Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 43

Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 48 KRISTÍN JÓNASDÓTTIR + Kristín Jónas- dóttir fæddist á Stuðlum við Reyðar- fjörð hinn 12. ágúst 1919. Hún lést á Landakoti hinn 8. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jónas Pétur Bóasson, f. 18. maí 1891, d. 27.2. 1960, og Valgerður Bjarnadóttir, f. 14. október 1885, d. 21. ágúst. 1974. Systk- ini hennar voru Guðrún Sigurbjörg, vefnaðar- kennari, f. 28. des. 1916, d. 7. júlí 1997, Hallgrímur, f.v. fram- kvæmdastjóri, f. 28. aprfl 1918, Bóas, matsveinn, f. 17. júlí 1921, d. 23. ágúst 1992, Bjarni, vél- sljóri, f. 10. des. 1922, d. 6. des. 1995, Lára, kennari, f. 25. mars 1924, d. 11. sept. 1977, og Auður, kennari, f. 4. okt. 1926. Maki Kristínar var Geir Jónasson borg- arskjalavörður, f. 5. sept. 1909 á Akur- eyri, d. 12. desem- ber 1985. Þau eign- uðust engin börn. Kristín ólst upp á Bakka á Reyðarfirði og gekk þar í barna- skóla en fór síðan á Eiðaskóla. Síðan fluttist hún til Reykjavíkur og starfaði meðal annars hjá Gliti, hjá íslenskum heimilisiðnaði, á Borgarskjala- safni og síðan í Arbæjarsafni. Kristín verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kristín frænka var alveg einstök manneskja. Hún bjó yfir viðsýni, visku og fádæma hugarró. Þessir kostii’ gerðu það að verkum að þeir sem kynntust henni báru virðingu íyi-ir henni og á hana var hlustað. Hún var óhrædd við nýjungar sem lýsti sér vel í áhuga hennar á matai’- gerð. íslenskir þjóðarréttir ásamt japönsku súsí eða kínverskir hrís- grjónaréttii’ prýddu veisluborðin. Þar brá einnig íyrir hinum furðu- legustu grænmetisréttum, bauna- kjöti og sæfíflum ásamt hundasúr- um eða hverju því sem hægt var að nota til matargerðar. Það er ekki hægt að segja að manni hafi nú alltaf litist vel á framboðið en eftir að hafa prófað furðuréttina fór eng- inn svangur úr húsi. Bóka- og listhneigð hennar var mikil og eru óteljandi listaverk sem prýða heimilið og bera vott um það listfengi sem hún bjó yfir. Það var aldrei hægt að kvarta yfir vinnu- brögðunum hvort sem það var and- litsmynd úr leir eða að festa tölu, alltaf sama natnin. Bömum þótti hún sérstaklega merkileg, því allar þeirra hugmynd- ir áttu ætíð hljómgrunn í hennar eyrum. Hugmyndir voru ekki vond- ar, heldur í mesta lagi misgóðar, þó mátti reyna flest. Það eru ógleymanlegar veiðiferð- imar þegar frænka kom með okkur pollunum á Homafírði niður á bryggju að veiða. Þetta var íyrsta fullorðna manneskjan sem sýndi þessari iðju okkar áhuga. Eða að koma og hjálpa til við að byggja kastala, því það var yfirvofandi stríð milli út-og-innbæinga, þá varð að leggja hönd á plóginn og ljúka verk- inu og þar kom frænka við sögu. Strákunum leist nú samt ekkert of vel á þegar hún var farin að príla upp í tuminn sem kannski hefði mátt vera traustbyggðari en var bara gerður fyrir lauflétta strák- polla. Eða þegar við tólf ára guttar hóf- um baunabyssustríð í íbúðinni hjá frænku í Reykjavík og íbúðin var orðin stórhættuleg vegna þgrynni bauna sem lágu um allt. Eg vissi síðar að hún var að finna baunir á ótrúlegustu stöðum mörgum ámm seinna. Eg veit líka að dætur mínar gleyma aldrei grænlenska öskrinu sem átti að bæta öndunina og fylla hugann. Það öskur léku ekki einu sinni Grænlendingar eftir af sömu snilld. Það er alveg ómetanlegt að fá að ganga með slíkri manneskju hluta af þessari lífsins göngu, við munum aldrei gleyma frænku og minningu hennai’ mun verða haldið á loft fyi-ir þá sem of ungir era til að minnast þessarar heiðurskonu. Úti er þetta ævintýr. Yfir skuggum kvöldið býr. Vorsins glóð á dagsins vöngum dvín. (Tómas Guðmundsson.) Geir Björnsson. Hún Kristín frænka mín er nú dáin. Hún var mér mjög góð og ég hugsaði um hana eins og ömmu. Það verður aldrei hægt að gleyma henni, þó ég verði 100 ára. Hún hjálpaði mér við allt eins og að búa til jólagjafir og margt fleirra. Hún var mjög falleg og góð og átti alltaf nóg af öllu. Hún átti alltaf til ís og við frænku börnin fengum alltaf ís eftir kvöldmat, það var aðal sportið við að borða hjá henni. Hún var mjög mikil blómakona, hún átti ör- ugglega