Morgunblaðið - 24.08.1991, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991
8 B
Samsýning sex lisfamanna
í nýja Vetrargarðinum
PERLUR í PERLUNNI
Óvenjulegt umhverfi gefur sumar-
sýningunni i Vetrargprði Perlunnar
skemmtilegan svip. Á myndinni má
sjá verk Sigurðar Örlygssonar í
forgrunni og lágmynd Huldu Hákon
í bakgrunni.
Fyrsta sumarsýningin í Vetrargarði Perlunnar sem opnuð var sam-
hliða vígslu útsýnishússins stendur nú yfir og eru þar sex listamenn
sem sýna verk sín á hliðum hitaveitugeymanna sem um leið eru
innveggir Vetrargarðsins. Listamennirnir sex sem taka þátt í þess-
ari sýningu eru þau Ingunn Benediktsdóttir glerlistamaður, Ása
Óla.fsdóttir veflistakona, málararnir Hulda Hákon, Jón Óskar, Sigurð-
ur Örlygsson og Ragnheiður Jónsdóttir grafíklistamaður.
Istuttu spjalli við einn af Iista-
mönnunum, Ingunni Bene-
diktsdóttur, kom fram að veit-
ingastjóri Perlunnar, Bjami I. Árna-
son, hafi boðið sexmenningunum
að verða fyrstir til að sýna í þessu
skemmtilega húsnæði og jafnframt
óskað eftir því að sýningin væri
fjölbreytt og sýndi ólíkar greinar
innan myndlistarinnar. Ekki verður
annað sagt en það hafí tekist því
verkin eru ólík en eiga þó það sam-
eiginlegt að vera stór og grípandi,
enda rýmið óhemjustórt og hátt til
lofts og hætt við að litlar myndir
hyrfu í skuggann fyrir gljáandi
tönkunum og langvöxnum hita-
beltistrjám. Engu að síður er ljóst
að frá upphafi hefur verið gert ráð
fyrir myndverkum í þessu rými þar
sem innveggir tankanna eru sérút-
búnir svo hengja megi á þá lista-
verk og ljósabúnaði þannig komið
fyrir að veita megi birtu á þau.
Þegar gengið er inn um aðaldyrn-
ar í Vetrargarðinn blasir við fram-
lag Sigurðar Örlygssonar til sýning-
arinnar, stórt málverk sem reyndar
brýtur af sér lögmál málverksins
’pví skúlptúrar gera þar vart við
sig; eitt af þeim verkum sem Sig-
urður hefur vakið athygli fyrir á
undanförnum árum þar sem hann
er óhræddur við að leggja undir sig
stóra fleti, stærri en svo að stofu-
veggir landans taki við þeim. En
þarna nýtur verkið sín vel.
Ása Olafsdóttir sýnir þijú vef-
listaverk, Litbrigði, Sólarmegin og
Þurrkur. Ása hefur um árabil verið
meðal okkar fremstu veflista-
manna, hún hefur haldið á annan
tug samsýninga frá .1981 og tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Næstur verður fyrir Jón
Óskar sem sýnir eitt þeirra verka
sinna sem unnið er í vax og lit;
tækni sem hann hefur vakið hvað
mesta athygli fyrir á undanförnum
árum. Hulda Hákon sýnir tvö verk,
samsettar lágmyndir unnar í tré,'
og Ragheiður Jónsdóttir sýnir þrjú
grafíkverk. Ingunn Benediktsdóttir
á þrjár seríur glerlistaverka, sem
sett eru saman úr munnblásnu
steindu gleri sem síðan er blýlagt
eftir kúnstarinnar reglum.
Það er nánast óþarft að tíunda
feril þessara ágætu listamanna svo
gott orð sem þeir hafa getið sér
hver á sínu sviði á undanförnum
árum. Salarkynnin í Vetrargarðin-
um ættu þó að gefa áhorfendum
tækifæri til að skoða verkin frá
fersku sjónarhomi því það er ekki
oft sem tækifæri gefst til skoða
listaverk frá jafnmörgum hliðum,
ofan jafnt sem neðanfrá, og gefur
þetta rými sýningunni og verkunum
sjálfum óvenjulegan og skemmti-
legan svip. Áð sögn aðstandenda
sýningarinnar virðast margir gesta
Perlunnar ekki hafa áttað sig fylli-
lega á því að hér væri um sýningu
Moigunblaðið/Einar Falur
að ræða, þar sem verkin virðast
eiga ágætlega heima í þessu um-
hverfi og er því ástæða til að hvetja
áhugasama til að skoða sýninguna
áður en henni lýkur í lok september.
hs
MYNDLISTAR
HÁTÍÐ í NÝBORG
Þórdís Alda Sigurðardóttir innan um ísetningarverk sitt Heimur fullur af brauði, sem hún sýnir á myndlistarhátíð
í Nýborg í Danmörku.
