Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
Ásgeir Bjarnason, formaður Búnaðarfélags íslands, flytur setningarræðu sina.
Nokkrir búnaðarþingsfulltrúar á setningarfundinum. Morgunbiaðia/Bjami
Búnaðarþing sett í gær:
Bændastéttín er í biðstöðu
og verður að þrauka um sinn
segir Asgeir Bjarnason formaður Búnaðarfélags Islands
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og Steinþór Gestsson á Hæli,
stjórnarmaður í Búnaðarfélagi íslands.
„HORFUR í landbúnaði eru ekki
góðar þó tíðarfarið hafi oftast
leikið við bændur að undanförnu,
eins og aðra landsmenn,“ sagði
Ásgeir Bjarnason, formaður
Búnaðarfélags íslands, meðal
annars í setningarræðu sinni við
upphaf 69. búnaðarþings í gær-
morgun. Viðstaddir setninguna
voru búnaðarþingsfulltrúar og
fjöldi gesta, meðal annars Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands,
ráðherrar og alþingismenn. Jón
Helgason landbúnaðarráðherra
flutti ávarp við setningarathöfn-
ina.
Þetta búnaðarþing er það fyrsta
á kjörtímabili núverandi búnaðar-
þingsfulltrúa. Þeir eru alls 25 úr
öllum landshlutum. Níu þeirra hafa
ekki setið búnaðarþing áður, þar
af 2 konur og er þær fyrstu konum-
ar sem kosnar em til setu á
búnaðarþingi. Áður hefur kona
setið þingið sem varamaður. Búnað-
arþing stendur venjulega í hálfan
mánuð. Fjallað er um ýmis land-
búnaðarmál, bæði í nefndum og á
i búnaðarþingsfundum. Fyrsta dag-
inn var til dæmis §öldi fmmvarpa
og þingsályktunartillagna, sem
liggja fyrir Alþingi, lagður fram. í
lok búnaðarþings verður kosin ný
stjóm fyrir félagið til flögurra ára.
Aðlögunin verði fram-
lengd til aldamóta
í setningarræðu sinni sagði Ás-
geir Bjamason frá stofnun Suður-
amtsins húss- og bústjómarfélags
árið 1837 en það var forveri Búnað-
GENGIS- SKRÁNING
Nr.36 - 23. febrúar 1987
Ein.Kl. 09.15 Kr. Kaup Kr. Sala Toll- gengi
Dollari 39,230 39,350 39,230
Stpund 60,257 60,442 60,552
Kan.doUari 29,528 29,619 29,295
Dðnskkr. 5,7062 5,7236 5,7840
Norekkr. 5,6272 5,6444 5,6393
Sœnskkr. 6,0517 8,6534 6,0702 6,0911
Fi.mark 8,6798 8,7236
Fr.franki 6,4613 6,4811 6,5547
Belg. franki 1,0387 1,0418 1,0566
Sr.franki 25,4245 25,5023 26,1185
HoILgyilini 19,0437 19,1019 19,4303 21,9223
V-þ. mark 21,5136 21,5794
ítlira 0,03025 0,03035 0,03076
Austurr. sch. 3,0597 3,0691 3,1141
Port escudo 0,2780 0,2789 0,2820
Sp.peseti 0,3054 0,3063 0,3086
Jap.yen 0,25552 0,25630 0,25972
Irsktpund 57,223 57,398 58,080
SDR (Sérst) 49,5656 49,7169 50,2120
ECU, Evrópum. 44,4084 44,5442 45,1263
arfélags íslands. í ár heldur
Búnaðarfélagið því upp á 150 ára
afmæli sitt. „Á þessum merku tíma-
mótum kemur það fram í huga
minn, hvort við höfum gengið til
góðs, götuna fram eftir veg. Þegar
ég lít til allra átta, lands og sjávar,
ber saman fortíð og nútíð, þá svara
ég þessari spumingu hiklaust ját-
andi,“ sagði Ásgeir. Nefndi hann
ýmis dæmi um þróun mála á liðnum
ámm, meðal annars löggjöf um
málefni landbúnaðarins.
