Morgunblaðið - 06.04.1955, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. apríl 1955
Þjódleikhúsið:
//
Pétur og úlfurinn
og „Dimmalimm"
LH frumsýnir ævin-
44
ÞAÐ var gaman að líta yíir hinn
síkvika hóp áhorfenda í Þjóð-
leikhúsinu á sunnudaginn var.
Allir voru þeir í sólskinsskapi og
horfðu spurulum augum á um-
hverfið og eftirvæntingin skein
úr svip þeirra. — En þetta voru
líká ungir leikhúsgestir, — börn,
6em höfðu hlakkað til þess í
marga daga að fá að heyra ævin-
týrið um Pétur og úlfinn og sjá
hana Dimmalimm litlu kóngs-
dóttur og hann Pétur kóngsson
dansa og setjast að lokum í há-
6ætið í konungshöllinni, klædd
pelli og purpura eins og kóngi
Og drottningu sæmir. — Og nú
var stundin komin! Þegar tjaldið
Var dregið frá og hljóðfæraleik-
ararnir höfðu komið sér fyrir
undir stjórn hljómsveitarstjórans
dr. Victors Urbancic, kom Lárus
Pálsson leikari fram á sviðið,
brosandi og elskulegur og ávarp-
aði hina ungu gesti. Hann kynnti
þeim hljóðfærin hvert af öðru, lét
meira að segja hljóðfæraleikar-
ana sýna börnunum þau og um
leið sagði hann þeim hvaða mann
eða dýr hvert hljóðfæri ætti að
tákna. „Flautan er fuglinn litli“,
eagði hann, „en hornin dimmu eru
úlfurinn", — og þannig hélt hann
áfram. — Og svo hófst ævintýrið,
þetta furðuverk fagurra tóna og
spennandi frásagnar, sem var svo
skemmtilegt, að jafnvel fullorðna
fólkið hreifst með. En það var
reyndar ekkert undarlegt, því að
Lárus sagði svo ljómandi vel frá,
að allt fékk líf, Pétur litli kátur
og kotroskinn, afi gamli með gigt-
ina, úlfurinn, öndin, kisa og fugj_-
inn litli, og hljómsveitin lék svo
vel að allt rann saman í órjúf-
andi heild, — sannkallað ævin-
týri í orðum og tónum. — Eitt-
hvað fór kannski fyrir ofan garð
og neðan hjá allra yngstu gest-
unum, en þeir, sem eldri voru
hlustuðu með athygli og höfðu
bersýnilega mikið yndi af því sem
fram fór. — Og svo lauk þessu
ævintýri. Tjaldið var dregið fyr-
ir og allir í salnum, ungir og
gamlir þökkuðu hljómsveitinni
og Lárusi með dynjandi lófataki.
Og eftir hléið hófst svo nýtt
ævintýri, og það ekki lakara,
ballettinn hans Bidsteds um hana
Dimmalimm litlu, sem öll börn
kannast við úr sögunni yndislegu
eftir hann Guðmund Thorsteins-
son, með fallegu myndunum sem
hann hafði sjálfur gert. Og hérna
voru tjöldin hans Lothars Grunds
alveg eins falleg og ósköp lík og
f bókinni. — Bidsted stjórnaði
ekki dansinum í þetta sinn held-
ur Otto Toresen, ballettmeistari.
sem hingað kom í haust og starf-
ar að danskennslu við Þjóðleik-
húsið. —
Og nú voru allir „með á nótun-
um“, líka þeir yngstu. Svanirnir
litlu dönsuðu um sviðið með
mjúkum hrevfingum undir prýði-
legri músik Karls O. Bnnólfsson-
ar. og svo kom Dimmalimm litla.
(Anna Brandsdóttir) ósköp smá,
en ákaflega heillandi og létt í
spori, með körfu í hendinni og fór
að gefa svönunum að borða, og
litla tjörnin í hallargarðinum
glóði í sólskininu. — Og þá kom
Pétur (Helgi Tómasson) til sög-
unnar, — fallegi kóngssonurinn
og dansaði í kringum Dimma-
limm. Og ekki má gleyma svan-
inum (Guðný Friðsteinsdóttir),
sem dansaði svo framúrskarandi
vel. Pétur hafði verið í álögum í
líki svans, en nú var hann laus
úr þeim af því að Dimmalimm
þótti svo ákaflega vænt um hann
og honum líka um hana. Og að
lokum urðu þau kóngur og drottn
ing og settust í hásætið og hirðin
öll dansaði fyrir þau á hallar-
gólfinu. Og svona eiga öll góð
ævintýri að enda. — Það fannst
börnunum líka, því að fögnuður
þeirra var svo mikill að dansend-
urnir voru kallaðir fram hvað
eftir annað og hylltir ákaflega.