fimmtíu blóm og hugsaði um þau eins og börnin sín og nú eru þau orðin munaðarlaus og eiga enga mömmu lengur. Hún leyfði mér alltaf að busla í vaskinum heima hjá henni með Mikka mús og Andrési önd. Þegar ég gisti hjá henni var alltaf gaman og þegar ég vaknaði var alltaf tilbúinn hafra- grautur á borðinu. Eg vorkenni litlu bræðram mínum sem fengu ekki að kynnast henni því þeir era svo litlir. Þeir verða bara að heyra sögur um hana og skoða myndir af henni. Ég veit að hún elsku frænka hvílir í friði. Auður Geirsdóttir. Mig langar með örfáum orðum að minnast kærrai’ vinkonu minn- ar, Kristínar Jónasdóttur, sem í dag verður til moldar borin. Það er nú komið á annan áratug síðan við kynntumst fyrst. Kynni okkar hófust með, svo ekki sé fastar að orði kveðið, afar óvenjulegum hætti. Frændi hennar, Jónas, hafði tal af mér og óskaði eftir því að ég gerðist ráðgjafi hennar, en maður hennar, Geir Jónasson fyrrv. bóka- vörður, hafði þá vegna sjúkdóms reynst ófær um að sinna málefnum líðandi stundar og gerðist ég fjár- haldsmaður hans. Mér er enn í minni, hversu erfið spor það vora fyrir Kristínu, þegar hún ásamt mér varð að „fara í gegnum kerfið“ til þess að koma þessu í kring. Arin liðu og ég starfaði að þess- ari fjárhaldsmennsku, meðan Geir lifði. Að honum látnum héldust kynni okkar áfram og fékk ég tækifæri til þess að aðstoða hana við ýmis lítilræði svo sem gerð skattframtala hennar og önnur við- vik. Þótt slík vinna væri ekki flókin urðu mér þær stundir, sem við átt- um saman, einkar kærar. Kemur þar margt til en einkum það, hversu viðræðugóð Kristín var og fróð, um hvaðeina sem efst var á baugi hverju sinni. Með hennar hæga fasi og framkomu birtist mér einkar skýr og vel gerð persóna. Ekki fór mikið fyrir henni. Fast gat hún staðið á skoðunum sínum, en aldrei var hún óbilgjöm. Ég held að ég megi fullyrða að alla tíð hafi hún, líkt og eiginmaður hennar áður, verið mikil og sterk vinstri- manneskja eins og þær gerast bestar, fylgin sér, en bar mann- kærleika fyrir brjósti, og vandamál lítilmagnans vora henni ætíð efst í huga. Ekki svo að skilja að Kristín hafi alltaf verið svo alvöragefin að hún hafi ekki séð hið skrýtna og skondna í tilverunni. Þvert á móti hafði hún ríka kímnigáfu, sem hún kannski flíkaði ekki um of, en glöggt var auga hennar fyrir ýmsu spélegu og skemmti hún sér oft konunglega í minni viðurvist yfir slíku. Það sem ég tók einna helst eftir hjá henni var, hversu börn og ung- lingar löðuðust að henni ósjálfrátt. Ekki vegna þess, held ég, að hún hafi verið þeim eitthvað betri eða gengið undir þeim meir en aðrir, heldur sérstaklega af því að hún tók börnum og unglingum eins og hverju öðra fólki, ræddi við þá eins og jafningja og var öllum ráðagóð. Nú að leiðarlokum vil ég þakka henni fyrir allar samverastundirn- ar og símtölin sem við áttum í gegnum tíðina. Öll hnyttnu tilsvör- in og allan þann fróðleik sem hún miðlaði mér og mínum. Ég kveð gamlan og góðan vin með hlýhug og óska henni alls velfamaðar á sinni nýju vegferð. Þorsteinn Eggertsson. Það var á fyrstu árum mínum í Arbæjarsafni að við, sem þar unn- um, kynntumst ágætri konu, Krist- ínu Jónasdóttur, í skjalasafni borg- arinnar í Skúlatúni, en þangað fór- um við í gagnaleit og til að komast í ljósritunarvél. Hún vann þar ásamt Geir Jónassyni, eiginmanni sínum, og þegar hann hætti störfum þar var Kristín reiðubúin til að breyta til og féllst á að kom til starfa í Ar- bæjarsafni. Viðfangsefni vora ær- in, tekið á móti skólabömum, verið að byggja skemmu og hreinsa eim- reiðina og rannsaka húsin í Grjóta- þorpi. Þetta var um haustið 1976 og auk mín vora þar þá Júh'ana Gottskálksdóttir og Ólafur B. Jóns- son og í þann hóp bættist Kristín. Skrifstofa safnsins var í húsinu á Laufásvegi 31 og þar bjuggum við líka, Pétur, eiginmaður minn og synimir, Stefán á öðra ári og Magnús sem fæðst hafði þama um sumarið. Fjölskyldulíf og vinna tvinnuðust saman, en hið frábæra starfsfólk tók því vel. Það var eins og forsjónin hefði sent okkur Kristínu eins og ömmu sem tók að sér uppeldishlutverk. Óskýr var nú starfslýsingin, en allt ógert og Kristín til alls fús. Skrifstofuhaldið