„Bændastéttin er í biðstöðu og
verður að þrauka um sinn og sjá
til hvort það ástand sem nú ríkir,
lagast ekki bráðlega," sagði form-
aður Búnaðarfélagsins. Hann sagði
að sauðfjárræktin ætti við mikil
vandamál að etja. Innanlandssala á
dilkakjöti væri að dragast saman
og vandamál virtust vera hjá ullar-
verksmiðjunum að nota íslensku
ullina.
Ásgeir sagði að búvörulögin
hefðu verið umdeild en nauðsynleg,
því ófremdarástand ríkti nú í at-
vinnugreininni ef þau hefðu ekki
verið sett. Varðandi þann þátt
þeirra, sem snýr að búháttabreyt-
ingum og stuðningi við nýjar
búgreinar, sagði hann, að langan
tíma tæki að byggja upp ný bú og
koma þeim í arðsamt horf, hvort
sem það væru refa- og minkabú,
fiskeldi, ferðamannaþjónusta eða
eitthvað annað, og væri því nauð-
synlegt að lengja aðlögunartímann
myndarlega, og hafa hann til næstu
aldamóta.
Endurmenntunamefnd Há-
skóla íslands í samvinnu við
Félag viðskipta- og hagfræðinga
heldur stutt námskeið eða kynn-
ingu um tengsl upplýsingatækni
við stefnumótun fyrirtækja
fimmtudaginn 26. febrúar kl.
13.00 til 17.00.
Fyrirlesari verður Guðjón Guð-
mundsson cand. merc., en hann
rekur fyrirtækið Rekstrarráðgjöf
og er stundakennari við viðskipta-
deild Háskólans.
Á námskeiðinu verða kynnt eftir-
talin atriði: Hvað eru „strategisk"
kerfi? — Hver er munurinn á þeim
og hefðbundnum kerfum? — Hver
er árangur fyrirtækja af samhæf-
Árangnr í uppbyggingu
nýrra búgreina
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra ræddi meðal annars um
búvörulögin og búháttabreytingar í
ávarpi sínu. „Oflugur stuðningfur
við nýja atvinnustarfsemi í sveitum
skyldi koma í stað meira en hálfrar
aldar þróunar þegar bændastéttinni
fækkaði stöðugt," sagði Jón. Hann
ingu upplýsingatækni og stefnu-
mótunar og hvaða aðferðum getur
fyrirtæki beitt til að nýta sér þessa
tækni og þar með auka samkeppnis-
hæfni sína?
Námskeið þetta er fyrst og
fremst ætlað stjómendum fyrir-
tækja og stofnana og háskólamönn-
um sem vinna við hverskonar
stjómun, markaðsmál, starfs-
mannamál, fjármál, tölvumál
o.s.frv.
Skráning þátttakenda er á aðal-
skrifstofu Háskóla íslands og em
allar nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu endurmenntunarstjóra
Háskólans í Nóatúni 17.
(Fréttatílkynnmg.)
sagði að hin þrönga staða land-
búnaðarins hefði tafið fyrir nýrri
uppbyggingu en eigi að síður hefði
vemlegur árangur náðst. Nefndi
hann að undanfarin þijú ár hefði
ferðaþjónustubændum fjölgað um
meira en helming, refastofninn
tífaldast, minkastofninn tvöfaldast
og fiskeldi hefði bjargað stijálbýlu
byggðarlagi frá hmni. „Með tilliti
til þessarar reynslu hafa núverandi
stjómarflokkar samþykkt að beita
sér fyrir því að framlög ríkisins til
Framleiðnisjóðs haldi áfram eftir
1990, þegar núgildandi ákvæði laga
fellur úr gildi," sagði Jón.
