Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
IBM-SKÁKMÓTIÐ
Svartir helgardagar hjá
-íslensku skákmönnunum
Morgunblaðið/Einar Falur
Jón L. Árnason og Jan Tínunan í upphafi skákar sinnar á sunnudag-
inn.
ÍSLENSKU skákmennirnir riðu
ekki feitum hesti frá 3. og 4.
umferð IBM skákmótsins sem
tefldar voru á Hotel Loftleiðum
um helgina. Helgi Ólafsson náði
bestum áragri þeirra, tveimur
jafnteflum, þar af var annað við
Margeir Pétursson. Jóhann
Hjartarson gerði jafntefli við
Agdestein en tapaði siðan fyrir
Ljubojevic sem fékk þar með sinn
fyrsta vinning á mótinu. Bæði
Jón L. Ámason og Margeir töp-
uðu siðan fyrir Nigel Short sem
þar með var kominn með 4 vinn-
inga eftir fjórar umferðir og
virðist illstöðvandi. Til að kóróna
ólukkuna féll Jón L. á tima i
skák sinni í 4. umferð við Tim-
man eftir að hafa misst af
öruggri mátleið i tímahraki.
3. umferð mótsins var tefld á
laugardaginn. Stysta skákin var
milli Sovétmannanna Polugaevski
og Tal, en þeir sömdu snemma um
jafntefli. Önnur jafntefli umferðar-
innar voru öllu hressilegri. Margeir
og Helgi börðust hart en sömdu að
lokum. Jóhann Hjartarson hafði
J* síðan yfírhöndina mest alla skák
sína við Simen Agdestein en óná-
kvæmur leikur, rétt áður en skákin
fór í bið, varð til þess að Agdestein
náði að halda jöfnu.
Ljubojvevic fékk 3. núllið sitt í
röð gegn Portisch, þegar hann of-
keyrði sig í sóknartilraunum, og
Short fékk þriðja vinninginn sinn í
röð, þegar Jón L. náði ekki að fylgja
sókn sinni nægilega vel eftir.
Heppnin sveik Timman síðan á
móti Kortsnoj því Kortsnoj tókst
að knýja fram vinning í jafnteflis-
legri stöðu.
Tvær skákir vöktu mesta athygli
í 4. umferðinni, sem tefld var á
sunnudaginn, endatóku þær lengst-
an tíma. Jón L. Ámason og Jan
Timman eyddu miklum tíma í byij-
un sinnar skákar. Þar var tefldur
spánskur leikur og Jón virtist fá
slæma stöðu snemma, lét meðal
annars loka riddara sinn inni á
kóngsvængnum. Jón undirbjó hins-
vegar sókn á drottningarvængnum,
en til að byija með leist áhorfendum
ekkert á. „Það er erfítt að tefla
sókn með enga menn,“ sagði Guð-
mundur Siguijónsson stórmeistari
í skákskýringarsalnum, og átti við
að menn Jóns voru flestir enn á
sínum upphafsreitum. En Jón hafði
á meðan verið að ryðja brautir fyr-
ir menn sína og skyndilega var
sóknin orðin ógnandi. Það var tíma-
hrakið hinsvegar líka hjá báðum
keppendunum, og undir lokin höfðu
starfsmenn ekki við að færa menn-
ina á veggtaflinu i skáksalnum. í
asanum missti Jón af öruggu máti
í tveimur leikjum, skömmu síðar lék
Timman biskup í dauðann, en þegar
Jón lét hann eiga sig náði Timman
að bjarga sér úr mesta vandanum.
Jón var þó skiptamun yfír á þeirri
stundu en lék þá af sér manni og
féll síðan á tíma þegar hann átti
einn leik eftir.
Þessi átök höfðu greinilega tekið
sinn toll af keppendunum. Jón L.
sat eftir niðurlútur en Timman
spratt upp og blés. Áhorfendur
hristu höfuðið og töluðu um heppni
Timmans en það kom síðan í ljós
að hann hafði einnig misst af einni
eða tveimur vinningsleiðum í has-
amum svo ef til vill var jafnt á
komið með þeim..
Hin skákin sem mesta athygli
vakti var skák Kortsnoj og Port-
isch. Portisch beitti Sikileyjarvöm
og Kortsnoj fór undarlega leið í
upphafí. Sumir sögðu að hann tefldi
teoríuna eins og Benóný Benedikts-
son og það virtist duga til að rugla
Portisch í ríminu. Kortsnoj náði
sókn og eftir 30 leiki hugsaði hann
sig lengi um. Þegar næsti leikur
kom átti Kortsnoj aðeins eftir um
5 mínútna umhugsunartíma og þar
sem eftir var af skákinni, 15 leikir,
lék hann nær viðstöðulaust. Port-
isch lék líka hratt, þótt hann ætti
rýmri tíma, til að gefa Kortsnoj
ekki færi á að hugsa í sínum tíma.
