Morgunblaðið - 06.04.1955, Síða 4
4
MORGVNBLAÐID
Miðvikudagur 6. apríl 1955 j
— Dagbók —
Á verkfallsverðinum
AFÖSTUDAGSKVÖLD réðust sjálfskipaðir verkfallsverðir á
bifreið kaupmanns eins hér í bænum, brutu hana upp og
stálu úr henni tveim kjötskrokkum." (Vísir 4. þ. m.)
„Mér finnst það ekki viðeigandi að vera að brydda á skopi“,
einn vina minna sagði og beiskan grét.
„Hvernig sem ég reyni, fæst hvergi nokkur dropi
og hvorki á diskinn fiskur eða két.“
„Ef værí það til bóta, ég veit ei hvað ég gerði, —
ég vildi jafnvel ganga í komma flokk,
og reyna að fá um tíma að standa á verkfallsverði
í von um að ég gæti krækt í skrokk.“
KRUMMI.
t ilag er 97. dagur ársins.
6. apríl.
Árdegisflæði kl. 4,51.
Síðdegisflæði kl. 17,14.
Læknir er í læknavarðstofunni,
eími 5030, frá kl. 6 síðdegis til kl.
8 árdegis.
Næturvörður er í Ingólfs-apó-
teki, sími 1330. — Ennfremur eru
Holts apótek og Apótek Austur-
bæjar opin daglega til kl. 8 nema
á laugardögum til kl. 4. Holts-
apótek er opið á sunnudögum
milli kl. 1 og 4.
Hafnarfjarðar- Og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga milli kl.
13,00 og 16,00.
I.O.O.F. 7 = 13645gl/2 = 6,30
Borðh.
i
• Messur •
Laugarneskirkja: — Messa á
skíidag kl. 11 f.h. Séra Garðar
Svavarsson.
• BrúðkouD •
12. marz voru gefin saman í
hjónaband í Modesto, Californíu,
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Grundar-
stíg 4 og Ralp E. Johnson.
• Hjónaefni •
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
Jofun sína ungfrú Halldóra Ástdís
Guðmundsdóttir, Þingholtsstræti
24, Reykjavík og Magnús Kristinn
Guðmundsson, Borg, Ögurhreppi,
N.-ísaf jarðarsýsiu.
í dag verða gefin saman í hióna
band ungfrú Anna Guðrún
Tryggvadóttir (Þórhaiissonar ráð
herra), Laufási við Laufásveg og
stud. mag. Bjarni Guðnason (Jóns
sonar skólastjóra), Drápuhlíð 5.
Heimili ungu hiónanna verður í
Laufási við Laufásveg.
Sjálfstæðisfélag
Kópavogs
heldur alniennan félagsfund í
kvöld í Barnaskólanum kl. 8,30.
Umræðuefni: Þingmál o" Iirepps-
mál. Forsætisráðherra Ólafur
Tliors, mætir á fundinum. Allt
Sjélfstæðisfólk í Kópavogshreppi
er velkomið.
Esperantistafélagið
Aurora
heldur fund í kvöld í Edduhús-
inu (uppi) í kvöld kl. 8,30.
Til fólksins, sem brann hjá
í Þóroddsstaða-camp
Afh. Mbl.: U. E. kr. 100,00; Þ.
J. 50,00; G. R. 100,00; O. N.
! 100,00; Þ. B. 100,00; B. og O.
j 100,00; G. G. 50,00; Jón og Þórð-
j ur 100,00; J. H. 200,00; E. M. J.
100,00; H. G. 100,00.
Barnaskóli
Hafnarfjarðar
Skólaskemmtunin verður endur
tekin i Bæjarbíói á skírdag kl. 3,
vegna þess, hversu margir urðu
frá að hverfa s. 1. sunnudag.
Hlýjar kveðjur frá
Danmörku
Á aldarafmæli verzlunarfrelsis-
ins bárust íslenzkum verzlunar-
mönnum hlýjar kveðjur frá
danska stórkaupmannasamband-
inu, sem sendi árnaðaróskir í
skeyti til hátíðarnefndarinnar. -—
Einnig fylgdi mjög falleg blóma-
karfa.
Til aðstandenda þeirra, er
fórust með „Agli rauða“
Afh. Mbl.: Elín kr. 100,00. —
Iþróttamaðurinn
Afh. Mbl.: g. áheit kr. 25,00. —
Björn Th. Björnsson
listfræðingur heldur erindi um
ævi og list Guðmundar Thorsteins
son (Muggs), í myndlistarskólan-
um, Laugavegi 166, í kvöld kl.
8,15. Skuggamyndir eru sýndar
með erindinu. Er öllum heimill
aðgangur.
Leiðrétting
í minningargrein um Elínborgu
Bjarnadóttur,, sem birtist í blað-
inu 31. marz, sagði svo: „Systkini
átti hún fjögur“, en átti að vera:
Systkini átti hún sex. Þar vant-
aði nöfn' þeirra Guðrúnar sem dó
í bernsku og Sigurðar sem var
hálfbróðir þeirra og er látinn fyr-
ir nokkrum árum.
Málfundafélagið Óðinn
Stjóm félagsins er til viðtalt
við félagsmenn í skrifstofu félags
ins á föstudagskvölduTn frá kl
8—10. — Sími 7104.
