Morgunblaðið - 26.05.1998, Qupperneq 10
"V
10 B ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
þetta undir lokin. Þá hlýtur að fel-
ast í þessu yfirlýsing um að fólki
hafi líkað vel okkar störf. Menn
vissu það fljótlega að hvort framboð
, um sig væri komið með þrjá menn
og að tæpt stæði með þann fjórða,“
segir Öm. Þá tók Öm fram að þar
sem Ólafur Kristjánsson bæjar-
stjóri hefði skipað baráttusætið
hefði það haft verulega þýðingu í
sigrinum.
Hann segist hafa orðið var við
óánægju með sameiginlegt framboð
R-listans og vafalítið hafi eitthvað af
stuðningsmönnum flokkanna sem
að því stóðu skilað sér til Sjálf-
stæðisflokksins. „Svo var vafalítið
einhver óánægja í gangi hjá okkar
fólki en ég veit ekki hvort það hefur
mikið skilað sér yfir til R-listans eða
hvort það fólk hefur skilað auðu eða
setið heima.“
Valdimar Guð-
mundsson R-lista
Baráttan
snerist
ekki um
málefni
c
VALDIMAR Guðmundsson, oddviti
R-listans í Bolungarvík, sagði niður-
stöður kosninganna vonbrigði. R-
listinn hefði stefnt að því að ná
meirihluta en það hefði ekki tekist.
„Kosningamar snemst ekki um
málefni, heidur bara eina persónu,
bæjarstjórann, og hann náði inn.
Nú tekur við áframhaldandi vinna í
þeim málefnum sem við héldum
fram í kosningabaráttunni. Við
munum starfa af heilindum í minni-
hlutanum eins og við höfum gert
hingað til. Við verðum öflug þar,
enda vön að vera í minnihluta. Við
verðum bara að bíta í það súra epli
að hafa lent í minnihluta en höldum
okkar striki,“ sagði Valdimar.
Hann sagðist vilja þakka kjó-
sendum R-listans og því fólki sem
hefði unnið með listanum og lagt
mikið á sig.
ísafjörður
Birna Lárusdóttir
D-lista
Ung og
fersk
forysta
BIRNA Lárusdóttir, oddviti D-lista
á ísafirði, er mjög ánægð með úrslit
kosninganna. „Við fengum fjóra
menn og bættum verulega við okk-
ur fylgi frá því í síðustu kosningum
eða um tæplega 6%. Við fognum því
vissulega og teljum það sýna að við
eigum breiðan hóp fylgismanna í
bænum. Hitt er ekkert leyndarmál
að við stefndum á fimm bæjarfull-
trúa. I baráttusætinu var Þorsteinn
'•* Jóhannesson og hann er ekki inni,
því miður. Við töldum að það hefði
verið hreinlegast að ná hreinum
meirihluta en við sættum okkur við
úrslit kosninganna og erum byrjuð
að vinna í framhaldinu," segir Birna
en sjálfstæðismenn funduðu með
framsóknarmönnum um myndun
meirihluta strax á sunnudag.
Aðspurð um ástæðu góðrar út-
komu Sjálfstæðisflokksins segist
hún vona að fylgismenn listans hafi
áttað sig á því nýja sem í boði var.
„Við færum fram mjög ferska og
unga forystu og ég tel það ekki síst
okkur til framdráttar að við erum
þrjár konur í þremur efstu sætun-
um. Ég dreg þá ályktun að það hafi
höfðað til breiðs hóps kjósenda. Á
listanum er ungt fólk sem hefur
kannski ekki mikið komið að sveit-
arstjórnarmálum til þessa, svo er í
okkar röðum mjög reynt fólk og
þetta er afskaplega góð blanda,“
* segir Bima.
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 1998
Bryndís Friðgeirs-
dóttir K-lista
Fólk vill
öflugt
félags-
hyggjuafl
BRYNDÍS Friðgeirsdóttir, oddviti
K-lista, er ánægð með úrslit kosn-
inganna og segist skynja þau sem
skilaboð frá kjósendum um að þeir
vilji stóran öflugan félagshyggju-
flokk. „Þótt við hefðum viljað vera
stærri þá erum við með fjóra menn
eins og Sjálfstæðisflokkurinn.
Næsta skref er að ná meirihluta. Ef
framsókn hefði verið með okkur,
eins og við buðum þeim í upphafi þá
hefðum við náð honum,“ segir
Bryndís.
