Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1986 45 Morgunblaðið/Bjarni • Heyrðu Friðrik minn, hvað ert þú eiginlega að gera í markinu? gæti Jakob Sigurðsson Valsmaður verið að hugsa þar sem hann svífur inn í vítateig KR-inga í gær. Friðrik Guðmundsson, (ekki markmaður) stendur í markinu við öllu búinn. KR-ingar voru Vals- mönnum Iftil hindrun KR-INGAR voru Valsmönnum Iftil hindrun er liðin mættust í 1. deild- inni í handbolta á sunnudag. Framan af börðust KR-ingar þó vel, ákveðnir í að styrkja stöðu sína í deildinni þar sem þeir eru í mikilli fallhættu, en tókst ekki að halda lengi í við Valsmenn, sem skoruðu 31 mark gegn 22 mörkum KR-inga. Eru Valsmenn því enn stigahæstir í deildinni, ásamt Víkingum. Jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínúturnar, en þá var staðan 10-10. Með góðum endaspretti í fyrri hálfleik náðu Valsmenn hins vegar 4 marka forskoti fyrir léikhlé, 16-12, og úrslit leiksins réðust á fyrstu mínútum seinni hálfleiks er Valsmenn náðu 7 marka forystu, 21-14. Réð góður varnarleikur Valsmanna því að þeir náðu þess- ari forystu, KR-ingar skoruðu t.d. ekki nema tvö mörk fyrstu 12 mín- útureftir hlé. Yfirburðir Valsmanna voru miklir í leiknum og munurinn undir lokin orðinn 10 mörk. Miklu meiri ógnun var í spili þeirra og talsvert spilað upp á hornamennina Valdimar og Jakob, sem ásasmt Ellert mark- verði voru beztu menn Vals. Sókn- arleikur KR-inga miðaðist fyrst og fremst við að leika inná miðjuna, þar sem vörn Vals var þétt fyrir. Það bar m.a. til tíðinda í leiknum að markvörður Vals, Ellert Vig- fússon, skoraði eitt mark. Það gerðist er KR-ingar voru í óða önn að mótmæla dómum dómara, sem dæmt höfðu ruðning á KR-ing í sókn. Mörk KR: Jóhannes Stefáns 8 (3v), Stefán Arnars 5, Friörik Þorbjörns 4, Björn Péturs 2, Haukur Geirmunds 1, Páll Björns 1 og-Páll Ólafs 1. Mörk Vals: Valdimar Gríms 8, Júlíus Jónas- son 8 (5v), Jakob Sigurös 8 (1v), Þorbjörn Jens 5, Þorbjörn Guömunds 1, Ellert Vigfússon 1. 23 marka sigur sTzt of stór FÁTT annað er hægt að segja um leik Þróttar og Stjörnunnar í 1. deild handboltans á sunnudag en það hafi verið leikur kattarins að músinni, enda þótt það hugtak hafi reyndar brenglast nú á dög- um Tomma og Jenna. Yfirburðir Stjörnunnar voru gífurlega miklir og lauk leiknum með 39 mörkum gegn 16. í hálfleik var staðan 23-6 fyrir Stjörnuna. Leikur Stjörnunnar var mjög góður í fyrri hálfleik, spilið lipurt og breidd vallarins notuð vel. Broddurvar jafnan ísóknarleiknum og mörkin skoruð jafnt með lang- skotum fyrir miðju, úr hornum, af línu, með gegnumbrotum, eða úr hraðaupphlaupum. Þróttarar eygðu aldrei neina von um að hanga í Stjörnunni og ein- kenndist leikur liösins af því; var bitlaus. Flumbrugangur af hálfu leikmanna Stjörnunnar í öndverð- *■ um seinni hálfleik, þegar hver sóknin af annarri mistókst, gerði tap Þróttara minna en það ella hefði getað orðið. Um gang leiksins er það að segja að jafnt var eftir tvær mínút- ur, 2-2, en síðan sagði Stjarnan skilið við Þrótt og jókst munurinn jafnt og þétt, var 17 mörk í hálfleik og 23 í lokin. Gylfi Birgisson var atkvæðamikill hjá Stjörnunni, en liðið var annars mjög jafnt. Mörk Þróttar: KonráÖ Jónsson 8, Brynjar Einarsson 4 og Nikulás Jónsson 4. Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson 13, Hannes Leifsson 8 (3v), Sigurjón Guömunds- son 6, Hermundur Sigmundsson 5 (2v), Magnús Teitsson 4 og Skúli Gunnsteinsson 3. - ágás Víkingssigur VÍKINGAR unnu FH-inga í 1. með níu mörk og Þorgils Óttar deildinni t handknattleik er liðin mættust á laugardag í Hafnarfirð- inum. Víkingar skoruðu 26 mörk gegn 21 marki heimamanna og hefði munurinn allt eins getað orðið meiri þvf Víkingar voru mun sterkari í þessum leik og áttu FH-ingar í raun aldrei möguleika íleiknum. Jafnræði var með liðunum fram- an af en síðan sigu Víkingar fram úr. Staðan í leikhléi var 9:14 og var það mesti munurinn á liðunum í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik jókst