var að mótast og úrklippusafnið eitt það fyrsta sem hún tók að sér. Þegar skrifstofan flutti í annað hús, Líkn, batnaði vinnuaðstaðan og smám saman fjölgaði starfsfólki. Starfsandinn var góður og var það ekki síst Kristínu að þakka. Hún hafði áhuga á öllu og verksvit hennar var einstakt. Sinnti hún textílum safns- ins af kunnáttu og natni og man ég þá ánægju sem við höfðum af söð- uláklæðunum sem fóra á sýningu um íslenska hestinn. Kristín var máttarstólpi við hvaðeina. Þegar haldnar vora samkomur var hún ómissandi við undirbúning og framkvæmd, sá um veitingar og þegar hús vora flutt í safnið smurði hún brauð fram undir morgun fyrir flutningamennina. Við fóram saman í mörg ferðalög sem urðu að ævintýrum, til Færeyja og til Grænlands, austur í Homafjörð og í Lónið, að Guð- laugsstöðum í Blöndudal og síðast fóram við saman í Skagafjörð. Ki’istín var elst okkar í safninu og sá margt sem við hin tókum ekki eftir og kenndi okkur ýmis- legt, margt sem hún hafði lært af móður sinni. Hún tengdist öllu starfsfólkinu sérstökum böndum. Kristín var örlát, ekki síst við mig og drengina mína og gaf okkur gott veganesti sem ég get aldrei fullþakkað. Nanna Hermansson. Kristín Jónasdóttir starfaði á Árbæjarsafni um áratugaskeið og er þáttur hennar í uppbyggingu safnsins mikilvægur. Kristín var góður vinur ekki síður en mikils metinn samstarfsmaður okkar á Arbæjarsafni. Hún var sérlega hæf og vandvirk í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur auk þess að vera yfirveguð og alltaf þægileg í sam- starfi. Hún hafði því góð áhrif á allt faglegt starf innan Arbæjarsafns og það fólk sem þar starfaði. Veit ég að öllum sem með henni störf- uðu var afar hlýtt til hennar, enda var Kristín ekki síður skemmtileg. Hún vai’ síung og kraftmikil enda var hún starfandi sem fastur starfsmaður til sjötugs og eftir það sem einn af eldri borguram Arbæj- arsafns í nokkur ár. Alit hennar skipti máli varðandi allar sýningar, viðburði, búninga og safnhúsin sjálf. Enda var mikið leitað til hennar og málin rædd við hana. Ég er henni ekki síður þakklát fyrir alla þá vinsemd sem hún sýndi mér og fjölskyldu minni. Það var yndislegt að heimsækja hana. Hún sýndi bömunum mínum áhuga og væntumþykju enda óskuðu þau oft eftir því fá að heimsækja Kristínu. Kristín var fróð og áhugaverð manneskja ekki síður en hlý og vin- gjamleg. Heimsóknir til hennar vora því gefandi og yndislegar. Ég hef þá trú að Kristín hafi lifað ríku lífi. Störf hennar vora mikils metin, hún átti stóra hóp vina og góða fjöl- skyldu og hún ferðaðist víða. Hún hafði lag á því að njóta lífsins. Fyrir það er ég einnig þakklát hennar vegna. Að lokum vil ég sérstaklega þakka henni allt hennar góða starf á Arbæjarsafni og sérlega ánægju- leg kynni. Blessuð sé minning góðrar konu. Margrét Hallgrímsdóttir. • Fleirí minningargreinar um Kristínu Jónasdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Maðurinn minn, GUÐJÓN DAGBJARTSSON frá Seyðisfirði, til heimilis á Holtsgötu 19, Reykjavík, lést þriðjudaginn 14. júlí. Helga Magnúsdóttir. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓNSSON, frá Hallgilsstöðum í Hörgárdal, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 14. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, börnin. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, vinur og afi, KRISTJÁN JÚLÍUSSON bifvélavirkjameistari, Kambsvegi 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 17. júlí kl. 13.30. Soffía Kristjánsdóttir, Jóhannes Ó. Sigurðsson, Vilborg Kristjánsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Ólöf Svandís Eiríksdóttir og barnabörn. t Bróðir minn og frændi, SIGURÐUR ÓSKAR SIGVALDASON fyrrverandi ieigubifreiðarstjóri, Fellsmúla 14, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 15. júlí 1998. Jarðarförin auglýst síðar. Sesselja Sigvaldadóttir, Rakel Sigvaldadóttir, Ari Jóhannesson. t Bróðir okkar, GUNNAR SKJÖLDUR JÚLÍUSSON, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugar- daginn 18. júlí kl. 14.00. Kristín Júlíusdóttir, Hjálmar Júlíusson, Ragnheiður Júlíusdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.