Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 B 3 VIÐSKIPTI Venture Iceland 98 Fjárfesting- arþing hald- ið á morgun VENTURE Iceland 98 er yfirskrift fjárfestingarþings sem haldið verður á Hótel Sögu í Reykjavík á morgun, fóstudag. Þingið er hluti af verkefn- inu Framtaksfé í þágu þekkingar, sem ætlað er að stuðla að alþjóða- væðingu og sókn íslenskra fyrir- tækja í upplýsingaiðnaði á erlendan markað og kynna þau fyrir innlend- um og erlendum áhættufjárfestum. í ár taka níu íslensk fyrirtæki þátt: Axel hugbúnaður, High Speed Information Inc. (Fjarhönnun hfi), Hospitality Solution Center (Hótel- lausnir), Hugfang, Kerfi/Tæknival, Memphis, Softis og Taugagreining. Aðalræðumaður fjárfestingar- þingsins er Jim Rogers, bandarískur fjárafla- og ævintýramaður, háskóla- prófessor og dálkahöfundur. Hann mun meta stöðu Islands og mögu- leika íslenskra fyrirtækja á alþjóða fjármálamörkuðum. Annar fram- sögumaður er Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Oz Interactive, sem fjallar um íslenska hugbúnaðar- iðnaðinn. Ráðstefnustjóri er Gordon Murray, prófessor við Warwick Business School á Englandi. Að lokinni framsögu munu þátt- tökufyrirtækin kynna viðskiptaáætl- anir sínar, en síðdegis flytja erindi Stefán Halldórsson, framkvæmda- stjóri Verðbréfaþings íslands, og Terry McGuire, frá Polaris Venture Partners. Þingið er haldið af Utflutningsráði íslands, Nýsköpunarsjóði atvinnu- lífsins og Fjárfestingarstofu. Það fer fram á ensku og hefst klukkan 9. Búnaðarbankinn í gengisspárkeppni Spárnar standast vel BÚNAÐARBANKINN lenti í lok nýliðins mánaðar í 9. sæti alþjóðlegr- ar gengisspárkeppni sem Reuters, fjármála- og fréttaþjónustan, efnir mánaðarlega til meðal 60-70 banka og fjármálastofnana um heim allan. Fyrsta sætið í samkeppninni fellur þeim í skaut sem kemst næst því að geta sér til um það í byrjun mánað- ar, hvert gengi sterlingspunds, þýsks marks og japansks jens verði gagnvart Bandaríkjadal í lok mánað- arins. Gengisspá hvers banka er bor- in saman við hina raunverulegu nið- urstöðu í lok mánaðarins og frávikið reiknað út. Frávik Búnaðarbankans var 1,96%, að því er fram kemur í fréttatilkynningu fi-á Búnaðarbank- anum Verðbréfum, en sá banki sem náði bestum árangri var með 1,33% frávik. Búnaðarbankinn tekur reglulega þátt í þessari keppni og það sem af er árinu hefur hann tvisvar náð betri árangri en nú. I maí lenti hann í 7. sæti og 8. sæti í júní. Þá hefur hann þrisvar orðið í 13.-18. sæti á þessu ári, en aðeins eru birt nöfn þeirra 20 efstu hverju sinni. Áreiðanleg og skilvirk skjalageymsla er ekki einungis tímasparandi heldur nýtir þú hús- næðið mun betur en ella. Skjöl og ýmis gögn getur verið hentugt að nálgast fljótt og örugglega og umfram allt á ódýran hátt því leitin að einu skjali í óreiðunni getur verið ærið kostnaðarsöm. Með FLEXImobile® hjólaskápum geturðu útvíkkað hið minnsta pláss margfaldlega og komið skipulagi á skjala- og gagna- geymsluna. Hringdu, sendu fax eða tölvupóst og fáðu bæklinginn sendan til þín. IM Hvað viltu lá út úr hillukerfinu þínu? Flesta mögulega hillumetra á sem fæsta fermetra. Að geta stækkað kerfið í lengd og breidd. Að geta fengið mismunandi dýpt, hæð og breidd. Að hillukerfið sé öruggt og sé með innbyggðu öryggiskerfi. Að hillurnar séu fallegar og passi ínní umhverfið á þínum vinnustað. Að kerfið sé notendavænt. Að hægt sé að setja kerfið saman og flytja hillurnar án þess að gólfið verði fyrir skemmdum Allt þetta getur þú fengið í FLEXImobile hjólaskápunum. #fHOínasmiðjan Háteigsvegi 7-105 Reykja Reykjavík Sími 511 1100 • Fax 511 1110 ofnasmidjan@ofn.is • www.ofn.is Hver er staða þín á markaðnum? Hagstofan hefur gefið út tvær mjög gagnlegar og fróðlegar bækur um utanríkisverslun íslendinga. ^ Utanríkisverslun vöruflokkar og viðskiptalönd ^ Utanríkisverslun eftir tollskrámúmerum Bækurnar gefa heildaryfirsýn yfir inn- og útflutn- ingsmarkað landsmanna og svara spumingum sem vakna í sambandi við utanríkisviðskipti fslendinga, t.d. hvaða vömr eiga stærsta hlutdeild á markaðnum, til hvaða landa ákveðnar vömr eru fluttar út, hverjir kaupa íslenskan fisk, hversu margir bflar eru fluttir inn o.s.frv. Bækurnar nýtast mjög vel bæði fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnulífi. Hagstofa íslamls Hagstofa íslands • Skuggasundi 3 • 150 Reykjavík • S. 560 9800 • Bréfas. 562 3312 • Netfang: hagstofa@hagstofa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.