Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.05.1954, Blaðsíða 9
Sunnudagui 16. maí 1954 MORGUNBLAÐIB 9 Rey kjavíkurbréy; ■ Laugardagtir 15. mai Vorið — Töðurnar í fyrra reyndust úr sér sprottnar — Rann- sókn á heygæðum — Kalk til áburðar — Tilbúni áburðurinn — Kyrrstöðubændurnir — Leiðbeiningastarfsemin — Tómlæti um Búnaðarfélagið — Þýfðu túnin — Rannsókn Búnaðar- þings — Tilraunastöðin að Varmá — Grasfræið frá Noregi Vorið NOKKRU fyrir mánaðanótin sSðustu kólnaði svo í veðri, að meira og minna frost gerði um land allt á hverri nóttu. Frostið mun hér hvað eftir annað hafa verið um 4 stig en hærra fyrir norðan. Kom þetta kuldakast ekki von- um fyrr, enda munu menn al- mennt hafa litið svo á, að hin milda veðrátta hafi þá haldizt svo lengi. að við ættum fyrir bví, að fá vorhret og það svo um munaði. Hér í Reykiavík bjuggust menn við því dag eftir dag að sjá norð- anskýjabölstrana hnykla sig upp yfir Esjuna. En sjaldan kom það fyrir í kuldakasti þessu að norð- anáttin gerðist svo eindregin. Fyrir síðustu helgi brá til suð- austlægrar áttar með hlýindum um allt land, og hefur veðrið suma dagana verið mun hlýrra norðanlands en sunnan. En öllu seinna hlýnaði á Vestfjörðum. Á þriðjudaginn var hiti hér í Reykjavík 13—14 stig og svipað fyrir norðan, svo menn eru nú farnir að vonast eftir, að vor- batinn sé kominn fyrir alvöru. Aprílveðráttan í APRÍLMÁNUÐI var meðalhit- jnn hér í Revkjavík allan mán- uðinn 4,4 gráður, þ. e. a. s. 1,8 gráðu yfir reiknaðan meðalhita. En hinn reiknaði meðalhiti hvers mánaðar er miðaður við meðal- tal mánaðanna á 30 ára tíma- bilinu frá 1901 til 1930. Á Akureyri var meðalhitinn í apríl tiltölulega meiri en í Reykjavík eða 3—4 gráðum hærri en meðalhitinn á þessu umgetna 30 ára tímabili, því á Akureyri er meðlhiti í apríl 0,8°. En var í þetta sinn 4,2 gráður. Úrkoman ií apríl vr með minna móti að þessu sinni. í Reykjavík 61,3 mm. en meðalúrkoman er hér í þess- um.mánuði 79 mm. og á AVur- eyri var hún ekki nema 19,3 mm. en meðlúrkoman í aprílmánuði þar er 30,7 mm. Og nú er eftir almanakinu sumarið gengið í garð eftir einn hinn mildasta vetur sem sögur fara af. Heyin frá í fyrra reyndust léleg NÚ er að vita, hvemig bændum okkar tekst að búa sig undir næsta vetur, með heyfeng og ann- að. En hvaðanæfa af landinu hafa menn þær fréttir að hey- fyrningar hafi verið með mesta móti, eftir þennan gjafalétta vet- uf»‘ EN hin mikla spretta í fyrrasum- ar og fyrningamar hafa kennt okkur að ekki er allt undir hey- magningu komið, því heyin hafa reynzt létt og jafnvel óholl að vissu leyti, sem eðlilegt er, vegna þess hv.í túnin voru óvenjulega síðslegin og úr sér sprottin. Áreiðanlegt er, að allt of fáir bændur gera sér grein fýrir hve fóðurgildi töðunnar breytist þeg- ar grasið rýrnar að fóðurgildi, eftir því, sem lengra liður á sum- arið. f litlum ritlingi eftir dr. Björn Jóhannesson og Kristínu Krist- jánsdóttur efnafræðing eru leið- beiningar í þessu efni í ritgerð, sem heitir „Efnasamsetning grass á ýmsum aldursstigum, og hæfni þess til votheySgerðar". Þar er gerð grein fyrir efnasamsetning- unni i grasi á mismunandi tím- um sumarsins. Að vísu er hér aðeins um fá sýnishom að ræða, hér sunnanlands. En þar eð þess- ar efnagreiningar koma vel heim við fyrri athuganir í þessum efn- um, er ástæða til að gefa þeim gaum og það því fremur, sem menn geta átt von á, að bændur almennt fái hér á eftir meiri og greiðari aðgang að tilbúnum áburðarefnum en þeir áður hafa fengið, og með ári hverju hafi þeir meiri tök á að koma hey- verkun sinni í betra