Morgunblaðið - 02.12.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
„Smíðið sverð úr plógjárn
um og lensur úr sigðum“
LAUGARDAGINN 4. desember
n.k. flytur háskólakórinn ásamt kór
Dómkirkjunnar, verk eftir stjórn-
anda sinn Hjálmar Ragnarsson í
Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut. l>að sem heyrir einkum til
nýjunga á þessum tónleikum er að
textinn við eitt verkanna er fenginn
að láni úr Gamla testamentinu og
hefur I>órir Kr. Uórðarson, prófess-
or í guðfræði við háskólann séð um
að velja textann í samráði við hof-
und tónlistarinnar, jafnframt því
sem hann hefur samið hugleiðingar
út frá efninu og tónlistinni.
Af þessu tilefni var höfundur
tónlistarinnar, Hjálmar Ragnars-
son, tekinn tali.
„Það hafa verið í æfingu nokkur
verk eftir mig, þannig að það þótti
upplagt að flytja þau saman á ein-
um tónleikum. Það eru þrjú verk
sem flutt verða á tónleikunum.
CANTO er búið að vera í burðar-
liðnum síðan í vor, en ég setti það
til hliðar um tíma til að geta unnið
að öðru verki fyrir kór Dómkirkj-
unnar og tók svo til við það aftur i
byrjun síðasta mánaðar, þannig
að ef eitthvað verk er ekki þornað
á pappírnum, þá er það þetta verk.
GLORIA er lofsöngur við hinn
hefðbundna latneska kirkjutexta,
„Dýrð sé guði í upphæðum." í því
verki legg ég sérstaka áherslu á
miskunnarbænina. Má segja aö
þessi lofsöngur sé sérkennilegur
Frumflutt tónverk
eftir Hjálmar Ragn-
arsson viö texta úr
Gamla testament-
inu í búningi Þór-
is Kr. Þórðarson-
ar, prófessors
að því leyti að hann er dapurlegur,
ekki hávaðasamur eins og lof-
söngvar eru yfirleitt. Það kemur
til af því, að ég tel ekki að nútíma-
maðurinn hafi efni á því að vera
með hávaðasaman lofsöng. Það er
kór Dómkirkjunnar sem flytur
þetta verk undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar, en verkið var
sérstaklega pantað af kórnum tii
flutnings á tónlistardögum Dóm-
kirkjunnar í haust.
ROMANZA er verk fyrir þrjú
hljóðfæri, flautu, klarinett og
píanó. Þetta verk var upphaflega
flutt í Stokkhólmi á vegum
sænska útvarpsins. Síðan hefur
það bæði verið flutt hér á íslandi
og víðar. Eins og titillinn bendir
til er þetta rómantískt verk, en
kannski á óvenjulegan máta.
Flytjendur eru, á flautu Martial
Nardeau, á klarínett, Óskar Ing-
ólfsson og á píanó Snorri Sigfús
Birgisson."
„CANTO þýðir söngur og text-
inn er verk Þóris Kr. Þórðarsonar,
prófessors í guðfræði við Háskóla
Islands," segir Hjálmar spurður
nánar um CANTO. „Það var ákaf-
lega ánægjulegt að vinna með Þóri
að þessu verkefni, hann var mjög
opinn og lifandi fyrir þessari
hugmynd. Það má segja að hug-
myndin að verkinu fæðist vegna
þess að mig langar til að skrifa
verk sem hefði víðtækari merk-
ingu en eingöngu tónlistarlega og
þar sem að undanförnu hafa dunið
yfir okkur hörmuleg tíðindi er-
lendis frá, bæði frá Líbanon og
annars staðar, þá langaði mig að
gera eitthvað í því sambandi og þó
maður geti ekki gert eitthvað
áþreifanlegt, langaði mig til að
nota tónlistina til að tjá hug minn
um þetta. Nærtækast fyrir texta
að þessu verki fannst mér vera
Bibtían og ég fékk Þóri til að
hjálpa mér að finna texta sem
samræmdist mínum hugmyndum í
tónlistinni. Þessa texta fundum
við í Gamla testamentinu, alla í
Spámannabókunum, einkum í Jes-
aja.
Þá hafði mig langað til að semja
tónverk sem bryti í bága við
hefðbundinn kórsöng, sem oft
hættir til að staðna. Það geri ég
meðal annars með því að skipta
kórnum upp í þrjá kóra, sem hver
um sig er átta raddir. Hver söngv-
ari fær ákveðið hlutverk, sem hon-
Hjálmar Ragnarsson, tónskáld.
Morgunblaðið/KAX.
um einum er ætlað og það geri ég
til að virkja hvern einasta mann.
Þá nota ég annars vegar gífurlega
ómstríða hljóma sem andstæðu
við hins vegar einraddaðan söng.
Staðsetning kóranna er mjög
mikilvæg, hljóðin koma úr mis-
munandi áttum, en ekki einungis
úr einni átt eins og venjulegt er,“
sagði Hjálmar Ragnarsson tón-
skáld að lokum.
Tónleikar háskólakórsins í Fé-
lagsstofnun stúdenta við Hring-
braut, laugardaginn 4. desember,
verða tvennir. Þeir fyrri hefjast
klukkan 17.00 og þeir síðari klukk-
an 20.30.
