Morgunblaðið - 24.02.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
Jarðskjálftarnir á Reykjanesi:
Þá lék allt á reiðiskjálfi
- segir Valgerður Hanna Jóhannsdóttir vitavörður
„ÞAÐ fylgir því mikið óöryggi
þegar jarðskjálftar ganga yfir,“
sagði Valgerður Hanna Jóhanns-
dóttir vitavörður á Reykjanes-
vita. „Maður missir eiginlega alla
öryggiskennd en svo voru þeir
orðnir svo tíðir og snarpir að
maður var aðeins farinn að venj-
ast þeim.“
Valgerður sagði að fyrstu kipp-
imir hefðu komið um klukkan eitt
eftir miðnætti aðfaramótt síðastlið-
ins sunnudags. Hrinan náði
hámarki um klukkan þrjú og lék
þá allt á reiðiskjálfi fram til klukk-
an fimm um morguninn er draga
tók úr jaðskjálftunum sem stóðu
fram til klukkan níu um morgun-
inn. „Okkur var ekki svefnsamt og
drifum okkur á fætur,“ sagði Val-
gerður. „Maður hefur það nefnilega
ekki á tilfínningunni að allt sé að
hrynja heldur fínnst manni að allt
séð að liðast í sundur þegar fer að
hringla í öllu innanstokks en svo
nær skynsemin yfirhöndinni og það
rifjast upp að húsið hefur áður stað-
ið af sér jarðskjálfta hrynur svipað-
ar þessari. Það er nú svo að við
finnum fyrir jarðskjálfta hér á
hveiju ári. Það koma svona tveir
til þrír kippir svo er það búið. Þann-
ig að við vitum hvemig þetta er en
undanfama tvo áratugi hafa
skjálftar sem þessir gengið yfir á
tíu ára fresti. Við áttum því von á
þessu einhvertíma og hálf kviðum
fyrir þeim.“
Upptök jarðskjálftanna á Reykjanesi
aðfararnótt sunnudags reykjavík
Garður
Hafnarfjörður
'25 km
Reykjanesviti er innan við 5 km radius frá upptökum jarðskjálf-
tanna við Reykjanestá.
Þrjár jarðskjálftahrin-
ur með 10 ára millibili
Óskar Aðalsteinn og Valgerður Hanna Jóhannsdóttir lýsa því hvern-
ig allt skalf og nötraði í húsi vitavarðarins.
AÐAL upptök jarðskjálftanna,
sem gengu yfir Reykjanesskaga
aðfararnótt síðastliðins sunnu-
dags, voru vestast á skaganum
að sögn Ragnars Stefánssonar
jarðskjálftafræðings. Tvisvar
áður, árin 1967 og 1977 hafa
orðið jarðskjálftar á nesinu af
svipuðum styrkleika og með upp-
tök á sömu slóðum.
„Þetta voru mjög sterkir kippir,
með upptökin aðallega við Reykja-
nestá, miðja vegu milli Eldeyjar og
lands en náðu einnig inn í land,“
sagði Ragnar. Um eitthundrað jarð-
skjálftar mældust í hrinunni og
voru flestir 2 stig eða meira á Rich-
ter-kvarða. Tveir til þrír kippir við
Reykjanestánna austanverða, voru
lang stærstir og mældust þeir um
4,5 stig. Jarðskjálftamir stóð fram
til klukkan átta á sunnudagsmorg-
un en síðan hefur orðið vart við
eðlilega eftirvirkanir. A sama tíma
mældust smá skjálftar í Henglinum
að _sögn Rgnars.
í jarðskjálftahrinunni árið 1967
áttu sér stað breytingar á jarð-
hitasvæðum en upptök skjálftanna
vour þá skammt norð austur af
Grindavík og fundust snörpustu
kippimir þar og í Reykjavík og
nágrenni. Tíu árum síðar varð
skjálftanna mest vart við Reykja-
nesvita og er haft eftir Bimi Kára
Bjömssyni vitaverði í samtali við
Morgunblaðið, að allt hefði dottið
niður úr hillum nema það sem hann
hafði sjálfur náð að taka niður.
Ekkert tjón varð þá á mannvirkjum
frekar en í síðustu hrynu.
Endurskoðuð þjóðhagsspá:
Kaupmáttur heiniila
aldrei verið meiri
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur, að
framleiðsla í útflutningsgreinum
hér á landi verði 5-6% meiri á
þessu ári en í fyrra. Þetta kemur
fram í endurskoðaðri þjóð-
hagsspá stofnunarinnar, þar sem
er að finna áætlanir um helstu
þjóðhagsstærðir á liðnu ári og
umfjöllun um efnahagshorfur á
árinu 1987. Greint var frá helstu
niðurstöður stofnunarinnar um
hagvöxt, viðskipti við útlönd,
verðbólgu og tekjur hér í blaðinu
á sunnudaginn.
