Morgunblaðið - 06.04.1955, Page 1
16 síður
42. árgangur
80. tbl. — Miðvikudagur 6. apríl 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsinc
Winston Churchill biðst lausnar
Bæjarrdð somþykkir að bjóða út
byggingu 58 íbúða í raðhúsum
til viibétar 45 sem eru í smiðum
Auk þess undirbúin bygging
48 íbÚÍS í fiölbýlishúsum Samnlngansfndar-
fundir í gær
SÁTTANEFNDIN í vinnudeil-
unni hélt langan fund með samn-
inganefndum deiluaðila í gær. —
Hófust fundir kl. 2 og stóðu fram
eftir kvöldi með matarhléi. Stóð
fundur enn yfir á miðnætti, eti
árangur hefur ekki náðst.
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í Bæjarráði fluttu í gær
á bæjarráðsfundi tillögu þess efnis að nú þegar yrði
boðin út bygging 58 íbúða í raðhúsahverfi við Bústaðaveg
til viðbótar 45 íbúðum, sem nú eru í byggingu og undirbúið
skyldi framhald byggingaframkvæmda bæjarins, fyrst um
sinn með byggingu 48 íbúða, tveggja og þriggja herbergja
í fjölbýlishúsum.
Byggingaframkvæmdir þessar miðast við að útrýma
braggaíbúðum og öðru heilsuspillandi húsnæði í bænum.
Er stefnt að því að gera því fólki, sem í slíku húsnæði býr,
kleift að eignast sjálft íbúðirnar.
TILLAGAN «----------------------------
VAR Á ÞESSA LEIÐ:
í því trausti að Alþingi, sem
nú situr, geri raunhæfar ráð-
stafanir til að greiða fyrir
íbúðabyggingum, bæði með
því að tryggja hagkvæm lán
og með beinum ríkisframlög-
um til útrýmingar óhæfum
íbúðum, einkum braggaíbúð-
um, samþykkir bæjarráð
að láta nú þegar bjóða út bygg-
ingu 58 íbúða í raðhúsahverfi
við Bústaðaveg eftir uppdrátt-
um Gísla Halldórssonar, og
að undirbúa framhald bygginga-
framkvæmda í samræmi við
ályktun bæjarstjórnar 13.
apríl 1954, fyrst um sinn með
byggingu 48 íbúða, tveggja og
þriggja herbergja.
Er borgarstjóra og bæjar-
verkfræðingi falið að greiða
fyrir því sem föng eru á, að
þessar byggingaframkvæmdir
megi hefja hið fyrsta.
□-
-□
SÝNDARTILLAGA
KOMMÚNISTA
Eftir að SjálfstæSismenn höfðu
borið fram ofangreinda tillögu,
kom fulltrúi kommúnista í Bæj-
arráði fram með ,,yfirboð“ og
vildi byggja 100 íbúðir í fjölbýlis-
húsum í stað 48:
Þessi tillaga kommúnistans var
í sjálfu sér gersamlega óþörf, þar
sem tillaga Sjálfstæðismanna ger-
ir að sjálfsögðu ráð fyrir áfram-
Framh. á bls. 2
Fyrsta greinin, sem borizt
helur hingnð um norrænu
sýninguno í Róm
Var hylltur af miklum
mannfjölda er hann ók
til Buckingham-hallar
Útnefndi Eden sem eftirmnnn
London 5. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
WINSTON CIIURCHILL hinn áttræði brezki stjórnmála-
skörungur ók í dag frá forsætisráðherrabústaðnum í
Downing Street 10, á fund Elísabetar drottningar í Bucking-
ham-höll og baðst lausnar sem forsætisráðherra.
Drottning veitti honum þegar náðarsamlegast lausn.
Þannig lýkur hinum mikla og glæsilega ferli þessa brezka
forsætisráðherra. Churchill mun þó sitja áfram á þingi en
aðeins sem gamall stjórnmálamaður.
Churchill hefur neyðzt til að viðurkenna að hann getur
ekki lengur gegnt þessu stormasama embætti fyrir aldurs-
sakir. En hálft í hvoru mun hann hafa verið tregur til að
láta af embætti, því að áhuginn er enn mikill, þrátt fyrir
bilaða krafta.
GORAN SCHILDT listdómari við Sænska Dagblaðið segir, að
íslenzka sýningardeildin sé undrunarefni, t. d. taki hún frám
þeirri sænsku og finnsku.
I ítarlegri grein um norrænu
listsýninguna í Róm segir þessi
kunni listdómari frá íslenzku deild
inni þar og kemst hann m. a.