Hún segir auða seðla vekja at-
hygli, þeir séu fleiri en áður og fleiri
en annars staðar á landinu. „Ég
held að þeir komi til af því að marg-
ir óánægðir sjálfstæðismenn hafi
frekar skilað auðu en að veðja á
aðra flokka. Þetta er afleiðingin af
því þegar Sjálfstæðisflokkurinn
sprakk á síðasta kjörtímabili."
Skagafjörður
Gísli Gunnarsson
D-lista
Stórsigur
D-listans
„ÉG ER mjög ánægður með niður-
stöður kosninganna. Við stefndum
að því að ná fjórum mönnum en
náðum fimm þannig að við höfum
unnið stórsigur hér,“ sagði Gísli
Gunnarsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í Skagafirði.
„Skoðanakönnun Gallup sagði að
við værum með þrjá inni sem dró
heldur úr bjartsýni okkar, en samt
reiknuðum við alltaf með fjórum
mönnum. Það sem gerðist var að
fylgið fylgdi ekki pólitískum línum,
það virtist vera miklu víðara en það,
bæði hér á Sauðárkróki og einnig í
sveitunum um kring. Það má einnig
segja að fylgi svokallaðs K-lista,
sem bauð fram í síðustu kosningum
en ekki núna, hafi komið yfir til
okkar.
Myndun meirihluta hefur ekki
verið kláruð, en við munum síðan
ráða bæjarstjóra, og er verið að
skoða þau mál. Snorri Bjöm Sig-
urðsson hefur verið bæjarstjóri og
verður áfram fyrst í stað en annað
er óráðið,“ sagði Gísli að lokum og
bætti við að flokkurinn væri mjög
ánægður og þakklátur þeim sem
studdu hann og kusu.
Herdís Á. Sæmund-
ardóttir B-lista
„Sátt við
okkar
hlut“
„ÉG ER ákaflega sátt við okkar
hlut, í skoðanakönnun sem gerð var
í vikunni fengum við um 34% fylgi
og héldum því. Við stefndum að því
að fá fjóra og fengum þá, þannig að
hvað okkur varðar þá held ég að við
séum sátt við okkar hlut,“ sagði
Herdís Á. Sæmundardóttir oddviti
B-listans í Skagafirði um úrslit
kosninganna.
„Kosningamar fóm samt ekki
eins og ég bjóst við, úrslitin komu
ekki beinlínis á óvart en þó gerðust
ýmsir hlutir á lokasprettinum sem
maður sá ekki fyrir, eins og til
dæmis það hve stór hluti Skaga-
fjarðarlistans fór yfir til íhaldsins.
Við megum hins vegar vera sátt við
okkar hlut því við emm klár á því að
Unglingalistinn tók frá okkur og
kannski Skagafjarðarlistinn eitt-
hvað líka. Hvað okkur varðar er
þetta mjög raunhæf og ágæt niður-
staða en hrun Skagafjarðarlistans
kom mér einna helst á óvart,“ sagði
Herdís.
Ingibjörg H. Hafstað
S-lista
Erum nýtt
afl - höld-
um ótrauð
áfram
„ÞETTA era viss vonbrigði fyrir
okkur,“ sagði Ingibjörg H. Hafstað,
oddviti Skagafjarðarlistans, um úr-
slit kosninganna í Skagafirði.
„Við fengum góða stöðu í Gallup-
könnun sem var gerð stuttu fyrir
kosningar sem sýndi að við fengjum
þrjá menn inn, en svo virðist sem
flokksmaskínur hinna flokkanna
hafi farið af stað og við höfum ekk-
ert slíkt á bak við okkur þannig að
svo fór sem fór,“ sagði Ingibjörg, en
Skagafjarðarlistinn fékk tvo menn
kjöma á móti fimm mönnum Sjálf-
stæðisflokks og fjórum mönnum
Framsóknarflokks.
„Þótt við hefðum kosið að fá fleiri
menn inn þá höldum við ótrauð
áfram og erum síður en svo búin að
vera. Við eram nýtt afl í nýju sveit-
arfélagi og eram bjartsýn á fram-
haldið,“ sagði Ingibjörg.
