Morgunblaðið - 24.02.1987, Blaðsíða 29
35. þing Norðurlandaráðs:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
29
Umhverfismál til umræðu
Helsinki, frá Karli Blöndal, biaðamanni
UMHVERFISMÁL voru til um-
ræðu þegar þing Norðurlanda-
ráðs var sett í gær. Þingið hófst
á því að fluttar voru ræður og
fjölluðu ræðumenn meðal ann-
ars um þau vandræði sem seiir
hafa valdið undan ströndum
Noregs undanfarið en norskir
veiðimenn fá nú aðallega sel í
net sín, auk þess sem selurinn
gengur á fiskstofna við Noreg.
Mengun bar einnig á góma.
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sagði að aðeins rann-
sóknir og framfarir í tækni og
vísindum gætu bjargað umhverf-
inu frá mengunaráhrifum. „Slíku
verður að fylgja eftir með ströng-
um ákvæðum og samræmdum
reglum um hvemig eigi að koma
í veg fyrir áframhaldandi meng-
un.“ Carlsson sagði að umhverfís-
vandamálið væri vandamál alls
heimsins og gæti ekkert ríki skor-
ast undan. „Ekkert ríki getur
lokað landamæmm sínum, þannig
að hvorki mengað loft né mengað
vatn komist að eða komist hjá
afleiðingum efnaslysa." Fyrir
þinginu liggur tillaga um vamir
g&gn loftmengun.
Tillaga um samnor-
rænan kvikmyndasj óð
Helsinki, frá Karli Blöndal, blaðamanni Morgunbladsins.
Norðmenn vom bjartsýnir á að
Norðurlandaráð tæki vel í fyrir-
spum um hvort hefja mætti
selveiðar á nýjan leik þar sem
umræðu um þetta vandamál var
vel tekið. Eiður Guðnason, Al-
þýðuflokki, lýsti yfír stuðningi
sínum við tillögu Norðmanna og
sagði að innrás sela við Noreg
væri stórkostlegt umhverfís-
vandamál. Hann sagði að þetta
gæti hent aðrar fískveiðiþjóðir og
fiskistofna. Eiður sagði að hann
hefði verið gagnrýndur harkalega
þegar hann hefði talað um „vist-
fræðilega hryðjuverkamenn" á
fyrri Norðurlandaráðsþingum:
„Nú vil ég minna á að slíkir
hryðjuverkamenn sóttu íslend-
inga heim í haust og ollu miklu
tjóni. Þetta er vandamál sem vert
er að ræða áður en þeir láta aftur
til skarar skríða og enginn veit
hvar og hvenær það verður."
FYRIR ÞINGI Norðurlanda-
ráðs liggur tillaga um stofnun
samnorræns kvikmyndasjóðs
og er honum ætlað að styrkja
bæði verkefni í einstökum
Norðurlöndum og samnorræn
verkefni á sviði kvikmynda-
gerðar. Menningarmálanefnd
leggur tillöguna fram en for-
maður hennar er Eiður
Guðnason. Eiður hélt í gær
blaðamannafund um tillöguna
og kynnti þar meðal annars
hugmyndir um hvernig fjár-
magna ætti rekstur sjóðsins.
Hann sagði að KlSs Olafsson,
formaður sænsku kvikmynda-
gagnrýninnar, hefði lagt til að
fé af hagnaði Norræna fjár-
festingarbankans yrði veitt til
sjóðsins. Hefði Olafsson lagt til
að á þremur árum yrði safnað
um 150 milljónum sænskra
króna.
Eiður sagði í ræðu sinni á þing-
inu í gær að halda ætti áfram
Tele-X-áætluninni um norrænt
sjónvarpssamstarf. Rætt hefur
verið að sent verði út á tveimur
rásum. Ingvar Carlsson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, sagði að ekki
bæri lengur að tala um tvær rás-
ir heldur þyrfti fjórar til að vit
væri í slíku samstarfi um sjón-
varpsútsendingar.
Kalevi Sorsa, forsætisráðherra
Finnlands ávarpar þing Norð-
urlandaráðs í gær.
Bók-
mennta-
verðlaun
afhent
Helsinki, frá Karli Blöndal, blaðamanni
Morgunblaðsins.
HERBJÖRG Wassmo fékk í
gærkveldi afhent bók-
menntaverðlaun Norðurland-
aráðs í Finnlandia-höllinni í
Helsinki.
