Morgunblaðið - 24.02.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1987
13
Slysakaflinn í Norðurárdal:
Óhugnanlegt
að eiga von á
slösuðu fólki
- segir Sverrir Guðmundsson í Hvammi
„VIÐ verðum fyrir talsverðu
ónæði af þessu sem búum á bæj-
unum næst veginum á þessum
slysakafla, því er ekki að neita,“
sagði Sverrir Guðmundsson
bóndi í Hvammi í Norðurárdal.
Sverrir vakti athygli á þessum
vegi í viðtali sem birtist hér í
blaðinu fyrr í vikunni. Þá kom
meðal annars fram hjá honum
að um 200 umferðaróhöpp hafa
orðið á þessum 18—20 km kafla
á rúmum tveimur árum.
Sverrir sagði að fólk sem lenti í
því að aka út af eða í öðrum um-
ferðaróhöppum kæmi heim á bæina
til að leita sér aðstoðar. „Manni
finnst óhugnanlegt að eiga alltaf
von á slösuðu fólki, hvenær sólar-
hringsins sem er og sorglegt að
horfa upp á hvemig fólkið stundum
er. Fyrir utan það er svo gífurlegt
eignatjón á bílunum. Þeir eru ófáir
bílarnir sem ég hef þurft að bjarga
upp á veginn hér í kringum mig á
undanförnum árum. Þetta á við um
fleiri staði, til dæmis var Aðalheiður
Þorsteinsdóttir á Hreimsstöðum
vakinn upp fjórum sinnum eina
nóttina í vetur vegna umferðar-
óhappa á veginum við bæinn,“ sagði
Sverrir.
Umræddur vegarkafli nær frá
enda bundna slitlagsins ofan við
bæinn Klettstíu og upp að Forna-
hvammi. Að sögn Sverris í Hvammi
eru verstu slysastaðimir þessir,
taldir í röð upp dalinn:
1. Beygjan á milli svokallaðs
Arnarbælis og Hreimsstaða. Þetta
er blindbeygja og er mikið um óhöpp
þar, sérstaklega í hálku á vetmm.
I vetur hafa orðið sérstaklega mörg
umferðaróhpp í þessari beygju.
2. I Melkorku, ofan við Dýra-
staði, er S-beygja, þar sem margir
bílar velta eða fara útaf veginum í
hálku, og þó sérstaklega lausamöl
á sumrin.
3. Slysum hefur fækkað mjög í
Hvammsleiti, neðan við Hvamm.
Þama var mjög blind beygja fyrir
fcHreðavatnsskáli
'BIFRÖSf/'
leitið en sprengt hefur verið úr leit-
inu og vegurinn lagaður.
Sverrir sagði að eftir að
Hvammsleitið var lagað væri eins
og slysin hefðu færst að næstu
beygjum, það er í Leitiskrók og
Litlaleiti, rétt neðan við Hvamm.
4. Næsti slysastaður er brúin á
Litluá, skammt fyrir ofan Hvamm.
Nokkuð krappar beyjur em að
brúnni og er bílunum ekið á hand-
rið brúarinnar beggja vegna. Um
daginn óku tveir bflar á brúna og
festist annar svo vegurinn lokaðist
um tíma. Stórir bílar komast ekki
inn á brúna vegna þess hvað krappt
er að henni og þurfa að fara yfír
ána á vaði fyrir neðan brúna.
Þess ber að geta hér að búið er
að bjóða út lagningu nýs vegar frá
Hvammsleitinu og að Sanddalsá.
Em þetta um 3 km og verður vegur-
inn lagður í vor og fyrri hluta
sumars. Lagast þá þessir verstu
slysastaðir vegarins, það er beygj-
urnar neðan við Hvamm og Litlaá,
þar sem ný brú kemur.
5. Við vegamótin hjá Króki hafa
margir bilar lent útaf á undanföm-
um mánuðum og ámm. Hæð og
beygja á veginum virkar eins og
gildra sem ökumenn falla oft í. Það
sem af er þessum mánuði hafa að
minnsta kosti 8 bílar farið þama
út af veginum.
6. A veginum þaðan og upp að
Fornahvammi hafa færri óhöpp
orðið en á hinum stöðunum, en þar
er þó alltaf töluvert um árekstra
og veltur, sérstaklega við þröng
ræsi. Það gildir um þann kafla eins
og flesta aðra slysastaði í Norður-
árdal að slysin verða vegna of hraðs
aksturs miðað við aðstæður, að
SUMARAÆTLUN 1987
.
■
■
APRÍL
APRÍL
MAÍ
ÁGUST
ÁGUST
ÁGUST
OKTÓBER
OKTÓBER
OKTÓBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l.
sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm
býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða
til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð.
Auðvitað er líka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fara
í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar-
innar. Benidorm er einn sóiríkasti staðurrnn á suðurströnd Spánar,
það mælast 306 sólardagar á ári.
Páskaferð — 2 vikur 15. apríl — Verð frá kr. 27.200.-
Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs-
ingunni. Við lánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust.
FERÐA.. Ceniccd
MIOSTOOIN Teoute
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK ■ S. 28133