Morgunblaðið - 21.04.1971, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1971
Avarp
forsætisráð-
herra
Jóhanns
Hafstein
Þegar handritin koma heim í dag,
koma mér í hug orð Ara fróða í for-
mála hans að íslendingabók: „En
hvatki er missagt er í fræðum þessum,
þá er skylt að hafa þat heldr, er sann-
ara reynist." Þetta er fagurt upphaf
bókmennta vorra. Margur sagnaritari
og rithöfundur hefir tileinkað sér anda
hinnar fomíslenzku bókmenningar.
Rithöfundar hafa hlotið og hljóta að-
kast og jafnvel ofsóknir þar, sem
frjálsri hugsun er stakkur skorinn.
Þeir hljóta einnig lof og stundum oflof.
Ef til vill er þeim tómlætið verst. En
þá er þess að minnast, að til eru þeir
rithöfundar, sem ekki hlutu lárviðar-
sveiginn fyrr en löngu eftir aldurtila.
Tæpast verða Islendingar sakaðir um
að kunna ekki að meta bókina. Sumum
finnst þeir ef til vill gerast of tómlátir
nú í þeim efnum. En hvað sagði ekki
Einar Benediktsson, sá mikli skáld-
jöfur:
„... Bókadraumnum,
böguglaumnum
breyt í vöku og starf.“
Skáldið var maður bókarinnar. En
hann skildi öðrum fremur, að menning,
vísindi og bókmenntir em aflgjafi til
fr£tmfara og bættra lífskjara.
Nú er dagur bókarinnar á Islandi.
Danir færa okkur Flateyjarbók og
Sæmundar-Eddu. Þetta eru konungleg
ar gjafir, svo sem þær áður vom, þá
er þær fluttust í konungsgarð. Þegar
islenzku handritin koma heim, munu
þau tendra á ný þann gneista menn-
ingar og mennta, sem er kveikja þeirra
sjálfra. I dag tendra Danir í hugum
íslendinga gneista einlægrar vináttu
tveggja norrænna þjóða.
Heill og heiður Dönum!
Ur SÆMUNDAR-EDDU, upphafi HAVAMALA. I öðru erindi segir m.a.: „Gefendr
heilir! Gestr er inn kominn . . eins og sjá má á myndinni. Sjá ennfremur for-
ystugrein blaðsins i dag.
<