Þjóðleikhúsið var sannkölluð
ævintýrahöll þessa stund og ég
er viss um að börnin fylla húsið
næst þegar þessi dásamlega sýn-
ing fer þar fram.
Sigurður Grimsson.
Töluverðar skemmd-
ir unnar í Heilisgerði
í veiur
HAFNARFTRÐI — Á aðalfundi
Málfundafélagsins Magna, skýrði
garðvörður, Ingvar Gunnars-
son kennari, svo frá, að töluverð
brögð hefðu verið að því í vetur.
að skemmdir hefðu verið unnar
í Hellisgerði. Tré eyðilögð, trjá-
greinar brotnar, gróður eyði-
lagður, garðbekkir skemmdir,
gróðurreitegluggar brotnir í stór-
um stíl og ýmislegt annað traðk-
að niður og skemmt.
Er leitt til þess að vita, að slíkt
skuli eiga sér stað í hinum fagra
gróðurreit okkar Hafnfirðinga.
Við verðum að reyna að koma í
veg fyrir frekari skemmdir á
Hellisgerði Til dæmis ættu for-
eldrar að brýna fyrir börnum
sínum að ganga þar vel um, og
þá auðvitað aðeins á sumrin, þeg-
ar garðurir.n er opinn. Sömu-
léiðis gætu kennarar haft góð
áhrif í þá átt.
Stjórn Magna skipa nú þessir
menn: Kristinn J. Magnússon
formaður, Eirikur Pálsson rit-
ari, Páll V. Daníelsson gjaldkeri.
í varastjórn eru Stefán Júlíus-
son, Jóhann Þorsteinsson og
Stefán Sigurðsson. í garðráði eru
Ingvar Gunnarsson og Guðmund
ur Einarsson.
Mikill áhugi er ríkjandi hjá
félagsmönnum fyrir áframhald-
andi ræktun og skipulagningu
Hellisgerðis. —G. E.
páskadag
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar frum
sýnir ævintýraleikinn „Töfra-
brunnurinn" eftir Willy Kröger,
í þýðingu Halldórs G. Ólafsson-
ar, á annan páskadag.
Leikur þessi er byggður á
ævintýrinu „Hulda gamla“, sem
flestir kanrfast við úr Grimms-
ævintýrum en samkvæmt því
snjóar hér á jörðu þegar Hulda
gamla viðrar sængur sínar í und-
irheimum.
Leikstjóri er Ævar Kvaran og
Lothar Grund málaði leiktjöld.
Tónlist armast Carl Billich en
Sigríður Valgeirsdóttir samdi
dansa.
Með hlutverk fara Margrét
Guðmundsdóttir, Hulda Runólfs-
dóttir, Sólveig Jóhannsdóttir,
Selma Samúelsdóttir, Jóhannes
Guðmundsson, Valgeir Óli Gísla-
son, Sigurður Kristins, Sverrir
Guðmundsson og Friðleifur Guð-
mundsson.
Geta má þess, að höfundur
leiksins, Willy Kruger, samdi
einnig ævintýraleikinn „Hans og
Gréta“, sem Leikfélag Hafnar-
fjarðár sýndi s 1. vetur, og náði
geysilegum vinsældum.
1 Þetta er annað viðfangsefni
L. H. á leikárinu. Fyrr í vetur
sýndi félagið gamanleikinn „Ást
við aðra sýn“ eftir Miles Malle-
son, í þýðingu frú Ingu Laxness,
sem einnig var leikstjóri. Þann
leik hefir L. H. sýnt 18 sinnum
við góðar undirtektir, og í ráði er
að sýna hann oftar, en sýningar
hans varð að fella niður vegna
æfinga á ..Töfrabrunninum".
Væntanlega mun „Töfrabrunn
urinn“ afla sér mikilla vinsælda
meðal yngstu leikhúsgestanna,
ekki síður en Hans og Gréta,
enda er gerð hans mjög við barna
hæfi og er oft til þeirrar hjálpar
leitað til að greiða úr flóknum
vandamálum.
Rækjuveiðar við Djúp
stórspilla fiskveiði
Úr bréfi frá ísafjarðardjt'ipi
SÁ tími nálgast nú óðum, að búast mætti við að fiskur gengi hér
í Inndjúpið,, það er langt innfyrir Vigurmið. Hins vegar er hér
nokkur hængur á, að af því verði á komandi vori, þar eð rækju-
veiðar með nót, sem að litlu leyti er frábrugðin venjulegri dragnót,
eru nú leyfðar hér á mið Djúpið.