þannig að orði:
Jafnvel sniáþjóSin íslending-
ar vekja undrun meS sýning-
ardeild sinni, svo þátttaka
þeirra er annað og meira en
vottur um samnorrænan anda.
Allar þjóSirnar fimm hafa
þarna sína sérdeild, meira eða
minna vel heppnaS úrval úr
dagsins hálf eða algerSu ab-
straktlist. Sennilega vekur sýn-
ing þessi sem heild ekki mikla
eftirtekt í ítaliu, því almenn-
ingur hefur haft tækifæri til
aS kvnnast þessari list í Bien-
nal-sýningunni í Feneyjum á
undanförnnm árum þar sem
ýmsir nierkir fulltrúar þessarar
listar hafa sýnt verk ssn.
UndrunarefniS mesta er, aS
meS sýningu þessari frá fs-
Framh. á bls. 2
MANNGRUI
HYLLIR FORINGJANN
Þótt engin tilkynning hefði
verið gefin út fyrirfram um
lausnarbeiðni Churchills, hefur
stöðugur orðrómur gengið um að
hún væri í vændum. Og þegar
tilkynnt var að Churchill ætlaði
að ganga á fund drottningar í
dag, þótti almenningi ljóst að
hverju stefndi. Safnaðist geysi-
legur fjöldi fólks saman bæði
fyrir framan forsætisráðherra-
bústaðinn o gkonungshöllina. —
Þegar Churchill birtist og ók um
HbduHah uppreisnar•
ses$«$ur rekinn irá
Jemen, 5. apríl. — Einkaskeyti frá Reuter.
ABDULLAH prins, sem rændi völdum í Jemen fyrir nokkru
hefur nú aftur verið rekinn frá völdum. Fór hann landflótta
í morgun ásamt nokkrum yfirmönnum jemenska hersins til Saudi
Arabíu, eftir að bróðursonur hans stefndi ósigrandi liði bænda og
búaliðs til höfuðborgarinnar.
strætin, kvaddi fólkið hinn ást-
sæla foringja með ærandi húrra-
hrópum og söng „He’s a jolly
good fellow“.
Churchill var brosandi út að
eyrum, reykti sígaravindil og gaf
V-merkið með fingrunum.
HÁTÍÐLEG STUND
í HÖLLU
í höllinni tók drottning hátíð-
lega á móti Churchill og hann
bar upp erindí sitt. Drottning
féllst þegar á lausnarbeiðnina og
spurði Churchill, hvort hann
vildi gera uppástungu um eftir-
mann.
— Já, svaraði hann. Ég vil gera
þá tillögu að Sir Anthony Eden
verði falin stjórnarmyndun.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær drottning kallar Anthony
Eden á sinn fund, en það verður
næstu daga. Talið er líklegt að
Eden fari fram á að mega leita
trausts þjóðarinnar í almennum
þingkosningum.
Helzt álíta menn að kosningar
fari fram 26. maí n.k.
3000 foncia bnzín-
farmur ssSdur
UPPREISN BRÓÐURINS
Smáríkið Jemen er á suður-
strönd Arabíu. Þar ríkti til
Skamms tíma Akmed konungur,
en yngri bróðir hans, Abdullah
var vesír hans og eins konar ut-
•anríkisráðherra. En í siðustu
viku, á laugardaginn, gerðust þau
tíðindi að Abdullah gerði samsæri
við herforingja landsins um að
steypa bróður sínum af stóli. Lét
Framh. á bls. 2
Vegna verkfallsins liggja nú sjö Fossanna bundnir við hafnargarð-
inn hér í Reykjavík, en að auki eitt Sambandsskipanna og Katla,
og í gærdag kom danskt saltflutningaskip, Paris. f dag verða tog-
ararnir orðnir fjórir, sem kemnir eru af saltfiskveiðum.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
ur i öíioí
RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilað
olíufélögunum að selja benzín-
farm þann úr landi. sem norska
olíuskipið Raila flutti hingað, og
ekki fæst losaður. Er skipið með
3000 lestir af benzíni eða sem
svarar til mánaðarþarfa landsins.
Eru olíufélögin nú að leita til-
boða erlendis í farminn.
Smeralda liggur ennþá uppi í
Hvalfirði.
Júgósiavar auks
flugferðir
BELGRAD, 5. apríl: — Júgóslav-
neska flugfélagið JAT er nú að
hefja fastar áætlunarferðir til
Kairo, Beirut og Vínarborgar. I
sumar munu hefjast áætlunarferð
ir til Ítalíu. Hefur félagið keypt
splunku nýjar bandarískar flugvél
ar af tegundinni • Convair 340 til
að annast ferðirnar. — Reuter.