Hér fer á eftir sýnishorn af
textanum við CANTO úr Gamla
textamentinu.
„—Hver er þessi sem kemur frá
Edóm
í hárauðum klæðum frá Bosra? ...
Hví er rauð skikkja þín?
og klæði þín eins og klæði manns
sem treður ber í vínþröng?
—Vínlagarþró hefi ég troðið
aleinn,
af þjóðunum hjálpaði mér enginn
ég fótum tróð þá í reiði minni,
marði þá sundur í heift minni,
og blóð þeirra hraut á klæði mín.
[Jes.63.1—3]
Og „Dagur reiðinnar" rennur
upp! Hrópað er:
—Smíðið sverð úr plógjárnum!
og lensur úr sigðum!
Bregðið sigðinni!
Komið og troðið,
vínlagaþróin er full!
Það flóir út af lagarkerunum
því að illska þeirra er mikil!“
[Jóel 3.15,18]
Sem dæmi um hugleiðingar
doktors Þóris, er þetta tekið. JÞað
nefnist endurlausn á máli guð-
fræðinnar, að leysa það undan
myrkrinu, sem í myrkrum býr,
leiða það til ljóssins, leysa það
undan kaos sem í kaosnum er
(Genesis 1. kap.) og gera það að
skapnaði, sem áður var óskapnað-
ur. „Yfir þá sem búa í landi nátt-
myrkranna skín ljós“ segir í jóla-
guðspjalli Jesaja í 9.2a. Sköpun og
endurlausn eru tvær hliðar á sama
hlut, en því miður hefur mönnum
yfirsést þetta um nokkurra alda
skeið en er nú að verða ljóst].“
OGAFTUR
jryUlH
Jólabingó
fyrir alla fjölskylduna!
fimmtudaginn
2. desember
í Sigtúni kl. 20:30
SPILAÐAR VERÐA 18 UMFERÐIR - EFNT
VERÐUR TIL HAPPDRÆTTIS EF EIN-
HVERJIR VINNINGAR GANGA EKKI ÚT!
Enainn
aðaanasevrir!
(húsið verður opnað kl: 19:30)
VINNINGAR M.A.:
FERÐAVINNINGAR
INNANLANDS OG UTANLANDS
GLÆSILEGIR VINNINGAR
í FATAÚTTEKT
FULLKOMIÐ MYNDSEGULBAND
MATARKÖRFUR FYRIR JÓLIN
HUGGULEGIR SKARTGRIPIR
MYNDBÖND í TUGATALI
VEGLEG HEIMILISTÆKI O.FL. O.FL.
4
JOLABINGO I SIGTUNI FIMMTUDAG 2. DES. KL. 20:30
FRAMSÓKNARFÉLAG REYKJAVÍKUR
Póstgjöld
hækka um
16 prósent
NÝ GJALDSKKÁ fyrir póstþjónustu
tók gildi 1. desember. Samkvæmt
hcnni verður burðargjald bréfa í
fyrsta þyngdarflokki (20 g) innan-
lands og til Noröurlanda 4,00 kr., til
annarra landa 4,50 kr. og flugburð-
argjald til landa utan Evrópu 8,00
kr., segir í frétt frá Póst- og síma-
málastofnuninni. Gjöldin hækka um
16%. Ennfremur segir:
Burðargjald fyrir póstkort og
prent í fyrsta þyngdarflokki (20 g)
verður 3,50 kr. nema flugburðar-
gjald til landa utan Evrópu, sem
verður 4,00 kr.
Gjald fyrir gíróþjónustu verður
5.50 kr., fyrir almennar póstávís-
anir 9,50 kr., símapóstávísanir
42.50 kr. og póstkröfur 17,50 kr.
(12.00 kr. ef um innborgun á
póstgíróreikning er að ræða).
Burðargjald böggla innanlands
verður sem hér segir: 1 kg 20,00
kr„ 3 kg 23,00 kr„ 5 kg 36,00 kr„ 10
kg. 56,00 kr„ 15 kg 81,00 kr„ 20 kg
90,00 kr.
Ábyrgðargjald verður 8,50 kr.
og hraðboðagjald 19,00 kr.
Listasafnið
gefur út kort
LISTASAFN íslands hefur gefið út
sex ný litprentuð kort með mál-
verkamyndum.
Á kortunum eru eftirtalin verk:
Hengillinn, 1932, eftir Brynjólf
Þórðarson, Fiskibátur, 1958, eftir
Gunnlaug Scheving, Gluggar,
1975, eftir Hörð Ágústsson, Súlur,
1929, eftir Jón Þorleifsson, Morg-
unn í Stykkishólmi, 1947, eftir Jón
Þorleifsson, og í vinnustofunni,
1950, eftir Valtý Pétursson.
Einnig hafa verið gefin út þrjú
ný litprentuð póstkort: Og skorið
og skor, 1976, eftir Sigurð Örlygs-
son, Höfuð horfir í fiðrildi II, 1977,
eftir Margréti Elíasdóttur, og I
þokunni III, 1977, eftir Þórð Hall.