Morgunblaðið - 24.02.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
59
Skákskýringar/Bragi Kristjánsson og Karl Þorsteins
Jóhann hélt uppi heiðri
íslendinga í 5. umferð
JÓHANN Hjartarson hélt uppi
merki landans í 5. umferð IBM—
skákmótsins i gær með því að
vinna Viktor Kortsnoj glæsilega
í 46 leikjum. Sú skák yljaði áhorf-
endum á Hótel Loftleiðum sem
rétt áður höfðu séð Helga Ólafs-
son bíða lægri hlut fyrir Nigel
Short sem þar með fékk sinn 5.
vinning í röð og hefur unnið all-
ar sínar skákir til þessa. Margeir
Pétursson átti sennilega tapaða
biðskák gegn Jan Timman, en
Jón L. Árnason og Lajos Portisch
gerðu stutt jafntefli, enda sjálf-
sag^t hvorugur í vígahug eftir
slæm töp í 4. umferð.
Lengi vel voru áhorfendur ekki
bjartsýnir fyrir hönd Jóhanns Hjart-
arsonar í viðureign hans við
Kortsnoj. Kortsnoj beitti bogo-
indverskri vöm og Jóhann virtist
fá lakara tafl út úr byijuninni.
Honum tókst þó að opna taflið og
þegar Korstnoj lék ónákvæmt var
Jóhann skyndilega kominn með
sóknarfæri. í skákskýringarsalnum
léku allir á als oddi því það var
alveg sama hvaða leiðir vom skoð-
aðar, allar leiddu þær til vinnings
fyrir Jóhann. „Nú hlýtur hann að
rétta fram spaðann“ — „Spjaldið
Morgunblaðið/Bára
Jóhann Hjartarson rak af sér
slyðruorðið og vann sjálfan
Kortsnoj í 5. umferð IBM-skák-
mótsins í gær.
hlýtur að fara að koma upp,“ sögðu
menn og áttu þá við spjaldið á vegg-
taflið sem tilkynnti að hvftur ynni.
Kortsnoj þráaðist þó aðeins við en
þegar hann hafði tapað manni og
peðstap í viðbót blasti við rétti hann
Jóhanni loks höndina.
Eftir skákina sátu Jóhann og
Kortsnoj í rúman klukkutíma og
fóm yfir skákina umkringdir ung-
um aðdáendum sem fá ekki á
hveijum degi tækifæri til að heyra
og sjá bestu taflmenn heims kafa
ofan í möguleika skáka sinna.
Önnur skák vakti einnig tals-
verða athygli, en sú var milli
Ljubojevic og Polugaevski. Þar vissi
í rauninni enginn hvað sneri upp
eða niður á skákinni. Áhorfendum
sýndist Ljúbojevic, sem hafði svart,
vera snemma kominn með gjörtap-
að tafl því menn Polugaevskis vom
komnir upp í borð og létu ófriðlega.
Ljúbojevic var þó á öðm máli og í
hliðarsal heyrðist hann halda því
fram að hann hefði unna stöðu.
Að minnsta kosti tókst honum að
flækja taflið og Polugaevski lenti
einnig í tímahraki. Þegar 45 leikj-
unum var lokið vissi í rauninni
enginn hvor hafði betri stöðu og
kannski hafa þeir þess vegna samið
um jafntefli. „Crazy position,"
(bijálæðisleg staða) sagði
Ljubojevic eftir skákina og strauk
á sér nefíð.
Helgi Ólafsson beitti Petroff-
vöm gegn Short, en það er fræg
jafnteflisbyijun. Short var þó ekk-
ert á að sætta sig við jafntefli og
Morgunblaðið/Einar Falur ,
Vangasvipurinn á Tal er óneitanlega myndrænn og meitlaður. Á
móti honum situr Agdestein hinn norski.
Helgi átti í vök að veijast allan
tímann. Helgi fór siðan út í enda-
tafl sem hann vonaði að endaði með
jafntefli en Short tefldi mjög vel
og þegar staða Helga var í raun
töpuð lék hann af sér heilum hrók
og gafst samstundis upp.
Jón L. og Portisch vom greini-
lega báðir miður sín eftir töp sín í
4. umferðinni. Jón hafði svart og
beitti drottningar-indverskri vöm
en eftir 15 leiki höfðu báðir fengið
nóg og sömdu um skiptan hlut.
Mikhail Tal fékk snemma betra
tafl út úr byijun skákar sinnar við
Simen Agdestein og í endatafli
hafði hann biskupaparið gegn bisk-
up oc riddara. Þegar skákin fór í
bið var Tal búinn að ná ógnandi
frípeði og virtist því standa til vinn-
ings, en Agdestein þóttist eiga
jafnteflismöguleika. Og galdramað-
urinn frá Riga virðist ekki hafa
fundið neina töfraþulu sem hann
taldi duga því hann bauð jafntefli
án þess að tefla frekar.
