Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 41 Stapa, táknmynd af því hvernig Reykjanesskagi varð til, þar sem hraun rann yfir hraun, en tákn- mynd um íslenskan sjávarútveg sem sett var upp á Hótel Holti mun vera meðal hinna fyrstu slíkra mynda hans úr atvinnulíf- inu, sýnir menn og konur að störf- um á bryggju með skip í baksýn. Ragnar sleppti nú kerum og skál- um úr höndum sér og hélt lengra og lengra inn á svið mynd- listarinnar. Á þeim árum sem hann tók að snúa sér heilshugar að höggmyndunum stjórnaði hann Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hann var í húsi Ásmundar Sveinssonar við Freyjugötu, en fyrir utan húsið Eiríksgötumegin var stór, óbyggð lóð. Þar stóð Ragnar fyrir sýningu á verkum ís- lenskra myndhöggvara í trausti þess að úti undir berum himni ættu slík verk heima. Hafði Ás- mundur bent á hve tilvalin þessi lóð væri undir slíkar sýningar. Það reyndist hinsvegar ekki auð- velt að kenna mörlandanum að meta listaverkasýningu utanhúss. Ráðist var á eina myndina og hún gereyðilögð, svo ekki var hægt að reisa hana þar aftur. Hvernig þessi látlausa mynd Ragnars af baggahestum gat valdið slíkri árásarhneigð er enn hulin ráð- gáta. En þrátt fyrir þetta stóð Ragnar fyrir slíkum sýningum á Skólavörðuholtinu næstu árin, en lögregluyfirvöld voru áhugalaus um verndun sýninganna, svo framtakið varð í raun lista- mönnum ofviða. Þegar Ragnar hafði snúið sér til fulls að höggmyndalistinni eða skúlptúrnum, hlaut hann fljótlega beiðnir um minnismerki víðsvegar af landinu, styttur og lágmyndir sem prýða skyldu stórhýsi eða standa utanhúss í kaupstöðum eða sveitum til að minna á sérkenni byggðarlags í atvinnusögunni, sérkenni stofnunar í þjóðlífinu, sögulega atburði og þar fram eftir götunum. Kunni Ragnar einkar vel að meta þesskonar verkefni sem tengdust atvinnuiífinu og baráttu- og lífssögu íslensku þjóð- arinnar. Sérstaklega áhrifamiklar eru myndir hans úr sjómennsku, lausar við draumúðargyllingu hetjuskapar og frækni, luralegar, grófar og sterklegar eins og breið- ar bylgjur hafsins, gæddar dular- fullri hrynjandi þess og fegurð. Ég sé mynd af borginmannleg- um dreng sem horfir á mann blóðga fisk, ég sé mynd af tveimur sjómönnum að draga inn vörpu, og ég verð barn. Og ég sé ekki betur en listamaðurinn hafi séð sjó- manninn og hans fólk með augum barnsins og unglingsins, en það gefur myndunum einhvern dul- magnaðan kraft sem hefði ekki notið sín nema fyrir reynslu full- tíða manns af sjónum, ekki aðeins minning frá bernsku- og unglings- árum undir Jökli, heldur sömu- leiðis reynsla fullorðins manns, er stunda þurfti sjóinn meðan feg- urstu leirmunir gáfu ekki nógu mikið í aðra hönd á íslandi, þar sem almennur áhugi var ekki enn vaknaður fyrir þesskonar listmun- um og fátt um erlenda ferðamenn til að kaupa þá. Ekki minnist ég þess að úthlut- unarnefnd listamannalauna hafi sýnt Ragnari verðugan sóma, en þeim mun meiri viðurkenningu hefur hann hlotið meðal alþýðu og ýmissa framámanna þjóðarinnar. Kröfuhörðustu gagnrýnendur í hópi sjálfra myndlistarmanna hafa ekki síður kunnað að meta list hans, þótt hann færi hefð- bundnar brautir fígúratívra myndverka á þeim tíma sem afturhvarfið frá abstraktinu var ekki komið í tísku. Þegar Hjörleifur Sigurðsson listmálari, sem allra manna snjallast hefur skrifað um mynd- list á íslandi, fjallaði í dagblaðinu Vísi um fyrstu höggmyndasýning- una á Skólavörðuholtinu í sept- ember 1967, komst hann svo að orði: „Ragnar Kjartansson gerði sér lítið fyrir og mótaði klyfjahesta þrjá skammt fyrir neðan akbraut- ina í regni og vindi íslenska haustsins. Hann skapaði iíka mann á bak klársins, sem fyrstur fer. Fólk, sem átti leið um Eiríks- götu, gat vel fylgst með því hvern- ig einangrunarplöturnar urðu að gráum vegg, sem virtist spretta upp úr jörðinni, en breyttist smám saman í lestarferðina og að lokum í rytmíska heild, sterkbyggða og hreina." Einangrunarplöturnar, sem Hjörleifur nefnir þarna, voru úr epoxy-kvartsi og notaðar í hús- byggingar, en