Morgunblaðið - 06.04.1955, Side 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. apríl 1955
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
Hrotfnkeisveiði
ffóS á Ströndum
Grásleppuhrogn í góðu verði
Gjögri, Ströndum, 4. april.
MIKIÐ góðviðri er nú hér á Ströndum þessa dagana. Má segja,
að vorblíða hafi verið síðan 23. marz. Snjór og svelllög eru
að mestu horfin úr jörðu og er sauðbeit allsæmileg. Fer sauðburður
r.ú senn að nálgast, en hann mun byrja upp úr sumarmálunum.
SPA EKKI GOÐU VORI
I kaup á hrognunum, en það mun
■ i
Ekki þykir eldri mönnum hér hafa staðið til í allt að þrjú ár.
Kjarabairátta verbalýðsins
og ofbeldissteína bommúnista
er tvennt ólíbt
EKKERT er eðlilegra en að
verkalýðurinn og launþegar í
hinum ýmsu starfsstéttum þjóð-
félagsins vinni stöðugt að því að
bæta kjör sín og aðstöðu í lífs-
baráttunni. Sem betur fer er það
öllum frjálsum mönnum og dug-
andi áskapað að sækja fram til
bjartara og fegurra lífs. Fyrr á
árum fólst þessi barátta fyrst og
fremst í viðleitni til þess að fá
kaupgjald hækkað. Því miður
verður þeirri staðreynd ekki neit-
að, að kröfum verkalýðsins um
hærri lan var ekki alltaf tekið af
sanngirni.
Hér á íslandi hafa hinar stór
kostlegu lífskjaraumbætur, sem
orðið hafa á s. 1. áratugum fyrst
og fremst byggzt á því, að at-
vinnutæki þjóðarinnar hafa tekið
stórkostlegum framförum. Afköst
þeirra jukust og arðurinn af
rekstri þeirra margfaldaðist.
Fólkið varð jafnharðan hluttak-
andi í þessum aukna arði eins og
vera bar. Mun nú svo komið, að
óvíða, ef þá nokkursstaðar í heim-
inum er hlutur verkalýðsins í
arði atvinnutækjanna orðinn
jafn mikill og hér á landi. Af því
leiðir það þá einnig að lífskjör-
in eru hér jafnari en í flestum
öðrum löndum.
Þegar þannig er komið, hlýt-
ur það að verða hverjum skyn
sömum manni ljóst, að kjara-
baráttan verður öðruvísi en
áður. Nú gildir það fyrst og
fremst, að tryggja öruggan
rekstur þeirra atvinnutækja,
sem þjóðin hefur eignazt og
gera framleiðsluna stöðugt
fjölbreyttari og verðmeiri. f
því felst hin raunhæfa barátta
fyrir enn auknum hlut verka-
lýðsins í arði þjóðarhúsins og
áframhaldandi umbótum á
allri aðstöðu hans.
Þegar þannig hefur verið at-
hugað, í hverju hin raunverulega
kjarabarátta almennings felst í
dag, er rétt að líta lauslega á það,
við hvað kommúnistar miða sína
baráttu og stjórn á þeim verka-
lýðssamtökum, sem þeir ráða.
Hún kemur í raun og veru greini-
3ega í ljós í ummælum aðalmál-
gagns kommúnista fyrir nokkr-
um árum, um takmark þeirra
með stéttarbaráttunni.
Þar var henni lýst á þá leið,
að hún væri „barátta gegn
hverskonar samvinnu milli
stéttanna, gegn iðnaðarfriði,
borgarafriði, ágóðahluta, gegn
því að fagf 'lög og rekstursráð
taki þátt í því að auka fram-
leiðslumagn vinnunnar í auð-
valdsfyrirtækjum“.
Þarna segja kommúnistar
það berum orðum, að umfram
allt beri að heyja harða bar-
áttu gegn því „að auka fram-
leiðslumagn vinnunnar". En
það er eins og áður hefir verið
tekið fram frumskilyrði þess,
að hægt sé að hækka kaup-
gjald og bæta raunverulega
kjör þeirra, sem að framleiðsl-'
unni vinna.
í fyrrgreindum ummælum lýsa
kommúnistar því einnig hreinlega
yfir, að iðnaðarfriður, borgara-
friður og ágóðahluti sé eitur í
þeirra beinum.
Hversvegna er þetta skoðun
kommúnista?
Hreinlega vegna þess, að þeir
telja bætt kjör verkalýðsins, frið
og samstarf milli stétta um upp-
byggingu lýðræðisþjóðfélags á
grundvelli séreignar og athafna-
frelsis, hindrun í vegi fyrir hinni
kommúnísku byltingu.