Portisch hefði þó betur hugsað sig
um ögn lengur því hann missti af
jafntefli á einum stað, og bölvaði
vitleysunni í sér á eftir. Kortsnoj
náði í staðinn mátsókn og þegar
einn leikur var í mát gafst Portisch
upp.
Short náði sínum 4. vinningi í
röð gegn Margeiri Péturssyni með
svörtu, en Margeir virtist aldrei ná
takti við skákina. Sama var að segja
um Jóhann Hjartarson gegn
Ljubojevic en eftir ónákvæma byij-
un lék Johann af sér manni og
gafst upp. Ljubojevic fékk þar sinn
fyrsta vinning á mótinu á fremur
ódýran hátt. Agdestein og Poluga-
evski sömdu síðan um jafntefli í
skák þar sem lengstaf hafði hallað
á Agdestein og Helgi og Tal sömu-
leiðis eftir stutta viðureign.
GSH
Sorglegur endir á
æsispennandi skák
Jón L. Amason hefur teflt af
mikilli hörku á IBM-skákmótinu,
þótt hann hafí oft teflt betur. And-
stæðingamir eru óvenjusterkir í
þessu móti og tímahrakið hefur
orðið Jóni dýrt. í þriðju umferð
hafnaði Jón jafnteflisleið gegn
Short, en tímahrakið varð honum
að falli í framhaldinu. I fjórðu um-
ferð tefldi Jón æsispennandi skák
við hollenska stórmeistarann, Jan
Timman. Jón tefldi byijunina óná-
kvæmt og neyddist til að fóma
manni. Hann lagði þó ekki árar í
bát, heldur flækti taflið eins og
hann gat og sótti að kóngi Tim-
mans. Hollendingurinn missti
þráðinn og Jón var kominn með
gjörunnið tafl þegar hann lék gróf-
lega af sér í heiftarlegu tímahraki.
Jón féll loks á tíma í 44. leik með
tapað tafl. Sannarlega spennandi
skák sem áhorfendur munu seint
gleyma.
Hvítt: Jón L. Árnason.
Svart: Jan Timman
Spænskur leikur
I. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - b5,
6. Bb3 - Bb7, 7. Hel - Bc5.
Timman velur mjög tvíeggjað
framhald. Öruggara er 7. — Be7,
8. c3 - d6, 9. h3 - 0-0, 10. d4 -
He8, 11. Rbd2 — Bf8, eins og Ka-
sparov og Karpov hafa teflt í
heimsmeistaraeinvígjum síðustu
8. c3 - d6,9. d4 - Bb6,10. a4 -
*
Þessi leikur gafst Jóni vel í skák
við nafna sinn Kristinsson á Helgar-
skákmóti í Hveragerði fyrir
skömmu. Skákfræðin mælti áður
með 10. Bg5 - h6, 11. Bh4 -
Dd7!?, 12. a4 - 0-0-0, 13. axb5 -
axb5, 14. Ra3 — g5, 15. Bg3 —
h5, 16. h4 - gxh4, 17. Bxh4 -
Hh6 með flókinni stöðu.
10. - h6, 11. Rh4!? -
Riddarinn gerir lítið gagn á h4
í framhaldi skákarinnar. Eðlilegra
virðist að leika 11. Ra3 o.s.frv.
II. - Re7!, 12. Dd3 -
Til greina kom 12. Rf5.
12. - Dd7, 13. h3 -
Kemur í veg fyrir 13. — Dg4.
13. — 0-0-0, 14. axb5 — axb5, 15.
Bxf7? -
Betra var að ljúka liðskipan með
15. Ra3 o.s.frv.
15. - Hhf8, 16. Bb3 - d5!
Timman reynir að opna taflið
fyrir biskupana á b7 og b6.
17. exd5 - e4,18. De2 - Hde8.
Svartur hótar að vinna riddarann
á h4 með 19. — g5, en það var
ekki hægt í stöðunni: 18. — g5, 19.
Rf3 — exf3, 20. Dxe7 o.s.frv.
19. c4!? -
Jón verður að bregða við skjótt,
ef ekki á illa að fara. Eftir skákina
töldu meistaramir, að 19. Ra3 —
g5, 20. Rxb5 — gxh4, 21. c4 —
e3!? væri mjög hagstætt svarti.
19. — bxc4, 20. Bxc4 —
20. Ba4 kom sterklega til greina.
20. - gS, 21. Ba6 - Bxa6, 22.
