Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 2
2 6 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Memphis á ETRE-ráðstefnu í Lissabon Sýna í Tækni- herberginu Sparisjóður vélstjóra hagnast um 52 milljónir kr. 20% aukning rekstrartekna Sparisjóður véls^óra $1 Úr árshlutareikningi 1. janúar tii 30. júní Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting Vaxtatekjur Milljónir króna 459,2 348,0 +32% Vaxtagjöld 261,1 206,0 +27% Hreinar vaxtatekjur 198,1 142,0 +40% Aðrar rekstrartekjur 80,5 90,2 -11% Hreinar rekstrartekjur 278,6 232,1 +20% Önnur rekstrargjöld 194,8 146,6 +33% Framlög í afskriftareikning 13,6 11,0 +24% Hagnaður fyrir skatta 70,2 74,6 -6% Skattar 17,8 28,8 -38% Hagnaður tímabilsins 52,4 45,8 +14% Efnahagsreikningur 30/6'98 30/6 '97 Breyting Eignir: | Milljónir króna Sjóður og bankainnistæður 2.960 669 +342% Útlán 6.711 5.421 +24% Markaðsverðbréf og eignarhl. ífél. 1.010 1.110 -9% Aðrar eignir 250 235 +6% Eignir samtals 10.931 7.436 +47% | Skuldir og eigið fé: Innlán 6.098 4.703 +30% Lántaka 2.518 1.496 +68% Aðrar skuldir 1.017 76 +1244% Reiknaðar skuldbindingar 226 204 +11% Eigið fé 1.072 956 +12% Skuldir og eigið fé samtals 10.931 7.436 +47% HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKINU Memphis hefur verið boðið að sýna framleiðslu sína á ETRE (Europe- an Tecnology Roundtable Exhi- bition) ráðstefnunni sem fram fer í Lissabon í Portúgal í þessum mán- uði. Memphis sýnir nú á ráðstefn- unni annað árið í röð. Fyrirtækið sérhæfir sig í gerð hugbúnaðar fyrir markaðskönnun- arfyrirtæki og hefur verið í sam- starfi við Gallup á íslandi við gerð forrits sem notað er við að setja skoðana- og markaðskannanir á tölvutækt form. Bill Gates kemur Að sögn Sigfúsar Halldórssonar framkvæmdastjóra Memphis eru það einkum fjórir hópar sem koma saman á ráðstefnunni til að kynna og kynnast því helsta sem er að ger- ast í tölvuheiminum: forstjórar fyr- irtækja, blaðamenn, fjárfestar og bankamenn. Á meðal gesta í ár eru meðal annars blaðamenn margra stórblaða eins og Newsweek t.d. og forstjóri stórfyrirtækisins Microsoft, Bill Gates. Alls er fulltrúum 450 fyrirtækja á þessu sviði boðin þátttaka á ráð- stefnunni. „DASAR-fyrirtækið sem skipu- leggur ráðstefnuna býður einnig 15-20 smærri fyrirtækjum að sýna á ráðstefnunni í svokölluðu „Tækni- herbergi" í þeim tilgangi að varpa ljósi á helstu nýjungar á hugbúnað- arsviðinu í Evrópu. I fyrra voru m.a. sýndar tölvur sem skildu talað mál og einnig þráðlaus net,“ sagði Sigfús sem segir að fyrirtækið ætli að nýta sér tækifærið í ár og hitta fjárfesta m.a. og kynna þeim fram- leiðslu sína. Flytja til London Nýlega var farið lofsamlegum orðum um framleiðslu Memphis í fagtimaritinu Research, sem gefið er út af félagi markaðsrannsóknar- manna, og telur Sigfús að það sé ein helsta ástæða þess að fyrirtækinu er nú boðið að sýna annað árið í röð. Markhópur Memphis er mark- aðsrannsóknarfyrirtæki, og hugsar fyrirtækið sér íslenska markaðinn sem þróunarmarkað. Að öðru leyti eru viðskiptavinir erlendir og að sögn Sigfúsar eru samningar við tvö stór fyrirtæki á sviði markaðsrann- sókna í deiglunni. „Yið opnuðum söluskrifstofu í London í vor og erum að flytja höf- uðskrifstofurnar þangað líka. Pað er meira gert út af fjárfestum, en samt munum við áfram starfa við þróun framleiðslunnar á Islandi og 30-50 starfsmenn munu starfa hér á landi á næsta ári.