Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 47 Becker frábær Tennisstjarnan Boris Bec- ker frá Vestur-Þýskalandi sigraði Mats Wilander, 1-6, 6-7 og 6-0, í úrslitaleik á unglingameistaramóti sem fram fór í Berlín á sunnudags- kvöld. Becker sýndi mikla yfirburði í úrslitaleiknum eins og tölurnar gefa til kynna. Boris Becker, sem er númer sex á listanum yfir bestu tenn- isleikara heims, var ekki í nokkrum vandræðum með Wilander, sem er í þriðja sæti á listanum. Mótið sem fram fór í Berlín var opið öllum yngri en 22 ára. Boris fékk í sigur- laun 30.000 dollara. „Ég náði að sýna góðan leik í dag og þetta er góð æfing fyrir mótið í New York, sem ég tek þátt í þessum mánuði. Þar mun ég sennilega mæta John McEnroe eða Ivan Lendl og verður það öllu erfiðara," sagði Beckereftir sigurinn. Noregsmeistararnir vilja fá Guðjón „Gott að breyta til,“ segir Guðjón Þórðarson ALLT bendir til þess að Guðjón Þórðarson, bakvörðurinn sterki frá Akranesi, gangi til liðs við Noregsmeistarana, Rosenborg, á næstunni. Guðjón hefur hug á að stunda nám auk þess að leggja stund á knattspyrnu og hafa for- ráðamenn Rosenborg þegar haft samband við hann og munu málin skýrast í lok vikunnar. Noregur virðist vera mikið gósenland fyrir íslenska knattspyrnumenn og er ekkert lát á brottflutningi þangað. Guðjón sagði í samtali við Morg- Enska bikarkeppnin: Chelsea og Liverpool mætast í 4. umferð I GÆR var dregið í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu. Manchester United, nú- verandi bikarmeistarar, drógust gegn Sunderland á útivelli, það er að segja ef þeir vinna Rochdale á heimavelli sínum. Stórleikur 4. umferðar verður viðureign Chelsea og Liverpool. Manchester United átti að leika gegn Rochdale á laugardaginn, en fresta varð þeim leik vegna ísingar á vellinum. Leikurinn á að fara fram á morgun, miðvikudag. Stórleikur 4. umferðar verður áreiðanlega viðureign Chelsea og Liverpool. Þessi tvö lið eru í þriðja og fjórða sæti ensku 1. deildarinn- ar. Þessi lið leika saman í 4. um- ferð: Sunderland-Man. Utd./Rochdale. York City-Birmingham/Altrincham. Manchester City-Watford. Everton-Nottingham Forest/Blackburn. Hull/Plymouth-Brighton. Middlesbrough/Southampton-Wigan. Sheffield United/Fulham-Gillingham/Derby. Portsmouth/Aston Villa-Millwall. Chelsea-Liverpool. West Ham-lpswich/Bradford City. Sheffield Wednesday/WBA-Oldham/Orient. Peterborough-Carlisie/QPR. Arsenal-Rotherham. Crystal Palace/Luton-Bristol Rovers. Huddersfield/Reading-Bury/Barnsley. Stoke/Notts County-Oxford/Tottenham. Fjórða umferð fer fram 25. jan- úar. unblaðið í gærkvöldi að hann hygðist fara til Noregs. „Ég hef lengi haft hug á að breyta til og ef þessi möguleiki er fyrir hendi, sleppi ég honum ekki. Ég hef leikið með Akranesliðinu í 13 ár og unnið til allra verðlauna sem hægt er. að vinna og flesta þeirra oftar en einu sinni og því er gott að breyta til, þó því fylgi alltaf viss söknuður. En við eigum mikið af ungum strák- um á Akranesi til að halda merkinu á lofti. Það er mikil uppörvun fyrir mig að Noregsmeistararnir hafi sett sig í samband við mig og málin komist á hreint í lok vikunnar og bíð ég spenntur eftir því,“ sagði Guðjón Þórðarson. Guðjón hefur verið lengi í eld- línunni og er leikreyndasti leikmað- ur Akraness í dag. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins í mörg ár. Hann setti í lok síðasta keppnistímabils nýtt leikjamet, sem er 366 leikir með meistara- flokki, auk þess hefur hann leikið bæði með A-landsliði og unglinga- landsliði. Guðjón er þrítugur og á örugglega eftir nokkur góð ár í viðbót á knattspyrnuvellinum. Afturelding vann ÍR ÞRÍR leikir voru í 2. deiidinni i handknattleik karla um helgina. Afturelding vann ÍR með 23 mörkum gegn 16, HK og Ármann gerðu jafntefli, 23:23, og Hauk- arnir unnu Gróttuna með 27 mörkum gegn 19. , Essen sterkari í Islendingaslagnum - Alfreð og Atli skoruðu þrjú mörk hvor Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðsins Vestur-Þýskalandi. SLAGURINN um vestur-þýska meistaratitilinn í handknattleik ætlar að verða á milli tveggja liða, Þrjú hjá met KR TVÖ unglingamet og eitt sveina- met voru sett á innanfélagsmóti KR-inga í KR-húsinu á