Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 23 Hefiir Kasparov afiráðið að tefla ekki við Karpov? Moskvu, 6. janúar. AP. HAFT er eftir heimildum, að Garri Kasparov, heimsmeistari í skák, hafi ákveðið að neita að endurtaka einvígið við Karpov, fyrrum heimsmeistara. Heimildamennirnir, sem ekki vilja láta nafns síns getið, segja að Kasp- arov hafi skýrt frá þessari ákvörðun sinni í ræðu, sem hann flutti í íþróttaklúbbi sl. laugardag, og stað- fest hana þegar á hann var gengið á eftir. Virtist Kasparov vera viss um, að FIDE, Alþjóðaskáksamband- ið, myndi ekki svipta hann titlinum þótt hann hætti við. Campomanes, forseti FIDE, hafði gefið Kasparov frest til dagsins í dag, mánudags, til að fallast á nýtt einvígi í febrúar nk. og átti hann England: Lögregluforingi ölvaður við akstur Poole, 6. janúar. AP. YFIRMAÐUR umferðardeildar lögreglunnar í Dorset á suðvest- urhluta Englands missti ökuskír- teini sitt til tveggja ára í dag eftir að hann játaði á sig ölvun við akstur. Bert Sheldon, lögregluforingi, viðurkenndi að hafa verið ölvaður þegar hann lenti í árekstri 25. ágúst 1985, nákvæmlega ári eftir að kona hans yfirgaf hann. Samkvæmt blóðprufu var áfengis- magn í blóði Sheldons flórum sinnum meira en leyfilegt er. Hann var dæmdur til 28 daga fangelsisvistar og missti próf sitt til tveggja ára. jafnframt að velja um hvort viður- eignin færi fram í London eða Len- ingrad. Karpov hefur þegar valið Leningrad fyrir sína parta. Þegar haft var samband við Kasparov í síma og hann spurður hvort hann hefði ákveðið sig, svaraði hann: „Ég vel hvoruga borgina, ég ætla mér ekkert að gera." Inntur nánar eftir þessu sagðist Kasparov mundu láta til sín heyra eftir að fresturinn væri útrunninn. „Ég hef þegar sagt, að ég tel þetta nýja einvígi vera ólöglegt," sagði hann. Garri Kasparov AP/Símamynd STARFSMAÐUR Sequoyah-kjarnorkustöðvarinnar athugar með geislamæli hvort geislun hafi orðið í bifreið, sem stóð við verksmiðjuna er birgðatankur sprakk með þeim afleiðingum að eiturgas lak út. Einn maður beið bana og tugir þurftu að leita læknishjálpar. Eiturský yfir kjamorkuveri Wcbbers Falls, Oklahoma, 6. janúar. Birgðageymir Sequoyah-kjarn- orkustöðvarinnar rifnaði á laug- ardag með þeim afleiðingum að hann lak 14,5 tonnum af geisla- virku úraníumgasi. Einn maður beið bana og tugir manna, sem önduðu að sér eiturgufuin, voru lagðir inn á sjúkrahús. Komið hefur í ljós að tankurinn var ofhlaðinn, yfirfullur, þegar hann rifnaði. Starfsmenn voru að reyna að minnka í tanknum er hann brast. Einn starfsmanna orkuversins lézt en hann stóð hlésmegin tanksins og baðaðist í gasgufum er bresturinn varð. Við lekann myndaðist eiturský, sem náði allt að 29 km frá verk- smiðjunni. AP/Símamynd SKÆRULIÐAR M-19-hreyfingarinnar er hafa staðið fyrir mörgum hryðjuverkum í Kólombíu auk árásar- innar á dómshúsið í Bogata. Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum þegar þeir tóku í gíslingu sendi- ráðsmenn af ýmsu þjóðerni. Gísl skæruliðans er þáverandi sendiherra Mexíkó í Bogota, Ricardo Galan. Skæruliðar í Kólombíu með vopn frá sandinistum Bogota, Managua, 6. janúar. AP. RÍKISSTJÓRNIN í KÓIombíu skýrði frá því á laugardag, að skæruliðarnir, sem réðust í nóv- ember sl. á dómshúsið í Bogota, hefðu notað riffla komna frá sandinistum í Nicaragua. Sandin- istastjórnin neitar þessu hins vegar harðlega. I bréfi, sem Augusto