Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 35 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson Merkúr Hver maður er samsettur úr nokkrum stjömumerkjum. Hvaða merki það eru ákvarðast af stöðu sólar, tungls, og plánet- anna útfrá fæðingarstund og stað. Rökhugsun Þegar sagt er við þig: „Þú ert með Merkúr í Hrútsmerkinu", er átt við að hugsun þín litast af Hrútsmerkinu. Þetta getur verið þó sólin sé t.d. í Fiskamerk- inu. Merkúr er táknrænn fyrir hugsun okkar og máltjáningu, einnig tjáskipti og miðlun margs konar. Hann tengist einnig taugakerfinu. Þeir sem hafa sterkan Merkúr fara gjaman út í blaðamennsku og fjölmiðlun, ritstörf og tungumálastörf. Hrútsmerkið Maður sem hefur Merkúr í Hrútsmerkinu hefur hraða, ákveðna og eilítið óþolinmóða hugsun. Hann hefur sterkt inn- sæi, er hreinn og beinn og getur átt það til að vera óheflaður í tali. Hann er baráttuglaður og fylginn sér og fer eigin leiðir í hugsun, er frekar ör og tauga- spenntur. Þetta er blaðamaður sem fæst við æsifréttamennsku og fjallar um mál sem eru um- deild. Nautsmerkið Maður sem hefur Merkúr í Hrútsmerkinu hefur jarðbundna og yfírvegaða hugsun. Hann hefur gott auga fyrir tölum og er rólegur og hægur í tali. Hann er þolinmóður og getur átt það til að vera þijóskur og þröng- sýnn. Þetta er blaðamaður sem fjallar um landbúnað og við- skipti. Tvburamerkið Maður sem hefur Merkúr í Tví- buramerkinu hefur eirðarlausa og fjölhæfa hugsun. Hann hefur gaman af því að velta alls konar málum fyrir sér, er ræðinn og fer gjaman úr einu í annað. Hann er forvitinn og opinn fyrir nýjum hugmyndum og á auðvelt með að tjá sig, er gjaman hress og jákvæður. Þetta er blaðamað- ur sem sér um almennar fréttir, og tekur viðtöl. Krabbamerkið Maður sem hefur Merkúr í Krabbamerkinu hefur næma og sveiflukennda hugsun. Hugsunin er háð tilfinningalegri líðan og getur verið misjöfn, áhrif frá umhverfmu lita hana. Hann er viðkvæmur, hefur gott minni, er íhaldssamur á hugmyndir sínar og frekar lokaður og varkár í tali. Þetta er blaðamaður sem fjallar um uppeldismál, er með heimilishom og tekur djúp og mannlegviðtöl. Ljónsmerkið Maður sem hefur Merkúr í Ljóns- merkinu hefur skapandi og ger- andi hugsun. Hann er hug- myndaríkur og stoltur, hefur ákveðnar skoðanir og getur átt erfítt með að hlusta á aðra. Hann er dramatískur. Þetta er frétta- stjóri. Hann er góður í fyrirsögn- um og hefur næmt auga fyrir listrænu gildi frétta. Hann hefur áhuga á menningarmálum og leggur áherslu á göfugleika og virðuleika blaðsins. 7 aðrar dýrategundir Auk þessara merlqa em sjö til viðbótar, eða Meyjan (gagnrýni og menntamál), Vogin (félags- mál og listir), Sporðdrekinn (rannsóknir og stjómmál), Bog- maðurinn (erlendar fréttir), Steingeitin (viðskipti og stjóm- mál), Vatnsberinn (tækni og vís- indi) og Fiskurinn (listir, trúmál og allt það sem eftir varð). DYRAGLENS LJOSKA I / . /. 'K J S . \ iviivi■ uu iicnm —77y~~S2 : [gbjor.,get é6 J&ERJ SETPR- pETTA GÆTI É6 AlDREl 6BRT/ M ——=3=^ FERDINAND SMAFOLK l'VE PECIPEI7 TO 5TUPV REAL MARP tmis vear.anpbecome R.ICM ANP FAMOUð... IF VOULL MELPME UUITH MV MOMEWORK EVERV NI6MT l'LL 5PLIT UIITH YOU.. NOT TME RICH.. JUST TME FAM0U5! Ég hefl verið að hugsa um Ég hefl ákveðið aö lesa mjög Gf þú hjálpar mér við heima- skólann ... vel í vetur og verða rík og námið á hverju kvöldi skipt- fræg... um við á milli okkar . . . ekki ríkidæminu, bara frægðinni! Umsjón: Guðm. Páll Arnarsön Svínslegt útspil vesturs virðist gera út um fimm tígla samning suðurs. En vinningur leynist í spilunum, ef rétt er á þeim hald- ið. Norðurgefur; allir á hættu. Norður ♦ 432 ♦ 72 ♦ ÁKD ♦ Á8765 Vestur Austur ♦ 8765 ♦ Gl09 ♦ ÁK6 llllll ♦ DG1095 ♦ 9876 ♦ - ♦ 43 ♦ KDG109 Suður ♦ ÁKD ♦ 843 ♦ G105432 ♦ 2 Vestur Norður Austur Suður Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf 1 hjarta 2tglar 2hjörtu 3tglar 3hjörtu 5tglar Pass Pass Pass Ef vestur hefði verið mann- legur og lyft hjartaás, hefði verið leikur einn að ná í ellefta slaginn með því að trompa hjarta í borð- inu. En nú hefur vörnin fmm- kvæðið og nær að aftrompa blindan í tæka tíð. Sérðu nokkuð til ráða? Það hljómar svolítið fárán- lega, en það skiptir öllu máli að vestur skuli vera með hjartasex- una, en ekki sjöuna! Sagnhafi fer heim á spaða í öðmm slag ’og spilar litlu hjarta á sjöuna. Vestur drepur með kóng og trompar út. lljarta er aftur spil- að og enn drepur vestur og spilar trompi. En nú er svo komið að vestur á hvorki yfir hjarta- eða laufáttunni, svo skilyrði fyrir kastþröng á austur í þessum litum em fyrir hendi. Sagnhafi tekur einfaldlega slagina sína á spaða og tígul og á eftir í tveggja spila lokastöðu, Á8 í laufi í borðinu og hjartaátt- una og lauftvistinn heima. Og austur getur ekki bæði haldið eftir tveimur laufum og hæsta hjartanu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Potsdam í A-Þýskalandi í vor kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meistaranna Páhtz, A-Þýska- landi, sem hafði hvítt og átti leik, ogGhinda, Rúmeníu. 25. Dg3! - gxf5 (Eða 25. - Hg8, 26. Hxd7 - Kxd7, 27. Rh6+) 26. Dg6+ — Ke7, 27. Hxd7+! — Kxd7, 28. Dxf5+ — Kc6 (Eina undankomuleiðin frá tafarlausu máti) 29. Dd7+ — Kc5, 30. Dd5+ — Kb4, 31. a3+ — Ka4, 32. Bd7+ og svart- ur gafst upp skömmu síðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.