Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 12

Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Akurnesingar óska eftir að umdæmi lögreglunnar verði endurskoðað Sýslumenn ræða aukna samvinnu Sýslumenn í Borgarnesi og á Akranesi munu á næstunni ræða aukna samvinnu lögregluliða vegna óska Akurnesinga um breytingar. TILLAGA 1 TILLAGA 2, V/' r$R ö rráil alsfif^p u r | SRaríTsfieiði 'T' V s< rgW&Z M. / / Léirár- og j Melahreppur I />*----- C A > >,,vwaúia<'ð3rstranc/ar/jrert ■ Ú,// -r Miðsarwur <ÍWilmanna^nn„r(GrUndar- Núverandi \ stjómsýslumörk Saurbær»fY \ v —/'>. i hverfi }V F C í A Kjalarnes Reykjavik ./ 5km I -^Mosfellsbæ/'' ; NÚVERANDI umdæmi lögregluembættisins á Akranesi nær að bæjar- mörkum. Bæjarráð hefur komið með þá tillögu að svæðið nái frá Botnsá að endamörkum Leirár- og Melahrepps eða frá Botnsá að Hafnará. BÆJARSTJÓRI Akraness, Gísli Gíslason, sendi í apríl síðastliðn- um bréf til ríkislögreglustjóra þar sem farið var fram á að umdæmi lögreglunnar á staðnum yrði end- urskoðað, sérstaklega með til- komu Hvalfjarðarganganna. í svarbréfl frá Haraldi Johann- essen ríkislögreglustjóra, sem barst bæjarstjóranum nú nýlega, kemur fram að hann hafí ákveðið fyrirkomulag löggæslu í Hval- fjarðargöngum í samráði við lög- reglustjórana í Reykjavík, Borg- arnesi og á Akranesi. Ákveðið hafi verið að lögreglustjórinn í Reykjavík fari með löggæslu í göngunum að nyrðri munnanum sem er í umdæmi lögreglustjór- ans í Borgarnesi. Jafnframt kemur fram að ríkis- lögreglustjóri muni heimsækja embættin á Akranesi og í Borgar- nesi. Það hefur hann nú gert og varð niðurstaða þess fundar að viðkomandi sýslumenn skili af sér hugmyndum til hans um sam- vinnu lögregluliðanna tveggja, bæði hvað varðar umferð vegna Hvalfjarðarganga og önnur sam- eiginleg verkefni á sviði löggæslu- mála. Gert er ráð fyrir að hug- myndir sýslumannanna verði kynntar ríkislögreglustjóra um miðjan ágústmánuð. I fyrrgreindu bréfí vísar ríkis- lögreglustjóri spurningu bæjar- stjóra um lögsagnarumdæmi og forræði á því til laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í hér- aði og reglugerðar um stjórn- sýsluumdæmi sýslumanna. Þar er kveðið á um að Akraneskaupstað- ur heyri undir umdæmi sýslu- mannsins á Akranesi og að Innri- Akraneshreppur, meðal annarra, heyri undir umdæmi sýslumanns- ins í Borgarnesi. Ríkislögreglu- stjóri hefur bent á að það sé ekki í hans valdi að breyta reglugerðum um stjórnsýsluumdæmi sýslu- manna, það sé á valdi dómsmála- ráðherra. Togstreita og óvissa Ástæða fyrirspurnar bæjarráðs Akraness er meðal annars sú að með tilkomu Hvalfjarðargang- anna mun umferð um nánasta svæði Akraness breytast. Segir í fyrirspurninni að á undanförnum árum hafi komið upp tilvik milli lögregluembættanna tveggja vegna umdæmisskiptingar sem leitt hafí til togstreitu og óvissu. Orðrétt segir síðan: „Það er ein- dregin ósk bæjaryfirvalda á Akra- nesi að mál þessi verði tekin til skoðunar með það í huga að ekki komi upp togstreita milli embætta á svæðinu um hver eigi að gegna nauðsynlegri eftirlits- og öryggis- gæslu.“ Skipting frá árinu 1942 Upphaflega skiptingu Akranes- hrepps má rekja allt aftur til árs- ins 1885 þegar honum var skipt upp í Innri- og Ytri-Akranes- hrepp. Árið 1942 fékk sá síðar- nefndi kaupstaðarréttindi og var nefndur Akraneskaupstaður. Innri-Akraneshreppur tilheyrði hins vegar sýslumanninum í Borgarnesi ásamt þremur nær- liggjandi hreppum, Hvalfjarðar- strandarhreppi, Skilmannahreppi og Leirár- og Melahreppi. Bæjar- stjórn Akraness hefur hins vegar talið að sveitarfélögin sunnan Skarðsheiðar eigi að mynda eitt stjórnsýsluumdæmi og kom ósk þar um í bréfi sem hún sendi dómsmálaráðuneyti árið 1991. Skoðun sýslumanna Ólafur Þór Hauksson, nýskip- aður sýslumaður Akraness, vill lítið tjá sig um breytingar á um- dæmisskipan lögreglunnar. „Þar