sunnudag- inn. Mikill uppgangur er í frjálsum íþróttum í röðum KR-inga og voru fjölmargir keppendur. Gunnlaugur Grettisson setti glæsilegt unglingamet í þrístökki án atrennu, hann stökk 10,02 metra. Gamla metið átti Elías Sveinsson, sem var 9,80 m. í stangarstökki setti Geir Gunnars- son unglingamet er hann stökk 4,20 metra og bætti eldra metið sem Sigurður Magnússon átti um 30 sentimetra, sannarlega góður árangur. Þorsteinn Ingi Magnússon setti síðan sveinamet í stangarstökki, stökk 3,45 metra, eldra metið var 3,40 m. Essen og Grosswalldstadt. Bæði þessi lið unnu sína leiki um helg- ina. íslendingaliðin, Essen og Gúnsburg, mættust og skoruðu þeir Atli og Alfreð sín þrjú mörkin hvor. Leikur Essen og Gúnsburg var jafn framan af og var staðan í halfleik 9-9. í síðari hálfleik voru það fyrst og fremst líkamsburðir leikmanna Essen, sem gerðu út um leikinn. Liðið er geysilega sterkt varnarlið og hefur það feng- ið á sig fæst mörk allra í deildinni. Lokatölurnar urðu 20-17. Þessi sigur var mjög mikilvægur fyrir Essen, sem nú er í öðru sæti, aðeins tveimur stigum á eftir Grosswalldstadt. Besti maður liðs- ins í þessum leik var hornamaöur- inn snjalli, Fraatz, sem gerði átta mörk. Jhan var markahæstur í liði Gunsburg með sex mörk. Dankersen, sem Páll Ólafson leikur með, lék við efsta lið deildar- innar, Grosswalldstadt. Þarvarum stórsigur Grosswalldstadt að ræða, 27-13. í hálfleik var staðan 16-4. Páll skoraði tvö mörk fyrir Dankersen. Lemgo vann mikilvægan sigur á Hofweier, 24-22. Staðan í hálfleik var 11-9. Famen Bruck var besti leikmaður Lemgo og skoraði átta mörk. Bauert skoraði flest mörk Hofweier eða ellefu. Dortmund vann mjög óvæntan sigur á Schwabing, 21-17. Mikil harka var í leiknum og fengu leik- menn Schwabing að hvíla í alls 14 mínútur og var sá útafrekstur mest fyrir kjafthátt. Gummersbach gerði jafntefli við Dusseldorf á heimavelli, 19-19. Kiel sigraði Hofweier rétt fyrir hátiðarnar, 20-14, og er liðið nú í fjórða sæti deildarinnar og hefur þokað sér hægt og bítandi upp stigatöfluna. Staðan í deildinni er nú þessi: Grosswallstadt, stig 22 Essen, 20 Schwabing, 17 Kiel, 16 Dusseldorf, 14 Gummersbach, 14 Flensburg, 12 Dortmund, 12 Göppingen, 8 Gúnzburg, 8 Lemgo, 8 Dankersen, 8 Hofweier, 5 Ðerlin, 2 í annarri deild er Hameln með forystu, Dormagen er í öðru sæti og Weinne Eickel i í þriðja. • Guðjón Þórðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, hyggst spreyta sig í Noregi. Jón Erling til Noregs - ekki endanlega ákveðið með Pétur JÓN Erling Ragnarsson, knatt- spyrnumaður úr FH, hefur gengið til liðs við Viking frá Stavanger í Noregi. Allt bendir til þess að Pétur Arnþórsson úr Þrótti gangi einnig til liðs við félagið, ekki hefur endanlega verið gengið frá því. „Ég hef verið að bíða eftir sím- tali frá forráðamönnum félagsins. Það á eftir að ganga frá smávægi- legum atriðum og ég á ekki von á að það komi til með að breyta nokkru. Að öllu jöfnu förum við báðir út til Noregs 12. janúar," sagði Pétur Arnþórsson í samtali við Morgunblaðið. Pétur og Jón Erling, sem báðir eru unglingalandsliðsmenn, dvöldu í Stavanger í vikutíma fyrir jólin. Þeim líkaði dvölin þar vel og svo allar aðstæður einnig. Víkingur varð í fjórða sæti norsku 1. deildar- innar í fyrra, en ætlar sér stærri hluti nú. Liðið tekur þátt í æfingamóti um næstu mánaðamót og verða þeir félagar væntanlega komnir í slag- inn þá, deildakeppnin í Noregi hefst síðan 27. apríl. • Jón Erling Ragnarsson hefur ákveðið að leika með Viking frá Stavanger næsta keppnistímabil. Getraunir: Einn með tólf — nældi sér f tæpa milljón ÞAÐ var aðeins einn sem hafði 12 rétta í síðustu leikviku fs- lenskra getrauna. Þessi sami aðili hafði einnig 14 með 11 réttum og hlaut hann samtals 900.000 í vinning. 12 réttir gáfu 758.680 kr. og 11 rettir gáfu kr. 9.031.36 raðir komu fram með 11 réttum. Vinnings- hafinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið, var með svokallað „OLIS-kerfi“, sem er upp á 9.000 raðir og kostar 32.000 krónur. Alls voru seldar 578.044 raðir. Vinn- ingspotturinn var samtals kr. 1.083.832. Fylkismenn voru sölu- hæstir, seldu 58.000 raðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.