Dxa6+ — Kd8, 23. Da8+ — Dc8,
24. d6 - cxd6, 25. Da3 -
Jóni hefur tekist að rífa upp
svörtu kóngsstöðuna, en óvíst er
að hann fái nægar bætur fyrir ridd-
arann á h4.
25. — Dc6, 26. Be3 — gxh4.
Sennilega hefði 26. — Kd7!? ver-
ið erfíðari leikur fyrir Jón, t.d. 27.
Hcl — Ha8 o.s.frv.
27. Hcl - Dd7, 28. Db3 - Db7,
29. Rc3 - Rd7, 30. Rb5 - Rf5.
Eða 30. - Rc8, 31. Hxc8+ -
Dxc8, 32. Rxd6 (líklega er 32. Dd5
of mikið af því góða) 32. — Dc6,
33. Rxe8 og veik peð svarts gera
honum erfítt um vik.
31. Ra7! -
Skemmtilegur leikur, sem setur
Timman í mikinn vanda. Hótunin
er 32. Rc6+.
31. - Re7, 32. d5 - Rc5,
33. Bxc5?! -
Eftir 33. Hxc5 — dxc5, 34. Bxc5
á svartur mjög erfítt um vik, t.d.
33. - Hf6, 34. Db5 (ekki 34. d6 -
Hxd6, 35. Bxd6 — Bxf2+ ásamt
36. — Dxb3) o.s.frv.
33. - dxc5, 34. Hxc5 - Hxf2!
35. Khl -
Ekki gengur 35. Kxf2 — Bxc5+
ásamt 36. — Dxb3. Best.i möguleiki
hvíts var 35. Rc6+ — Rxc6, 36.
dxc6 með flókinni stöðu.
35. - Hef8, 36. d6? -
Betra var að leika 36. Hccl og
úrslitin em engan veginn ráðin.
36. - Hfl+, 37. Hxfl - Hxfl+,
38. Kh2 - Db8??
Timman á enn eftir 4 mínútur
og sér þó ekki 38. — Bxc5!!, 39.
dxe7+ — Ke8 og nú gengur 40. —
Dxb7 ekki vegna 40. Bgl+, 41.
Khl - Bf2+, 42. Kh2 - Bg3 mát.
39. De6! -
Hvítur á nú vinningsstöðu!
39. - Hf7!
40. Hf5? -
Hrókurinn er því miður áttavillt-
ur. Eftir 40. Hc8h— Dxc8 (40. —
Rxc8, 41. Rc6 mát) 41. dxe7+ —
Hxe7, 42. Dxc8 mát.
40. - Bc5!?
Örvæntingarleikur, sem óvænt
bjargar svarti.
41. Hxf7??? -
Jón er búinn að missa tökin á
stöðunni. Hann vinnur auðveldlega
eftir 41. Hxc5 o.s.frv.
41. — Dxd6+, 42. Dxd6 — Bxd6+,
43. Khl - e3, 44. Kgl? -
Eftir 44. Hf6 - Rf5, 45. Hxd6+
- Rxd6, 46. Rc6+ - Kd7, 47. Rd4
er skákin jafntefli.
44. — Bc5!
og Jón féll á tíma, en riddarinn
á a7 fellur vegna hótunarinnar 45.
— e2+ og hvíta staðan er töpuð.
Þriðja tap „Ljubo”
Ljubomir Ljubojevic, besti skák-
maður Júgóslava, hefur byijað
hörmulega á IBM-skákmótinu á
Hótel Loftleiðum. Hann tapaði
þrem fyrstu skákunum, og sýnir
það bestj hve mótið er geysilega
sterkt. I þriðju umferð tapaði
„Ljubo" fyrir ungverska stórmeist-
aranum Lajos Portisch:
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Ljubomir Ljubojevic
Drottningarindversk-vörn
I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. g3 -
Portisch hefur oft leikið 4. a3
með góðum árangri, m.a. er af-
brigðið 4. a3 — Bb7 5. Rc3 — d5
6. cxd5 — Rxdö 7. Dc2 runnið
undan rifjum hans. 4. — Ba6 5.
b3 - d5 6. cxd5 -
Hvítur getur einnig leikið hér 6.
Bg2!?, t.d. 6. - dxc4, 7. Re5 -
Bb4+, 8. Kfl - Bd6, (8. - c6, 9.
Rxc6 — Rxc6, 10. Bxc6+ — Ke7,
II. Bxa8 — Dxa8 með flókinni
stöðu) 9. Rxc4 — Rd5, 10. e4 —
Re7, 11. Bb2 - Rbc6, 12. Rd2 -
0-0, 13. Kgl - b5, 14. Re3 - f5,
15. exf5 — exf5, 16. a3 með flók-
inni stöðu (Burger — Margeir
Pétursson, Reykjavíkurskákmótið
1986).
