Morgunblaðið - 24.02.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
19
Stiórnun á hval- og selveiðum
eftir Önund
*
Asgeirsson
Selveiðar
Hrikalegar lýsingar berast nú
daglega í Qölmiðlum um ágang sela
við Norður-Noreg, þegar soltin dýr
bijótast fram og ráðast að helstu
fiskislóðum Norðmanna. Norskir
fiskimenn koma ekki niður netum
sínum, því þau fyllast af sel. Talið
er að liggi við landauðn í Norður-
Noregi vegna þessarar plágu.
Þetta mál er okkur ekki óviðkom-
andi. Þetta er bein afleiðing þeirrar
stefnu, sem náttúruvemdarfólk hef-
ir komið á með andmælum sínum
og áróðri gegn eðlilegri nýtingu
sels í norðurhöfum. Ástandið í Ný-
fundnalandi er víst síst betra. Hér
við land er staðan enn ekki eins
slæm, en enginn veit, hvenær sela-
vöður þessar berast hingað, en þá
mun stefna hér í mikið óefni.
Talið er að selur éti árlega hér
við land um 2 milljónir tonna af
físki, og hvalur annað eins. Til sam-
anburðar er, að við veiðum um eina
og hálfa milljón tonna af allskonar
físki á bestu veiðiárum. Það er því
kominn tími til að spurt sé: Höfum
við efni á að láta þessa hluti af-
skiptalausa? Eigum við nokkur
úrræði til að mæta þessum voða
og leysa vandann? Lausnin hlýtur
að liggja í betri stjómun og við
getum augljósiega ekki lengur flot-
ið sofandi að feigðarósi í þessum
málum.
Hvalveiðar
Mikil opinber umræða ver hér á
sl. hausti um hvalveiðar. Niðurstaða
hennar er sú, að íslendingar hafa
misstigið sig í málinu, þegar þeir
samþykktu svonefnt tilraunabann
við hvalveiðum, fram til 1990.
Nokkur úrlausn hefir fengist í því
máli, aðallega fyrir tilstuðlan
Bandaríkjastjómar, sem greiddi úr
málinu að verulegu leyti. Staðreynd
þessa máls er sú, að við höfum í
um 40 ár veitt um 350 hvali ár-
lega, án þess að gengið hafi verið
á stofnana, og hefir þannig haldist
eðlilegt jafnvægi í hvalastofnunum.
Nú hefir veiði þessi verið skorin
niður í 120 hvali á ári, og mun því
hvalastofninn fara ört vaxandi á
næstu ámm, vegna ónógrar grisj-
unar hans. Hér verður því til að
koma betri stjómun, og menn verða
að hyggja betur til framtíðar. Til
hvaða ráða skal grípa þegar til-
raunabanninu lýkur?
Pólverndarsvæði eða
pólsvæðisvernd
Grænfriðungar og svonefndir
náttúmvemdarmenn hafa fengið
að leika lausum hala með áróður
sinn fram að þessu. Augljóst ætti
þó að vera, að besta náttúmvemdin
er að halda uppi jaftivægi í náttúr-
unni, en ekki fara að þeirra ráðum,
og láta allt þróast stjómlaust. Það
er ekki selnum í hag, að fjölgunin
sé slík, að hann hafí ekki í sig, og
sé að því kominn að farast úr
hungri, og vöðumar verði að leita
í langferðir til fanga.
Ég tel því að eðlilegt sé að stofn-
að sé til mótvægis móti áróðri
gæmfriðunga með því að stofna til
samtaka landanna, sem umlykja
norðurpólinn, í því skyni að skipu-
leggja eðlilega nýtingu bæði dýra-
og fiskistofna á þessum slóðum.
