Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.04.1996, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Páll Stefánsson „LITTU á Drangey, drottninguna í sænum,“ segir í vísu Jakobs Jónssonar. Drottinn er víst ennþá krati Vísnatorg Á Vísnatorgi að þessu sinni verður litið inn á stofnfund Kveðanda, vísnafélags Þingey- inga, hlýtt á hagyrðinga ljóða hver á ann- an o g farið í Drangey. Pétur Blöndal er umsjónarmaður torgsins. AÐ ER glatt á hjalla hjá þingeyskum vísnavin- um um þessar mundir. Kveðandi, vísnafélag Þingeyinga, var stofnaður föstu- daginn 12. apríl undir kjörorðinu: „Höldum uppi merki stökunnar." Á fundinum var kosin bráða- birgðastjórn og hana skipa Jó- hanna Álfheiður Steingrímsdóttir Ámesi í Aðaldal, Hreiðar Karls- son Húsavík og Þorfinnur Jóns- son Ingveldarstöðum í Keldu- hverfi. Þorfinnur flutti framsöguer- indið sem hann kryddaði með nokkrum vísum. Hann hóf mál sitt á orðunum: Hér við ekki flytjum ijöll en fetum slóðir kunnar. Velkomin þið verið öll vinir ferskeytlunnar. Stofnun félagsins er til marks um uppsveiflu og vinsældir stök- unnar um þessar mundir og er það fagnaðarefni. Þorfinnur var- aði menn þó við að sofna á verðin- um: Hér þarf vilja og hug að sýna halda vökunni. Efla skal en ekki týna íslands stökunni. Kristján H. Benediktsson hef- ur alla tíð verið ötull liðsmaður íslands stökunnar. Hann sendi bréf á torgið með vísum úr ýms- um áttum, m.a. tvær vorvísur. Þá fyrri nefnir hann „Á slæmu vori“: 111 er tíð og enginn bati, alltaf þyngjast menn í spon drottinn er yíst ennþá krati ef hann ræður þessu vori. Þá síðari nefnir hann „Batn- andi tíð“: Gróa að nýju grös á-hól, góð er von um bata, glampar aftur geisli af sól, guð er laus við krata. Og enn um veðrið. Björn Þór- leifsson segir að blíðan sé aldrei meiri á Akureyri en í símtölum heimamanna við Sunnlendinga: Þar ilmar gróður grænna hlíða og glampar títt á lygnan sæ. Sunnanvindar, sól og blíða setja mark á þennan bæ. Björn heldur áfram og segir að Sunnlendingar leggi ekki allt- af trúnað á þessar veðurlýsingar. Þeir komi með mótbárur og aft- umaganda, þykist jafnvel hafa sannanir fyrir öðru. „En við vit- um ekki betur," segir hann: Menn eru að tala um fjúk og frost er framhjá djúpar lægðir sveima, sem okkur bjóði illan kost! - Aldrei þegar ég er heima. Jakob Jónsson hefur sjálfsagt ekið um í ijómablíðu þegar hann orti í Vatnsskarði á leið til Skaga- fjarðar: Beinakerling byggð úr steinum vænum býsna oft til samanburðar hvetur. Líttu á Drangey, drottninguna í sænum. Drottinn sjálfur gerir alltaf betur. Rúnari Kristjánssyni varð hinsvegar litið til himins í næstu vísu: Máni fuliur fer um loft, flestum þykir karlinn em þannig sést hann ekki oft, einu sinni mánuð hvem. Jóhann í Stapa gat ekki orða bundist vegna leikhússstjóra- vandræða Borgarleikhússins: A kröftunum ekki liggur liðið mér líst það mætti ofrausn kalla að Borgarleikhús setti á sviðið sjónleik fyrir þjóðina alla. í síðasta þætti skaut Friðrik því á Jóhannes Sigfússon Gunn- arsstöðum að hann væri Lang- nesingur og sagði umsjónar- manni að Jóhannes væri afar við- kvæmur fyrir því. Jóhannes svar- ar Friðrik: í lystisemdum lifi hér og leik við hvem minn fingur þakka Guði að ég er ekki Mývetningur. Jóhannes ljóðar svo á Árna Jónsson í Fremstafelli: Ámi í Felli yrkja kann, þó ekki á honum beri, ef sett er ögn af sykri í hann og svolítið af geri. í síðasta þætti var borinn fram vísir að hringhendu: Ungar snótir ennþá mér undir fótinn gefa Helgi Hafliðason er fyrstur til að botna: að mér hljóta’að halla sér, hugarrót mitt sefa. Þá tekur við Skúli Flosason Akureyri: Lífsins bót, það löngum er lofnar hót að sefa., Loks bótnar Þórarinn: Sú er bót að enginn er um þau hót að þrefa. Að lokum þakkar umsjónar- maður þeim sem lögðu leið sína á torgið og kastar fram fyrripart- inum: Trillukarlar saltan sjó sækja og þorskinn draga • Póstfang þáttaríns er: Vísnatorg/Morgunblaðinu, Krínglunni 1, 103 Reykjavík Netfang: pebl@mbl.is Yfir flúð- ir auðnu og meins „ÉG Á mér enga uppáhalds- stöku,“ segir Ragnar Ingi Aðal- steinsson sem er gestkomandi á Vísnatorgi að þessu sinni. „Mér detta þó í hug tvær vísur sem ég hef stundum farið með þegar ég hef talað um breiddina í íslenskri vís- nagerð. Það er annarsvegar svo- hljóðandi vísa eftir Sigurð Nor- dal: Yfir flúðir auðnu og meins elfur lífsins streymir. Sjaldan verður ósinn eins og uppsprettuna dreymir. Hin er eftir Hjálmar Frey- steinsson lækni. Hún er samin þegar auglýsingin „Sparið og notið Sparr“ gekk í eyrunum á manni í gamla daga: Ef þú vilt bera þitt barr best þér reynast mun að spara og nota Sparr í sperrur og einangrun. Það er til allt þarna á milli og mér þykir það allt skemmtilegt.“ Ragnar Ingi gaf út kennslu- bækur sem hann nefnir Suttung fyrir páskana og er ætluð til kennslu á bragfræði í grunnskól- um. „Ég byrjaði á bókinni í árs- byrjun 1994 og hef verið að dunda við hana mikið til síðan,“ segir hann. „Ég hef áður gefið út bragfræðibækur þannig að þessi uppsetnirig er árangur af langri þróun og tilraunum." Hann segist vonast til að bók- in fari sem víðast, enda fylgi henni leiðbeiningar fyrir kenn- ara sem ættu að auðvelda þeim vinnuna. í lokin velur Ragnar Ingi svo sléttubandavísu úr bók- inni. Hann segir að nemendur geti farið svona með hana ef þeir eru í góðu skapi: Námið heillar, ekki er illa menntuð þjóðin. Klámið bönnum, hvergi hér hrakleg yrkjum ljóðin. Ef þeir séu hinsvegar orðnir leiðir í skapi geti þeir farið með hana aftur á bak: Ljóðin yrkjum hrakleg hér hvergi bönnum klámið. Þjóðin menntuð illa er ekki heillar námið. UTSOLUSTAÐIR SKÓRNIR FYRIR SUMARIÐ '96 Cortina Sport, Skólavörðustíg 20 R.R. skór, Kringlunni Smash, Kringlunni Verslunin 11, Laugavegi Sportbúð Kópavogs, Ham Sportbúð Óskars, Versl. Perfect,Akureyri Versl. Krummafótur, Egilsstöðum FILA FltA FILA FILA FILA FILA FILA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.