Er nú hægt að lýsa öllu
greinilegar en kommúnistar
hafa sjálfir gert þeim regin-
mun, sem er á raunverulegri
kjarabaráttu fólksins annars-
vegar og stefnu kommúnista
hinsvegar? Áreiðanlega ekki.
f þessu Ijósi hlýtur hver ein-
asti hugsandi íslendingur að
skoða þá baráttu, sem nú stendur
yfir. Hún sýnir eins greinilega og
frekast verður á kosið, um hvað
er í raun og veru barizt. Það er
barizt um það, hvort sú uppbygg-
ingarstefna, sem Sjálfstæðisflokk
urinn hefur beitt sér fyrir, og
skapað hefur fólkinu stöðugt
betri lífskjör eigi að halda áfram,
eða hvort kyrrstöðu og niðurrifs-
stefna kommúnista eigi að taka
við.
Þetta er kjarni málsins.
Þegar á hann er Iitið, sætir
það engri furðu, þótt hin
kommúníska forysta verka-
lýðsfélaganna, sem knúð hefur
fram pólitískt stórverkfall
njóti hvorki samúðar almenn-
ings, sem stendur utan við
verkfallið og verður fyrir
margvíslegum óþægindum af
því, né mikils hluta fólksins í
sjálfum verkalýðsfélögunum.
Ofbeldisaðgerðir og lögleysur
kommúnista eiga einnig sinn
þátt í því að skapa andúð á
þessu verkfalli.
Kjarabarátta verkalýðsins
og ofbeldisstefna kommúnista
er þessvegna tvennt gerólíkt.
Það gerir meeinhluti íslend-
inga sér áreiðanlega Ijóst.
Mikifmenni dregur
sig í hlé
WINSTON CHURCHILL hefur
sagt af sér forsætisráðherraemb-
ætti. Þar með hefur eitt af mikil- i
mennum stjórnmálasögunnar lát-1
á Ströndum þessi blíða sem nú
er spá góðu vori. Eru þeir hrædd-
ir við páíkahret, en hér er það
trú meðal eldra fólks, að til þess
að vorið verði gott, þurfi að vera
harður veiur fram til páska, en
j breyta þá til með vorhlýindi.
GÓÐ RAUÐMAGAVEIÐI
Ágæt rauðmagaveiði hefur ver
ið hér undanfarið, en grásleppu-
veiði minni. Er ekki að búast
við að grásleppuveiði verði nokk
uð að ráði fyrr en eftir 10 apríl,
en þá er hennar tími kominn.
KAUPFÉLAGIÐ KAUPIR
GRÁSLEPPUHROGN
Síðastliðið haust ákvað stjórn
Kaupfélags Strandamanna í
Norðfirði, að kaupfélagið skildi
kaupa grásleppuhrogn af bænd-
um í vor. Er þetta því í fyrsta ... .
skipti sem kaupfelagið festir I uði.
EKKI MARKAÐUR FYRIR
GRÁSLETTUNA
Mun kaupfélagið borga fyrir
hvern liter af grásleppuhrogn-
um, ekki minna en 2 krónur og
er þar miðað við óverkuð hrogn.
Aftur á móti telur það sér ekki
fært að kaupa sjálfa grásleppuna,
þar eð enginn markaður sé fyr-
ir hana. Er henni því mest megnis
kastað í sióinn aftur, eða notuð
sem áburður á tún, og hefur það
gefizt mjög vel. Er almenn
ánægja hér yfir þeirri ráðstöfuð
Kaupfélagsins að kaupa hrogn-
in. —Regina.
ANKARA, 5. apríl: — Menderes
forsætisráðherra Tyrkja hefur á-
kveðið að fara í opinbera heimsókn
til Tito í Júgóslavíu, í næsta mán-
\Jelvakandi ábrifiar:
Japanarnir kyrrsettir.
LÚLLI skrifar á þessa leið:
„Japanska listafólkið, sem
sýndi hér fyrir skömmu listir sín-
ar í Þjóðleikhúsinu situr hér enn
Og bíður eftir fari brott af ísa-
láði, orðið of steint og aftur of
seint á sýningar, sem það ætlaði
að halda úti í heimi strax og það
kæmi héðan — en verkfallið set-
ur stólinn fyrir dyrnar með það
eins og fleira hjá fleirum. —
Sennilega taka þau japönsku
þessu með sánkti ró. Þeir í Aust-
urlöndum verða ekki svo glatt
uppnæmir fyrir hlutunum.
1
ið af forystuhlutverki. Engum er
gert rangt til þótt staðhæft sé, að
Churchill sé merkasti núlifandi
stjórnmálaleiðtogi heimsins, Svo
fjölþætt og stórbrotið hefur lífs-
starf hans verið.
