Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 30. SEPT. 1970 r ' i MJl fítL.lLEiOA.\ ÆJALUItf 25555 WMFIB/fí BILALEIGA HVERFISGÖTU 103 VW Sendifef&bifretó-VW 5 manna -VW svefnwpi VW 9manna-Landrover 7manna JOHNS - MME gl e rullarei nangrunin Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerutlareinangrunina með álpappirnum, enda eitt bezta einangrunarefnið og jafnframt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4" J-M glerull og 3" frauðplasteinangr- un og fáið auk þess álpappir með. Jafnvel flugfragt borgar sig. Sendum um land allt — Jón Loftsson hf. penol skólapenninn BEZTUR í BEKKNUMI Blekhylki, jöfn btekgjöf og oddur við haefi hvers og eins. Sterkur! FÆST í FLESTUM RITFANGA—OG BÓKAVERZLUNUM HEILDSALA: FÖNIX «.F. - SUÐURG. tO - S. 2442» 0 Til að berjast gegn fíknilyfjum „Kæri Velvakandi! Ég fékk allt í einu svo mikla löngun til að skrifa þér um fiknilyf og Iét ég því verða af því. Hér á landi var fyrir mörg um mánuðum byrjað að ræða um fíknilyf í blöðum og sjón- varpi, fólk var lauslega aðvar- að og ekki meir. I einum sjón- varpsþætti var rætt við ein- hvern lækni, sem taldi upp all- ar gerðir af fíknilyfjum og sagði að hin og þessi tegund væri ekki vanabundin „og væri ekki skaðleg í fyrsta sinn.“ Einnig sagði hann að nú væru svo margir „fíknilyfja-varnar- veggir“ í landinu að búast mætti jafnvel við að „fíkni- lyfjaaldan" mundi sigla fram hjá okkar góða landi Islandi. Ja ekki voru þessi orð til að hindra menn frá fíknilyfja- neyzlu. Svo hafa líka verið stofnaðar nefndir til að berj- ast á móti fíknilyfjum, en ekk ert hefur bólað á þeirri nefnd eða góðverkum hennar. Það sem fékk mig til að skrifa þér um fíknilyf, var það, að ég er alltaf að reka mig á fólk sem hefur „prófað" og langar til að „prófa“. Sorglegast við þetta erf að fólk sem er alltaf að „prófa“ endar oft- ast þar sem það ætlaði ekki að enda. Það verður annað hvort fíknilyfjum að bráð eða gerist algjörir alkóhólistar. Hér á landi er fíknilyfja- neyzla hjá unglingum að stór- aukast. Já stóraukast, meir en nokkurn mann getur grunað. (Fíknilyfjaneyzlan er ekki bara hjá unglingum heldur einnig hjá fullorðnum, en ég ætia ekki að tala hér um þeirra mál því þeir ættu að hafa meira vit fyrir sér en ungl- ingarnir sem rétt eru að stíga á lifsbrautina). 0 Vappa í kringum drukkna unglinga Lögreglan virðist ekki breyta stefnu sinni neitt gagnvart unglingunum, en það verður hún að gera og fara rétt að. Ég veit um marga sem hafa „prófað" og eru óðir í að „prófa“ aftur ef þeim tækist að ná í hið „góða“ lyf. Það Frá barnaskólum Reykjavíkur Skólahald fyrir sex ára börn (f. 1964) hefst í bamaskólum borgarinnar í byrjun októbermánaðar. Næstu daga murtu skólarnir boða til sín (simleiðis eða bréf- lega) þau börn, sem innrituð hafa verið. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Höfum til sölu á einum bezta stað í Breið- holtshverfi 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Sér- þvottahús. íbúðrinar seljast tilbúnar undir tréverk, en sameign fullfrágengin. Teppi á stigahúsi. Beðið eftir láni Húsn.m.stj. INGÓUFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓI SÍMI 12180. HEIMASÍMAR GÍSLI ÓLAFSS. 83974. ARNAR SIGURÐSS. 36849. ÍBÚÐA- SALAN þarf eitthvað áhrifamikið til að aftra unglingum (eða fólki yfirleitt) frá fikti við fíkniiyf, eitthvað sem vekur til umhugs- unar um hættu fíknilyfja. 