sem ég er nýtekinn við starfi sýslumanns get ég lítið rætt um þetta mál. Eg veit þó að forveri minn hefur innt dómsmálaráðu- neytið svara auk þess sem hann bar fyrirspurnina upp á málþingi við ríkislögreglustjóra um heim- ildir hans til að skipa umdæmis- mörkum upp á nýtt. Það er hins vegar ekki hægt að segja það að umræða sé komin um málið innan dómsmálaráðuneytisins. Eg tel að bæði lögregluliðið á Akranesi og Borgarnesi og almenningur allur hafi hag af því að bæði lögreglu- liðin sinni í nánu samstarfi ákveðnum hluta sem liggur á milli Akraness og Borgarness,“ sagði Ólafur. Sýslumaðurinn í Borgarnesi, Stefán Skarphéðinsson, telur um- ræðu um breytingar á umdæmis- skipan lögi-eglu komnar til að knýja á um sameiningu hrepp- anna. „Þetta er mál sem Gísli Gíslason bæjarstjóri hefur verið að bera upp og skrifa í blöðin. Þetta tengist áformum hans um sameiningu sveitarfélaga en ann- ars er lítið um þetta mál að segja. Það hefur verið gott samkomulag Nýlegur dómur Mannréttindadómstóls Evrópu vegna fíkniefnarannsókna Óheimilt að nota tálbeitur I nýlegum dómi á hendur Portúgal kemst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu að það sé brot á mannréttinda- sáttmálanum þegar lögregla leiðir mann í gildru og fær hann til að fremja afbrot, jafnvel þótt um fíkniefnamál sé að ræða. Páll Þórhallsson kynnti sér málið. Skemmdar- verk í göngun- um óupplýst ENN hefur ekki verið upplýst að fullu hverjir unnu skemmdar- verk í Hvalfjarðargöngum að- faranótt fóstudags. Tveir menn voru handteknir á fóstudag en þeir hafa ekki viðurkennt sök. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er málið enn í rann- sókn. Margs konar búnaður í göngunum var skemmdur og bíl- um ekið um göngin, á hlið og fleira. Vildu mennimir ekki kannast við að hafa valdið öllum þessum usla. Eldur í stál- grindahúsi ELDUR kom upp í húsi í bygg- ingu við Skútuvog i Reykjavík í gærmorgun. Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út klukkan 8.08 en kviknað hafði í pappa við einangrun í gafli hússins. Verið er að reisa stórt stál- grindahús sem klætt er með jámplötum, einangrun og pappa og hljóp eldur í pappann. Slökkviliðið hafði snör handtök við að slökkva eldinn en tjón er talið þó nokkurt. Líkamsárás í veitingahúsi MAÐUR var fluttur meðvitund- arlaus á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir líkamsárás í veitingahúsi við Laugaveg í fyrrakvöld. Lögreglu barst tilkynning um slagsmál á veitingastaðnum kl. 19:26. Þegar hún kom á staðinn kom í Ijós að maðurinn sem ráð- ist var á hafði misst meðvitund. Tveir höfðu ráðist á manninn og vom þeir fluttir í fangageymslur lögreglunnar. Var þeim sleppt í gær og er rannsókn lokið. MÁLAVEXTIR vora þeir að V.S. lá undir gmn um fíkniefnasölu. Tveir leynilögreglumenn fóru heim til hans og lýstu áhuga á að kaupa heróín. V.S. sagði að maður að nafni Francisco Texeira de Castro kynni að geta útvegað slíkt efni. Síðan var haldið heim til de Castro. Hann féllst á að hafa milligöngu um sölu heróíns, brá sér bæjarleið og sneri aftur með töluvert magn af eiturlyfinu sem hann lét V.S. í té. Lögreglumennirn- ir sögðu þá til sín og handtóku de Castro. Var hann ákærður og dæmd- ur í sex ára fangelsi. De Castro sendi kæru til mann- réttindanefndar Evrópu í Strass- borg. Taldi hann að 3. gr. mannrétt- indasáttmálans um bann við ómann- úðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu hefði verið brotin, 6. gr. um réttláta málsmeðferð og 8. gr. um friðhelgi einkalífs. Bæði nefndin og dómstóllinn komust að þeirri niður- stöðu að það væri einkum 6. gr. sátt- málans sem ætti við og að hún hefði verið brotin. Lá ekki undir grun I forsendum dóms mannréttinda- dómstólsins (Texeira de Castro gegn Portúgal, 9. júní 1998) segir að jafn- vel þótt skipulögð glæpastarfsemi hafi færst í vöxt verði að standa vörð