Síðasta skákin var síðan milli
Margeirs Péturssonar og Jan
Timmans. Timman beitti undarlegu
afbrigði af Sikileyjarvöm og tefli
skákina mjög frumlega. Þegar
skákin fór í bið hafði Margeir geficP^ '
drottningu sína fyrir hrók og ridd-
ara og eftir vonlitla baráttu í
biðskákinni gafst Margeir upp.
Ljubojevic gafst upp, því hann verð-
ur mát eftir 43. — gxf5 (43. —
Kg4, 44. Hg5). 44. Dxf5+ - Kh6,
45. Dg5.
Jóhann missti
af vinning
Jóhann Hjartarson yfírspilaði
norska stórmeistarann Simen
Agdestein eftir öllum listarinnar
reglum í byijun skákar þeirra í
þriðju umferð:
Jóhann lék 31. Rxa5?, en eftir
31. c4 - Rb4 (31. - Rc3, 32.
Dh7+ - Kb6?, 33. c5+ - dxc5,
34. dxc5+ — Ka6, 35. Dd3n----og
vinnur). 32. Dh7-I— Kb6, 33. Dxh5
hefði orðið fátt um vamir hjá Norð-
manninum.
Framhaldið varð:
31. - Df5!, 32. Dxf5 - exf5, 33.
c4 - Rxe3, 34. Kf2 - Rdl+, 35.
Ke2 - Rb2, 36. Ke3 - Kb6, 37.
Rb3 - Rxc4+, 38. Kf4 - c5, 39.
dxc5+ — dxc5, 40. Kxf5 — Re3+,
41. Ke4
Eða 41. Kg5 - Rxg2, 42. Kxh5
- Re3 og hótunin — Rfl ætti að
tryggja svarti jafntefli.
41. - Rxg2, 42. a5+ - Kb5, 43.
a6 — Kxa6, 44. Rxc5+ — Kb5,
45. Rd3 - h4!
Með þessum peðakaupum tiyggir
svartur sér jafntefli, því hann getur
alltaf fómað riddaranum fyrir
síðasta peð hvíts.
46. Re5 — hxg3, 47. hxg3 — Kc5,
48. Rxgl - Kd6, 49. Re5 - Re3,
60. Rf7+ — Ke7, 51. Kxe3 -
Kxf7, 52. Kf3 - Kg7, 53. Kg4
og keppendur sömdu um jafntefli.
Framhaldið gæti orðið 53. — Kg6,
54. Kf4 - Kf6, 55. g4 - Kg6, 56.
g5 - Kg7, 57. Kf5 - Kf7, 58. g6+
- Kg7, 59. Kg5 - Kg8, 60. Kh6
- Kh8, 61. g7+ - Kg8, 62. Kg6
patt.
Jóhann sigraði
Korchnoi!
Jóhann Hjartarson gerði sér lítið
fyrir í gærkvöldi og lagði Korchnoi
að velli í flókinni og skemmtilegri
skák. Byijunin gaf ekki tilefni til
bjartsýni fyrir Jóhann því með
svörtu taflmönnunum fékk
Korchnoi fmmkvæðið í sínar hend-
ur. Jóhann varðist hins vegar vel
og ginnti áskorandann gamla til að
opna kóngsstöðu sína og í fram-
haldinu kom hann illskeyttum hrók
í herbúðir Korchnoi. Korchnoi
missti mann og gaf taflið eftir 46
leiki.
Hvítt: Jóhann Hjartarson.
Svart: Viktor Korchnoi.
Bogo-indversk vöm.
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
Bb4+ 4. Rbd2 - b6 5. a3 - Bxd2+
6. Bxd2 — Bb7 7. Bg5 (Gagnmerk
nýjung sem Korchnoi kom fyrstur
með.) 7. - d6 8. e3 - Rbd7 9.
Bd3 - h6 10. Bh4 - g5 11. Bg3
— h5 12. h3 — Hg8 (A skákþingi
íslands 1986 varð áframhaldið í
skák Jóhanns Hjartarsonar og Jóns
L. Ámasonar 12. — h4 13. Bh2 —
Hg8 með óljósri stöðu.)13. De2 —
De7 14. e4 - h4 15. Bh2 - Rh5.
(Skemmtileg taflmennska. Svartur
beinir skeytum sínum að veikleikun-
um í hvítu stöðunni og undirbýr
stökk á f4.) 16. Rxh4 - gxh4 17.
