Morgunblaðið - 04.09.1955, Blaðsíða 7
Sunnudagur 4. sept 1955
UORGVNMLAmin
Súdanska þinffið setur Egyptum
off Enfflendingum kosti
Carl Jörgensen og frú hans.
Stfórnaði Flóabúinu
iyrstu árin en fram-
ieiðir nú skyr
i Danmörku
Jörgensen mjólkurbússtjóra var boðið
til íslands
I>AÐ var með ef.isemdir í
huga, sem ungur danskur
maður Carl Jörgensen og
kona hans stigu hér á Iand
sumarið 1929. Jörgensen var
kominn hingað tii lands til
að hleypa af stokkunum og
stjórna stærsta mjólkurbiii á
íslandi, fyrirtæki, sem nokkr-
ir framsýnir bændur á íslandi
höfðu stofnað og bundu vonir
sínar við.
Carl Jörgensen var mjólkur-
bússtjóri Flóabúsins fyrstu átta
ár þess, meðan það var að vaxa
úr grasi. Það voru nú á ýmsan
hátt mikil erfiðleikaár, en svo
mikið var víst, að alltaf þróaðist
mjólkurbúið jafnt og þétt. —
Mjólkurbú Flóamanan var óska-
barn Jörgensens mjólkurbús-
stjóra, eins og það hefur verið
óskabarn bændanna sjáifra, en e.
t. v. hefur hann átt auðveldast
allra með að fá heildarsvip af
þeirri miklu þróun, sem orðið hef-
ur, þegar hann kom nú hingað til
lands í heimsókn sem gestur. •—
Stjórn Mjólkurbús Flóamanna
bauð honum hingað í tilefni af-
mælishátíðar búsins, sem haldin
var í s 1. mánuði. Átti frétta-
maður Mbl. þá stutt samtal við
Jörgensen og konu hans.
VEITIR ATHYGLI ALMENNRI
VELMEGUN
— Ég man það, sagði Jörgen-
sen, um það bil, sem ég var að
byrja starf mitt hjá Flóabúinu,
að mér virtust bændurnir í ná-
grenninu fátækir. Það sem
gleður mig allra mest við heim-
sóknina hingað, er að sjá, hve
mikil almenn velmegun er nú
meðal hinna sömu bænda og mér
skilst, að það sé ekki sízt Mjólk-
urbúið, sem hefur stuðlað að því.
— Ég var t. d. og að sjálfsögðu
viðstaddur afmælissamkomu
Mjólkurbúsins. Þangað komu
bændur og búalið af öllu Suður-
landi. Þá sá ég, hvað allt þetta
fólk var búið góðum klæðnaði.
Það var ekki svo í gamla daga.
Og yfirbragð þessa fólks í dag
er svo, að maður sér, að þetta
eru fjárhagslega sjálfstæðir
menn. Þeir hafa vissulega rétt
sig úr kútnum.
FANN EKKI TORFBÆ
— Það gleður mig einnig að
sjá, hvernig bændumir nota vél-
arnar til að vinna margföld af-
köst og sjá híbýlin á bæjunum.
— Hugsið yður, ég hafði kvik-
myndavél með mér í ferðina og
hef tekið myndir af sitc hverju,
sem ég held að kunningjar mínir
í Danmörku hafi gaman af. Ég
tók myndir af hinum glæsilegu
nýju bændabýlum ykkar, en síð-
an ætlaði ég mér að taka nokkrar
myndir af hinum eldri torfbæj-
um, sem ég man svo glöggt eftir
úr nágrenninu í gamla daga. —
En viti menn, torfbæirnir eru
horfnir. Ég gat ekki fundið einn ,
einasta til að kvikmynda.
