Morgunblaðið - 04.09.1955, Síða 6
I
MOK.GU'NBLAÐIB
Sunnudagur 4. sept 1955
Vann stærsta
í Bnenos Aires
sigur
sinn
Viðtal við Staahlberg í Gautaborg
HÉR birtist viðtal við sænska stórmeistarann Gideon
Stáhlberg, sem Freysteinn Þorbergsson fréttaritari Mbl.
á skákmótinu í Gautaborg átti við hann eftir 7. umferð.
SÆNSKI stórmeistarinn Gideon Stáhlberg er eini þátttakandi
Norðurlanda í Alþjóðakeppninni í skák, sem nú fer fram hér í
í Gautaborg. Stáhlberg er manna fróðastur um skák og skáksnill-
inga, enda víðfrægur skákrithöfundur. Bækur hans, svo sem „Stór-
meistarar í skák“ og „Stáhlbergsbækurnar“ svonefndu, eru án vafa
með vinsælustu skákbókum á Norðurlöndum um þessar mundir.
En Stáhlbergs-bækurnar eru bókaflokkur, sem fjallar um flest mót
og einvígi, sem fram hafa farið á síðustu árum í sambandi við
Frá Boiungarvík.
— Ljósm. Jón Páll.
iklar byggiirigarfram'
HRINGUNUM
FRÁ
HAfKARSTR 4
heimsmeistarakeppnina í skák.
BTRJAÐI AÐ TEFLA
13 ÁRA GAMALL
Þrátt fyrir annir Stáhlbergs,
en hann er nú að viða að sér efni
í næstu bók, jafnframt því, sem
hann lýsir gangi keppninnar í út-
varpi og blöðum, tókst mér að
ná tali af honum að lokinni skák
hans í 7. umferð. Ég spyr Stáhl-
berg að sjálfsögðu, hvenær hann
hafi byrjað að tefla, um uppvaxt-
arár hans, þátítöku hans í skák-
mótum og fl. Stáhlberg byrjaði
að tefla 12 ára að aldri. Það var
árið 1919. Hann bjó þá með for-
eldrum sínum í Surte, litlu þorpi
nálægt Gautaborg. Nokkru síðar
fluttist hann til Gautaborgar, þar
Bem hann stundaði nám, jafn-
framt því, sem hann þroskaðist
sem skákmeistari. Að loknu stúd-
entsprófi hafði hann meiri tíma
fyrir þetta áhugamál sitt. Árið
1927 tók hann þátt í fyrsta stór-
meistaramótinu, en æfintýrin
heilluðu, og þegar landar hans
gátu ekki lengur kennt honum
meira af brögðum skáklistarinn-
ar, fluttist hann til Argentínu,
þar sem hann gerðist skákrithöf-
undur og atvinnumaður. Ekki
leið á löngu áður en hann var
orðinn skæður keppinautur Naj-
dorfs um titilinn bezti skákmað-
ur Suður-Ameríku. Það valt á
ýmsu þeirra í milli.
MESTI SKÁKSIGUR
STÁHLBERGS
Árið 1947 fór fram sex-
meistarakeppni í Buenos Air-
es. Tefld var tvöföld umferð.
Meðal þátttakenda voru Naj-
dorf, Eliskases og Pilnik. —
Stáhlberg sigraði þar með
miklum yfirburðum án þess
að tapa skák. Það telur hann
vera mesta skáksigur sinn til
þessa. Nokkru síðar fluttist
hann aftur heim til Svíþjóðar
og tók þátt í mörgum stórum
skákmótum í Evrópu við mik-!
inn orðsíír. Frammistöðu Stáhl
bergs má telja enn betri fyrir
þá sök, að hann hefur yfirleitt
ekki haft aðstoðarmenn í þess-
um erfiðu mótum. Stórmeist-
ararnir fara nú yfirleitt ekki
lengur í launkofa með það, að
þeir þiggja hjálp við biðskák-
ir o. fl. Sem dæmi má nefna,
að rússnesku skákmeistararn-
ir, sem hér keppa hafa hver
sinn aðstoðarmann, og eru þeir
flestir í stórmeistara tölu.
„Er þetta í fyrsta sinn, sem
þér hafið aðstoðarmann?“
„Nei, ég hafði Skjöld í Zúrich-
skákmótinu 1953, en belgíski
skákmeistarinn O’Kelly, sem ég
hef nú, verður að sjálfsögðu að
teljast mun sterkari skákmaður."
„Hvern teljið þér sigurstrang-
legastan að þessu sinni?“
„Bronstein hefur teflt bezt til
þessa og verður að mínu áliti að
teljast líklegastur."
„Hvaða möguleika álítið þér,
að hinir ungu meistarar, Panno
og Spasskij hafi á mótinu?“
„Mér þykir trúlegt, að þeir
muni verða meðal hinna 9 efstu,
sem komast áfram til Kandidata-
mótsins, þeir hafa nú að minnsta
kosti teflt mjög vel til þessa.“
„Svo virðist, sem beztu sænsku
skákmeistararnir hafi mjög tak-
markaðan áhuga fyrir Norður-
landamótinu í skák?“
„Þeir eiga flestir mjög erfitt
með að taka þátt í mótum með
stuttu millibili, þar sem þeir
verða yfirleitt að nota sumarleyf-
ið til þátttöku í sænska meistara-
mótinu. Ég er yfirleitt upptek-
inn, og Lundin og Stoltz eru að
mestu hættir að keppa.“
„Er yður kunnugt um orsökina
fyrir því, að bandarísku meistar-
arnir Resevsky og Evans hættu
við þátttöku í rnótinu?"