SkólasJketnmhmin
Daglega, er veður leyfir, skafa
nú fleiri og færri bátar botninn
hér í Djúpinu á beztu fiskimið-
unum með dragnót sinni og koma
þar með í veg fyrir að fiskur
gangi í Djúpið. Svíður öllum hin-
um smærri útgerðarmönnum hér
að slíkt skuli líðast, að friðun sú,
sem lögleiddd hefur verið hér í
ísafjarðardjúpi, sem öðrum
fjörðum, skuli þannig vera lítils-
virt aðeins til stundarhagnaðar
fyrir tiltölulega fátt fólk.
Rækjuveiðar á innfjörðum hér
i Djúpinu, Hestfirði, Mjóafirði og
Isafirði (innri), þar sem full-
þroska fiskur gengur aldrei inn
á, hafa um árabil verið stundað-
ar hér. Þar er nú rækjan, að
minnsta kosti í bili, gengin til
þurrðar, eða það smá orðin að
ekki þykir hún hirðandi eða
| gjaldgeng verzlunarvara. Vitað
, er að þessir innfirðir úr Djúpinu
, eru helztu og beztu uppeldis-
j stöðvar fiskjarins hér, þar eð
! algengt er, að í rækjuvörpunum
þar, veiðist í hverjum drætti
mergð af smá þorsk- og ísuseið-
um. Allt tínir þetta ungviði líf-
inu fyrir þessu tortímingarveiðar
færi, fiskiveiðunum við land vort
I til stórtjóns.
I Með lögum nr. 82, 8. des. 1952
eru bannaðar fiskiveiðar með
botnVörpu og flotvörpu í land-
Ingibjörg Sigurðar-
dóflir frá Kirkju-
hvammi 85 ára
HAFNARFIRÐI — Hin árlega
skemmtun Barnaskóla Hafnar-
fjarðar var haldin s. 1. laugar-
dag og sunnudag, báða dagana
fyrir fullu húsi áheyrenda. Verð-
ur enn huldin ein skemmtun á
skírdag kl. 3, vegna þess hversu
margir urðu frá að hverfa á
sunnudaginn. Allur ágóðinn renn
ur í ferðasjóð barna, sem 'braut-
skrást í ■>ror. — Er skemmtun
barnanna öll hin ánægjulegasta,
en þar koma fram um 160 börn,
sem syngja, leika, dansa þjóð-
dansa og skemmta á ýmsan ann-
an hátt. — G. E.
Mesanús Thorlaeius
HtBatAi^fYiirlnsYnAXiir
Má I fl n t?i ítí g p *k ri f o f th
O Qfrni
± BEZT AÐ AUGLÝSA
T / MORGUNRLAÐIMl
KEFLVIKIIMGAR!
Er stödd í bænum skírdag og föstudaginn langa,
að Hafnargötu 64.
Ingibjörg Ingvars frá Siglufirði.
Tóbak, öl9 gosdrykkir
Blöð og tímarit í f jölbreyttu. úrvali.
Veitingastofan, Þórsgötu 29.
Nýr báfsr í smíðum
HAFNARFIRÐI: — Nú er hafin
smíði á nýjum bát í Skipasmíða-
stöðinni Dröfn, og er lokið við að
reisa bönd. Bátur þessi, sem verð-
ur 56 rúmlestir, er gerður eftir
sömu teikningu og bátarnir Víðir
í Gaiði og Reykjanes, sem smíð-
aðir voru í Dröfn á s. 1. ári. Hafa
þeir báðir reynzt vel og aflað mjög
vel í vetur.
Fyrrnefndur bátur er smíðaður
á reikning skipasmíðastöðvarinn-
ar og því óseldur. Margir munu
hins vegar hafa hug á kaupunum.
Gert er ráð fyrir að hann verði
tilbúinn á síðari hluta ársins. —
Yfirsmiður er Sigurjón Einars-
son. — G. E.
BAGDAD 4. apríl — Bretar
gerðust í dag aðilar að gagn-
kvæmum varnarsamningi Tyrk-
lands og fraks. Voru samning-
arnir undirritaðir í Bagdad. .—
Pakistan var boðin aðild að varn-
arsamningi þessum og tilkynnt
var í Karachi í dag, að boðið
hefði þegar verið þegið. Araba-
ríkin hafa verið mjög andvig
samningi þessum. —Reuter-NTB.
ÁTTATÍU og fimm ára er í dag
Ingibjörg Sigurðardóttir frá
Kirkjuhvammi í Vestur-Húna-
vatnssýslu, nú til heimilis hjá
dóttur sinni, Lönguhlíð 11, Rvík.