Ramirez Ocampo, utanríkisráðherra Kólomb- íu, sendi Miguel d’Escoto, utanríkis- ráðherra Nicaragua, krefst hann „fullrar og tafarlausrar skýringar" á því, að vopnjn skuli hafa komist í hendur skæruliða í Kólombíu, M-19-hreyfingarinnar. Bréfið sendi hann sl. fímmtudag en ekki var sagt frá því fyrr en á laugardag. Ocampo segir í bréfinu, að meðal' vopnanna, sem skæruliðamir notuðu í árásinni á dómshúsið, hafi verið tveir belgískir rifflar og sýni númer- in, að þeir hafi verið meðal vopna sem Venezúelastjórn sendi sandin- istum árið 1979. Sandinistar börðust þá gegn stjóm Somoza og nutu stuðnings Venezúela. Ocampo spyr einnig um aðra riffla, sem skærulið- arnir notuðu, og reynast vera úr vopnabúri Somoza. Á fundi í borginni Cartagena í Kólombíu 2. desember sl. sagði George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að bein tengsl væm á milli sandinistastjórnarinnar og M-19-skæruliðahrey fingarinnar. Skýrði hann ekki mál sitt nánar en haft var eftir heimildum, að hann hefði m.a. haft í huga, að öll vopnin, sem skæmliðamir notuðu við árás- ina á dómshúsið, hefðu verið komin frá sandinistum. Auk fyrmefndu vopnanna er einnig um að ræða vopn, sem féllu í hendur Víetnömum og vom síðan send sandinistum. Ríkisstjórnin í Nicaragua neitaði því harðlega í gær að hafa sent skæruliðum í Kólombíu vopn. Kvaðst d’Escoto ekkert vita hvernig á þess- um vopnum stæði í Kólombíu. TIL ÁRÉTTINGAR SKILAFRESTUR 20. FEBR. NK. Hugmyndasamkeppni um ný tækifæri í íslensku atvinnulífi Samvinnusjóöur íslands hf. efnir til samkeppni um bestu hugmyndina aö nýjum tækifærum í íslensku atvinnulífi. Leitað er eftir hugmyndum að nýjum framleiðsluvörum og/eða þjónustu- starfsemi, jafnt innan hefðbundinna atvinnu- greina, sem á nýjum sviðum. Leitað er sérstak- lega eftir hugmyndum sem leiða kunna til framleíðslu og sölu til útflutnings, eða sem Veitt verða þrenn verðlaun 1. verðlaun 2. verðlaun 3. verðlaun Hugmyndasamkeppnin er öllum opin, fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum. Samvinnusjóöurinn áskilur sér notkunarrétt aö verölaunatillögunum sem hann álítur fýsilegar til áframhaldandi rannsóknar og þróunar í því augna- miöi aö stuðla að framleiðsiu. Hugmyndir sem lagöar eru fram skulu merktar dulnefni höfundar og í lokuöu umslagi meö utaná- skrift sama dulnefnis skal raunverulegt nafn höf- undar, heimilisfang og símanúmer, ásamt upplýs- ingum um menntun og starfsferil, komafram. skapa gjaldeyristekjur. Hugmyndirnar og tillögurnar skulu vera hnit- miöaöar og afmarkaðar. Fylgja skulu þeim ein- hverjar upplýsingar um hvernig framkvæmd þeirra geti leitt til framleiöslustarfsemi, hver kostnaöur yröi viö framkvæmd þeirra, stofn- og rekstrarkostnaöur og mögulegir markaöir. fyrir bestu hugmyndirnar. kr. 200.000 kr. 100.000 kr. 75.000 Samvinnusjóður íslands hf. er fyrirtæki í eigu samvinnuhreyfingarinnar. Hluthafar eru um 60 tals- ins. Tilgangur sjóðsins er aö efla og auka fjöl- breytni atvinnulífs á islandi. Forgangsverkefni sjóösins er aö fjármagna og stuðla að þróun nýrra atvinnugreina. Skilafrestur á tillögum er 20. febmar. Tillögum skal skilaö til Þórðar Ingva Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra, Samvinnusjóður íslands, Höföa- bakka 9, 110 Reykjavík. Sími 686858, en hann veitir jafnframt allar frekari upplýsingar. | SAMVINNUSJÓÐUR ÍSLANDS HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.