Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.1963, Blaðsíða 1
32 síður Aðeins 25 farþegar að meðaltaii — í ódýru ferðunum hjá SAS New York: — Starfsmenn flugfélaga á Ilde- wildflugvelli í New York, sem nú hefur verid stungið upp á að verði nefndur í höf- uðið á John F. Kennedy, hafa að undanförnu fylgzt af mikl um áhuga með j>ví, hversu SAS nýtast hinar ódýru At- lantshafsflugferðir, sem til var stofnað til höfuðs Loft- leiðum. Fréttamaður Mbl. hef ur undanfama daga kannað viðbrögð starfsmanna flugfé- laga á Ildewild, og telja þeir, að SAS muni ekki hafa haft erindi sem erfiði varðandi lágu fargjöldin. Segja flestir að svo hljóti að fara að SAS gefist upp á þossum ferðum, þar sem ljóst sé orðið að Loft leiðir haldi sínu að mestu, en SAS reki ferðir sínar með miklu tapi, og raunar í sam- keppni við sig sjálft. Að með altali koma 25 farþegar með hverri í)C-7 flugvél félagsins, sem flýgur á hinum lágu fr/r- gjöldum. Svo sem kunmigt er hafa staðið fyrir dyrum miklar breytingar á fargjöldum á flugleiðinni yfir N-Atlants- haf undanfama mánuði, og hafa ýmis flugfélög, þar á meðal bandarísk félög á borð við Pan American, ákaft hvatt til margvíslegra lækkana far gjalda á þessari leið. Hafa IATA, alþjóðasamtök flugfé laga, reynzt erfiður ljár í þúfu varðandi þetta, en eng- inn sér nú raunar fyrir hver örlög þessara samtaka verða, einkum vegna þessð að Flug félag íslands hefur ákveðið að segja sig úr þeim vegna hagsmuna sinna. Virðist sem íslenzku flugfélögin kunni að marka tímamót í sögu alþjóða flugsins. Það hefur því eigi vakið litla athygli hér, hversu SAS gengur í samkeppmi við Loft leiðir, sem kunnar eru meðal starfsmanna flugfélaga á Ilde wild fyrir einstaklega góða sætanýtingu. Fylgzt hefur ver ið með athygli með farþega tölu SAS-vélanna, og þetta hefur leitt ýmislegt í ljós. Á dagimn hefur komið, að Loftleiðir halda að mestu sínu striki varðandi farþega- tölu, en DC-7 vélar SAS lenda hér með frá þrjátíu farþeg- um allt niður í fimm. Meðal- talið er 25 farþegar. Flugvéi ar þessar taka hvorki meira né minna en 88 farþega í sætL Aðeins í eitt sinn virðist SAS hafa komið hingað til New York með því sem næst fulla vél, eða 84 farþega. Það var er félagið bauð umboðsmönn- Framh. á bls. 2. Á sunnudagskvöld var gosið átta var þessi mynd tekin suð við Vestmannaeyjar einstak- ur á Breiðabakka, sem er ná- lega tilkomumikið. Kl. hálf lægt Stórliöfða. Þá stóð eld- súla upp úr eyjunni og eld- ingar leiftruðu í gosmekkin- um. Ljósm. Sigurgeir Jónass. Gúðmundur Stcfánsson Ingvar Gunnarsson Gunnlaugur Sigurðsson Uelgi Kristófersson Sigfús Agnarsson Vb. Hólmar talinn af með 5 mönnum Okannað brak fundið eystra TALIÐ er nú víst, að vb Hólm •r frá Sandgerði, GK 546, sem saknað hefur verið síðan á föstudagsmorgun, hafi farizt og með honum fimm menn. Síðast spurðist til bátsins 10 ejómílur austur af Alviðru- hömrum á Mýrdalssandi. Eins og skýrt var frá í Mbl. é sunnudag, var þá mikil leit hafin að bátnum. Á laugardag leituðu t.d. þrjár slysavarna- deildir á söndunum eystra; sveitirnar í Vík, í Álftaveri og í Meðallandi. Fundu þær smá- vægilegt brak, stíufjalir og hlera, sem ekki er vitað úr hvaða báti eru. Verður brakið sent til Reykjavíkur til á- kvörðunar. Á laugardag leitaðl einnig varð skipið Þór fyrir austan. Flugvél Björns Pálssonar, Vor, leitaði á vegum Slysavarnafélags íslands frá Þorlákshöfn og austur úr. Flugvél frá varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli og tvær flugvélar frá Flugfélagi íslands tóku einn- ig þátt í leitinni. Lárus Þorsteinsson, sem flaug með Vorinu, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann teldi mjög litlar líkur á því, að brak úr bátn- um mundi reka vestar en við Dyrhólaey. Á sunnudag og mánudag leit- uðu slysavarnadeild'rnar eystra, svo og varðskipið. Morgunblaðið átti í gær tal við þá þrjá menn eystra, sem stjórnað hafa leitarleiðöngrun- um. Ragnar Þorsteinsson á Höfða- brekku sagði, að björgunarsveit- in í Vík hefði leitað bæði á laug- ardag og sunnudag, en ekkert fundið, sem virtist geta verið úr bátnum. Ragnar bjóst ekki við, að leitað yrði meira, nema hann gengi í hafátt. Júlíus Jónsson í Norðurhjá- leigu í Álftaveri sagði, að í gær hefði verið genginn hluti af fjör- unni. Ekki hefði fundizt neitt, nema hvað skammt frá Kúðaósi hefðu fundizt stíufjalir og lestar- hleri, sem ekki væri vitað, hvort væru úr vb Hólmari. Sennilega yrði ekki gengið á fjörur, fyrr en rekaátt kæmi. Sigurgeir Jóhannesson í Bakka koti í Meðallandi sagði, að á laug- ardagskvöld hefði fundizt stíu- borð 1800—2000 faðma fyrir aust- an Kúðafljót. Á sunnudag fannst svo smáhleri. Þessir hlutir yrðu sendir til Reykjavíkur til ákvörð- unar. f gær var ekki gengið á fjörur. ÁHÖFNIN Þessir menn voru á vb Hólmari: Helgi Kristófersson, skipstjóri, Sandgerði, 27 ára gamall, kvænt- ur með þrjú börn. Sigfús Agnarsson, stýrimaður, frá Heiði í Gönguskörðum 1 Skagafirði, 21 árs, ókvæntur. Guðmundur Stefánsson, vél- stjóri, frá Gilhaga í Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði, ókvæntur. Ingvar Gunnarsson, Laufási 4, Garðahreppi, 21 árs, ókvæntur. Gunnlaugur Sigurðsson frá Vestmannaeyjum, 46 ára, ekkju- maður með fimm börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.