Wassmo fékk verðlaunin fyr-
ir bók sína Himinn án hörunds
(Hudlös Himmel). Bókin er
þriðja og síðasta bindi Wassmo
um þýska bamið Tora. Wassmo
hefur á nokkrum árum skapað
sér sess sem einn fremsti rithöf-
undur Norðmanna. Bækur
hennar hafa komið út á sænsku,
dönsku, finnsku, þýsku og hol-
lensku og hefur enginn af yngri
rithöfundum í Noregi náð slíkri
útbreiðslu.
Stúlku bjargað úr
klóm mannræningja
Wageningen, frá Eggert H. Kjartanssyni.fréttaritara Morgunblaðsins:
í GÆRDAG bjargaði hollenzka
lögreglan Valerie Albada Jel-
gersma, 10 ára stúlkubarni, úr
höndum sex mannræningja, sem
höfðu haldið henni í gíslingu í
12 daga.
Mannræningjamir sem rændu
Pinhas Epstein, bendir á John Demjanjuk f réttarsalnum og kveður
hann vera hinn illræmda Ivan grimma. -----------
Israel:
Eftirlifandi fórnar-
lamb Treblinka-búð-
anna þekkti Demianiuk
Jerúsalem. AP. Reuter.
EFTIRLIFANDI fórnarlamb úr
Treblinka-útrýmingarbúðunum í
Póllandi bar í gær kennsl á John
Demjanjuk í réttarsalnum í Jerú-
salem og kvað þar kominn hinn
illræmda fangavörð, sem þekkt-
ur var undir nafninu ívan
grimmi.
„Þetta er ívan grimmi, sem situr
þama,“ sagði Pinhas Epstein og
benti á Demjanjuk. Áður hafði hann
borið kennsl á mynd af ívani í
myndaalbúmi, sem fyrir hann var
lagt.
Sumir þeirra 500 áhorfenda, sem
fylgdust með réttarhaldinu, stóðu
upp og klöppuðu, eftir að Epstein
hafði bent á Demjanjuk. Dómarinn,
Dov Levin, áminnti þá alvarlega um
að láta ekki frekar til sín heyra.
Epstein er fyrsta fómarlamb Tre-
blinka-búðanna sem leitt er fram
sem vitni í réttarhöldunum. Hann
beygði nokkmm sinnum af, þegar
hann minntist vistar sinnar í búðun-
um, þar sem 850.000 gyðingar létu
lífíð í gasklefunum.
Árið 1978 bar Epstein kennsl á
mynd af Demjanjuk, og kvað hana
af Ivani grimma. Sú mynd var á
meðal annarra mynda í albúminu,
sem lagt var fram í réttinum í
gær. Epstein blaðaði í albúminu og
rétti dómurunum síðan myndina.
„Þessi mynd af Ivani grimma er
ekki sérstaklega skýr,“ sagði Ep-
stein. „Hún er af eldri manni en
þeim, sem ég þekkti. Engu að síður
er þetta Ivan grimmi eins og ég
man eftir honum, kringluleitt and-
lit, mjög stuttur hnakki, lítilega
framstæð eyru og breiðar axlir.“
Síðan benti hann á Demjanjuk.
Epstein, sem sjálfur er 62 ára
að aldri, giskaði á, að Ivan grimmi
hefði verið milli 22 og 25 ára gam-
all, þegar hann starfaði í Treblinka
á árunum 1942 og 43.
Epstein bað réttinn um að fá að
sitja, meðan hann bæri vitni, og
þegar hann minntist komu sinnar
til útrýmingarbúðanna í yfírfullri
járnbrautarlest, beygði hann af.
„Dymar voru opnaðar. Maður
heyrði hræðileg hróp og köll og
fólkið var rekið út úr vögnunum
með ógnarlegum barsmíðum,“
sagði Epstein, þagði við, þurrkaði
af gleraugunum og grét hljóðlega.
Dómarinn bað hann að halda áfram
frásögninni.
Epstein tókst að sleppa, þegar
uppreisn var gerð í Treblinka-
búðunum 3. ágúst 1943, en foreldr-
ar hans, tveir bræður og ein systir
létu þar lífið.
Demjanjuk hefur neitað öllum
þeim ásökunum, sem á hann eru
bomar. Hann segist aldrei hafa
verið í Treblinka og kveður ákær-
endur fara mannavillt.