EINSKÆR TILVILJUN
— Jæja, hvernig stóð á því,
að þér komuð hingað til lands
sem mjólkurbússtjóri? i
— Einskær ti'viljun. Ég er Sjá-
lendingur frá Næstved. Var á
mjólkuriðnaðarskóla í Kaup-
mannahöfn, bekkjarbróðir Jón-
asar Kristjánssonar mj ilkurfræð
ings á Akureyri. Vorum við
góðir kunningjar. Eitt sinn spurði
Jónas mig, að ég held fremur að
gamni en alvöru: — Gætirðu
hugsað þér að flytjast norður á
hið ískalda ísland. Ég svaraði
honum blátt áfram, að ef ég
fyndi eitthvert verðugt verkefni
þar, hefði ég ekkert á móti að
flytjast til íslands. Svo féll talið
niður. i
En ekki leið nema eitt ár. Höfð-
um við báðir lpkið námi. Kom
þá bréf til mín utan af íslandi. j
Var það frá Jónasi, þar sem
hann minnti mig á samtalið frá
vetrinum og nú sagði hann að
ég gæti vissulega fengið verðugt
verkefni Því að þeir á Suðurland
inu væru að stofna nýtízku mjólk
urbú. Þá var ég nú ekki eins
viss um, hvort ég tæki boðinu,!
enda var ég nú orðinn fjölskyldu-)
maður. En konan samþyxkti það
og ekki leið á löngu þar til dag-
ar okkar liðu við eril og erfiði
norður í Flóa á íslandi
I
HIN STÓRA UMBREYTING
— Að sjá Selfoss nú Það gæti
enginn ímyndað sér sem ekki
hefur séð hvernig þetta byggð-
arlag var, þegar við komum fyrst
þangað. Það voru ekki yfir 10
hús þar. Nú er þetta 1000 manna
bær. Við hjónin ræktuðum svo-
lítinn blómareit við miólkurbú-
ið. Það var talsvert verk, að
plægja landið, planta blómunum,
skipuleggja garðinn, leggja torf
á grasflötina o. fl Nágríinnunum
fannst þetta furðulegt uppátæki
hjá okkur. Nú sjáum við að fólk-
inu á Selfossi finnst sjálfsagt að
koma upp blómagarði við hvert
hús.
— Hvernig likaði yður svo
starfið við búið?
— Það var nóg að gera og um
leið ánægjulegt að fylgjast með
því, hvað starfinu miðaði
snemma í rétta átt til vaxtar og
viðgangs. Ég minnist þess t. d.
fyrsta árið, að þá voru upp radd-
ir um það, að ostageymslumar
væru alltof stórar. Vildu sumir
láta taka þær til vörugeymslu
fyrir verzlunarfyrirtæki, en ég
Frh. á bls. 12.
STJÓRNIN í Súdan leitast nú
við að sýna, að hún sé föst
í sessi og geti af eigin rammleik
ráðið niðurlögum uppreisnarinn-
ar, sem nýlega brauzt út í Suð-
ur-Súdan. „Við þurfum ekki á
hjálp erlendra aðila að halda í
þessum efnum,“ var svar for-
sætisráðherrans við tillögu eg-
ypzku stjórnarinnar um, að
brezkar og egypzkar hersveitir
yrðu sendar til Suður-Súdan.
Uppreisnin hófst skömmu eft-
ir, að súdanska þingið hafði
ákveðið að krefjast þess, að
brezkar og egypzkar hersveitir
yrðu á brott úr landinu innan
þriggja mánaða, svo að Súdan-
búar geti óáreittir tekið ákvörð-
un um framtíðarstöðu landsins.
Þetta hefur vakið talsverðan ugg
meðal Egypta og jafnframt kom-
ið þeim nokkuð á óvart, hins
vegar fögnuðu Bretar þessari
ákvörðun.
■jf UMMA-FLOKKURINN
í VEXTI
Þetta bendir greinilega til
þess, að Ummaflokkurinn, sem
berst fyrir sjálfstæði landsins, sé
í vexti. Umma er í minni hluta
i þinginu og forsætisráðherrann
Ismail E1 Azhari er mjög vin-
veittur Egyptum. Ákvörðun
þingsins getur tæplega aðeins átt
rætur sínar að rekja ti? þess, að
kólnað hafi vináttan milli Kaíró
og Khartoum, heldur hefur þing-
ið neyðst til að taka tillit til þess,
að þjóðin fylkir sér stöðugt þétt-
ar um Umma.
