Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 25
Hluthöfum fjölgað í Virki
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
25
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 20560
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100
Gert við
bundið
slitlag í
Borg’arnesi
ÞAÐ mæðir mikið á þeim
hluta gatnakerfis Borgarness
sem er hluti af hringveginum.
Þessi kafli nær frá Borgar-
fjarðarbrú að Hrafnakletti. Á
myndinni sést starfsmaður
Borgarneshrepps gera við
holur í slitlaginu.
Stefnt að aukningu
verkefna erlendis
HLUTAFÉ í Virkir hf. hefur
verið aukið til muna og hluthöf-
um fjölgað, en Virkir hf. hefur
á undanförnum árum mikið
starfað að verkefnum fyrir er-
lenda aðila. Þannig starfaði
fyrirtækið að verkefnum í
Kenya, Guinea Bissau, Grikk-
landi, Kína og í Tyrklandi á
síðasta ári og samfara stækkun-
inni er ætlunin að efla þessa
starfsemi til muna.
Við þessa stækkun hafa flestar
stærstu verkfræðistofur landsins og
nokkrir arkitektar sameinast um
það markmið að afla verkefna á
erlendum vettvangi og vinna sam-
eiginlega að verkefnum á þeim
sviðum sem íslenskir ráðgjafaverk-
fræðingar hafa mesta reynslu á,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu.
Fjöldi starfsmanna og og ein-
stakra sérfræðinga, sem standa að
baki Virki hf. eftir fjölgun, er yfir
300 manns, en til viðmiðunar má
geta þess að starfsmannaíj'öldi
verkfræðistofa í Félagi ráðgjafa-
verkfræðinga eru samtals um 340
manns. Meðal eigenda að Virki hf.
nú má nefna eftirfarandi aðila: Al-
menna verkfræðistofan, Arkitekta-
stofan, Fjarhitun, Hannarr, Hnit,
Hönnun, Línuhönnun, Rafagna-
tækni, Rafhönnun, Rafteikning,
stofnanir virðist hafa aukist um
rúmlega 34% frá ársbyijun til árs-
loka 1986. Á sama tíma jukust
heildarútlán sömu stofnana aðeins
um 18%. Rekja má þessa litlu aukn-
ingu útlána að nokkru leyti til
minnkandi birgða sjávarafurða, en
vegna þessa drógust afurðalán
saman um 1.500 milljónir króna.
Raunaukning innlána er ákaflega
mikil, eða um 17%. í krónum talið
hafa heildarinnlán vaxið umfram
heildarútlán um nálægt 5.000 millj-
ónir króna.
Grunnfé Seðlabanka er mæli-
kvarði á peningaþenslu, en það
ræðst öðru fremur af gjaldeyris-
forða og stöðu ríkissjóðs og lána-
stofnana gagnvart Seðlabanka.
Grunnfé Seðlabankans jókst um
33% í fyrra og má rekja alla aukn-
ingu til aukins gjaldeyrisforða, en
hann óx um 3.500 milljónir króna.
Gjaldeyrisforðinn svarar nú til
ríflega 4 mánaða almenns innflutn-
ings og hefur ekki verið meiri síðan
1973.
Þá segir í þjóðhagsspánni: „Góð-
æri og miklum vexti í efnahagslíf-
inu fylgir ávallt hætta á þenslu.
Þetta sýnir reynslan frá fyrri upp-
gangstímum, m.a. 1971-1974 og
1978-1978. Til þess að spoma við
þessari hættu er afar mikilvægt að
beita aðhaldi á sviði peningamála á
næstu mánuðum, jafnvel þótt það
kunni að leiða til einhverrar hækk-
unar á vöxtum. Mikilsverðara er
að halda aftur af aukningu útgjalda
þjóðarbúsins, og að peningastofn-
anir stuðli að því að tryggja áfram
viðunandi jafnvægi í viðskiptum við
útlönd."
Loks skal hér gripið niður í
skýrslu Þjóðhagsstofnunar, þar sem
fjallað er um erlendar skuldir. Þar
segir, að í árslok 1986 vom löng
erlend lán um 75 milljarðar króna
á meðalgengi ársins, eða sem svar-
ar til 51% af vergri landsfram-
leiðslu. Afborganir og vaxtagreiðsl-
ur á árinu námu um 12 milljörðum
króna og greiðslubyrði sem hlutfall
af útflutningstekjum var 19%. Þetta
em nokkm lægri tölur en fyrir árið
á undan. Nú er gert ráð fyrir, að
lántaka erlendis umfram afborganir
á þessu ári verði tæpir 2 milljarðar
króna og hlutfall langra erlendra
lána af landsframleiðslu verði í árs-
lok 1987 komið niður í 44%.
Morgunblaðið/Theodór
Reykir, Teiknistofan, Verkfræði-
stofa Jóhanns Indriðasonar, Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsens,
Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar,
Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar
og Vermir.
Stjóm Virkis skipa nú: Baldur
Líndal, formaður, Daði Ágústsson,
Guðmundur Bjömsson, Hreinn
Frímannsson, Karl Ómar Jónsson,
Pálmi R. Pálmason, Rúnár Sigm-
arsson, Dr. Stefán Amórsson og
Svavar Jónatansson.
töhmprentarar
if
1
\ TölvuprentararfráSTARstyðjaþig í starfi. Þeireru framleiddir
> af fagfólki, áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrval vandaðra
| leturgerða. STAR prentarartengjastöllum IBM PCtölvum og
; öðrum sambærilegum.
| Fyrir þig þarf leitin ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf.
; eigum við ekki bara rétta prentarann, heldur líka góð ráð. Nú er
| tíminn til að fullkomna tölvuumhverfið með góðum prentara
- STAR ER STERKUR LEIKUR.
Verð frá kr. 19.150.-
- og við bjóðum þér góð kjör.