Þrír íslenskir myndlistarmenn
taka þátt í Myndlistarhátíð sem
nú stendur yfir í Nýborg á Fjóni
í Danmörku. Þetta eru þau Grím-
ur Marínó Steindórsson og Þór-
dis Alda Sigurðardóttir sem sýna
skúlptúra og Jón Baldvinsson
sem sýnir málverk.
Hátíðin stendur út ágústmán-
uð en myndlistarmennimir
þrír eru komnir aftur til
íslands eftir að hafa tekið þátt í
undirbúningi að hátíðinni og fylgst
með opnun hennar. Þórdís Alda
sagði í samtali við Morgunblaðið
Vað tvö ár væru liðin frá því að hug-
mynd þessi hefði fæðst hjá mynd-
listarmönnum í Nýborg og hefði
félag myndlistarmanna þar í bæ
haft veg og vanda af undirbúningn-
um með dyggum stuðningi bæjaryf-
irvalda.
Þórdís sagði að skipulag allt hefði
verið til hinnar mestu fyrirmyndar
og gætu íslendingar margt lært af
þessu dæmi Dananna þar sem
myndlistarmennirnir hefðu séð um
framkvæmdahliðina en bæjaryfir-
völd tekið að sér fjármögnun og
<kostnaðarhliðina. „Ferðamálayfir-
völd bæjarins tóku síðan að sér alla
kynningar- og útgáfustarfsemi fyrir
hátíðina svo þama lögðust allir á
eitt og vafalaust hagnast bæjarfé-
lagið á þessu þar sem hátíðin verð-
ur til þess að fleiri ferðamenn en
ella staldra við í bænum, en Nýborg
er feijustaður við Stórabelti svo
gegnumstreymi ferðafólks er mikið
um bæinn,“ sagði Þórdís.
Ekki hafði Þórdís tölu á fjölda
þátttakenda í hátíðinni en auk
heimamanna og danskra lista-
manna var listamönnum frá ýmsum
löndum boðið til þátttöku svo þeir
skiptu nokkrum tugum. „Sambandi
íslenskra myndlistannanna barst
bréf þar sem íslenskum myndlistar-
mönnum var boðið að sækja um
þátttöku og síðan voru þátttakend-
ur frá hveiju landi valdir af sér-
stakri dómnefnd hátíðarinnar."
Þórdís sagði að þátttakendúr
væru blandaður hópur atvinnu-
manna í myndlist og áhugafólks
úr röðum heimamanna. „Það var
litið svo á að þarna gæfist ungum
og upprennandi myndlistarmönnum
spennandi tækifæri til að kynnast
atvinnumönnum víða að og taka
þátt í hátíðinni með þekktum og
Skúlptúrar í stál og brons sem Grím-
ur Marínó Steindórsson sýnir í Ný-
borg.
gamalgrónum listamönnum. Sýn-
ingarstaðir eru dreifðir um allan
bæinn, bæði utan og innan dyra svo
segja má að bærinn sé allur undir-
lagður af hátíðinni þennan mánuð.
Þarna lögðust allir á eitt, fyrirtæki
og opinberir aðilar og mér fannst
sérstaklega ánægjulegt að sjá
hvernig svona samvinna getur átt
sér stað með svo góðum árangri.
Ég er sannfærð um að þetta hefði
ekki verið framkvæmanlegt nema
fyrir ákveðni og jákvæðni bæjaryf-
irvaldanna. Það má kannski nefna
nýafstaðna listahátíð í Hafnarfirði
sem sambærilegt framtak af hálfu
sveitarfélags utan Reykjavíkur hér
á íslandi.“
Þórdís sagði að í lok ágúst yrði
haldið uppboð á öllum listaverkun-
um sem á hátíðinni væru og gengi
hluti andvirðis þeirra upp í kostnað
vegna sýningarinnar verkanna á
hátíðinni „og ef verkin seljast spar-
ast flutningskostnaðurinn heim aft-
ur auk þess sem allir fá eitthvað
fyrir sinn snúð“.
hs