Minningarspjöld
Krabbameinsfél. íslands
fást hjá öllum póstafgreiðslum
landsins, lyfjabúðum í Reykjavík
og Hafnarfirði (nema Laugavegs-
og Reykjavíkur-apótekum), — Re-
media, Elliheimilinu Grund og
skrifstofu krabbameinsfélaganna,
Blóðbankanum, Barónsstíg, sími
6947. — Minningakortin eru af-
greidd gegnum síma 6947.
Hrækið ekki á gangstéttir.
Minningarspjöld S.L.F.
— Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra — fást í Bókum og rit-
föngum, Austurstræti 1, Bóka-
verzlun Braga Brynjólfssonar,
Hafnarstræti 22, Hafliðabúð,
Njálsgötu 1, og verzluninni Roða,
Laugavegi 74.
Styrktarsjóður munaðar-
lausra barna. — Sími 7967
Bæ j arbókasaf nið
Lesstofan er opin alla virka dagai
frá kl. 10—12 árdegis og kl. 1—10
síðdegis, nema laugardaga kl. 10
— 12 árdegis og kl. 1—7 síðdegis.
Sunnudaga frá kl. 2—7 síðdegis,
ÍJtlánadeildin er opin alla virka
daga frá kl. 2—10, nema laugars
daga kl. 2—7 og sunnudaga kL
5—7.
• Útvarp •
Miðvikudagur 6. apríl:
8,00—9,00 Morgunútvarp. 10,10
Veðurfregnir. 12,00—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðui'fregnir. 18,55 Iþrótt-
ir (Atli Steinarsson blaðamaður)'.
19,15 Þingfréttir. 19,25 Veður-
fregnir. 19,30 Óperulög (plötur)'.
19,40 Auglýsingar. 20,00 Fréttir.
20.30 Upplestur: „Ævintýraferð-
ir og landafundir“, kafli úr bók
eftir Vilhjálm Stefánsson (Magn-
ús Á. Árnason listmálari les). —•
21,00 „Já eða nei“. — Sveinn Ás-
geirsson hagfræðingur stjórnar
þættinum. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Passíusálmur (47).
22.20 Upplestur: „Rústir“, ritgerð
eftir Sigurð Guðmundsson (Stein-
grímur Sigurðsson les). — 22,40
Harmonikan hljómar. — Karl
Jónatansson kynnir harmoniku-
lög. 23,10 Dagskrárlok.
Kvilli í tóm fyrir
vesfan 1
ÍSAFIRÐI, 5. apríl — Komið
hefir upp illkynjuð veiki í kúm
á tveimur bæjum í Skutulsfirði,
Kirkjubæ og Seljalandi. Varð
veikinnar fyrst vart á fimmtu-
dagsmorgun, og var þá strax haft
samband við dýralækni.
Er helzt álitið, að kvilli þessi
kunni að stafa frá óhreinindum,
sem kunna að hafa borizt með
fóðurmjöli. Hefir veikinnar orð-
ið vart víða um land í vetur. —J.
Setustofuklukkur
8 daga anker-verk.
Eldhúsklukka, 8 daga gang-
verk, rauð, græn, blá.
Ljós eik, 14 daga gangverk,
Á2 tíma slagverk
Við fagmenn mælum eindregið með þessum ágætu klukkum og veitum
fúslega allar upplýsingar. Það „model“, sem yður mun líka fæst hjá einhverj-
um okkar. Ábyrgð fylgir hverri einustu KIENZLE klukku. — Gætið þess, er
þér kaupið kJukku, að
standi á skífunni.
Veggklukka,
14 daga gangverk.
Kaupið því klukkuna hjá okkur og þér verðið ánægð:
ÁRNI B. BJÖRNSSON, Lækjartorgi.
BJÖRN & INGVAR úrsm., Vesturgötu 16.
GUÐLAUGUR GÍSLASON úrsm., Laugaveg 63.
JÓHANN Á. JÓNASSON, úrsm., Skólavörðustíg 2, sími 3939.
KORNELÍUS JÓNSSON, úrsm., Skólavörðustíg 8, og Úr og listmunir.
Austurstræti 17.
MAGNÚS ASMUNDSSSON úrsm., Ingólfsstræti 3.
MAGNÚS E. BALDVINSSON úrsm., Laugaveg 12.
MAGNÚS SIGURJÓNSSON úrsm., Laugaveg 45, sími 4568.
SIGURÐUR TÓMASSON úrsm., Skólavörðustíg 21, sími 3445.
u 1Q I f
(o q
o\\ 3
6 .
i 7 6' 5 a
Húsklukka,
dökk éik með Kákasus-valhnotu,
8 daga slagverk, 8 strengja.
(AH-3)
'&<s<SKS<5<s<s<s<a^s<a<s<SKS<a<2<5<s<s<s>c5<s<a<s<5<s<a<s<s><5<s<3<a<s<SKS>cs^s<s*c2
Eldhúsklukka,
8 daga gangverk, rauð, græn,
blá.
ORGINAL KLUkKlJR
Einn árangurinn af hinni heimsfrægu þýzku framleiðslu eru KIENZLE
klukkurnar. Hér á landi eru KIENZLE klukkurnar á þúsundum heimila vegna
smekklegs útlits og sérstaklega góðrar reynzlu kaupenda.
Allar gerðir ávalt fyrirliggjandi í miklu úrvali.