Dxh5 — Df6! 18. e5 — dxe5 19.
dxe5 — Dg5 20. Dxg5 — Hxg5(-
Korchnoi hefur traust frumkvæði
fyrir peðið sem bætist brátt í sarp-
inn.) 21. Bfl - 0-0-0 22. f4 - Hg7
23. b4 - Bxg2 24. Hgl - Hdg8
25. Kf2 - Be4 26. Hxg7 - Hxg7
27. Ke3 - f5 28. exf6 - Rxf6 29.
Ha2 Bb7
30. c5!
(Stórsnjall leikur. Jóhanni var sann-
arlega ekki hugað líf í þessari stöðu
og síst eftir þennan leik. Leikurinn
er hins vegar stórsnjall, býður svarti
að opna b-línuna sem síðar reyndist
afdrífarrík ákvörðun.) 30. — bxc5?
31. bxc5 —Bd5 32. Hb2! (Hrókur-
inn á heima á opinni línu.) 32. —
Re4 33. Kd4 r Rg3 34. Bd3 -
Bg2 35. Ke5!(Á meðan Korchnoi
hefur leikið mönnum sínum ráð-
leysislega fram og til baka hefur
Jóhann virkjað lið sitt.) 35. —
Bxh3 36. c6! - Rh5? (Hinn af-
drífaríki afleikur. 36. — Bfl var
eini möguleikinn.) 37. Ba6+ —
Kd8 38. Hb8+ - Ke7 39. Hc8
(Skyndilega standa öll spjót á
Korchnoi og hann tapar a.m.k
manni.) 39. — Bg2 40. Hxc7+ —
Kd8 41. Hc8+ - Ke7 42. c7 -
Kd7 43. Hh8 - Kxc7 44. Hxh5 -
Kb6 45. Bc4 - Hc7 46. Bgl+ og
Korchnoi gafst upp í þessari von-
lausu stöðu.
Endataflsstund hjá
Korchnoi
Korchnoi er kunnur snillingur
hvað endatöfl varðar. Fræg er sag-
an er hann átti í einvígi við Karpov
um heimsmeistaratitilinn og ein
skákin fór í bið í flóknu hróksenda-
tafli. Aðstoðarmenn hans spurðu
hann þá í forundran hvor keppand-
inn stæði betur og með hneykslun-
arsvið gaf Korchnoi þeim þá
hæversku yfírlýsingu að staða sín
væri unnin!, enda vann hann skák-
ina af miklu öryggi.
í þriðju umferð fékk Timman að
reyna á snilligáfu Korchnoi, því upp
kom endatafl sem álitið var aðeins
betra hjá hvítum. Þegar komið er
til sögu hafa 34 leikir verið leiknir.
34. — a5! ( Njörvar hvítu peðin
niður á reitum samlitum biskupn-
um.) 35. g4 - f6 36. Ke3 - Kf7
37. Bc4 - Ke7 38. Kd4 - Kd6
39. Bb5 — e3 40. Kxe3 — Bg2
41. Kf4 - Bxh3 42. g5 - Ke7!
(Staðan krefst nákvæmrar talning-
ar. Eftir 42. — fxg5 43. Kxg5 —
Be6 44. Kxh4 - Bxb3 45. Kg3 -
Kc5 46. Kf3 - Kb4 47. Ke3 -
Bxa4 48. Kd2! heldur hvítur jafn-
tefli, þrátt fyrir að biskupinn falli
þvi kóngurinn tekur sér sæti í hom-
inu og verður ekki þaðan hrakinn,
eins og kunnugt er undir nafninu
“vitlausa homið“.)
43. gxf6 - Kxf6 44. Bc4 - Bc8
(Peðsendataflið eftir 44. — Be6 45.
Bxe6 — Kxe6 46. Kg4 — Ke5 47.
Kxh4 - Kd4 48. Kg4 - Kc3 49.
Kf3 - Kxb3 50. Ke3 - Kxa4 51.
Kd2 - Kb3 52. Kcl er jafntefli.)
