Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ fcriðiijdatrur 3. des. 1963 Fram hefur unnið titilinn og á þo leik eftir En Valsmenn ógnuðu sigri þeirra FRAMARAR tryggðu sér Reykja víkurtitilinn í handknattleik 1963 á sunnudagskvöldið. Eiga þeir þó einn leik eftir en engu máli skipt- ir hvernig hann endar — Fram er Reykjavíkurmeistari. í>að var sigur Fram yfir Val og sigur Ár- manns yfir KR, sem færðu Fram þessa hagstæðu stöðu, að síðasti leikur þeirra hefur engin áhrif á Staðan STAÐAN í Reykjavíkurmótinu í handknattleik (mfi. karla) er nú þessi: FRAM 5 4-1-0 74:48 9 ÁRMANN 5 3-0-2 54:56 6 KR 5 2-2-1 49:51 6 VALUR 5 2-0-3 54 Æ6 4 ÍR 5 2-0-3 45:48 4 FRÓTTUR 5 2-0-3 47:69 4 VÍKINGUR 6 1-1-4 62:63 3 Síðustu leikir mótsins eru á föstudaginn kemur og eru þessir: Ármann — Valur Þróttur — KR Fram — ÍR úrslitin — nema þá til að gera þau enn glæsilegri, fari þeir þá með sigurorð yfir ÍR, sem og er spáð. ár Valsmenn erfiðir En Framarar höfðu sannar- lega ekki auðveldan sigur yfir hinu unga Valsliði. Fram hafði að vísu alltaf forystu, stundum 3-4 mörk, en tæpum 2 mín. fyrir leikslok tókst Valspiltunum að minnka bilið í 1 mark og yljuðu þar með íslands- og Reykjavíkur- meisturunum óvænt undir ugg- um. En ókefð ungu Valsmann- anna í sigur var of mikill og leik- reyndir Framarar tryggðu sigur sinn á síðustu stundu. Valsmenn komu á óvart í upp- hafi og náðu 3-1 forskoti, en Fram arar jöfnuðu 3-3 og réðu síðan lögum og lofum til leikhlés er staðan var 9-4. Góður bardagi Stórsigur Fram virtist blasa við. En ungu Valspiltarnir uxu og sóttu á brattann. Fyrri helming f J Karl Benediktsson skorar hálfleiksins fékk Fram ekki skor- að nema tvívegis en Valsmenn Hvert stefnir? Handknattleikur hér í Reykjavík er á rangri braut. Þetta er sí og æ að koma í ljós og jafnframt að það eru dómararnir sem eigá stærsta sök„á því hvert stefnir. Það er fyllsta ástæða til að dóm- arar og forystumenn staldri við og íhugi hvert stefnir. S.L sunnudagskvöld báru tveir leikir þessa augljósan vott. Það var leikur Ármanns og KR annars vegar og Vík- ings og ÍR hins vegar. Að sjálfsögðu er ekkert lið með hreinan skjöld en áberandi var ‘hversu varnarmenn KR og Víkings beittu harkalegum leik, að halda, hindra eða annað tiltækilegt þegar mikil hætta steðjaði að. Og þetta fór vaxandi er á leikina leið vegna þess að dómarinn hafði ekkert við þetta að athuga — leikmennirnir gengu á lag- ið. Verði svo haldið á*fram verða slík slagsmál fyrr en varir kallaður handknattleik- ur. Þetta þurfa dómarar að at- huga vel — og reyndar for- ystumenn handknattleiksins einnig. Að Þetta er dómaranna sök kom allglöggt í ljós í leik Fram og Vals. Þá var ákveðn- ari og reyndari í faginu. Þá var slíkt ekki leyfL Það verður að drepa í fæð- ingu allar tilhneigingar til að sveigja handknattleikinn inn á brautir slagsmála og hrind- inga. uku á forskotið og staðan varð 11-9 fyrir Fram. Enn léku þeir á meistaraliðið og litlu síðar var staðan 12-11 og spenningurinn náði hámarki. En ákafi Vals- manna varð of mikill — og Fram- arar tryggðu sigur sinn svo loka- talan varð 15-12. Valsliðið er skipað ungum mönnum og á liðið án efa mikla framtíð fyrir sér. Sig. Dagsson og Jón Karlsson áttu beztan leik, svo og Egill í markinu, sem oft varði stórglæsilega. Framliðið er langt fjarri sínu bezta og virðist helzt þurfa að hafa nokkurra marka forskot til að geta notið sín að einhverju leyti. Sumir leikmanna, t.d. Ing- ólfur stórskytta reynir eitthvert primadonnuspil sem aldrei gefst vel. Beztir voru Karl Benedikts- son, Guðjón og Tómas — en allir hafa þó leikið betur áður. Ármann lék sér crð KR og Víkingur vann ÍR 14-11 Á þingi FRÍ um sl. helgí var Jóni Þ. Ólafssyni ÍR afhentur „For setabikarinn" sem veittur er ár hvert fyrir bezta frjálsíþrótta- afrek sem unnið er á 17. júní-mótum um land allt. Hér er Baldur Möller form. ÍBR að afhenda Jóni bikarinn. * Ljósrn. Sv. Þorm. ÁRMENNINGAR unnu KR-inga heldur auðveldlega á