Siglufjörður
Haukur Ómarsson
D-lista
Náðum
takmark-
inu
„VIÐBRÖGÐ okkar við kosningun-
um era ákaflega góð og við eram
mjög ánægð með árangurinn,"
sagði Haukur Ómarsson, oddviti
Sjálfstæðismanna í Siglufjarðar-
kaupstað. „Við höfðum tvo menn
fyrir kosningar og fengum fjóra
núna þannig að það er 100% aukn-
ing í fjölda bæjarfulltrúa og getum
við ekki verið annað en ánægð með
það.“
„Ég vonaðist eftir þessum úrslit-
um en það var kannski svolítið
óraunhæft að ná þessu en þetta var
það sem við stefndum að. Hér höfðu
ekki farið fram neinar skoðana-
kannanir þannig að menn renndu
svolítið blint í sjóinn með hvemig
kosningamar færa. Markmið okkar
var hins vegar að hindra það að S-
listinn, sameiginlegt framboð
vinstri manna, næði meirihluta, eða
fimm mönnum, og það gekk eftir,“
sagði Haukur um úrslitin.
Guðný Pálsdóttir,
S-lista
Ánægð
með við-
brögð Sigl-
firðinga
„VIÐBRÖGÐ okkar hérna era bara
góð, við eram með 44,19% atkvæða
á bak við okkur sem þýðir að 460
íbúar Siglufjarðar styðja okkur. Það
er í sjálfu sér mikill sigur fyrir okk-
ur þar sem við eram nýtt afl hér,
sameinað félagshyggjuafl, og erum
að bjóða fram saman í fyrsta sinn,“
sagði Guðný Pálsdóttir oddviti
Siglufjarðarlistans.
„Við fengum fjóra menn kjörna
en voram reyndar að vonast til að fá
fimm manns inn. Það er þó allt í
lagi, við erum með mjög margt fólk
á bak við okkur og erum ánægð með
þann stuðning sem Siglfirðingar
hafa sýnt okkur. Auðvitað vora það
viss vonbrigði að hafa ekki náð
fimm mönnum inn, því við settum
markið það hátt, en við sættum okk-
ur við þessi úrslit.
Við eram stærsta stjórnmálaaflið
hér á Siglufirði og horfum bjartsýn
fram á veginn hvernig sem
viðræðunum um meirihlutasamstarf
lyktar en það er allt í óvissu ennþá,“
sagði Guðný Pálsdóttir oddviti S-
listans, og ítrekaði að Siglufjarðar-
listinn væri ánægður með viðbrögð
Siglfirðinga.
Skarphéðinn Guð-
mundsson B-lista
Vildum
fá tvo
menn inn
„ÞAD vora ákveðin vonbrigði að við
skyldum ekki ná tveimur mönnum,
en það vantaði aðeins sjö atkvæði
upp á að hann næði kjöri,“ sagði
Skarphéðinn Guðmundsson, oddviti
Framsóknarflokksins, um niður-
stöður kosninganna í Siglufjarðar-
kaupstað.
„Við stefndum á að ná tveimur
mönnum inn svo niðurstöðurnar
vora ákveðin vonbrigði, þótt við höf-
um að vísu bætt við okkur fylgi í
prósentum, en það dugði ekki alveg.
Okkar maður var inni þangað til
farið var að telja utankjörstaðarat-
kvæðin, þá datt hún út, en það gat
varla munað minna.“
„Hér vora engar skoðanakannan-
ir gerðar, en ég er ekki frá því að ef
það hefði verið gerð hér
skoðanakönnun og fólk hefði séð
hvað það vantaði lítið uppá annan
mann, þá hefði það lyft okkur því ég
tel að kannanir geti haft áhrif,“
sagði Skai-phéðinn að lokum.
Anna María Elías-
dóttir F-lista
Mjög góð
útkoma
„ÞETTA var mjög góð útkoma,“
sagði Anna María Elíasdóttir, odd-
viti F-lista.
„Við voram búin að vinna mjög
mikið síðustu dagana fyrir kosning-
ar,“ sagði hún. „Þetta hafðist svona
á lokasprettinum. Við fundum fyrir
miklum stuðningi og meðbyr þessa
síðustu daga.“ Benti hún á að á list-
anum væri mikið af nýju og ungu
fólki og að það hefði mildð að segja.