Sat og málaði
niður við Tjörn.
DAG (þriðjudag), er ég var á
labbi niður við Tjörn sá ég
þar einn' Japananna sitjandi í
mestu ró og makindum við að
I mála þarna rétt hjá Fríkirkjunni
fyrir neðan Skálholtsstíginn.
Hann bar sig hið listamannaleg-
asta að, annars þorði ég auðvitað
ekki að hnýsast meira í verk hans
heldur en góðu hófi gegndi. það
er ógn leiðinlegt að vera mjög
nærgöngull og þursalega forvit-
inn, ekki síður, þó að útlending-
ur eigi í hlut. — En mikið anzi
langaði mig reyndar til að sjá,
hvernig Skálholtsstígurinn okkar
yrði í japanskri listrænni túlkun.
Málaralistin ekki síður en aðrar
hliðar austrænnar menningar er
svo yfrið ólík, því sem við eigum
að venjast hér vestra, að það væri
ur skarinn, forsetinn var látinn
lifa með myndarlegu húrrahrópi
og síðan var sungið „Ég vil elska
mitt land“. — En hattarnir sátu
sem kyrfilegast! — þar til einn
í hópnum rankaði við sér tók of-
an og ýtti með staf sínum við
þeim höttunum, sem hann náði
hæglegast til — .....ég vil auðga
mitt land.... “ — og enginn pípu
hattur var lengur sjáanlegur!
Vegfarandi".
E Á
býsna fróðlegt að sjá hvernig ís-
lenzkt „motiv“ kæmi fram í jap-
anskri tjáningu. — En kannski
hefir þessi japanski bara sett á
léreftið hjá sér kantaða fleti og
ferninga allskonar, rétt eins og
Hmn aldni stjórnmálagarpur , nýmóðins málararnir okkar?
kveður Downing Street nr. 10
með sæmd. Hann hefur ekki að-
eins stýrt Bretlandi yfir ólgusjó
heimsstyrjaldaráranna. — Stjórn
hans hefur gefizt tækifæri til
þess að hafa einnig forystu um
mikið uppbyggingarstarf.
Winston Churchill hefur
fengið Anthony Eden forystu
flokks síns og ríkisstjórnar
Bretlands. Eitt af fyrstu verk-
um hans verður sennilega að
efna til nýrra kosninga í land-
inu. Virðast kosningahorfur
vera íhaldsflokknum sæmilega 1
— Lúlli.“
Tekið ofan fyrir
Jóni forseta.
ÞAÐ var peysufatadagur hjá
einum Reykjavíkurskólanna
s.l. laugardag.
Síð pils og skotthúfur, háir
hattar og kjólföt á „herrunum"
sómdu sér hið bezta á unga fólk-
inu, þó að sumir sýndu óneitan-
lega á sér dálítinn viðvanings-
brag í þessum óvenjulega fata-
burði.
Og svo var gengið um götur og
torg og sungið hástöfum. Fyrir
hagstæðar, ef marka má úr „ . _________
slit bæjarstjórnarkosninganna framan sty^tu Jóns Sigurðsson-
nú fyrir skömmu. ar á Austurvelli, staðnæmdist all-
Frímerki til land-
kynningar.
HEFIR skrifað mér
þessa leið:
„Velvakandi góður!
Það hefir mikið verið ritað um
að kynna land okkar erlendis til
að auka ferðalög erlendra manna
til landsins. Ein bezta laridkynn-
ing okkar, sem ónotuð er að
mestu — en kostar enga peninga,
er útgáfa af fallegum frímerkj-
um. Hér segi ég eina sögu: ís-
lenzk stúlka, stödd í sölubúð í
Þýzkalandi, verður undrandi yf-
ir því, hve kaupmaðurinn, sem
hún hafði tjáð, að hún væri ís-
lenzk, vissi mikið um ísland. -
Hann talaði um Alþingishátíðina,
lýðveldistökuna, Snorra Sturlu-
son, flugferðir íslendinga, „ný-
sköpunar“-togara o. fl.
E’
Það er ósköp einfalt.
R hún innti hann eftir því,
hvernig á því stæði, að hann
vissi svo mikið um ísland, svar-
aði hann brosandi: „Það er ósköp
einfalt, ég er frímerkjasafnari".
Af íslenzkum frímerkjum hafði
hann lært sitthvað um landið.