45. Bd5? (Timman ákveður að sitja
á strák sínum uns skákin fer í bið
en það reynist afdrifaríkt. Ekki
verður betur séð en hvítur haldi
jafntefli með 45. b4! — axb4 46.
a5 - t.d. h3 47. Kg3 - Ke5 48.
a6 - Kd4 49. a7 - Bb7 50. Bb3
o.s.frv. ) 45. — h3 46. Bc4
(Biðleikur Timmans. Frípeð svarts
á h-línuninni hefur runnið fram og
líklegast er staða svarts nú
unnin.)46. — Ke7 47. Kg3 — Kd6
(Korchnoi undirbýr nú að heija á
hvítu peðin á drottningarvæng og
hvíti biskupinn á þar við ofurefli
að etja.) 48. b4 — axb4 49. Bb3 —
Kc5 50. Kh2 - Kb6 51. Kg3 -
Ka5 52. Bc2 - Be6 53. Kh2 -
Bd7 54. Bb3 - Kb6 55. Kg3 -
Kc5 56. Kh2 - Kd6 57. Kg3 -
Be6 58. Bc2 - Kc5 59. Bdl -
Kc4 60. Kh2 - Kc3 (Aldeilis frá-
bærar kóngstilfærslur. Svartur
hótar nú 61. — Kd2 og ýta síðan
b-peðinu áfram. Hvítur leikur því
a-peðinu áfram til að fá rými á a4
en þá kemur svarti kóngurinn ein-
faldlega til baka og hirðir hvíta
frelsingjann.) 61. a5 — Bc8 62.
Kg3 - Kd4 63. Bb3 - Kc5 64.
Ba4 - Be6 65. Kh2 - Kd6 66.
Kg3 - Kc7 67. Bc2 - Kc6 68.
Ba4+ - Kb7 69. Bb5 - b3 70.
Bd3 - b2 71. Kh2 - Kc6 72. Kg3
- Kc5 73. Kh2 - Bc8 74. Kg3 -
Kb4 og Timman gafst upp. Það
verður örugglega langt þangað til
hann hefur hugrekki á ný að beina
skák gegn Korchnoi í endatafl.
Short sigrar enn
Short heldur enn uppteknum
hætti og í gærkvöldi lagði hann
Helga Olafsson örugglega að velli
í 41. leik. Fyrir umferðina von^.
vangaveltur meðal gáranganna
hvort óslitin sigurganga enska stór-
meistarans yrði rofín af Helga sem
hafði gert jafntefli í öllum sínum
skákum, en það dugði ekki til. Helgi
beitti Petrov-vöm og fékk aðeins
þrengra tafl. Short tefldi áfram-
haldið hins vegar snilldarlega og
hagnýtti sér smávægilega veikleika
í svörtu stöðunni. Þegar Helgi gerði
þau mistök að skipta upp á drottn-
ingum varð ekki aftur snúið og
Short sigraði í endataflinu öragg-
lega.
Hvítt: Nigel Short.
Svart: Helgi Ólafsson.
Petrov-vöm.
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rf6 3. Rxe5
- d6 4. Rf3 - Rxe4 5. d4 - d5
6. Bd3 - Rc6 7. 0-0 Bg4 8. c4 -
Rf6 9. cxd5 - Bxf3 10. Dxf3 -
Dxd5 11. De2+ (Þannig hefur
Short teflt áður gegn Plaskett.
Hann minntist á slæma reynslu sína
af svörtu stöðunni því í þau fjögur
skipti sem hann hefur varið stöðuna
hefíir hann aðeins hlotið hálfan
vinning.) 11. — Be7 12. Bb5 —
Dd6 13. Rc3 - 0-0 14. Bxc6 -
bxc6 15. Hdl - Hfe8 16. Df3 -
Rd5 17. Rxd5 - Dxd5?
(Short taldi að staðan var einungis
jöfn eftir 17. — cxd5 því eini mögu-
leikinn að hagnýta sér örsmátt
framkvæðið væri í endataflinu.) ^
18.Dxd5 - cxd5 19. Bf4 — c6
(Svarta staðan er mjög erfið þvi
hvítur getur endurbætt stöðu
sina í rólegheitum án nokkurra
vandkvæða.) 20. Hacl — Hac8
21. Kf2 - f6 22. Hd3 - Kf7 23.
f3 - Bf8 24. ffl>3 - h5 (24. -
g5 var trúlega skárri möguleiki.)
25. h4 - He6 26. a4 - Ke8 27.
Hel - Hxel+ 28. Kxel - c5 29.
bxc5 — Bxc5 30. Hb7(Hvíta staðan
er nú unnin.)30. — Bd4 31. Kd2 —
Bb6 32. b4 - Hc4 33. Bd6 - g5
34. a5 — Bgl 35. hxg5 — hxg5
36. b5 - Ha4 37. a6 — Ha2+ 38.
Kd3 - Kd8 39. Bb8 - Ha3+ 40.
Kc2 — Ha5? (Styttir endalokin,
en staðan var töpuð.) 41. Bc7+
og svartur gafst upp.
Short hefur nú fengið fljúg-
andi start á helstu keppinauta
sína og virðist ekki líklegur til
að láta forystuna af hendi. ^ ,