Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 28
28______
Bretland
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
Þingmönnum neitað
um vegabréfsárit-
un til Sovétríkjanna
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞREMUR breskum þingmönnum
var neitað um vegabréfsáritun
til Sovétríkjanna sl. föstudag, og
gátu þeir því ekki flogið til
Moskvu.
Greville Janner, þingmaður
Verkamannaflokksins, Bane Teggy
Zia ul-Haq í Ind-
landsheimsókn:
Vill bæta
sambúðina
við Indveija
Jaipur, Indlandi. AP.
ÞRIGGJA daga heimsókn Zia
ul-Haq, forseta Pakistans, til Ind-
lands lauk í gær. Hann sagði, að
ferð sín hefði verið gagnleg og
kvaðst allur af vilja gerður til
að bæta sambúðina við Indveija.
„Ég ber fram ósk þar að lútandi
í auðmykt: Leysum ágreining okkar
eins og vinir,“ sagði hann, „það
ætti ekkert að vera því til fyrir-
stöðu.“
Zia mælti þessi orð á fundi með
fréttamönnum, áður en hann hélt
til Islamabad árdegis. Tilefni ferðar
hans var að fylgjast með landsleik
I krikketi milli Indlands og Pakist-
ans, en hann átti einnig fund með
Rajiv Gandhi forsætisráðherra í
Nýju Delhi.
Talsverð spenna hefur ríkt í sam-
búð landanna að undanförnu.
Fenner, fyrrum aðstoðarráðherra,
þingmaður íhaldsflokksins, og Ja-
mes Douglas-Hamilton, þingmaður
íhaldsflokksins, sitja í þingmanna-
nefnd, sem berst fyrir því, að
sovéskir gyðingar fái að flytjast úr
landi.
í gær áttu þremenningamir að
afhenda nokkmm sovéskum gyð-
ingum viðurkenningu í boði breska
sendiherrans í Moskvu. Sendiher-
rann tók að sér að afhenda hana í
fjarveru þingmannanna.
Breska stjórnin hefur ekki form-
lega mótmælt þessari ákvörðun
Sovétmanna, en hún gengur í þver-
öfuga átt við það, sem hefur verið
að gerast í Sovétríkjunum að und-
anfömu. Talsmaður breska utanrík-
isráðuneytisins sagðist hins vegar
harma, að þingmennirnir hefðu ekki
getað farið til Moskvu. „Við hljótum
að gera ráð fyrir, að hér hafi verið
um að ræða yfirvegaða ákvörðun
Sovétmanna, og hún sýnir, hve tak-
markað fijálsræðið er undir stjóm
Gorbachevs — að Sovétmenn skuli
ekki vera tilbúnir að taka á móti
gestum sem þessum."
Hann sagði, að breska utanríkis-
ráðuneytið hefði gert ítrekaðar
tilraunir til að fá vegabréfsáritun,
bæði í London og Moskvu.
Þingmennimir áttu að veita
nokkmm gyðingum, sem um langan
tíma hafa barist gegn stefnu stjóm-
valda, viðurkenningu. Þeirra á
meðal em Josef Begun, Ida Nudel
og Vladimir Slepak.
Bane Teggy sagði: „Ég varð fyr-
ir miklum vonbrigðum, því að ég
taldi, að ástandið í Sovétríkjunum
í þessum efnum færi batnandi. Ég
áleit, að þingmenn væm velkomnir.
Ég vona, að þetta sé aðeins lítið
skref aftur á bak.“
Reuter
Það vakti mikla athygli, er
ítalski fjármálaráðherrann,
Giovanni Goria og Carlo
Ciampi, seðlabankastjóri ít-
alíu fóru í fússi frá París.
Héldu þeir því fram, að meg-
inákvarðanir fundarins hefðu
verið teknar síðdegis á laug-
ardag, án þess að ítalir og
Kanadamenn hefðu verið
hafðir ineð i ráðum og tneð
því væri gengið á gefin loforð
um, að þeir yrðu hafðir með
í ráðum um aðalákvarðanir
fundarins. )>essi mynd var
tekin af Goria, er hann hélt
frá hóteli sínu í París heim á
leið.
