Morgunblaðið - 02.12.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
15
1
HVER BOKIN
ANNARRI VANDAÐRI OC BETRI!
Þorgils gjallandi
Ritsaf n l
Þorgils gjallandi er skilgetið afkvæmi
menningarbyltingar Suður-Þingeyinga í
lok 19. aldar og sögur hans framlag til
þeirrar hugsjónar, að hamingja manna
og dýra væri innan seilingar ef umhverfi
þeirra væri bætt. Þetta er fyrsta bindið
i þriggja binda útgáfu okkar á ritum
Þorgils gjallanda og hefur að geyma
dýrasögur, erindi og greinar, auk langrar
ritgerðar Þórðar Heigasonar um skáldið,
verk hans og þær móttökur sem þau
hlutu hjá samtímamönnum.
Faöir minn —
Skólastjórinn.
Fimmtán þættir um þjóðkunna og
mikils virta skólamenn, sem hafa haft
ómetanleg og varanleg áhrif í uppeldis-
og fræðslumálum þjóðarlnnar. Þættirnir
eru skráðir af börnum þeirra, og fléttast
inn í frásögnina lýsingar á heimilisbrag
og fjölskyIdulífi, sem og öðrum þáttum
í lífi þessara miklu fræðara, sem margir
voru athafnasamir og mikilvirkir á öðrum
sviðum. Áður eru komnar út hliðstæðar
bækur um lækna, bændur, skipstjóra og
presta.
U
m
Benedikt Gröndal
Rit II
Gröndal var einn afkastamesti og
skemmtilegasti rithöfundur okkar. í
þessu öðru bindi rita hans er gullfalleg
Gröndalsminning eftir skáldkonuna
Huldu, ritgerðir Gröndals, blaðagreinar
og bréf. Gröndal var ólatur bréfritari og
skrifaðist á við fjölda manna, innlenda
og erlenda, og eru bréf hans full af fjöri
og gáska. Fyrsta bindi rita Gröndals kom
út í fyrra og hefur að geyma kvæði,
sögur og leikrit, en í lokabindinu verður
ævisagan Dægradvöl og Reykjavík um
aldamótin 1900.
Einar Guðmundsson
Þjóðsögur og þættir II
Einar Guðmundsson kennari er einn
afkastamesti síðari tíma manna við
söfnun og varðveizlu þjóðlegs fróðleiks.
í þessu safni hans eru sögur, ævintýri
og kveðskapur hvaðanæva að af
landlnu. Einar er orðhagur vel og hefur
frábært vald á íslenzku máli og er auk
þess ágætlega snjall sögumaður. Þetta
safn hans er góöur viðauki við þjóð-
sögur og þætti annarra safna og mun
mörgum aufúsugestur.
/r
Skúli Guöjónsson frá
Ljótunnarstöðum
Hver liðin stund er lögö í
sjóð
Þessir minningaþættir eru fádæma
skemmtilegir. Skúii segir frá barnaskóla-
námi sínu, en kennari hans þar var
Arndís Jónsdóttir, sem þekktari er sem
„Elskan hans Þórbergs." Hann segir frá
Samvinnuskólaárum sinum, kennurum,
nemendum og öðru gáfufólki, sem hann
kynntist, Borðeyrardeilunni, pólitískum
hræringum heima í sveitinni á tíma
Finnagaldursins o.fl. Töfrar máls og stíls
eru með þeim hætti, að þessi bók verður
lesin aftur, aftur og aftur.
Guðmundur Jörundsson
Sýnir og sálfarir
Farsæll skipstjóri og útgerðarmaður
segir frá sérstæðum þætti ævi sinnar,
m.a. draumamanni, sem vitjaði hans
fyrst 17 ára gamals og hefur fylgt honum
æ síðan og um margt haft áhrif á lif hans
og iífsviðhorf, vísað honum á fengsæl
mið og skip í sjávarháska, veitt honum
þá lífsfyllingu og fögnuð, sem því er
samfara að bjarga lífi nauðstaddra sjó-
manna. — Atburðir, sem hér er sagt frá,
eru ekki aðeins dularfullir, mörgum mun
þykja þeir óskiijanlegir.
Gils Guðmundsson
Frá ystu nesjum lll
Lokabindi þessa fróðlega og
skemmtilega safns vestfirskra þátta.
Hér eru m.a. þættir um Ögurbændur,
Bændur í Önundarfiröi, Ætt Guðmundar
á Selabóli, Goðafoss-strandið 1916 og
björgunarafrek Látramanna, Útveg Arn-
firðinga á ofanverðri 19. öld, Sighvat
Borgfirðing og löng ritgerð höfundar um
Ólaf Þ. Kristjánsson. Fyrri bindi ritsins
eru enn fáanleg.
Sigurður Á. Friðþjófsson
Heimar
Þetta er höfundur, sem vert er að
kynnast. Þessi bók hans er ekki skáld-
saga í venjulegum hefðbundnum skiln-
ingi, — snertipunktar hennar eru jafnt í
raunveruleika og draumi, þjóðsögu og
imyndun, — en hún mun vekja athygli.
Þetta er sagan af Ágústi, ungum
manni af hernámsárakynslóðinni. Hann
er áttavilltur í tilverunni, taidi sig geta
beygt lífið að eigin geðþótta, en er
reynslunni ríkari i sögulok.
ÆVISkRAR
SAMTÍOARMANNA
A — H
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OL/VERS STEINS SF
Einar Benediktsson
Ritgerðir
Þetta safn sem hér birtist er úrval með
helztu ritgerðum eftir Einar Benedikts-
son um þau efni, sem hann lét sig
einkum varða, og þar sem sérkennilegur
stíll hans kemur bezt í Ijós. Þar á meðal
eru greinar hans um islenzk Ijóðskáld i
Dagskrá, einhver fremsta gagnrýni, sem
skrifuð hefur verið á íslenzku.
Við höfum áður gefið út Ljóðasafn
I—IV og Smásögur eftir Einar Bene-
diktsson, en þessi 6 bindi eru vandað-
asta og handhægasta útgáfa á ritum
skáldsins, sem hér hefur verið gefin út.
Torfi Jónsson
Æviskrár
samtíðarmanna A—H
Æviskrár samtíðarmanna verður
þriggja binda rit. Þar verða æviskrár 5-6
þúsund núlifandi ísiendinga, sem gegnt
hafa eða gegna meiriháttar opinberum
störfum í þágu ríkis, höfuðborgar,
bæjar- og sveitarfélaga. Einnig athafna-
manna, forstöðumanna og sérstakra
trúnaðarmanna fyrirtækja í ýmsum
starfsgreinum, forvígismanna í félags-
málum og annarri menningarstarfsemi,
rithöfunda, listamanna og ýmissa fleiri.
Fyrsta bindi þessa rits, með nöfnum
sem byrja á stöfunum A-H, er komið út.
Næsta bindi kemur upp úr áramótum. —
Þetta er ómissandi handbók.
■■i ■■■ • - ■■ ■■ ■