Ragnar hafði kynnt sér efnið og komist að þeirri niðurstöðu að það myndi henta vel útilistaverkum í íslenskri veðr- áttu. Ég var svo heppinn að sjá sjálfur þetta verk á Skólavörðu- holtinu, þegar búið var að reisa það, en tveimur eða þremur dög- um síðar hafði myrkraöflum tek- ist að eyðileggja það, eins og fyrr var frá sagt, en listamaðurinn átti enga frummynd að því annarstað- ar. Það hafði orðið til þarna á holtinu eins og Hjörleifur tók fram í grein sinni, mynd úr alda- gömlu bændasamfélagi. Seinna reis þar á sama sýningarsvæði úti fyrir húsi Ásmundar Sveinssonar í trássi við myrkraöfl önnur mynd rammíslensk eftir Ragnar, og hafði verið lengi í mótun: íslenskir stóðhestar á fleygiferð. Heppnast hafði að móta hraðann og kraftinn í línur hestanna á svo sannfær- andi hátt að vart er hægt að trúa því, þegar horft er í fárra metra fjarlægð, að þessir hestar hafi ekki verið raunverulega lifandi, hversdagsleikanum. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé besta brjóstmynd Ragnars og tel mig ekki heldur færan að dæma um það, en ég veit að það er Páll ísólfsson. Kunnar eru einnig myndirnar af Hallsteini (ramma- smiðnum) og Braga Ásgeirssyni, en þær ásamt myndinni af Páli og fleiri myndum sanna okkur hve snjall Ragnar er í þeirri grein. Ég vil ekki leggja frá mér penn- ann án þess að fara fáeinum orð- um um það hve fjölhæfur lista- maður Ragnar Kjartansson er. Hann hefur ekki einungis verið bæði leirkerasmiður og mynd- höggvari, heldur kann hann einnig vel með vatnsliti að fara. í vatns- litamyndum hans má sjá næmi hans fyrir litum og fínlegri áferð og þar kemur einnig til skila sá hæfileiki hans að gera hlutinn á stundinni, eins og þegar lestar- ferðin spratt fram úr höndum hans á Skólavörðuholtinu forðum daga. Ragnar hefur lítt flíkað þessum vatnslitamyndum sínum, en þær eru þess verðar að almenn- ingur fái að kynnast þeim. Ragnar Kjartansson er nú sex- tugur að aldri. Hann hefur unnið mikið starf í íslensku listalífi og á vonandi langt starf framundan. Á síðustu árum hefur hann verið í forystu fyrir Myndhöggvarafélag- ið að búa listamönnum vinnuað- stöðu á Korpúlfsstöðum sem ÞEKKING - REYNSLA - ÞJONUSTA Hesturinn á Sauðárkróki (1973) áður en þeir með einhverjum óút- skýranlegum hætti urðu að steini í einu vetfangi. Þeirri mynd (sem nú er í opinberri eigu) var seinna komið fyrir á mótum Hring- brautar og Fjólugötu, þar sem hún hefur vakið verðskuldaða athygli og aðdáun þeirra sem framhjá fara. f huga mér kemur einig mynd af konu á göngu með börn í halarófu á eftir sér, hún heldur í höndina á fremsta barninu og hin öll haldast i hendur og ganga á eftir eins og í dansi, en það er óviðjafnanlega mjúk hreyfing í línum barnanna, því það er dans bernskunnar, og konan hallar sér eilítið framávið, hún sem leiðir börnin á göngu lífsins. Og svo eru það portrettin, brjóstmyndirnar. Ein slík hefur verið sett upp á Stokkseyri við sjó- inn. Það er Páll ísólfsson, organ- istinn og tónskáldið, og hann bros- ir. Og nú var það þarna steingert í mynd eftir Ragnar Kjartansson, eins og einhver furða lífsins ofar Reykjavíkurborg fékk mynd- höggvurum góðu heilli til ráðstöf- unar. En hér á Akureyri, þar sem ég skrifa þessar línur, mun bráð- lega bera fyrir augu síðasta stór- virki hans í höggmyndalistinni. Það verður kýrin Auðhumla með mjaltastúlkuna við hlið sér. Minn- ismerki eftir Ragnar eru raunar víðsvegar um allt land og yrði of langt mál að telja þau upp hér. Ekki verður heldur rakin ætt hans, þótt fróðlegt gæti verið og skemmtilegt, ef rúm væri til þess, en hann er fæddur á Staðastað á Snæfellsnesi 17. ágúst 1923, sonur séra Kjartans Kjartanssonar og Ingveldar Ólafsdóttur. Faðir hans fluttist að Hellnum, þegar hann lét af prestskap, þannig að Ragnar ólst upp jafnt við sjó og í sveit og þá reynslu hefur hann mótað í myndir sínar. Þessum línum fylgja heilla- kveðjur frá vinum í norðri. Akureyri, júlí-ágúst 1983, Jón Oskar FALKINN 105 REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.