Frá fundi fjármálaráðherra sex helztu iðnríkja heims í París um
helgina. Ráðherrarnir eru talið frá vinstri: Michael Wilson, Kanada,
Nigel Lawson, Bretlandi, Gerhardt Stoltenberg, Vestur-Þýzkalandi,
Edouard Balladur, Frakklandi, James Baker, Bandaríkjunum og
Kiichi Miyazawa, Japan.
Italir yfirgáfu Par-
ísarfundinn í fússi
Paría, Tókýó, Reuter, AP.
TALIÐ er, að með naumindum hafi tekizt að stöðva áframhaldandi
gengislækkun dollarans á fundi fimm helztu iðnríkja heims i París
um helgina. Sú skoðun er þó mjög útbreidd, að dollarinn muni senn
fara lækkandi á nýjan leik. Ákvörðun Brasilíumanna á föstudaginn
var um að hætta að greiða vexti af lánum hjá erlendum viðskipta-
bönkum og lítill hagvöxtur í Bandarikjunum muni að lokum hafa
þau áhrif, að dollarinn taki að lækka á ný.
Skuldir Brasilíumanna eru eink- Hins vegar var ekkert sagt um, til
um við bandaríska banka og hefur
þessi ákvörðun þeirra orðið til þess
að grafa enn undan trausti manna
á dollamum. Með samkomulagi
því, sem náðist á Parísarfundinum,
er þó talið, að dregið hafí vemlega
úr framboði dollarans og þá verð-
falli hans um leið. í yfirlýsingu, sem
gefin var út eftir fundinn, hétu sex
ríki, það er Bretland, Kanada,
Frakkland, Japan, Bandaríkin og
Vestur-Þýzkaland að vinna að því
í sameiningu að tryggja gengi
gjaldmiðla sinna eins og það er nú.
hvaða aðgerða skyldi gripið í þeim
tilgangi. Bæði Japanir og Vestur-
Þjóðveijar hétu því að auka eftir-
spurn innanlands hjá sér og
Bandaríkjamenn lýstu yfir þeim
ásetningi að draga úr viðskiptahalla
sínum við útlönd.
Hagtölur um viðskiptajöfnuð
Bandaríkjanna við útlönd í janúar-
mánuði verða birtar á föstudaginn
kemur og er þeirra nú beðið með
mikilli eftirvæntingu. Almennt er
búizt við, að þær muni sýna um 14
- 15 milljarða dollara halla.
Frakkland:
Leiðtogar hryðju-
verkasamtaka
teknir höndum
Frá Torfa Tulinius, fréttaritara Morgunblaðsins í París.
HRYÐJUVERKAMENNIRNIR, sem handteknir voru um helgina á
afskekktum bóndabæ um 100 km fyrir sunnan París, voru að sögn
lögreglunnar að undirbúa rán á þekktum Frakka með það fyrir
augum að skipta á honum og Régis Schleicher, félaga sínum, sem
bráðum verður leiddur fyrir rétt vegna morðs á tveimur lögreglu-
mönnum.
Handtaka þessi hefur að vonum
akið mikla athygli hér, þar sem lög-
reglunni hefur nú tekist að hafa
hendur í hári tveggja helstu höfuð-
paura samtakanna Action Directe,
sem staðið hafa fyrir um áttatíu
tilræðum sem framin hafa verið hér
á landi á undanförnum sjö árum.
Þau eru m.a. talin bera ábyrgð á
morðinu á Georges Besse, forstjóra
Renault-verksmiðjanna, sem veginn
var fyrir utan heimili sitt 17. nóv-
ember síðastliðinn.
Það var sérþjálfuð sveit lögreglu-
manna undir stjóm Ange Mancini,
lögregluforingja, sem umkringdi
hús hryðjuverkamannanna á laug-
ardagskvöldið. Ibúarnir urðu ekki
varir við neitt fyrr en of seint. Þann-
ig fór handtakan fram án blóðsút-
hellinga. Lögreglan var búin að
klófesta hjónin Jean-Marc Rouillan
og Nathalie Ménigon, en þau stofn-
uðu Action Directe árið 1979 en
hafa verið í felum síðan 1982, Jo-
elle Aubron, eiginkonu áðumefnds
Schleicher, og Georges Cipriani.