í hinni nýju þjóðhagsspá er gert
ráð fyrir því, að hráolíuverð geti
farið upp undir 18 dollara hvert fat
á þessu ári. Svonefndir Libor-vextir
af dollaralánum eru taldir verða á
bilinu 6-6,5% að meðaltali. Raun-
vextir gætu hins vegar lækkað
nokkuð.
Útflutningsverð vöru mælt í
krónum hækkaði að meðaltali um
21% á síðasta ári, en innflutnings-
verð um 15%. Af einstökum vörum
má nefna, að verð á sjávarafurðum
hækkaði um rúmlega 23% að jafii-
aði. Afurðir frystingar hækkuðu
heldur meira, eða um 24-25%, og
saltfiskur um meira en 40%.. l hinn
bóginn hélst verð á loðnuafurðum
sem næst óbreytt. Alverð hækkaði
um 11% í krónum milli áranna 1985
og 1986, en verð á kísiljámi fór
hins vegar heldur lækkandi. Verð
á öðrum útflutningsvörum hækkaði
um 20% að meðaltali á síðasta ári,
fyrst og fremst vegna breytinga á
gengi erlendra mynta gagnvart
íslensku krónunni. Á innflutnings-
hlið gætti einkum tvenns konar
verðáhrifa: Annars vegar lækkaði
olíuverð um meira en 30% á árinu,
hins vegar hækkaði almennt inn-
flutningsverð mikið vegna lækkun-
ar á gengi Bandaríkjadollars.
Verð á sjávarafurðum erlendis
er talið hafa verið 7-8% hærra í
krónum talið nú um miðjan febrúar-
mánuð en í haust. Horfumar næstu
mánuði eru óvissar, en spáð er að
markaðsverð á sjávarafurðum verði
að jafnaði 12% hærra á árinu 1987
en 1 fyrra.
Útflutningsverð í heild er talið
geta hækkað um 10,5% að meðal-
tali milli áranna 1986 og 1987,
samanborið við 21% hækkun á
síðastliðnu ári. Innflutningsverð er
hins vegar talið hækka minna og
gæti hækkunin numið rúmlega
8,5% milli áranna 1986 og 1987.
Mikið launaskrið
Almennir kauptaxtar hækkuðu
um 25% frá upphafí til loka ársins
1986. Tekjur heimilanna hækkuðu
enn meira, fyrst og fremst vegna
áhrifa launaskriðs, sem virðist hafa
orðið mun meira en mörg undanfar-
in ár. Aftur á móti virðist vinnutími
hafa haldist að mestu óbreyttur frá
árinu 1985. Laun opinberra starfs-
manna virðast hafa hækkað meira
en annarra launþega á síðasta ári.
Að öliu samanlögðu má ætla, að
atvinnutekjur allra launþega hafí
hækkað um nálægt 35% á mann
að meðaltali milli áranna 1985 og
1986. Tekjur opinberra starfs-
manna eru taldar hafa hækkað um
37% á mann að jafnaði, tekjur físki-
manna um svipað hlutfall, en tekjur
annarra launþega um 33-34%.
Kaupmáttur tekna heimilanna árið
1986 er því talinn hafa verið rúm-
lega 11% hærri að meðaltali en
árið 1985 og því hærri en nokkru
sinni fyrr. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna er einnig talinn hafa aukist
mjög mikið á síðasta ári, en þó
heldur minna en kaupmáttur at-
vinnutekna vegna þyngri skatt-
byrði.
Horfur á árinu 1987 eru í nok-
kurri óvissu, þar sem enn er ósamið
við opinbera starfsmanna. Gert er
ráð fyrir því, að atvinnutekjur laun-
þega í landi verði að meðaltali
22-23% hærri á mann á þessu ári
en í fyrra. Tekjur fiskimanna eru
taldar hækka um svipað hlutfall.
Ráðstöfunartékjur heimilanna
hækka hins vegar heldur minna,
þrátt fyrir að skattbyrði beinna
skatta ríkisins lækki nokkuð frá því
í fyrra, þar sem útlit er fyrir, útsvar-
sálagning þyngist á þessu ári í
hlutfalli við tekjur heimilanna.
Miðað við óbreyttar gengisaf-
stöður hér innanlands frá því sem
nú er um miðjan febrúarmánuð og
að þeir kjarasamningar, sem enn
er ólokið, verði á svipuðum nótum
og desembersamningamir, er nú
spáð um 11-12% hækkun fram-
færsluvísitölunnar frá upphafi til
loka þessa árs. Meðalhækkunin
milli áranna 1986 og 1987 verður
þó heldur meiri, eða um 14,5%.
Kaupmáttur atvinnutekna heim-
ilanna gæti aukist um nær 7% á
mann að meðaltali milli áranna
1986 og 1987.
