap á Grænlandi íslenskir aðalverktakar Lykiltölur úr rekstri - Samstæða jan.-júní Ársreikn. Rekstrarreikningur MMjónir kr. 1998 1997 Breyting Rekstrartekjur 1.955 3.084 Rekstrargjöld 1.867 2.866 Hagnaður fyrir fjármunaliði og skatta 88 218 Fiármunaliðir 30 86 Reikn. skattar -58 -89 Hagnaður tímabilsins 60 215 Efnahagsreikningur 1998 1997 1 Eianir: \ Milljónir króna | 30. júní 31. des. Veltufjármunir 3.442 3.509 -3% Fastafjármunir 867 710 +22% Eignir samtals 4.309 4.219 +2% 1 Skuldir og eirjid íé: \ Skammtímaskulúir 1.775 1.031 +72% Langtímaskuldir 76 36 +111% Eigið té 2.458 3.152 -22% Skuldir og eigið fé alls 4.309 4.219 +2% Kennitölur Veltufé frá rekstri 148 343 Veltufjárhlutfall 1,94 3,40 Eigintjárhluttall 57% 75% TAP af dótturfélagi í Grænlandi dregur niður hagnað fslenskra aðai- verktaka hf. fyrstu sex mánuði árs- ins. Hagnaður samstæðu ÍAV var á þessu tímabili 60 milljónir kr. en til samanburðar má geta þess að félag- ið hagnaðist um 215 milljónir kr. þá sjö mánuði sem það var rekið á síð- asta ári. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 1.860 milljónum kr. á fyrri árshelmingi en rekstrargjöld 1.867 milljónum kr. Félagið var stofnað 1. júní 1997 og eru tölur úr rekstrar- reikningi ársins 1997 birtar til sam- anburðar milliuppgjöri í meðfylgj- andi töflu. „Afkoma félagsins á tímabilinu veldur vonbrigðum og er lakari að mati stjórnenda þess heldur en til lengri tíma er ásættanlegt," segir í fréttatilkynningu frá íslenskum að- alverktökum hf. Meginástæða þess er að afkoma dótturfélagsins GPC ApS., sem vinnur að tveimur stór- verkefnum á Grænlandi, er í árs- hlutauppgjöri neikvæð um 50 millj- ónir kr. en ekki hafa fengist leiddar til lykta deilur við verkkaupa um breytingar og aukaverk sem nema verulega háum fjárhæðum. Afkoma annarra dótturfélaga var jákvæð um 14 milljónir. Sparnaður og ný verk í fréttatilkynningunni kemur einnig fram að samdráttur verkefna innan vamarsvæða hefur orðið meiri en gert var ráð fyrir og ýmis ný verk sem áætlað var að kæmu til framkvæmda hafa ekki orðið að veruleika. Leiðir það til lakari nýt- ingar ýmissa framleiðsluþátta fé- lagsins. Fram kemur að unnið er að því að laga skipulag á rekstri Islenskra aðalverktaka hf. að síbreytilegu rekstrarumhverfí þess. Markmið þess er að tryggja betri heildarár- angur af starfsemi félagsins og er þar stefnt að aukmni verkefnasókn samhliða því að lækka einingakostn- að á öllum sviðum rekstrar með samræmdum aðgerðum. „Félagið vinnur markvisst að því að fullnýta framleiðslugetu sína og afl starfs- manna þannig að það skili sér í áframhaldandi öflugum rekstri. Til að ná þeim markmiðum er nú unnið að undirbúningi ýmissa nýrra verk- efna, bæði á eigin vegum og í sam- starfí við aðra innlenda og erlenda aðila sem ætlað er að skili félaginu auknum umsvifum og góðri af- komu.“ Nánar spurður um þetta segir Stefán Friðfínnsson framkvæmda- stjóri að ekki sé verið að boða bylt- ingar í rekstrinum. Reynt verði að ná niður kostnaði með öllum tiltæk- um ráðum. Aðspurður segir hann að það þurfí ekki endilega að hafa í för með sér fækkun starfsfólks. Stjórn Islenskra aðalverktaka telur að afkoma félagsins verði betri á seinni hluta ársins en þeim fyrri. Stefán segir að verkefnastaðan sé þokkaleg þegar til skamms tíma er litið og unnið að því að afla nýrra verka. Hann bendir hins vegar á að þrátt fyrir miklar framkvæmdir hafi verð á verktakamarkaði haldist ótrúlega lágt. Skráning á vaxtarlista fslenskir aðalverktakar hf. hafa keypt 12% hlut í Ármannsfelli hf. Stefán segir að með þessu sé félagið að fjárfesta í sambærilegu fyrirtæki en ekkert liggi enn fyrir um sam- starf þeirra í milli. Heildareignir samstæðu ÍAV hf. námu 4,3 milljörðum kr. í lok júní og er það 100 milljónum kr. meira en í upphafí árs. Hlutafé er fært niður um 800 milljónir kr. í sam- ræmi við samþykkt hluthafafundar frá því í sumar. Við það lækkaði eig- infjárhlutfall ÍAV úr 75% um ára- mót í 57% á miðju ári. Skammtíma- skuldir hækka tilsvarandi þar sem ekki er búið að greiða hlutafjár- lækkunina út til hluthafa. Unnið er að skráningu íslenskra aðalverktaka hf. á almennum hluta- bréfamarkaði en beðið hefur verið eftir milliuppgjöri til að ljúka skrán- ingarlýsingu. Reiknað er með að sótt verði um skráningu félagsins á vaxtarlista Verðbréfaþings Islands á næstu vikum. I framhaldi af því munu stærstu eigendur ÍAV, ríkissjóður og Landsbankinn, bjóða út hluta af hlutabréfum sínum í félaginu. Ekki hefur verið ákveðið hversu mikið verður selt né nákvæmlega í hvaða formi útboðið verður, en reiknað hefur verið með svipuðu fyrirkomu- lagi og viðhaft var við sölu á hluta af eign ríkisins í íslenska járnblendifé- laginu hf. fyrr á árinu. VERÐBREFASJOÐIR LANDSBREFA - þú velur þann sem gefur þér mest Peníngabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði, sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum. Yfir þrír og hálfur milljarður í öruggum höndum. Nafnávöxtun sl. Nafnávöxtun sl. Nafnávöxtun sl Láttu lausaféð vinna fyrir þig. Aðeins eitt símtal...nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar í öllum útibúum Landsbanka íslands, LANDSBREF HF. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi BRÉFSÍMI 5 3 5 2 0 0 1, VEFSÍÐA www.landsbref.is mmmm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.