Taska Renault-
forstjórans
í húsinu, þar sem hjónin munu
hafa búið síðastliðin þijú ár, fund-
ust mörg vopn, en nú á eftir að
ganga úr skugga um það hvort eitt-
hvað af þessum vopnum eru þau
sem notuð voru í tilræðum Action
Directe. Einnig fundust skjöl sem
talið er að hafi verið í tösku Re-
nault-forstjórans kvöldið sem hann
var veginn, en hún hvarf á dularfull-
an hátt rétt eftir morðið. Konumar
tvær sem sáust skjóta á forstjórann
eru e.t.v. hinar sömu og handteknar
vom nú. Lögreglumennimir fundu
líka lista yfir þekkt fólk úr heimi
fjölmiðla, viðskipta og stjómmála
en hryðjuverkamennimir munu,
eins og fram hefur komið, hafa
haft í hyggju að ræna manni, e.t.v.
blaðakónginum Robert Hersant
sem nú er að fara að kaupa sér
sjónvarpsstöð. Rouillan mun hafa
sagt lögreglunni að þau væru búin
að innrétta eitt herbergið í húsinu
sem „alþýðudómstól" þar sem
Aðalleiðtogar hryðjuverkasamtakanna Action Directe, Jean-Marc Rouillan (t.v.) og Nathalie Menigon,
er handtekin voru sl. laugardag.
skyldi dæma gíslinn fyrir glæpi
gegn alþýðunni.
Nú gengur aðeins einn meðlimur
Action Directe laus, svo vitað sé,
en rúmlega fjörutíu sitja sinni. Sá
sem gengur laus heitir Max Frérot
og mun vera sprengjusérfræðingur
samtakanna. Lögreglan grunar
hann um að hafa komið sprengju
fyrir í bíl Alain Peyreefitte fyrrver-
andi dómsmálaráðherra en spreng-
ingin varð bifvélavirkja hans að
bana á síðastliðnu hausti.
Lögreglusveitimar hafa fengið
mikið lof fyrir frækilega framgöngu
í þessu máli. Þó hafa heyrst raddir
sem furða sig á því að fólk, sem.
yfírvöld hefðu lagt svo mikla
áherslu á að klófesta, skyldi hafa
getað búið óáreitt í þijú ár svona
stutt frá París. Ein ástæðan fyrir
þessu virðist vera að Rouillan og
Ménigon tókst að koma sér í mjúk-
inn hjá nágrönnum sínum, sem nú
eru allir sem steini lostnir eftir að
í ljós kom um hveija var að ræða.
Önnur ástæða er sú að í Frakk-
landi er sárasjaldan heitið verðlaun-
um fyrir upplýsingar sem kunna
að geta leitt til handtöku glæpa-
manna. Eftir morðið á Besse
forstjóra í haust var einmitt slíkum
verðlaunum heitið fyrir upplýsingar
sem kynnu að leiða til handtöku
Ménigon og Aubron. Einhver mun
hafa séð Nathalie Ménigon þegar
hún fór að versla á markaði í næstu
borg, látið lögregluna vita en hún
hefur síðan elt hana heim. Þá var
ekkert annað eftir en að setja verði
skammt frá húsinu og bíða eftir
því að fleiri hryðjuverkamenn bætt-
ust í hópinn til að ná sem flestum
í einni handtöku.
Náðun Mitterrands
Eins og áður sagði var Action
Directe stofnað 1979. Þá stóðu þau
fyrir sprengutilræðum. Árið 1980
var Rouillan tekinn fastur af lög-
reglunni ásamt konu sinni Ménigon.
Eftir að sósíalistar komust til valda
og Mitterrand var kjörinn forseti
náðaði hann samkvæmt venju hér
í Frakklandi stóran hóp af föngum.
í þeim hópi var Jean-Marc Rouillan,
en það var þrátt fyrir eindregin
mótmæli lögreglunnar. Um helgina
kvaddi Jacques Toubon sér hljóðs,
en hann er aðalritari RPR, flokks
Jacques Chirac, forsætisráðherra.
Hann sagði að ef sósíalistar hefðu
ekki náðað Rouillan á sínum tíma
væri Georges Besse, forstjóri Re-
nault, ennþá á lífi. Þessu hafa
sósíalistar mótmælt eindregið og
segja að þegar Rouillan var sleppt,
hafi aðstæður verið allt aðrar og
ekki fyrirsjáanlegt að svona myndi
fara.