Árangri ekki fylgt næ-
iglega eftir
Þær verðlagshorfur, sem hér
hafa verið raktar, fela í sér lægstu
verðbólgutölur hér á landi í hálfan
annan áratug. Það hlýtur þó að
teljast nokkurt áhyggjuefni, að ekki
skuli takast að fylgja eftir þeim
árangri í verðlagsmálum, sem náð-
ist á árinu 1986, og ná fram enn
frekari lækkun verðbólgunnar á
þessu ári, ekki síst í ljósi áfram-
haldandi hagstæðra ytri skilyrða
þjóðarbúsins.
Eina breytingin, sem verður á
fyrri spám Þjóðhagsstofnunar um
þjóðarútgjöld, snýr að samneysl-
unni, útgjöldum ríkis og sveitarfé-
laga á árinu 1986. Þau útgjöld eru
nú talin hafa aukist heldur meira
en fyrr var gert ráð fyrir, eða um
tæplega 4% í stað 3% áður. Megin-
skýringin á þessu fráviki felst í
meiri launahækkunum hjá opin-
berum starfsmönnum en áður var
reiknað með. Þar gætir ekki síst
áhrifa sérkjarasamninga, sem erfítt
er að segja fyrir um með nokkurru
vissu.
Því er spáð, að einkaneysla heim-
ilanna muni á þessu ári aukast um
5% að meðaltali. Samneysluútgjöld
hins opinbera eru talin munu auk-
ast enn frekar á þessu ári. Á
grundvelli fjárlaga má ætla, að
samneysla ríkisins aukist um tæp-
lega 3% frá fyrra ári. Reikna má
með heldur meiri aukningu hjá
sveitarfélögunum.
Fjárfestingarhorfur á árinu 1987
eru um margt óvissar. Að vísu
liggja fyrir ákvarðanir stjómvalda,
sem fela í sér 8,5% aukningu í opin-
berum framkvæmdum frá fyrra
ári, eftir um þriðjungs samdrátt frá
1980. Hins vegar ríkir töluverð
óvissa um íbúðarbyggingar á þessu
ári. Spáð er 5% aukningu í fjárfest-
ingu í íbúðarhúsnæði í stað 10%
aukningar áður.
Hagstæð vöruskipti við
útlönd
Vöruskiptin við útlönd voru mjög
hagstæð árið 1986. Vöruútflutning-
ur nam tæplega 45 milljörðum
króna en innflutningur aðeins 41
milljarði. Það varð því um 4 millj-
arða afgangur af viðskiptum við
útlönd í fyrra, samanborið við jöfn-
uð árið 1985. Ástæðumar fyrir
þessum mikla afgangi em þijár. í
fyrsta lagi jókst framleiðsluverð-
mæti sjávarafurða mjög mikið
árinu. í öðm lagi gekk verulega á
birgðir sjávarafurða. í þriðja lagi
lækkaði olíureikningur þjóðarbúsins
mjög- mikið í kjölfar olíuverðslækk-
unarinnar eða úr 5,3 milljöðmm
króna árið 1985 í 3,7 milljarða árið
1986.
Þjónustuviðskipti, að vöxtum
frátöldum, em einnig talin hafa
verið mun hagstæðari í fyrra en
árið áður. Þjónustutekjur á árinu
öllu em áætlaðar 18,5 milljarðar
króna, en þjónustugjöld 16,1 millj-
arðar. Hagnaðurinn nemur því 2,5
milljörðum króna. Viðskiptin við
útlönd vom í heild hagstæð í fyrsta
sinn frá 1978. Það er mikilsverður
árangur, sem rekja má til einstak-
lega hagstæðs árferðis, einkum
hagstæðra ytri skilyrða, auk þess
sem veralega gekk á bigðir innan-
lands. Jákvæðir raunvextir hafa
einnig leitt til aukins spamaðar og
þar með dregið úr innflutningseftir-
spum.
Skipting þjóðartekna milli launa
og vergs rekstrarafgangs árin
1973-1987 sýnir, að hlutfall launá
hefur verið á bilinu 60-7=% allt
tímabilið. Árið 1982 var hlutur
launa 69%, en lækkaði á tveimur
ámm í 60%. Síðan hefur launahlut-
fallið farið hækkandi ár frá ári og
á þessu ári er gert ráð fyrir, að það
verði komið í 67% af afrakstri þjóð-
arframleiðslunnar.
19
Launahlutfallið gefur mikilvæga
vísbendingu um tekjuskiptinguna
milli launþega og fyrirtækja. Hækki
launahlutfallið gefur það að öllu
jöfnu til kynna, að launakostnaður
fyrirtækja hafi aukist og því má
jafnframt búast við meiri eftirspura
eftir vöram og þjónustu. Þessu er
öfugt farið, lækki launahlutfallið.
Innlán meiri en útlán
Um peningamál segir í þjóð-
hagsspánni, að innlán í innláns-