Islendingar eiga hér að vera í farar-
broddi. Þeir eiga allt sitt undir því,
að gott skipulag sé á þessum mál-
um. Jákvætt framlag til þessara
mála gæti því verið, að Hafrann-
sóknarstofnun eða utanríkisráðu-
neytið í samráði við Hafrannsóknar-
Önundur Ásgeirsson
„Ég- tel því að eðlilegt
sé að stofnað sé til mót-
vægis móti áróðri
grænfriðung-a með því
að stofna til samtaka
landanna, sem umlykja
norðurpólinn, í því
skyni að skipuleggja
eðlilega nýtingu bæði
dýra- og fiskistofna á
þessum slóðum.“
stofnun boðaði til ráðstefnu um
þessi mál í þvi skyni að stofna til
samtaka þessara aðila, sem hefði
með höndum framtíðarstjóm allra
veiða á noðurpólssvæðinu öllu.
Þátttakendur slíkrar ráðstefnu, og
þeir, sem til hennar yrðu boðaðir,
væru væntanlega: Grænlendingar,
Islendingar, Færeyingar, Norð-
menn, Sovétríkin, Alaska og
Kanada, þar með talið Nýfundna-
land, sem eflaust ætti að eiga
sérstaka aðild, vegna sérstöðu þess
lands.
Samstaða þessara ríkja myndi
vera miklu áhrifameiri en þegar
einstök lönd eru að setja fram sér-
sjónarmið sín. Það getur verið
nokkuð erfitt að fínna þessari stofn-
un hentugt og lýsandi nafn á
íslensku, en enska heitið gæti t.d.
verið Polar Ecology Alliance, sjálf-
sagt skammstafað PEA, eins og
nú er háttur. Það myndi eflaust
ekki taka utanríkisráðuneytið nema
skamman tíma að ganga úr skugga
um vilja þessara þjóða til þátttöku
í ráðstefnunni, og þá væri bara að
hefjast handa.
Hafrannsókna-
stofnunin stjórni
Pólsvæðisvemdinni þyrfti að vera
stjómað af yfírvegaðri skynsemi.
Þess vegna væri eðlilegt, að
Hafrannsóknastofnun hefði þar
æðstu stjóm af íslands hálfu, og
fulltrúar íslands væm aðeins frá
þeirri stofnun, enda hefir hún alla
stjóm á öðram veiðiskap hérlendis,
að sjálfsögðu undir sjávarútvegs-
ráðherra. Það myndi strax og
fyrirsjáanlega spilla málinu að taka
aðra aðila inn í það. Hér dugir ekki
nein hálfvelgja, eða að menn hugsi
um þessi mál með hjartanu, eins
og oft vill verða, þegar um dýr er
að ræða.
Ég óska svo Pólvemdarstofnun-
inni góðs gengis, og legg málið í
dóm viðkomandi aðila.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
SIEMENS
Siwamat580þvotta-
vélin frá Siemens
fyrirvandláttfólk
• Frjálsthitaval.
• Áfangaþeytivinding fyrir allan
þvott, líka ull. Mesti vindu-
hraði: 1100 sn./mín.
•Sparnaðarkerfi þegar þvegið
eríhálffylltrivél.
•Skyndiþvottakerfi fyrir íþrótta-
föt, gestahandklæði og annað
sem lítið er búið að nota.
• Hagkvæmnihnappur til að
minnka hita og lengja þvotta-
tíma: Sparar rafmagn.
• Hægt er að fá þurrkara með
sama útliti til að setja ofan á
vélina.
•Allar leiðbeiningará íslensku.
Hjá SIEMENS eru gæði, ending
og fallegt útlit ávallt sett á
oddinn.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja
reglulega inn fé, nýjan tékkareikning sem sameinar
kosti veltureiknings og sparireiknings.
Launareikningur er með 4% lágmarksvöxtum, en
fari innstæðan yfir 12.000 krónur, reiknast 10% vextir
af því sem umfram er.
Dagvextir. í stað þess að reikna vexti af lægstu
innstæðu á 10 daga tímabili, eru reiknaðir vextir af
innstæðunni eins og hún er á hverjum degi.
Handhafar tékkareiknings geta breytt honum í
Launareikning án þess að skipta um reikningsnúmer.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á öllum
afgreiðslustöðum bankans.
ÍSUNDS
INNLÁNSVIf>SKIPTI - LKIÐ III. LÁNSVIOSKIPl'A
vis imuassa