Það er full ástæða til að geta
þess, að mikill fólksfjöldi hafði
safnazt saman kringum þinghús-
ið, meðan umræðurnar fóru fram,
og mannfjöldinn hrópaði stöðugt
á sjálfstæði og brottflutning alls
erlends hers.
★ ★ ★
Ekki má heldur gleyma því,
að margir framsýnir Englending-
ar sáu það fyrir — þó ekki væri
þeim það sérlega ljúft að verða
að sætta sig við það, að Súdan
yrði ekki til frambúðar óaðskilj-
anlegur hluti af brezka heims-
veldinu. Þetta varð ekki sízt ljóst
af því, að Egyptar gerðu einnig
kröfu til yfirráða í Súdan um
leið og þeir kröfðust þess, að allt
brezkt herlið yrði á brott frá
Súezeiðinu.
Allur erlendur her skal verða a brott
úr landinu innan þriggjja mánaða
Það er ekki ólíklegt, að þetta
hafi haft sín áhrif, en sennilega
er hér fyrst og fremst um að
ræða breytingu á hugarfari fólks
ins. í Súdan búa um 9 milljónir
manna. í syðsta hluta landsins
búa mestmegnis negrar og hafa
til þessa haft lítil afskipti af
stjómmálum — þó að til upp-
reisnar kæmi þar á dögunum.
* ANSAR OG KHATMIA
En því meira stjórnmálalega
þenkjandi eru íbúarnir í norður
hluta landsins. Þeir eru allir
★ NAGULB VAR VINSÆLL
Og um langt skeið varð ekki
annað séð en að Egyptar kæmust
til yfirráða í Súdan. Þjóðlegi
sambandsflokkurinn, sem var
mjög hliðhollur Egyptum og
áhrifum þeirra á stjórn Súdans,
átti mestu fylgi að fagna.
Þegar Naguib hershöfðingi hóf
viðræður við Englendinga um
hin mörgu ágreiningsatriði þess-
ara tveggja þjóða, var hann svo
djarfur að fella brosandi úr gildi
þau lög, er sett voru á tímum
Farouks og gerðu Súdan að áhrifa
svæði Egyptalands. Og Naguib
ákvað um leið, að Súdanbúar
sjálfir skyldu útkljá í frjálsum
kosningum, hver yrði framtíðar-
staða landsins — hann var svo
sannfærður um það, að úrslitin
yrðu Egyptum í vil.
★ ★ ★
Menn munu minnast alls þess
erfiðis, er Egyptar lögðu á sig
til að vinna hylli allra Súdan-
búa. Einkum stendur fólk samt
fyrir hugskotssjónum ógleyman-
legt atvik: Fulltrúi Naguibs, Sal-
em herforingi, tók þátt í nektar-
dansi Dinka-hermannanna til að
sýna þeim „svart á hvítu“, að
hann væri einn þeirra.
★ NASSER BRAUT AF SÉR
En heimsókn Naguibs hafði
úrslitaáhrif á afstöðu Súdanbúa.
Það eru ekki miklar ýkjur að
segja, að hann hafi unnið hylli
hvers einasta manns í landinu.
Þeir eru lika hreint ekki svo
fáir, sem álíta, að þjóðlegi sam-
bandsflokkurinn vilji einmitt
ekki eiga lengur samleið með
Nasser vegna framkomu hans við
Naguib.