Gengi gjaldmiðla
GENGI bandaríkjadollars hækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum, nema breska pundinu, á
gjaldeyrismörkuðum Evrópu í
gær. Verð á gulli hækkaði lítil-
lega.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,54 dollara (1,53), en
annars var gengi dollarans þannig
að fyrir hann fengust: 1,8300 vest-
Valerie úr íbúð foreldra hennar
höfðu krafízt fímm milljóna þýzkra
marka í lausnargjald af föður henn-
ar, Albada Jelgersma, sem er
framkvæmdastjóri Unigro, stórfyr-
irtækis í Hollandi.
Vegna þeirra miklu hættu, sem
Valerie var í, var þess gætt að eng-
ar upplýsingar bæmst fjölmiðlum.
Eftir að hafa fundið út á föstudag
í síðustu viku hvar Valerie var hald-
ið í gíslingu réðst lögreglan til
atlögu á sunnudag. Þegar lögreglan
fann stúlkuna lá hún uppi í rúmi
og var með snöm um hálsinn.
Lögreglan komst á sporið eftir
að hafa látið rekja símtöl mannræn-
ingjanna. Símtölin komu öll úr
héraðinu Brabant. í borginni Breda
sáust síðan tveir gmnsamlegir
menn í símaklefa og var ákveðið
að fylgja þeim eftir og hafa síðan
nánari gætur á íbúðinni, sem þeir
gengu inn í. Síðar kom í ljós að
þetta var íbúðin, sem Valerie var
haldið í gíslingu í.
Fjölskyldunni var gefíð tækifæri
til þess að fullvissa sig um að stúlk-
an væri á lífí áður en lausnargjaldið
yrði greitt. Þegar ljóst var að hún
var á lífí gerði lögreglan innrás í
íbúðina og frelsaði hana.
Pasternak
fær upp-
reisn æru
Moskvu, AP.
SOVÉZKA skáldið Boris Past-
ernak, sem lézt i ónáð eftir að
hafa verið rekinn úr sovézka rit-
höfundasambandinu, hefur nú
fengið inngöngu í það aftur, nú
þegar hann hefur legið í gröf
sinn í nærri 25 ár. Skýrði sovézka
fréttastofan TASS frá þessu í
gær. „Stjórn sovézka rithöfunda-
sambandsins hefur ógilt þá
ákvörðun, sem tekin var fyrir
30 árum, að reka Pasternak“
sagði í tilkynningu TASS.
Einvígi Karpovs og
Sokolovs á Spáni
London, AP.
ANATOLY Karpov, fyrrverandi heimsmeistari i skák og landi hans,
Sovétmaðurinn Andrei Sokolov, byrja í dag 16 skáka einvígi í bæn-
um Lineares á Suður-Spáni. Sigurvegarinn i þessu einvigi öðlast
rétt til að skora á heimsmeistarann, Garri Kasparov, i einvigi um
heimsmeistaratitilinn í haust.
ur-þýsk mörk (1,8250); 1,5467
svissneskir frankar ( 1,5422);
6,0900 franskir frankar ( 6,0625);
2,0665 hollensk gyllini ( 2,0610);
1.300,625 ítalskar límr (1.297,00);
1,3312 kanadískir dollarar (1,3310)
og 153,55 (153,55) japönsk jen.
Verð á gulli var 403,75 dollarar
únsan( 399,50).
Karpov, sem varð heimsmeistari
1975 og hélt titlinum í 10 ár, mun
vafalítið leggja allt kapp á að vinna
heimsmeistaratitilinn á ný, en hann
tapaði honum til Kasparovs í ein-
vígi þeirra haustið 1985. Sokolov,
sem er aðeins 23 ára gamall, er
12 ámm yngri. Frammistaða hans
undanfarin ár hefur vakið mikla
athygli og er hann nú þriðji stiga-
hæsti skákmeistari heims.
Sigurvegari í einvíginu nú verður
sá, sem fyrri verður til að fá 8 1/2
vinning. Verði keppendumir jafnir
með 8 vinninga hvor eftir 16 um-
ferðir, þá munu þeir tefla tvær
skákir til viðbótar og verði þeir þá
enn jafnir, sigrar sá, sem fyrri verð-
ur til þess að vinna skák.
Sérfræðingar hallast fremur að
því, að Karpov eigi eftir að sigra i
þessu einvígi sökum þeirrar miklu
reyslu, sem hann hefur fram yfír
Sokolov. Þannig hefur hann að baki
sér 96 einvígisskákir við Kasparov
og tvö einvígi 1978 og 1981 við
Victor Korchnoi, þar sem Karpov
sigraði í bæði skiptin og hélt heims-
meistaratitlinum.