kvæmdir í Bolungamk
Svíinn Stáhlberír
„Nei, en hvað Resevsky við-
víkur, þá ímynda ég mér, að
hann hafi á þennan hátt viljað
mótmæla því, að hann fékk ekki
einvígi við Botvinnik.“
„Hvern teljið þér vera sterk-
asta skákmann heimsins í dag?“
„Þetta eí mjög erfið spurn-
ing. Botvinnik hefur vissulega
staðið sig mjög vel á rúss-
nesku meistaramótunum, þótt
hann hafi ekki alltaf orðið
efstur. Annars heldur O’KelIy
því fram, að Bronstein sé nú
sterkasti skákmaður heims-
ins.“
Ég þakka og kveð hinn önn-
um kafna skákmeistara.
— Freysteinn.
MIKLAR byggingaframkvæmd-'
ir hafa verið í Bolungarvík í sum-
ar. Eru 7 ný íbúðarhúc í smíð-'
um, auk viðbótarbygginga við
eldri hús. Munu Bolv'kingar á1
næsta vetri taka í notkud 12 nýar
íbúðir. Þá eru iðnaðarmenn að
koma sér upp húsnæði yfir starf-
semi sínu, útgerðarmenn eru að
reisa myndarlega skreiðar-
skemmu og Bjarni Eiríksson, út-
gerðarmaður, er að reisa mynd-
arlegt saltfiskverkunarhús, sem
viðbót við fiskverkuna’. stöð hans.
í fyrrasumar lét Verzlun E.1
Guðfinnssonar í Bolungarvik
reisa stórt vörugeymsluhús og
eftir mánartima flytur verzlunin I
í stórt og glæsilegt verzlunar-1
hús, sem reist hefir verið fyrir
utan gamla verzlunarhúsið. Er
það vafalaust eitt af glæsileg-
ustu verzlunarhúsum á landinu.
Mun það verða matvöruverzlun
og bakarí, en vefnaðarvöruverzl-
unin verður áfram í gamla verzl-
unarhúsinu.
MIKIL ATVINNA
Mikil atvinna hefir verið í
Bolungavík í allt sumar. Hefir
verið stöðug karfavinnsla í
frystihúsinu, þar til nú fyrir
nokkrum dögum, að byrjað var;
að taka vélar þess upp til eftir-!
lits og viðgerðar. Mun hinsvegar
verða haldið áfram síldarfryst-
ingu, en um síðustu helgi var
búið að frysta í Bo'íungarvík um
1100 tunnur af reknetacíld og um
sama levti var búið að salta um
1000 tunnur. Hefir yfirleitt verið
dágóð reknetaveiði hér í Djúp-
inu í haust, þegar hægt hefir
verið að drífa.
VANDRÆÐAÁSTAND í
RAFORKUMÁLUNUM
Mikil óánægja er ríkjandi
meðal Bolvíkinga vegna þess al-
varlega ástands, sem þar er að
skapast í rafmagnsmálunum. Er
nú fyrirsjáanlegt vandræða-
ástand í þeim efnum næsta vet-
ur, þar sem þetta sumar hefir
liðið þannig, að lítið hsfir verið
gert, til að bæta það vandræða-
er.tand, sem var þar síðastliðinn
\etur, en orkuþörfin hinsvegar
aukizt stórlega. Er allt útlit fyrir,
að þetta geti haft öAagaríkar
' afleiðingar fyrir byggðarlagið
j næsta vetur.
j Næsta sumar eru liðin 40 ár
síðan hreppsnefnd Hólshrepps
hélt fyrst opinberan fund, til að
ræða um vatnsaflsvirkjun íyrir
Jólf nýjar ibúðir feknGr i noikun
næsfa sumar
Bolungarvík. Réði hreppsnefndin
þá Halldór Guðmundsson, raf-
virkja, til að skipuleggja og gera
áætlun um virkjunarframkvæmd
ir. Tólf árum síðar, eða árið 1928,
var byrjað á virkjun Fossár og
byggður stór stíflugarður á Reið-
hjalla, en síðan hafa framkvæmd
ir legið niðri. Þegar áætlanir raf-
orkumálastjóra um virkjunar-
framkvæmdirnar voru birtar á
s. 1. ári var svo ráð fyrir gert,
að undirbúningur að virkjun
Fossár yrði hafinn á þessu sumri
og vegur lagður upp að virkjun-
arstaðnum. Þetta sumar hefir
nú liðið án þess að neitt væri
gert, og eru Bolvíkingar uggandi
um, að þessar framkvæmdir
kunni að dragast á langinn til
stórtjóns fyrir bvggðar'agið.
J.
Með 175 km hraða
PORTIl.LO Los Andes Chile, 27.
ágúst: Ralph Miller, skíðakappi,
brunaði niður sérstaklega mælda
45 gráðu brekku í Andesfjöllum
með 175 6 km. hraða ó klukku-
stund. Miller bætti met ítalska
kappans Zeno Colo um 19 km. á
klst., en hann hafði farið með
156 km hraða á klukkustund. —
Nokkrir aðrir skíðamenn þ. á. m.
Japaninn Chick Igaya fóru fram
úr ítalska metinu.
Hús, sem lokið var að byggja fyrir nokkru.
i
Ný íbúðarhús í byggingu.
Bátar við brimbrjótinn. Unnið hefur verið að viðgerð hans í sumar. Ennfremur hefur verið dýpkað
k innan við hann.