Morgunblaðið - 02.12.1982, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
32
Akureyri:
Viðbótarhús-
nædi FSA vígt og
Systrasel afhent
Akureyri, 27. nóvember.
VEGLEG HÁTÍÐARSAMKOMA var haldin í Fjórðungsajúkrahúsinu á Akur-
eyri í dag í tilefni tveggja merkisatburða í sögu stofnunarinnar, vígslu hins
rúmgóða viðbótarhúsnæðis, sem nú er að hluta tekið í notkun, og afhendingu
hjúkrunarheimilisins Systrasels, sem nú stendur fullbúið og tekur væntanlega
til starfa á fyrri hluta næsta árs. Fjöldi manns var viðstaddur samkomuna,
heilbrigðisráðherra, landlæknir, þingmenn, bæjarfulltrúar, margir starfsmenn
FSA og ýmsir aðrir gestir.
Samkoman hófst kl. 15 með því
að sr. Birgir Snæbjörnsson flutti
bæn, en blásarasveit Tónlistarskól-
ans á Akureyri lék. Síðan flutti
Gunnar Ragnars, formaður sjúkra-
hússtjórnar, ræðu og lýsti þeim
breytingum, sem verða helstar á
starfsemi FSA við tilkomu hins
nýja húsnæðis. í nýja hlutanum
hafa nú þegar tekið til starfa augn-
og eyrnasjúkdómadeildir, skurð-
deild, gjörgæsludeild, sótthreins-
unardeild og rannsóknarstofa í
meinafræði, en í eldra húsinu hefir
bæklunarlækningadeild hafið
starfsemi í hluta af húsnæði hand-
lækningadeildar og þar sem
skurðstofur voru áður. Þar er einn-
ig slysastofa í rýmkuðu húsnæði.
Halldór Baldursson dr. med. verður
yfirlæknir slysastofu og bæklun-
arlækningadeildar, sem er nýjung í
heilbrigðismálum á Akureyri.
Gunnar gat þess, að þrátt fyrir
þessa miklu stækkun húsnæðis
fjölgaði sjúkrarúmum ekki nema
um rúmlega 20, en á þessu ári yrðu
legudagar um 50.000. Vægast sagt
væru fjármál FSA komin í hnút, og
fjárveitingar næsta árs til bygg-
ingarframkvæmda færu allar til að
greiða framkvæmdir á þessu ári og
lán, sem nauðsynlegt var að taka.
Viðhald gamla hússins hefði dreg-
ist aftur úr, og fjármál sjúkrahúss-
ins þyrfti að taka til athugunar í
heild nú þegar.
Þá tók til máls Svavar Gestsson,
heilbrigðisráðherra. Hann skýrði
frá því, að árlegur rekstrarkostn-
aður FSA væri um eða yfir 120
milljónir króna eða svipaður og all-
ur byggingarkostnaður nýja hlut-
ans. Enn væri ráðgert að bæta við
50—60 stöðugildum. Ráðherra
skýrði frá því, að í samráði við
fjárveitingavaldið hefði verið
ákveðið að heimila stjórn FSA að
auglýsa eftir starfsfólki við hjúkr-
unarheimilið fyrir aldraða, Systra-
sel, um næstu áramót, þannig að
rekstur gæti hafist 1. mars eða svo.
Viðbygging Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Morgunblaíií/ Srerrir Pálsson
Frá athöfninni.
m
jk Sjfe y J&lmnmilÆ&Á 1k " ‘'rjÆ
é
Fjölbreytt skemmtiatridi:
Lionsklúbburinn
Ægir
gengst fyrir
jölskyldu-
Verd
aðgöngumiöa: kr. 100.-
fyrir fullorðna og kr. 50.- fyrir börn
Eitt bingóspjald og happdrættismiöi er innifalið
í miöaveröi.
Hvert bingóspjald eftir þaö kr. 40.-.
Öllum ágóöa er variö til líknarmála og þá fyrst
og fremst til Sólheima, heimili þroskaheftra.
Eiríkur Fjalar og Þóröur
húsvöröur koma í heim-
sókn. Mezzoforte, Helga
Möller, Katla María og
Pálmi Gunnarsson, Sanus
Futurae og Magnús Eiríks-
son kynna lög af nýju plöt-
unum sínum. Svavar
Gests kynnir og stjórnar
bingóinu.
Fjölskyldu-tískusýning á
vegum Modelsamtakanna.
Föt frá: Mæðrabúðinni,
Vörumarkaönum, Fiber og
BB-byggingavörum.
Nú er tilvaliö fyrir alla fjölskylduna aö
skemmta sér saman meö frábærum
skemmtikröftum, spila bingó um mikinn
fjölda afbragðs vinninga, svo sem ferða-
stereótækis, rúms frá Ingvari og Gylfa,
myndavélar og fleira og fleira.
Og síðast en ekki síst að styrkja gott málefni.