“ LIÐLEGA 52 milljóna ki'óna hagnaður varð hjá Sparisjóði vél- stjóra á fyrstu sex mánuðum árs- ins. Er það heldur meiri hagnaður en á sama tíma á síðasta ári þegar sjóðurinn hagnaðist um 46 millj- ónir. Sparisjóður vélstjóra hefur vax- ið mjög á síðustu árum og sá vöxt- um heldur áfram á þessu ári. Þannig hafa heildareignir hans aukist á tólf mánaða tímabili úr 7,4 milljörðum í tæpa 11 milljarða kr. eða um 47%. Hreinar rekstrartekjur spari- sjóðsins námu tæpum 279 milljón- um kr. sem er um 20% aukning frá fyrra ári. Vaxtatekjur héldust nokkuð svipaðar milli tímabila en aðrar rekstrartekjur lækkuðu nokkuð, aðallega vegna minni gengishagnaðar af fjárfestingar- skuldabréfum. Hallgrímur G. Jónsson sparisjóðsstjóri segir að vaxtamunur sé svipaður og á sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi þjón- ustutekjum verið haldið í lág- marki. Þriðjungs aukning rekstrargjalda Önnur rekstrargjöld námu 195 milljónum kr. og jukust um þriðj- ung frá sama tímabili á síðasta ári. Framlag í afskriftareikning útlána jókst úr 11 milljónum í tæpar 14 milljónir. Hallgrímur segir að unnið hafi verið að endurnýjun á húsnæði Sparisjóðsins og tölvu- kerfi og það hafi aukið mjög rekstrarkostnað á fyrri hluta árs- ins. Vonast hann til að úr þessum kostnaði dragi á seinni árshelm- ingi. Hagnaður fyrir skatta var 70 milljónir sem er heldur minna en á síðasta ári og að teknu tilliti til reiknaðra skatta nemur hagnaður tímabilsins 52,4 milljónum kr. en hagnaðurinn var 46 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hallgrímur segist þokkalega ánægður með af- komuna, miðað við aðstæður í við- skiptaumhverfinu þar sem slegist er um hvern bita, eins og hann kemst að orði. „Við stöndum vel að vígi til að takast á við sam- keppnina, meðal annars með mjög góða eiginfjárstöðu.“ Sparisjóður vélstjóra skilaði tæplega 83 milljóna króna hagn- aði á síðasta rekstrarári og liðlega 100 milljóna króna hagnaði á ár- inu þar á undan. Hallgrímur segir horfur ágætar fyrir yfirstandandi ár í heild. Býst hann við að afkom- an verði heldur betri en á síðasta ári og jafnist á við árið þar á und- an. SIGURÐUR Helgason, forsljóri Flugleiða, og Valur Valsson, banka- stjóri Islandsbanka, undirrita samninginn. En d urfjárm ögn - un dótturfélaga FLUGLEIÐIR hafa samið við ís- landsbanka um 600 m.kr. lán til félagsins. Um er að ræða fjöl- myntalán til fímm ára með jöfnum endurgreiðslum yfir lánstímann. f fréttatilkynningu kemur fram að tilgangur lánsins er að endurfjár- magna sum dótturfélög Flugleiða. Samfara enduríjármögnuninni fer fram fjárhagsleg endurskipulagn- ing þeirra með tilliti til gengisá- hættu, vaxta, greiðslubyrði og lengdar lána. Jafnframt verða óhagstæð