Morgunblaðið - 24.02.1987, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1987
f
ÚRVALS
FILMUR
Kvnninaarverd
M Dreifing;
TOLVUSPIL
sími: 68-72-70
Nýtt stjórnmálafræðirit eftir dr. Hannes H. Gissurarson:
„Reyni að sætta fijáls-
lyndi og íhaldssemi“
KOMIN ER út í Bandaríkjunum
bókin Hayek’s Conservative Lib-
eralism eftir dr. Hannes Hólm-
stein Gissurarson, lektor í
Háskóla íslands og fram-
kvæmdastjóra Stofnunar Jóns
Þorlákssonar. Garland Publish-
ing í New York, sem sérhæfir
sig í útgáfu fræðirita fyrir há-
skólabókasöfn, gefur bókina út.
„í þessari bók reyni ég að sætta
frjálslyndi og íhaldssemi, ef svo
má að orði komast," sagði dr. Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson í samtali
við Morgunblaðið. „Meginuppistað-
an í henni er doktorsritgerð sú, sem
ég varði í stjómmálafræði við Ox-
ford-háskóla haustið 1985. Sú gáta,
sem ég glími við í bókinni er hvern-
ig maðurinn sjálfur geti hagnýtt sér
þekkingu, sem hann hafi ekki sjálf-
ur sem einstaklingur, heldur sé
fólginn í menningu okkar og skipu-
lagi. Ég leiði rök að því að nokkur
SAITKJÖTOG
BAIJNIR
Fáðu þér góða baunasúpu á
Sprengidaginn. Veldu þér gott hráefni.
Whitworths baunir gefa rétta bragðið.
Whitworths baunir,
gular og fallegar, viðurkennd gæðavara.
ES
KRISTJAN O.
SKAGFJÖRÐ HF.
Hólmaslóð 4, sími 24120, Rvk.
sannleikskjarni sé í þeirri virðingu,
sem íhaldsmenn beri gjaman fyrir
gömlum siðum og venjum, en gagn-
rýni þá fyrir að vilja ekki breyta
þeim, þegar breytinga er þörf.
Þekkingaröflun og þekkingarmiðl-
un verði við fijálsa þróun skipulags-
ins, þrotlausa tilraunastarfsemi
einstaklinganna."
„Ég held því fram, að ýmsir
kunnustu stjómmálahugsuðir Vest-
urlanda hafi fylgt því, sem ég kalla
fijálslynd íhaldsstefna, þar á meðal
þeir Adam Smith, David Hume,
Edmund Burke og Alexis de
Tocqueville, en ég vel þó einkum
kenningar Friedrichs von Hayeks
til viðmiðunar. Hayek hefur að
mínum dómi betmmbætt hina
gömlu kenningu um sjálfsprottið
skipulag og fært hana út á svið
siðferðis og laga með athyglisverð-
um hætti," sagði Hannes Hólm-
steinn.
„I fyrstu tveimur köflum bókar-
innar lýsi ég þessari fijálslyndu
íhaldsstefnu, en í tveimur síðari
köflunum ræði ég um ýmsar rök-
semdir, sem hugsa má sér gegn
henni," sagði Hannes Hólmsteinn
ennfremur. „Ihaldsmenn hafa til
dæmis allt frá dögum Hegels gagn-
rýnt fijálslynda menn fyrir að
aðhyllast skipulag, sem sé hlutlaust
í siðferðilegum efnum, en það bjóði
heim hættunni á rótleysi fjöldans
og siðferðilegri upplausn. Fijáls-
lyndir menn, svo sem Robbins
lávarður í Bretlandi, hafa hins veg-
ar gjarnan gagnrýnt íhaldsmenn
fyrir blinda fastheldni á foma siði,
sem leitt geti okkur í öngstræti
umhugsunarlauss vana. Ég reyni
að sýna, að frjálslyndir íhaldsmenn
geti svarað þessum röksemdum. I
því sambandi ræði ég meðal annars
um réttlætiskenningar markaðs-
hyggjumanna, sem eru ólíkar
kenningum Hayeks, og um sátt-
málakenningu James M. Buchanan,
sem fékk nóbelsverðlaunin í hag-
fræði á síðasta ári, en hún er um
margt athyglisverð."
„Eg ætlaði ekki að gefa þessa
bók út svo skömmu eftir doktors-
prófið," sagði Hannes Hólmsteinn
að lokum. „En fáeinum vikum eftir
Hvar þarftu
að dæla?
Hverju þarftu
að dæla?
Fjölbreyttar, öflug-
ar dælur til flestra
verka.
Réttu dælurnar frá
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGEP
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son með doktorsritgerð sína, sem
nú er komin út hjá Garland Publ-
ishing í New York.
að ég lauk doktorsprófi skrifaði
Garland Publishing mér og bauð
mér að gefa út bók upp úr ritgerð
minni, og mér fannst ég ekki geta
neitað þessu góða boði. Hvaðan
þeir höfðu vitneskju um hana veit
ég hins vegar ekki. Ég býst við,
án þess að ég sé viss um það, að
þetta rit mitt sé fyrsta fræðilega
ritið á sviði stjómmálafræði, sem
kemur út eftir Islending á ensku,
þótt nokkrir menn hafi birt styttri
ritgerðir og bókarkafla."
Þess má geta að bók Hannesar
Hólmsteins er til sölu í Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar í Austur-
stræti og Bóksölu stúdenta við
Hringbraut.
Brids
Arnór Ragnarsson
Úrslit í forkeppni
til landsliðsvals í
yngri f lokki spilara
Um síðustu helgi fór fram í Sig-
túni á vegum Bridssambands
íslands forkeppni til vals á iandsliði
í flokki yngri spilara, f. ’62 og
síðar. 18 pör mættu til leiks og var
spiluð Butler-tvímenningskeppni,
allir v/alla með 4 spilum milli para.
Urslit urðu:
Jakob Kristinsson
— Garðar Bjömsson
Akureyri/Rey kj avík
188-72 (plús 116)
Hrannar Erlingsson
— Ólafur Týr Guðjónsson
Reykjavík 190—106 (plús 84)
Ólafur Jónsson
— Steinar Jónsson
Siglufirði 179-110 (plús 69)
Kjartan Ingvarsson
— Siguijón H. Bjömsson
Laugarvatni 155—97 (plús 58)
Gylfí Gíslason
— Hermann Erlingsson
Reykjavík 157—122 (plús 35)
Guðmundur Auðunsson
— Eiríkur Hjaltason
Reykj avík/Kópavogi
154-127 (plús 27)
Baldvin Valdimarsson
— Steingrímur Gautur Pétursson
Reykjavík 133—108 (plús 25)
Júlíus Siguijónsson
— Matthías Þorvaldsson
Reykjavík 139—117 (plús 22)
Landsliðsnefnd mun á næstunni
velja nokkur pör úr báðum aldurs-
flokkum (’66 og síðar og ’82 og
síðar) til æfínga fyrir Norðurlanda-
mótið, sem haldið verður í Eyjafírði
í júní.
Nýtt símanúmer
í Sigtúni
Bridssamband íslands vekur at-
hygli á nýju símanúmeri í Sigtúni
9. Tvö númer em í húsnæðinu, það
eldra 91-689360 verður fyrir skrif-
stofu BSÍ eingöngu, en hið nýja
mun þjóna spilasal og annarri starf-
semi. Númerið er: 91-689361 (einn
hefur bæst við í lokin). Framvegis
á spilakvöldum mun nýja númerið
þjóna þörfum þeirra sem þurfa að
ná sambandi við Sigtún 9.