munurinn enn og varð mestur átta mörk um miðjan hálfleikinn, 13:21, en FH-ingar náðu aðeins að rétta sinn hlut undir lok leiksins og minnka muninní 21:26. Leikur liðanna var ekki upp á marga fiska enda ekki við því að búast þar sem þetta var fyrsti leik- urinn eftir óvenjulangt jólafrí. Sóknarleikur FH var sérstaklega slakur í leiknum og gerðu þeir hverja vitleysuna af annarri sem Víkingar notfærðu sér síðan og skoruðu úr hraðaupphlaupum eða fengu dæmt vítakast. Páll Björgvinsson var atkvæða- mikill hjá Víkingum, skoraði einn tug marka, þar af sjö úr vítaköst- um, Guðmundur Albertsson var einnig athvæðamikill en hann skoraði alls átta mörk. Hjá FH var Guðjón Árnason markahæstur gerði fimm. Mörk FH: Guöjón Árnason 9/4, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Jón Erling Ragnarsson 4, Héðinn Gilsson 2, Stefán Kristjánsson 1. Mörk Vfkings: Páll Björgvinsson 10/7, Guö- mundur Albertsson 8, Steinar Birgisson 4. Guömundur Guðmundsson 3, Hilmar Sigurg- íslason 1. -sus Morgunblaöiö/Skapti Hallgrimsson • Logi Már Einarsson reynir að komast í gegnum Framvörnina á laugardaginn. Hann var markahæstur KA-manna með 6 mörk. Guðmundur Guðmundsson fyigist með til hægri. Erfíðasti leikurinn i' vetur „VIÐ erum komnir með T1 stig og eigum að vera sloppnir. Þetta var erfiðasti leikur okkar í vetur - við urðum að fá þessi stig og það tókst. En það var mikil tauga- veiklun í leiknum," sagðl Guð- mundur Guðmundsson, leikmað- ur KA, eftir að liðið hafði borið sigurorð af Fram 26:24 í jöfnum leik í 1. deildinni í handknattleik á Akureyri á laugardaginn. Sigur KA var sanngjarn en eins Staðan Víkingur Valur Stjarnan FH KA Fram KR Þróttur 12 10 12 10 12 8 12 12 12 12 12 2 297:231 20 2 289:242 20 2 296:238 18 6 289:281 12 6 249:253 11 8 281:289 8 8 255:287 7 12 239:374 0 og Guðmundur sagði var tauga- veiklun mikil, í báðum liðum. Greinilegt að mikið var í húfi, það lið sem sigraði gat fagnað áfram- haldandi veru í deildinni. Fram hefur 8 stig, KR 7 og liðin eiga eftir innbyrðis viðureign. Þróttur er á botninum og KA fær Þrótt í heimsókn í næst síðustu umferð- inni, annað kvöld. Varnir Fram og KA voru ekki upp á marga fiska langtímum saman á laugardag og markvarslan var ekki góð. Sérstaklega voru markverðir Fram slakir en Sigmar Þröstur hjá KA náði góðum köflum. En tilþrif í sóknarleik voru góð á köflum og falleg mörk gerð. Lið KA er þokkalega sterkt. Skyttur þess eru ágætlega öflugar þó laugardagurinn hafi reyndar ekki verið þeirra besti dagur í vetur. Jón Kristjánsson, unglinga- landsliðsmaður, lék nú með að nýju eftir meiðsli og stóð sig vel. Geysisterkur leikmaður þar á ferð- inni - sannarlega maður framtíðar- innar. Erlingur bróðir hans er traustur og Guðmundur og Logi Einarsson léku einnig vel. Logi er að verða mjög öruggur í horninu - misnotar varla marktækifæri. í liði Fram eru góðir einstakling- ar svo sem Egill, Dagur og Jón Árni en í heild er liðið ekki nógu sterkt. Er þó of gott til að falla. Þrír fyrr- nefndir voru bestu menn liðsins. Mörk KA: Logi Már Einarsson 6, Guömundur Guömundsson 5 (2 víti), Jón Krístjánsson 5, Erlingur Kristjánsson 4, Þorleifur Ananiasson 2, Eríendur Hermannsson 2 (1 víti) og Pétur Bjarnason 2. Þjálfari KA notaöi aöeins einn skiptimann í leiknum og er þaö nokkuð undar- legt aö leikmaöur eins og Sigurður Pálsson skuli ekki fá tækifæri þegar margar sóknir klúðrast eins og nú, og oft fyrir mistök sama leikmanns. Mörk Fram: Egill Jóhannesson 9 (5 víti), Jón Ámi Rúnarsson 6, Dagur Jónasson 5, Her- mann Björnsson 2 og Andrés Magnússon 2. Góöir dómarar, þegar é heildina er litiö, voru Stefán Arnaldsson og Aöalsteinn Sigúr- geirsson. Stefán er ákveðnasti og besti dóm- ari hérá landi aö mati undirritaðs. - SH. Knattspyrnuþjálfari óskast Færeyska félagiö SÍF, sem leikur í annarri deild, vill ráöa þjálfara fyrir næsta keppn- istímabil. Umsóknir sendist augl.deild Mbl. merktar: „Þ — 3500“ fyrir 14. janúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.