„Við ætlum að reyna að greiða eins
mikið niður af skuldum og við get-
um,“ sagði hún. „Við ætlum einnig
að reyna að halda uppi okkar
íþróttalífi, sem hefur verið mjög
blómlegt og viljum við stuðla að því
að svo verði áfram.“
Ólafsfjörður
Guðbjörn Arngríms-
son oddviti Q-lista
Átti von
á sigri
„ÞETTA eru vonbrigði," sagði Guð-
björn Arngrímsson, oddviti Ó-lista.
„Ég átti von á sigri. Það munar 80
atkvæðum sem er töluvert meira en
ég átti von á. Ég reiknaði með að
mjótt yrði á milli framboðanna
hvoram megin hryggjar sem það
lenti.“
Guðbjöm sagðist ekki vita hverju
væri um að kenna að svona fór.
„Fólkið velur þetta,“ sagði hann.
„Fólkið velur frekar þá sem eru á
lista Sjálfstæðisflokksins heldur en
á okkar lista. Ég er þeirrar skoðun-
ar að þetta snúist meira um persón-
ur en málefni í þessum kosningum.
Staða sveitarfélagsins er þannig að
það hefur ekki verið hægt að lofa
miklu vegna fjárhagsstöðunnar."
Dalvík
Svanhildur Árna-
dóttir D-lista
Vél sátt
með nið-
urstöðuna
„VIÐ eram vel sátt með þessa nið-
urstöðu,“ sagði Svanhildur Árna-
dóttir, oddviti D-lista. „Við lögðum
áherslu á að ná þriðja manninum
inn og okkur tókst það.“
Svanhildur sagði að þegar ljóst
varð að sameining sveitarfélaganna
þriggja yrði að veraleika þá hefðu
margir spáð því að Sjálfstæðis-
flokkurinn myndi ekki eiga bjarta
framtíð í sveitarfélaginu. „Okkar
vegur myndi ekki rísa hátt í fram-
tíðinni," sagði hún.
„Sveitin hefur verið orðuð við
Framsóknarflokkinn og vinstra fólk
en í raun kom þetta vel út fyrir
okkur. Við áttum ekki mörg at-
kvæði í sveitinni þó maður viti það
ekki nákvæmlega." Sagðist hún
telja að léleg kjörsókn, en hún var
83,88%, bitni frekar á sjálfstæðis-
mönnum.
Katrín Sigurjóns-
dóttir B-lista
Unnum
ágætan
sigur
„VIÐ teljum okkur hafa unnið
ágætan sigur,“ sagði Katrín Sigur-
jónsdóttir, oddviti B-lista í bæjar-
stjórn Dalvíkur.
„Við bættum við okkur fylgi en
fulltrúum var fjölgað og era níu í
stað sjö áður í bæjarstjórn," sagði
hún. „Við eram mjög glöð með
þessa niðurstöðu, þar sem við vor-
um í meirihluta á síðasta kjörtíma-
bili. Okkur finnst þetta vera viður-
kenning kjósenda á því að við höf-
um staðið okkur vel.“
Katrín sagði að aðhald í fjármál-
um væri helsta baráttumálið á nýju
kjörtímabili auk þess sem ráðist
yrði í byggingu tveggja grannskóla
í sveitarfélaginu á Arskógsströnd
og á Dalvík. Þá yrði tekið á hitaveit-
umálum á Árskógsströnd.
Kristján Hjartarson
S-lista
Eins og
við mátti
búast
„NIÐURSTAÐAN er eins og við
mátti búast,“ sagði Kristján Hjart-
arson, oddviti S-lista í bæjarstjórn
Dalvíkur.
„Við hjá S-lista voram að gera
okkur vonir um hærra hlutfall og
auðvitað vorum við að stefna að
þremur mönnum í bæjarstjórn en
því miður náðist það ekki,“ sagði
hann. „Það eru að byrja þreifingar á
myndun meirihluta. Fyrsta skrefið
era viðræður okkar við Framsókn-
armenn sem hafa leitað til okkar.“
Kristján sagði að áhersla hefði fyrst
og fremst verið lögð á að sameining
sveitarfélaganna gengi eins vel og
hægt væri. Áhersla hefði verið lögð
á að fylgja þeim granni, sem lagður
var af sameiningarnefndinni. „Það
er ekki mikill málefnaágreiningur
milli framboðanna," sagði hann.
„Það eru áherslupunktar en þeir
eru ekki stórfelldir.“