Skipulagt átak til út-
rýming-ar riðuveiki
Jón sagði að verið væri að vinna
að öðmm tillögum sem hann hefði
lagt fram í ríkisstjóminni. Kvaðst
hann hafa gert tillögu um skipulagt
átak til útrýmingar riðuveiki á
næstu tveimur ámm. Einnig að
endurgreiddur verði meirihluti af
verðskerðingu innan búmarks á inn-
leggi kindakjöts á síðastliðnu
hausti. Væri verið að ljúka við að
ganga frá leiðréttingum og útreikn-
ingum á endurgreiðslum, þannig
að skerðing á búum innan við 200
ærgilda ffamleiðslu fari ekki yfír
5.000 krónur, 200-300 ærgilda bú-
um ekki yfir 7.500 kr. og á búum
með 300-400 ærgildi væri miðað
við 10.000 krónur. Samin hefði
verið viðbót við reglugerð um full-
virðisrétt á kindakjöti fyrir næsta
haust, á gmndvelli þeirrar reynslu
sem fengist hefði. Þar væri meðal
annars ákvæði um að úthluta
nokkmm viðbótarfullvirðisrétti til
þeirra sem verið hefðu að koma sér
upp bústofni á síðustu ámm. Aug-
ljóst væri að hlutur þeirra yrði að
vera sambærilegur við aðra.
Enga skerðingn í nýjum
búvörusamningum
Jón sagði: „Þá er nú verið að
semja til tveggja ára í viðbót við
Stéttarsamband bænda um afúrða-
magn á mjólk og kindakjöti. Slíkt
er nauðsynlegt til að bændur viti
hvaða lágmarkstryggingu þeir
muni fá á þeim ámm, þar sem þeg-
ar á komandi vori fara þeir að
leggja gmndvöll að framleiðslunni.
Ég hef lagt áherslu á að nú verði
Iagt til grandvallar við samnings-
gerðina sama sjónarmiðið og við
samniginn á síðastliðnu hausti, að
bændur fengju að jafnaði ekki minni
fullvirðisrétt og þeir fá á þessu verð-
lagsári. Með búvörasamningunum
og stjom mjólkurframleiðslunnar
hefur á skömmum tíma tekist að
ná viðundandi jafnvægi í mjólkur-
framleiðslunni. Mjólkurframleið-
endur hafa sér nú skýra fram-
leiðsluviðmiðun til þess að hagræða
framleiðslu og notkun aðfanga, með
þeim árangri að kjamfóðumotkun
hefur víða stórlega minnkað og
nýting heimafengis fóðurs batnað
að sama skapi. Bendir flest til þess
að afkoma mjólkurframleiðenda sé
betri en oft áður.“
Tónlistar-
hátíð NFS
í KVÖLD, þriðjudaginn 24. febr-
úar, heldur Nemendafélag
Fjölbrautaskóla Suðumesja tón-
listarhátíð í Stapa Njarðvíkum
og hefst hátíðin kl. 21.30.
Á tónlistarhátíðinni koma fram
hljómsveitimar Grafík, Ofris, Rauð-
ir fletir og Bjöm Thoroddsen og co.
Á dagskránni verða einnig atriði frá
tónlistarskóla Keflavíkur og Sverrir
Stormsker kemur fram.
Vík í Mýrdal:
Formenn flokk-
anna á land-
bunaðarfundi
FORMENN stjómmálaflokkanna
hafa verið boðnir á almennan
fund um landbúnaðarmál, sem
Félag sauðfjárbænda í Vestur-
Skaftafellssýslu heldur í Vík
næstkomandi laugardag, 28. fe-
brúar.
Formennimir hafa þegið boðið,
nema Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sem verður erlendis. Fundurinn
verður haldinn í Leikskálum í Vík
og hefst klukkan 13.30
Kynning á tengslum
upplýsingatækni við
stefnumótun fyrirtækja