um rétt sakborninga til réttlátrar málsmeðferðar fyi-ir dómi. Ekki sé unnt að réttlæta notkun sönnunar- gagna sem lögregla hafí framkallað. Tekið er til þess að kærandi var ekki á sakaskrá og hann lá ekki fyrirfram undir gmn. Fíkniefnin vom ekki í fórum hans heldur aflaði hann jieirra frá óviðkomandi. Ekki hafí verið sýnt fram á að kærandi hafí haft til- hneigingu til að fremja afbrot. „Draga verður þá ályktun að lög- regluþjónarnir tveir hafi ekki látið við það sitja að rannsaka saknæmt atferli Teixeira de Castro á óvirkan máta, heldur var íhlutun þeima til þess fallin að stuðla að afbroti," segir þar. Ekkert bendir til þess að mati dómstólsins að brotið myndi hafa verið framið án þeirra atbeina. Sú íhlutun og þýðing hennar fyrir dómi leiddu til þess að kærandi fékk ekki notið réttarins til réttlátrar máls- meðferðar. 1. mgr. 6. gr. sáttmálans var því brotin. Fordæmisgildi Það er ljóst af forsendum dómsins að niðurstaða hans útilokar ekki hvers konar starfsemi uppljóstrara eða leynilögreglumanna. Dómstóll- inn gerir greinarmun á tálbeitum, þ.e. lögi’eglumönnum sem fá aðra til afbrota, og leynilögregluþjónum sem afla upplýsinga fyi-st og fremst. Það er starfsemi hinna fyrrnefndu sem er hæpin. Þannig undii-strikar dómstóllinn að málavextir í máli Ludi gegn Sviss, 15. júní 1992 hafí verið frábrugðnir vegna þess að sá lögreglumaður sem þá átti í hlut hafí starfað með vitneskju rann- sóknardómara, rannsókn var hafín í því máli og viðkomandi lögregluþjónn fór vægar í sakimar. Spurningar hljóta að vakna í kjöl- far þessa dóms um hvort notkun tál- beitu sé með öllu óheimil. Ef kona úr lögreglunni væri til dæmis látin freista manna með því að ganga um almenningsgarð að kvöldlagi og á hana yrði ráðist, væri þá ekki hægt að dæma viðkomandi fyrir tilraun til nauðgunar? Eða ef lögregla hefði upp á barnaklámefni á Netinu með því að spyrjast fyrir um það undir fölsku flaggi, væri þá ekki forsenda til ákæru? Rýmkandi skýring I ljósi spurninga af þessu tagi kemur á óvart hversu mikill einhug- ur var hjá eftirlitsstofnunum í Strassborg í máli þessu, nefndin taldi með 30 atkvæðum gegn 1 að 6. gr. hefði verið brotin og dómstóllinn með 8 atkvæðum gegn 1. Ekki verður heldur sagt að það blasi við að um sé að ræða brot á 6. gr. sáttmálans. Það er að minnsta kosti athyglisvert, sumir myndu segja langsótt, að ákvæði um réttláta málsmeðferð sakamála fyrir dómi eigi við. Hugsunin er væntanlega sú að það stangist á við grundvallar- hugmyndú um framgang réttvísinn- ar að mönnum sé refsað fyrir brot sem ríkisvaldið ginnti þá til að fremja. Þarna er því væntanlega enn eitt dæmið á ferðinni um rýmkandi túlk- un sáttmálans sem tryggir vh’kni hans þrátt fyrir orðalag sem er al- mennt og miðast við aðstæður og vandamáls síns tíma. íslenskt réttarástand Ekki er að finna neinar ótvíræðar lagaheimildir í íslenskum lögum til svokallaðra óhefðbundinna rann- sóknaraðferða lögreglu, hvað þá til að nota tálbeitur. I 1. gr. lögreglu- laga nr. 90/1996 segir að það sé með- al annars hlutverk lögi-eglu að stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstran brota. í 2. mgr. 66. gr. 1. nr. 19/1991 um meðferð opin- berra mála segir að lögregla skuli hvenær sem þess er þörf hefja rann- sókn út af vitneskju eða grun um að refsivert brot hafi verið framið hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki. Af dómi Hæstaréttar, H 1993.1081, má ráða að heimilt sé við sérstakar aðstæður að nota tálbeitur við rannsókn máls. Dómur Mannréttindadómstólsins gerir það að verkum að H 1993.1081 er hæpnara fordæmi en hingað til hefur verið álitið. Má bú- ast við að nefnd dómsmálaráðherra sem er að vinna að tillögugerð um óhefðbundnar rannsóknaraðferðir skoði gaumgæfílega hvaða ályktan- ir eigi að draga af þessum nýja dómi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.