Ingibjörg er fædd í Kirkju-
hvammi 6. apríl 1870. Foreldrar:
Sigurður Árnason, hreppstjóri í
Kirkjuhvammi og Hólmfríður
Einarsdóttir.
| Ingibjörg giftist 1894, fyrri
manni sínum, Davíð Jónssyni frá
Syðstahvammi, og hófu búskap
í Kirkjuhvammi. — Börn þeirra:
Sigurður, kaupm. á Hvamms-
tanga, og Jóhannes, bílstjóri á
j Hvammstanga. — Seinni maður
Ingibjargar var Jóhannes Egg-
ertssonar frá Ánastöðum, og
bjuggu þau í Kirkjuhvammi og
síðar á Hvammstanga, þar til
Jóhannes andadðist 1948, en til
Reykjavíkur fluttist hún 1950 og
hefur dvalið þar síðan. — Börn
þeirra Jóhannesar, sem nú eru á
lífi, eru: Margrét og Pálína, báð-
ar búsettar á Hvammstanga, og
Jenný, búsett í Lönguhlíð 11,
Reykjavík.
helgi við ísland á friðunarsvæði
því, sem ákveðið er í reglugjörð
nr. 21, 19. marz 1952. Illu heilli
er þó ráðherra í lögum þessum
gefin heimild til að veita undan-
þágu frá banni þessu á tiltekn-
um svæðum og leyfa veiðar þar
með venjulegri kampalampa-
vörpu og leturhumarsvörpu. —
Leyfi til að veiða með þesskonar
vörpum í ísafjarðardjúpi mun
hafa verið veitt á árinu 1953, en
veiðar ekki átt sér stað hér í
Djúpinu það ár nema á áður-
greindum innfjörðum. Brá nú
svo við að fiskigengd í Djúpið
á þessu ári varð meiri en nokkru
sinni áður um langt árabil. Hélst
góður og stundum mikill afli frá
því um miðjan apríl um vorið og
þar til í lok janúar árið 1954.
Afkoma trillubátaútvegsins var
hin ágætasta þetta ár, sem þakk-
að var eingöngu friðuninni.
Langt var ekki liðið af síðast-
liðnu ári er rækjubátar drógu
vörpur sínar eftir botni Djúps-
ins, hvar svo sem sýndist hér í
Djúpinu, að sjálfsögðu að gefnu
leyfi þar til. Kom fljótt i ljós
hver áhrif þetta hafði á aflabrögð
hér í Djúpinu, sem reyndust nú
stórum minni og óábyggilegri en
árið áður.
Háværar raddir meðal trillu-
bátaútgerðarmanna, sem fjölgað
hefur mjög síðustu tvö árin. eru
nú uppi um að banna þurfi með
öllu rækjuveiðar hér í Djúpinu,
eins og þær eru framkvæmdar,
eða að minnsta kosti leyfa þær
aðeins í inndjúpinu út að línu,
sem hugsast dregin frá Melgras-
evraroddum norðanvert við
Djúpið í Breiðfirðinganes vestan-
vert við það, að meðtöldum Hest-
firði, er lengst hefur gefið góða
rækjuveiði. Þykir með þessu lagi
að vísu of miklu offrað af ung-
viði fiskjar, er elst upp á þessum
innfjörðum, en hins vegar séð
fyrir, að fiskveiðar annars stað-
ar í Djúpinu glæðist, en leggist
ekki alveg niður á næstu árum.
Mönnum hér er það ljóst að
rækjuveiðar skapa allmörgum
atvinnu, bæði á sjó og landi, aðal-
lega þó á landi. Hitt er svo ótví-
rætt sannað, að veiðiaðferð með
nót, sem dregin er eftir marar-
botni, eins og tíðkast hér með
kampalampanætur, stórsnillir
fiskveiðum. Hindrar fiskigöngur
og veldur oft veiðarfæratióni hjá
beim, sem stunda veiðar með
línu. Er reynslan ólygnust í þess-
um efnum, svo ekki verður á
móti mælt með neinum rökum.
Þetta sjá og sáu allir siómenn,
er þeir mót.mælalaust beigðu sig
undir þau ákvæði laga er sett
voru með friðun landhelvinnar
begar veiði með dragnót var
bönnuð á friðunarsvæðinu. Kins
er bað og augljóst að fiskveiðar
með línu og netum eru mun hag-
stæðari bæði hvað snertir at-
vinnuspursmálið og fjárhagslega
afkomu einstaklinga og þjóðar-
búsins í heild“.
Golf heilsufar
SAMKVÆMT skýrslu frá borg-
arlækni, hefur heilsufar í Reykja
vík verið mjög gott undanfarið.
Inflúenzan er nú á hröðu und-
anhaldi og urðu aðeins 152 til-
felli í vikunni 20—26. marz, á
móti 425 tilfellum þar áður í
einni viku. Þá er hettusótt einnig
í rénun, urðu 55 tilfelli af henni
í sömu viku á móti 77 þar áður.
Af kvefsótt urðu 102 tilfelli á
móti 173 á sama tíma.