★ KÓRÓNA HANDA
„S.A.R.“
Hann er nú einn auðugastl
maður í Súdan og hinn „sterki'*
maður Umma-flokksins, sem vill
ekkert hafa með ríkjasamband
við Egyptaland að gera. Það hvíl-
ir nokkur leyndardómur yfir
markmiðum Umma-flokksins, en.
margt bendir til þess, að þeir
hyggist koma á laggirnar kon-
ungsríki, og verður kórónan þá
sett á höfuð hins héilaga
„S.A.R.“
En nú sem stendur hlýtur
flokkurinn aðallega að hafa
áhuga fyrir þjóðréttarlegri stöðu
landsins sem sjálfstæðs ríkis. —
Þetta má sjá mjög auðveldlega
ai ummælum aðalritara Umma-
flokksins, Abdullah Khalil:
★ ★ ★
„Fyrst verðum við að fá fullt
sjálfstæði. Síðan verðum við aff
taka ákvörðun um afstöðu okkar
til annarra þjóða. Við gerum
okkur fyllilega ljóst, að við get-
um ekki staðið einir. Arabaríkin
geri með sér öflugt varnarbanda
lag. Við erum því einnig mjög
hlynntir, að vinsamleg samskipti
séu milli Súdans annars vegar
og Bretlands og Egyptalands
hins vegar, en við viljum ekki
vera í ríkjasambandi með
Egyptalandi.“
★ VERÐUR SÚDAN
SAMBANDSRÍKI BRETA?
Reyndar kom Bretum og
Umma-flokknum ágætlega sam-
an, þar til sjálfstæðisbaráttan í
Súdan hófst fyrir alvöru. En
flokkurinn með hinn gáfaða Ab-
dullah Khalil í broddi fylkingar
er nú mjög harðorður í garð
Englendinga, en margir líta nú
á það sem hvert annað kosninga-
bragð. Enginn er í vafa um það,
að flokknum er full alvara f
. sjálfstæðisbaráttunni — en' þeir
Sú var tíðin, að Egyptar áttu vilja ekki útiloka þann mögu-
miklu fylgi að fagna í Súdan. — lejka að tilheyra brezka heims-
Salem herforingi dansar nektar-
dans með stríðsmönnum í suður
hluta Súdans.
veldinu á sama hátt og Indland
og Pakistan — sem algjörlega
sjálfstætt sambandsríki.
Brezka utanríkisráðuneytið
Múhameðstrúar og skiptast í hefur nú tilkynnt — og það kom.
trúarflokka, sem eru mjög fjand- mönnum mjög á óvart — að
samlegir hvor öðrum. Ansar- Englendingar og Egyptar hafi
trúarflokkurinn fylgir ekki komið sér saman um, hvernig;
kreddum Kóransins í öllu, hins skipuð skuli nefnd sú, er að-
vegar er Khatmia-trúarflokkur- stoða á súdönsk yfirvöld við að
inn mjög rétttrúaður. j ganga í smáatriðum frá framtíð-
Ansar hefur fylgt Umma- arstjórnskipulagi í Súdan. Þetta
flokknum að málum, en kjarn- ber þess ótvíræðan vott, að Eng-
inn úr þjóðlega sambandsflokkn- lendingar hafi í mörgu látið und-
um eru meðlimir Khatmia. an Egyptum, sem til þessa hafa
^ vísað á bug öllum tillögum Eng—
Það er mjög athyglisvert, að lendinga í þessum efnum. En.
æðsti maður Ansar-trúarflokks- j skyldi ekki liggja þannig í þvf
ins er Sir Abdel Rahman el1 að Sir Anthony Eden og Harold
Mahdi, sem almennt er kallaður j MacMillan hafi álitið, að öllu
„S.A.R.“ — og hver er hann?! væri nú óhætt. Fylgi Umma-
Hann er enginn annar en sonur flokksins hefur aukizt, og um
Mahdians, sem var forustumaður leið eru meiri möguleikar á þvl,
Dervish-flokksins, er reyndist að Súdan verði í framtíðinni
Bretum svo þungur í skauti um sambandsríki Breta innan brezka
aldamótin. I heimsveldisins.
.....................................
Verzlunarstörf
Maður á aldrinum 20—30 ára óskast til af-
greiðslustarfa í verzlun vorri.
Slippfélagib i Reykjavik h.f.
KULDASTIGVEL
Finnsku kuldastígvélin eru komin
Skóvcrzlun Þórðar Péturssonar & Co.
AÖalstræti 18
a
•«