Reykjavík- urmótinu í handknattleik í fyrra- kvöld og höfðu algera yfirburði. Víkingar unnu og sinn fyrsta sig- ur á vetrinum er þeir mættu ÍR- ingum — en Víkingar eru eigi að síður dæmdir til að reka lestina á þessu Reykjavíkurmóti. Leik- irnir báðir voru skemmdir af lé- legum dómi og sáust oft furðuleg leikbrot fá að líðast æ ofan í æ. Auðveldur sigur Ármanns Ármenningar höfðu öll völd í leiknum við KR, uku forystu síná jafnt og þétt í fyrri hálfleik. KR-ingar skoruðu aðeins 3 mörk í hálfleiknum, 2 úr vítaköstum (annað mjög vafasamur dómur) og hið þriðja er laus knöttur rann milli handa markvarðar Ár- manns. 7-3 var staðan í hléi. Fjórða mark KR kom er 9 mín. Jimmy Greaves í 80 daga fangelsi á Ítalíu? HINN opinberi ákærandi borgarréttarins í Milano Salvator JovLno, krafðist þess fyrir réttinum. í Milano í gær að brezki knattspymukappinn Jimmy Greaves yrði dæmd- ur í 80 daga fangelsisrefsingu. Knattspymuliðið Milan stefndi Jimmy Greaves fyr- ir meiðandi ummææli um fé- lagið. Jimmy lélc fyrir Milan þar til fyrir u.þ.b. 2 árum að Milan seldi hann aftur til Eng lands. Jimmy Greaves var á sínum tíma sá leikmaður er Milan hefur greitt hæst verð fyrir, og dekraði félagið við hann á alla lund — han-n bjó í lúxusíbúð, hafði bifreið o.fl. o. fl. Síðar slettist upp á vinskap inn, Jimmy var stór upp á sig, neitaði að æfa nema þegar honum hentaði. Félagið vildi því selja hann og fékk fyrir hann álíka verð og það hafði áður keypt hann fyrir. Og svo hófust málaferlin fyrir meiðandi ummæli, sem félagið telur Greaves hafa haft um Milan. Borgarrétturinn í Milan er skipaður þremur dómurum. þeir frestuðu málinu þar til 27. janúar og fyrirskipuðu frekari réttarhöld áður en dómur yrði upp kveðihn. Greaves var ekki viðstadd- ur réttarhöldin. Yerjandi hans sem tilnefndur var af ítalska réttinum krafðist sýknudóms „þar sem hann væri útlendingur og hefði skrifað greinar þær er málið reis út af í Bretlandi“. voru af síðari hálfleik, en þá náðu KR-ingar sínum bezta kafla og fengu lagfært stöðuna ( 9-6 Ármanni í vil. Lokastaðan var 10-6. Ármenningar spiluðu mjög á- kveðið og átti liðið góðan leik. Liðið er mjög vaxandi vegna sí- aukins sameiginlegs styrks. Hörð- ur, Árni og Lúðvík eru beztu menn liðsins. KR-ingar fengu lítið notað stjörnur sínar. Karl Jóh. og Reyni og þá var eins og allt væri í rústum. Liðið var þarna samtaka- laust og oftar var gripið til ljótra bragða og hrindinga en að reyna að byggja upp fallegan leik. ÍR-ingar mættu furðu'kæru- lausir til leiks við Víking og svo fór að Víkingar höfðu 8-4 í leik- hléi og höfðu Víkingar þá skorað tvö majrka sinna úr aukaköstum án þess að varnarmenn eða mark- maður gerðu alvarlega tilraun til að verja. í síðari hálfleik tóku ÍR-ingar sig á og gerðu ákveðnar tilraunir til leiks, en Víkingsvörnin beitti hörku, hélt fast og hrinti vel og það nægði tíl að brjóta sókn ÍR. Þegar ofan á bættist að mark- vörður ÍR átti afar slæman dag var sigur Víkinga tiltölulega auð- sóttur. Lokastaðan varð 14-11. Víkingsliðið vann þennan sig- ur ekki á léttleika — heldur frek- ar þvert á móti. Þungur svipur er yfir leik liðsins og vömin hast- arlega gróf — þó leikmenn verði ekki sakaðir um það, sém dómar- inn leyfir af lögbrotum. ÍR-liðið átti góða og létta kafla en kæruleysið var yfirgengilegt á milli. Það vantar enn festuna og ákveðnina í leik liðsins. Án þeirra kosta verður ÍR-liðið alltaf lið, sem getur unnið hina bezta en tapað fyrir hinum lökustu. í öðrum leikjum um helgina urðu úrslit þessí: 3. fl. Karla: Valur — Ármann, 11-6. 1. fl. karla: Þróttur — Valur, 10-8, Fram — KR, 9-6, Þróttur — Víkingur, 11-6. 2. fl. karla: KR — Víkingur, 9-6, Fram — Ármann, .9-7, Valur — ÍR, 10-9. Hin nýkjöma stjórn FRl sem reyndar öll var endurkjörin: Sitj- andi f.v. Sveinn Zoega, Björgvin Schram form. Guðmundur Sveinbjörnsson. Standandi f.v. Ragnar Lárusson, Jngvar N. Fál* son, Jón Magnússon og Axel Ein arsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.