1 ýmsum löndum heims er fikni- lyfjaneyzla unglinga orðin mik ið vandamál, svo mikið að það er næstum óviðráðanlegt. Við íslendingar getum ekki ímynd- að okkur, að fíknilyfjaneyzla hér geti orðið eins gífurleg og úti í öðrum löndum, en það get- ur hún nefnilega orðið, ef ekki er barizt með hörku á móti henni. Eiturlyfjaneyzlan er mjög hljóðleg hér á landi en húri er orðin töluverð. Margir óþokkar eru lausir hér sem selja unglingum lyf sín. Þeir byrja á því að gefa þeim smá skammt og ef viðkomandi lang ar í meira verður hann að kaupa það dýrum dómi. En þeir eru svo klókir að þeir vappa um þar sem unglingar halda sig og bjóða aðeins þeim sem eru drukknir og vita ekki hvað þeir eru að gera. Ég veit um dæmi um þetta, en var samt ekki vitni að. Svo finnst mér að fíknilyf í apótekum eigi að vera á öruggum stað til að starfsfólk apótekanna geti ekki freistazt til að „prófa“. Ég veit nefnilega um unglingsstelpu sem vann í einu apóteki og gat hnuplað nokkrum dósum af valium og neytti af því sjálf og gaf vini sínum. Svo vil ég nefna það, að sögur eru á kreiki sem eiga að vera frá starfsfólki sjúkrahúsa hér, að ótrúlega margir séu fluttir inn á sjúkrahúsin upp„dópaðir“ eft ir fíknilyfjaneyzlu. Og ef það er satt eru fíknilyfjamálin mjög alvarleg hér. Ef lögreglan hér á landi Iítur ekki alvarlegum augum á fíknilyfjamálin hér- lendis, og heldur að allt sé í lagi, vona ég að hún fari að gera það áður en allt verður of seint, sem búast má við ef verðirnir vakna ekki, og ef betra eftirlit á afgreiðslu fíkni lyfja í apótekum verður ekkL Einnig verður að gæta betur unglinganna sem inn i landið koma og sem í landinu eru. Og að lokum: Stöndum dygg an vörð um ísland fyrir fíkni- Iyfjum til þess að við verðum ekki þeirra bráð. Ein 16 ára.“ 0 Hefur nokkur séð keðju? „Góði Velvakandi! Gerðu svo vel að gera mér þann greiða að birta þessar lín ur. Á hvítum lóðarsteinum, sem eru kringum lóðina á Hátúni 2, Höfðatúnsmegin, var keðja, sem þrædd var i kengi, sem steyptir voru í steinana. Að- faranótt s.l. sunnudags var keðja þessi numin burt. Ef for- eldrar barna þama í grennd sjá þessa keðju I fórum þeirra, gerið þá svo vel að fá börnin til að skila henni aftur. Fyrir- fram þökk. Ásmundur Eiriksson, Hátúni 2“ 0 Er kal í túnum m.a. rányrkjufyrirbrigði? h.j.þ. skrifar: „Ég er ekki neinn sérfræðing ur i jarðræktarmálum, en hef þó fylgzt með þeim málum frá því að fyrsti „traktorinn" kom til fslands árið 1918, var raun- ar síðasti vélstjórl á honum við túnatilbúning. — Hef töluverð an áhuga, en þó hefir hann aðallega einskorðazt við raakt- un heimablettsins, blóma og trjáa, síðustu árin. Við erum þrír félagar, sem eigum samliggjandi túnbletti. Þeir eru uppbyggðir af sama jarðvegi og sami húsdýraáburð urinn hefir verið borinn á grundina. — Haustið 1968 snöggslógum við tveir okkar bletti, seint í septembermán- uði, en sá þriðji Iét grasið (hána) hlífa rótinni, sem sagt sló ekki u.þ.b. 5 cm hátt gras. — Næsta vor voru stórir kal- blettir í þeim blettum, sem slegnir voru en sáust ekki í hin um þriðja. 1 sambandi við þessa stað- reynd, er ég að velta því fyrir mér, hvort kal í túnum viðs veg ar um sveitir landsins, sé m.a. afleiðing af ofslætti og ofbeit aðhausti til? h.j.þ.“ 0 Þessi penni þóknast mér „Kæri Velvakandi. Alltaf fellur mér illa, þegar ég sé birtar afbakaðar vísur. Þann 19. þ.m. sendi Jón Árna- son þér eina algenga vísu, sem hann hafði þannig: „Þessi penni þóknast mér Því hann er af hrafni. Hann hefur skorið gjarða geir Gunnlaugur að nafni.“ Eftir þvi sem ég hef lært vís una eru í henni tvær villur. Auðséð er að eitthvað er bogið við þriðju línuna, því að hún rímar ekki einu sinni á móti þeirri fyrstu —■ mér — geir. Ég álit að vísan sé svona, og þannig er hún líka í bókinni: „Ég skal kveða við þig vel,“ þar sem vandað mun vera tU heimilda: „Þessi penni þóknast mér, þvi hann er úr hrafni. Hann hefur skorið geiragrér Gunnlaugur að nafni.“ En geiragrér er þarna mann kenning. Eiríkur Sigurðsson." Dömur! Dömur! Höfum fengið aftur hið vinsæla Mini Vague, ennfremur hinn vinsæla fitueyðir, úrval af háralitum, hárskolum og shampó. Lagningar, permanent, klippingar, lokka- lýsingar. Hárgreiðslustofan LOKKABLIK Hátúni 4 A (Nóatúnshúsinu). (Næg bílastæði). Sími 25480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.