Nú éru margir undrandi yfir því
tómlæti póstmálastjórnarinnar að
notfæra ekki tækifæri eins og 100
ára afmæli frjálsrar verzlunar á
íslandi til að gefa út fallega frí-
merkjasamstæðu, sem seljast
myndi um allan heim. Milljónir
manna í heiminum safna frí-
merkjum. fslenzk frímerki eru
mjög eftirsótt, sérstaklega falleg-
ar samstæður, eins og t.d. Alþing-
ishátíðarfrímerkin. Útgáfa af
slíkum merkjum gefur góðar
tekjur, en auk þess er hún ein
hin bezta landkynning. — E.Á.“
Merklð, sem
klæðir landiS.
Skermafram-
leiðaiiíli verk-
fallsvörður
í SAMBANDI við frásögn Mbl.
af ofbeldisárásinni á Guðmund
Jónsson, bílstjóra, sem skýrt var
frá í blaðinu í gær, skal þess get-
ið, að maður sá, sem gekk í veg
fyrir skíðabílinn, var ekki Krist-
inn Finnbogason, rafvirki, Ránar
götu 32, heldur Vilhjálmur Þor-
steinsson rafvirki, Laugavegi 128.
Kristinn Finnbogason var aftur
' á móti forsprakki þeirra sex
manna, sem réðust seinna inn á
bílaverkstæðið, og lagði hann m.
a. hendur á Guðmund Jónsson. —-
Þess má svo til viðbótar geta, að
Kristinn Finnbogason skrökvaði
til nafns, er Guðmundur Jónassori
bílaeigandi, spurði hann að heiti.
Kvaðst hann þá heita Guðmund-
ur J. Guðmundsson. Lögreglan
veitti aðstoð við að hafa upp á
hinu rétta nafni Kristins. Blaðið
frétti í gær, að í dag myndi kær-
an á hendur mönnum þessum
verða afhent sakadómaraembætt-
inu.
SEM KUNNUGT er, þá er Iðja,
félag starfsfólks í hvers konar iðn
aði hér í Reykjavík, í verkfallinu.
Nú bregður svo við, að innan raða
starfsmanna verkfallsstjórnarinn-
ar, finnast atvinnurekendur, sem
gerst hafa sekir um verkfallsbrot!
Er það eigandi skermagerðarinn-
ar Iðiu við Skólavörðustíg. Þessi
sami Kristinn Finnbogason, raf-
virki og kemur við sögu hér að
ofan. Kristinn hefur starfrækt
skermasaumastofu fyrir verzlun
sína í húsi einu við Sóleyjargöt-
una. Þar hafa tvær stúlkur unn-
ið að skermagerð undanfarið og
það síðast í gærdag.
Það virðist því sem verkfalls-
stjórnin eigi eitthvað ótalað við
skermakaupmanninn á Skólavörðu
stígnum, og jafnvel Björn Iðju-
formaður lika.
Góður afli i Vesl-
mannaeyjum
VESTMANNAEYJUM, 5. marz:
Mánudagurinn var mesti afla-
dagurinn á þessari vertíð, en í
dag mun hann ekki að sama
skapi mikill. Hæsti báturinn eft-
ir daginn, Lundinn, tvíhlóð og
fékk alls um 5400 fiska, sem mun
vera um 30 lesta afli. Nokkrir
bátar voru með um og yfir 3000
fiska, 26—27 lestir.
Það, sem nú er af vertíð, eru
hæstu bátar með um 360 lesta
afla og er miklum mun minni
afli en um þetta leyti vertíðar í
fyrra. Þetta á að sjálfsögðu rót
sína að rekja til stöðvunar báta-
flotans í janúarmánuði.
— Bj. Guðm.
Dregið í happ-
dræfli SÍBS
ER dregið var í 4. flokki í Vöru-
happdrætti SÍBS í gær, kom
hæsti vinningurinn, 50,000 kr.,
upp á miða í umboðinu vestur á
Flateyri, er miðin nr. 31134. —
Næst hæsti vinningurinn, 10,000
kr„ kom á miða seldan í Reykja-
vík, 21945. Þessir hlutu 5000 kr.
i vinninga, en þeir komu á miða
I hér í Reykjavík, í Hafnarfirði og
Bakkafirði eystra:
14566 18868 22881 27518.
2000 kr.: 12228 12616 15804
17967 21655 31161 39103.
1000 kr.: 10700 10928 11582
12603 13813 16773 16888 17598
18956 23485 25921 34535 45131
46589.
Vopnuhló útrunnið
SAIGON, 5. apríl: — Hinu óform
lega vopnahlé við Saigon er nú
lokið. Sértrúarflokkarnir munu
aftur hefja hernaðaraðgerðir
gegn Diem-stjórninni. Er óttast
að þeir reyni að sækja inn í höf-
uðborgina Saigon.