Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ I -H ATVIN N IIA UGL YSINGAR Blaðberi óskast Blaðberi óskast í Fjallalind og Fífulind Kópavogi. Upplýsingar á mánudag í síma 569-1114. Auglýsingateiknari Morgunblaðið óskar að ráða auglýsinga- teiknara til starfa. Starfið er laust fljótlega. Auglýsingateiknarinn þarf að vera hug- myndaríkur og hafa reynslu í auglýsingagerð. Askilin er kunnátta og reynsla í notkun QuarkXPress. Kunnátta í öðrum forritum kemur einnig til góða. Ennfremur þarf hann að geta unnið hratt og örugglega undirtíma- pressu og hafa gaman af samskiptum við annað fólk. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást eingöngu á skrifstofu Guðna Jónssonar, og skal umsóknum skilað á sama stað. Umsóknarfrestur er til 4. maf nk. CtUÐNT IÓNSSON RÁÐCIÖF & RÁÐNINGARÞIÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22 Hólmavíkurhreppur Leikskólakennarar Leikskólinn á Hólmavík óskar að ráða leik- skólakennara í full störf eða hlutastörf. Ráð- ið verður í störfin frá 1. júní eða 15. ágúst nk. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Hólma- víkurhrepps, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, í síðasta lagi föstudaginn 17. maí 1996. Nánari upplýsingar veita sveitarstjóri í síma 451 3510 og leikskólastjóri í síma 451 3411. Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps. TÆKNITEIKNARI BYGGINGATÆKNIFRÆDINGUR Traust þjónustu- og framleiðslufyrirtæki óskar að ráða tækniteiknara eða byggingatæknifræðing (gjarnan nýútskrifaðan) til starfa. Starfssvið • Sölumennska og þjónusta við viðskiptavini. • Tölvuteikningar í CAD- kerfum. • Önnur tilfallandí verkefni. Leitað er að áhugasömum og þjónustuliprum einstaklingi með söluhæfileika, sem hefur gaman af mannlegum samskiptum og áhuga á fjölbreyttu þjónustustarfi. Viðkomandi þarf að hafa hæfileika til að vinna undir álagi og tímapressu. Haldgóð kunnátta í AutoCAD eða sambærilegum kerfum nauðsynleg. Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði frá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs á eyðublöðum er þar liggja frammi merktar: „450 fyrir 4. maí n.k. RÁÐGARÐURhf STfÓRNTUNAR OG REKSIRARl^ÁÐGjöF FURUQERÐl £ 10B REYKJAVÍK SÍMI S33-1BOO netfang: radgardurdltn.la Framreiðslumaður Kennarar - kennarar A tlÓTELOÐAL óskar að ráða þjón til starfa nú þegar. Upplýsingar veitir hótelstjóri í síma 461-1900. Rekstur kaffistofu Nýja sendibílastöðin hf. óskar eftir aðila til að taka að sér rekstur kaffistofu/mötuneyti fyrirtækisins frá og með 1. júní nk. Óskað er eftir hugmyndaríkum aðila með reynslu í rekstri af kaffistofu eða mötuneyti. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif- stofunni ásamt umsóknareyðublöðum. Væntanlegum umsækjendum er bent á að skila inn umsóknum fyrir 7. maí. Engar upplýsingar eru veittar í síma. Nýja sendibílastöðin hf, Knarrarvogi 2, 104 Reykjavík. Laus staða skólastjóra Við Grunnskólann á Eskifirði er laus til um- sóknar staða skólastjóra. Ennfremur stöður grunnskólakennara, meðal kennslugreina stærðfræði, heimilisfræði og sérkennsla. Húsnæðisfríðindi og flutnings- styrkur. Upplýsingar veita skólastjóri í síma 476 1472 og formaður skólanefndar í síma 476 1143. Umsóknarfrestur er til 13. maí. FRAMLEIÐSLUSTIÓRI Þekkt og traust iðnfyrirtæki sem tengist byggingaiðnaði óskar að ráða framleiðslustjóra. Fyrirtækið vinnur að uppbyggingu gæðakerfis samkvæmt IS0 9001 staðlinum. Starfssvið • Framleiðsluskipulagning og áætlanagerð. • Rekstur vélbúnaðar. • Þróunarvinna, endurskoðun framleiðsluferla o.fl. • Sjá um að gæðakröfur fyrirtækisins séu uppfylltar. Hæfniskröfur • Vélaverkfræði, framleiðsluverkfræði eða sambærileg menntun. • Stjórnunar- og skipulagshæfileikar ásamt samstarfshæfni. • Góð tölvukunnátta. Lögð er áhersla á að fá kröftugan einstakling með gott frumkvæði sem getur komið nýjungum í framkvæmd. Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon frá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: “Framleiðslustjóri ” fyrir 7. maí nk. RÁÐGARÐURhf STjÓRNUNAR OG R13CSTRARIGDGJÖF FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK SImI 533-1800 netfang: radgardurOitn.ia Nú ertækifærið! Lausar stöður við Kirkjubæjarskóla á Síðu næsta skólaár. Sérstaklega vantar okkur kennara í handmennt og heimilisfræði en einnig í almenna kennslu. í skólanum er unnið metnaðarfullt starf, hann hefur góða vinnuaðstöðu, gott bókasafn og ágætar kennaraíbúðir. í skólanum eru tæplega 100 nemendur og samfélagið er skólavænt. Skólinn er í 270 km fjarlægð frá Reykjavík, í fallegu umhverfi þar sem veðursæld er mikil. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Hanna Hjartardóttir, í síma 487 4633, (487 4635 hs.) og hún verður einnig til viðtals í mötu- neyti Kennaraháskólans v/Stakkahlið þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 16.00-18.00. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Viðskiptafræðingur Tryggingastofnun ríkisins óskar að ráða við- skiptafræðing til starfa á lífeyrisdeild stofn- unarinnar hið fyrsta. Starfsreynsla æskileg. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist starfsmannahaldi Tryggingastofnun- ar ríkisins fyrir 10. maí nk. LANDSPITALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... SÝKLAFRÆÐIDEILD LANDSPÍTALANS Sérfræðingur Staða sérfræðings í sýklafræði við sýkla- fræðideild Landspítalans er laus til umsókn- ar. Um er að ræða fullt starf og verður stað- an veitt frá 1. ágúst 1996. Umsóknarfrestur er til 1. júní 1996. Starfið felst meðal annars í kennslu lækna- og meinatæknanema. Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum sendist á eyðublöðum lækna til yfirlæknis deildarinnar, Ólafs Steingrímssonar, sem veitir upplýsingar um starfið. Reyndur aðstoðarlæknir Staða reynds aðstoðarlæknis við sýklafræði- deild Landspítalans er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og verður staðan veitt frá 1. ágúst 1996. Umsóknarfrestur er til 1. júní 1996. Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri störf og reynslu af kennslu og vísindastörf- um, sendist til yfirlæknis deildarinnar, Ólafs Steingrímssonar, sem veitir upplýsingar um starfið. LYFLÆKNINGADEILD - HJARTA- DEILD Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast á hjartadeild Landspítalans. Um er að ræða bæði fastar stöður og í afleysingar vegna barnsburðar- leyfa. Upplýsingar veita Unnur Sigtryggsdóttir, deildarstjóri, s. 560 1250, og Bergdís Krist- jánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, s. 560 1303. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.