eldri lán greidd upp. Félagið efndi til útboðs meðal ellefu fjármálafyrirtækja, þar af fjögurra erlendra, og er þetta í fyrsta sinn sem innlendum aðilum er gefinn kostur á að taka þátt í slíku útboði hjá Flugleiðum. í fréttatilkynningu frá félaginu segfir að með samningnum sé það staðfest að íslenskir bankar séu vel færir um að keppa við erlend- ar fjármálastofnanir um fjár- mögnun fyrir stærstu og öflug- ustu fyrirtæki landsins. Glerblástur fyrir ryðfrítt stál SANDAFL EHF. Skútahrauni 4, Hafnarfirði, < símar 555 1888, 555 1800 Vikutíðindi Búnaðarbankans Verðbréfa Tíu stærstu fyrirtækin endurspegla markaðinn 10 stærstu hlutafélög íslenska markadarins 2. ársfj. 1998 VELTA tíu stærstu fyrirtækjanna á Verðbréfaþingi Islands hefur numið allt að 92% af heildarveltu fyrirtækja á þinginu. Það er mun hærra en gengur og gerist á hlutabréfamörkuðum hinna Norð- urlandanna. í Vikutíðindum Bún- aðarbankans Verðbréfa kemur fram að þetta gefi til kynna að gengi hlutabréfa þessara tíu fyrir- tækja endurspegli vel markaðinn. Samanlagt markaðsvirði þess- ara tíu hlutafélaga er um 82 millj- arðar króna sem er liðlega 50% af markaðsvirði skráðra félaga á Verðbréfaþingi íslands. Einstaka hlutafélög skera sig þó úr og hefur Eimskip langhæsta markaðsvirð- ið, eða um 12% af heildarvirði hlutabréfamarkaðarins. Fram kemur að í Finnlandi er mark- aðsvirði tíu stærstu fyrirtækjanna 58% af heildarvirði og skiptir þar mestu máli gríðarlega hátt hlutfall Nokia sem vegur um 38% af markaðsvirði fínnska hlutabréfa- markaðarins. í Noregi ber Norsk Hydro höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki og í Svíþjóð sker Erics- son sig úr. Á öllum þessum mörk- uðum koma síðan önnur fyrirtæki með minni og jafnari hlutdeild. Á danska hlutabréfamarkaðnum er aftur á móti ekkert hlutafélag með afgerandi stöðu, að því er fram kemur í Vikutíðindum. Rússlandsmarkaður Gætu orðið fyrir óþæg- indum ÍSLENSKAR sjávarafurðir hf. flytja talsvert út af loðnu, síld og karfa til Rússlands en sem stendur liggja við- skipti með fisk nánast niðri vegna þess að gjaldeyrisviðskipti í Rúss- landi hafa verið stöðvuð og engin op- inber viðskipti fara fram með dollara. Benedikt Sveinsson forstjóri IS segir að hlutfallslegt heildarverð- mæti útflutnings fyrirtækisins til Rússlands og baltnesku landanna sé í kringum 15%. Hann segir að ef ástandið í efna- hag Rússlands versni kunni það að tefja fyrir sölu og valda óþægindum, en hafi ekki mikil áhrif hjá IS. Hann segir að framleiðendur verði fyrir mestu óþægindunum vegna þess en þeir þurfa að losa sig við síld og loðnu á ákveðnu tímabili. „Góðu fréttirnar gagnvart Rúss- landi eru að Rússar eni sólgnir í síld og loðnu og þó að ástandið sé þannig núna að erfitt sé að vinna á vandan- um þá munu menn halda áfram að selja þessar afurðir í Rússlandi. Sp- ui'ningin er hvaða kerfi stjórnvöld þróa í kringum þetta, því það verður alltaf gert ráð fyrir viðskiptum, sama hvaða kerfi verður tekið upp í kring- um innflutninginn."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.