Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 27 Vinnuheimilið að Reykjalundi og Þýsk-íslenska verslunarfélagið: Innlend snjóbræðslu- rör á markaðinn Fulltrúar Reykjalundar og Þýsk-íslenska verslunarfélagsins sýna hvar veriö er að leggja nýju snjóbræðslurörin í bifreiðastæði Vörumarkaðsins á Sel- tjarnarnesi. T.f.v. Guðmundur G. Þórarinsson, Björn Ástmundsson og Jón BenedíktSSOn. Ljósmynd/Ól.K.M. Vinnuheimilið að Reykjalundi í Mosfellssveit hefur hafið fram- leiðslu á snjóbræðslurörum úr hita- þolnu plasti og hefur Þýsk-íslenska verslunarfyrirtækið tekið að sér söluumboð fyrir þau. Rörin eru ætl- uð fyrir afrennslisvatn, sem má nýta til upphitunar á gangstéttum, gang- stígum, bifreiðastæðum ofl. Vinnuheimilið að Reykjalundi hefur um árabil verið stærsti framleiðandinn á plaströrum hérlendis, og framleiðir nú þessi snjóbræðslurör úr hitaþolnu plasti, sem munu, að sögn fram- leiðanda, leysa kaldavatnsrörin af hólmi, en þau hafa mikið verið notuð til gatnaupphitana hérlend- is, þrátt fyrir að þau séu ekki til þess gerð. Þýsk-íslenska verslunarfélagið hefur hingað til lagt meiri áherslu á innflutning, en sölu á íslenskum iðnvarningi, og hefur fyrirtækið komið sér upp sölukerfi um landið. Samstarf hefur nú tekist með vinnuheimilinu að Reykjalundi og Þýsk-íslenska verslunarfélaginu, og mun verslunarfélagið annast sölu og dreifingu á nýju snjó- bræðslurörunum. Á blaðamannafundi sem hald- inn var vegna samkomulags fyrir- tækjanna tveggja, kom fram að hingað til hafa kaldavatnsrör ver- ið notuð í sama tilgangi og snjó- bræðslurörin nýju, vegna þess hve ódýr þau voru, og að sögn Björns Ástmundssonar, hjá Reykjalundi, hefur lengi verið leitað að hentugu efni í snjóbræðslurör og lausnin verið að framleiða þau úr hita- þolnu plasti, sem ekki verður fyrir tæringu af völdum heita vatnsins hér. Rörin eru framleidd úr plasti frá fyrirtækinu Huulz í Vestur- Þýskalandi, og eru framleidd hér undir vörumerkin VARMO. Styrk- leiki þeirra er um 6 kílógrömm á fersentimetra miðað við 60 gráðu heitt vatn og 50 ára endingu. Framkvæmdir eru þegar í gangi hérlendis, þar sem VARMO-rörin eru notuð, og er það á bifreiða- stæði Vörumarkaðsins á Seltjarn- arnesi og einnig er verið að leggja þau í Hafnarstræti á Akureyri. Björn kynnti einnig stofnrör sem Reykjalundur býður með snjóbræðslurörunum, og eru stofnrörin með ásoðnum stútum fyrir dreifingu vatnsins, eftir því hve stórt svæðið er sem ætlunin er að halda auðu í vetrarhálku. Snjóbræðslurörin eru einkum ætl- uð til að nýta heitt afrennslisvatn og er bæði hægt að veita vatninu inn í opin eða lokuð kerfi. Til að halda rörunum í hæfilegri fjar- lægð frá hverju öðru, býður Reykjalundur millilegg sem mynda 25 sentimetra bil á milli röranna, og eru millileggin unnin úr afgangs jógúrtumbúðum, sem reynst hafa gallaðar. Þýsk—íslenska verslunarfélagið hefur í hyggju að halda námskeið fyrir pípulagningamenn, verk- fræðinga og hönnuði til að kynna meðferð og lagningu röranna, og einnig verða gefnir út leiðbein- ingarbæklingar sem munu fylgja rörunum, þar sem þau verða seld, en það verður í byggingavöru- verslunum um land allt. Að sögn framleiðenda og dreif- ingaraðila, verður verði röranna stillt í hóf og koma þau til með að verða ódýrari en innflutt rör af svipaðri gerð. Opin sýning ’83 í TILEFNI Reykjavíkurvikunnar verðs sýnd ný verk eftir ýmsa kunna myndlistarmenn á „Opinni sýningu ’83“ sem nú stendur yfir í Gallerí Lækjartorgi. Sýningin stendur aðeins yfir í 5 daga, þ.e. frá laugardegi 20. ágúst til fimmtudags 25. ágúst. Hún verður opin daglega frá kl. 14 til kl. 18, nema á sunnudag frá kl. 14 til kl. 22. NAMSKEIÐ í SjAlFSSTYRKINGU (assertiveness traíning) í samskiptum manna á milli .kemur óhjá- kvæmilega til vandamála og togstreitu. í slík- um tilvikum er aukiö sjáltstraust, sjálfsvitund og þekking hverjum manni styrkur á sama hátt og þaö er undirstaöa ánægjulegra sam- skipta. Námskeiöiö er sniðið aö bandarískri fyrir- mynd og lögö áhersla á aö gera þátttakend- um grein fyrir hvaða rótt þeir og aörir eiga í mannlegum samskiptum og hvernig þeir geta komiö fram málum sínum af festu og kurteisi án þess aö láta slá sig út af laginu meö óþægilegum athugasemdum. Ennfrem- ur aö læra aö líða vel meö sjálfum sér og hafa hemil á kvíöa, sektarkennd og reiöi með vöövaslökun og breyttum hugsunarhætti. Upplýsingar í síma 2 72 24 laugardag og sunnudag í síma 1 23 03 virka daga. Athugiö aö fjöldi þátttakenda er takmarkaöur. AHHK MN-DIMKRSDOTTIR sálfræðingur Bræðraborgarstíg 7 □ ISUZU PICKUP Sterkbyggður með óhemju burðar- þol og 4-hjóla drifíð gerir Isuzu Pickup alla vegi færa. Vegleg bifreið jafnt til atvinnu sem eigin nota allan ársins hring. VELADEILD SAMBAHDSINS BIFREIÐAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.