6. — exd5, 7. Bg2 — Bb4+, 8. Bd2
- Bxd2+, 9. Dxd2!? -
Þennan nýja leik hefur Portisch
undirbúið fyrir skákina. í skákinni
van der Sterren-Ljubojevic, Sjáv-
arvík 1986, náði svartur betra tafli
eftir 9. Rbxd2 — 0-0, 10. 0-0 —
c5, 11. Re5?! (11. Hel) Rbd7, 12.
Rdf3 - Hc8, 13. Hcl - Rxe5, 14.
Rxe5 — Dd3, o.s.frv.
9. - 0-0, 10. 0-0 - He8, 11. Hel
- c5, 12. Rc3 — Rc6, 13. dxc5 —
bxc5, 14. Hacl - Hc8, 15. Rh4!
- d4, 16. Ra4 - c4, 17. Rc5 -
Eftir 17. bxc4 — Re5 hefur svart-
ur mikið spil.
17. - c3, 18. Ddl - Db6, 19.
Rxa6 — Dxa6
Svarta drottningin hefur auga
með hvítu peðunum á a2 og e2, en
spumingin er, hvort það nægir til
að bæta upp veikleika peðanna á
c3 og d4.
20. Rf5 - He5
Svartur gat ekki valdað peðið á
d4 með 20. — Hcd8, 21. Bxc6 —
Dxc6, 22. Rxd4 - Db6, 23. e3
o.s.frv. Ekki gengur 20. — Dxa2,
21. Rd6 og vinnur skiptamun.
21. Rxd4 — Rxd4, 22. Dxd4 —
Hxe2, 23. Bh3 - Hxel+, 24.
Hxel - Hb8, 25. De5! -
Ekki 25. Dxc3 — Dxa2, 26. Hal
- Dxb3 o.s.frv.
25. - Hd8, 26. Dc7 -
Ekki gengur 26. Dxc3 — Dxa2,
27. Hal - De2, 28. Hxa7? - Hdl+,
29. Kg2 — De4+ og svartur vinnur.
26. - Dd3, 27. Bfl - Dd4, 28.
He3 - Rg4, 29. Hf3 - Re5, 30.
Hf4 -
Hvítur gat unnið peðið á c3 með
30. Hxc3, en hann langar fyrst til
að sjá, hvert svarta drottningin fer.
30. - Ddl
Eftir 30. - Dd5 eða 31. - Dd6
kemur 32. Dxc3 o.s.frv.
31. Dxe5 —
Portisch tekur riddarann
óhræddur, en eftir 31. Dxc3 hefur
hann peð yfír og vinningsstöðu.
31. - c2, 32. Dc7 - Hd7
Ekki 32. - clD, 33. Dxf7+ -
Kh8, 34. Df8+ og mátar.
33. Dc8+ - Hd8
Ljubojevic hefur ef til vill haldið,
að hann ætti þrátefli í þessari stöðu
vegna hótunarinnar 34. — clD.
34. Hc4!
Fallegur leikur, sem endanlega
kemur í veg fyrir að svarta c-peðið
komist upp í borð og verði að drottn-
ingu. Auðvitað ekki 34. — Hxc8,
35. Hxc8 mát.
34. - g6
Eða 34. - h6, 35. Dc6 - Dbl,
36. Hxc2 - Hdl, 37. Dc8+ -
Kh7, 38. Df5+ og hvítur vinnur.
35. Dc5! -
Hvíta drottningin valdar nú f8-
reitinn, en það ræður úrslitum í
skákinni.
35. - He8
Eða 35. - Dbl, 36. De7 - Ddl,
37. Hc7 — Hf8, 38. Dc5 ásamt 39.
Dxc2 og vinnur.
36. Da3 - Hel
Eftir 36. — Dbl, 37. Kg2 vinnur
hvítur, eða 36. — h5, 37. Db2 —
Hel, 38. Hc8+ og mátar.
37. Hc8+ - Kg7, 38. Df8+ -
Kf6, 39. Hc6+ - Kg5
Eða 39. - He6, 40. Dh8+ -
Kg5, 41. h4+ - Kh6, 42. Df8+ -
Kh5, 43. Hc5+ - Kg4, 44. Hg5+
- Kf3
45. Dxf7+ og hvítur vinnur létt.
40. h4+ - Kg4, 41. Hc4+ - Kh5,
42. Hc5+ - f5, 43. Hxf5+ og