horf, ýmist með votheysgerð eða súgþurrkun og get'i því hagað sláttutíma sín- um í meira samræmi við æski- legt fóðurgildi töðunnar. Aðalatriðið að heyið sé kjarngott í ÁLYKTUNARORÐUM ritgerð- arinnar segir m. a.: „Kjarnmik- ið hey fæst naumast, þar sem tún eru einslegin, því þau eru þá jafnan fremur síðslegin. Séu þau í það góðri rækt að hægt sé að slá þau tímanlega sumars, yrði háin væntanlega einnig vel slæg. Kjarnmikla töðu má fá af rækt- argóðu túni í stuttu sumri, með því að slá tvisvar. I löngu og góðu eða meðal- góðu sprettu sumri fæst hins- vegar naumast kjarnmikil taða með því að tvíslá, grasið nær því að spretta of mikið úr sér. Ef heygæði eru sérstak- lega höfð í huga, verður undir þessum kringumstæðum að slá þrisvar eða slá tvisvar og beita stðan á landið og bera vel á“ Ennfremur segir í skýrslugerð- inni: „Vinnuaðstæður bóndans ráða miklu um það, hvernig hann get- ur hagað heyöflun. Vorannir, einkum þar sem áherzla er lögð á sauðfjárrækt,, geta t. d. tafið sláttarbyrjun beint og óbeint. Vélakostur býlisins og vinnuafl í hlutfalli við stærð túnsins svo og aðstæður til heyverkunar (vot heysgeymslur, súgþurrkun) að ó- gleymdu veðurfari setja því tak- mörk, hve hægt er að slá og hirða af túninu á skömmum tíma. í þessu sambandi er það æski- legt að láta suma hluta túnsins spretta fyrr en aðra. Töluverðu má áorka í þessa átt með mis- jafnlega mikilli vorbeit og breyti legri áburðarnotkun". En það gefur auga leið að slík- ar hugleiðingar eru að mjög litlu leyti iátnar koma til greina um sláttutíma og tilhögun túnrækt- arinnar yfirleitt, en eftirtektar- vert er það sem dr. Björn segir um það, hve fóðurgildi snemm- slegnu töðunnar er mikið sam- anborið við síðslægjuna, sem eðlilegt er. Sorglega fáir bændur hafa auga með þroskastigi fóðurjurta sinna, veita því litla athygli, hve óslægjan er komin langt i eðli- legum þroska sínum, þó menn al- mennt viti að þá er í grasfóðrinu mest af auðmeltanlegpm næring- arefnum, þegar túngrösin eru með nýútsprungnu punti. Geta menn horft á puntbreiður tún- anna viku eftir viku þó þeir viti vel að daglega hrakar fóðurgildi hinna tilvonandi heyja þeirra. Jarðræktin og kalkið á Akranesi í SAMA bæklingi er önnur grein eftir sömu höfunda, þar sem gerður er samanburður á eigin- leikum mýrajarðvegs Suður- og Norðurlands Þar er sú skoðun með efnagreiningum rökstudd, að sunnlenzku mýrarnar séu að öðru jöfnu óhentugri til rækt- unar, en þær norðlenzku, m. a. vegna þess að kalk og önnur skyld efni hafa þvegist meira úr mýrarjarðveginum í stórrigning- unum hér syðra en norður frá. Á það er bent að við íslend- ingar ættum að gefa kalkinu meira gaum í verki heldur en gert hefur verið í jarðræktinni. Að sjálfsögðu hafa menn vitað um gagnsemi kalksins fyrir gróð- urinn. En hingað til hafa íslenzk- ir bændur ekki átt þess kost að afla sér kalks til áburðar, nema á stöku stað þar sem sjávarsand- ur er nærtækur. Nú getur á þessu orðið breyt- ing, þegar sementsverksmiðjan kemur til sögunnar og kalksnd- inum er skóflað í stórum stíl upp á Akranes. En kalk til áburðar hefur hingað til ekki verið notað hér að neinu ráði, nema helzt að einstaka gróðurhúsaeigendur hafa séð sér hag 'í því, að kaupa áburðarkalk frá útlöndum og bera það í gróðurhúsamold sína. Tilbúinn áburður notaður meira en áður NOTKUN tilbúins áburðar er sem kunnugt er í örum vexti á voru landi. Árið 1953 voru t.d. notuð hér 3500 tonn af köfnunar- efni í tilbúnum áburði en árið áð- ur 2400 tonn, af fosfórsýsru 1670 tonn, en 936 árið áður og af kalí 1380 tonn, en 933 árið áður, „og telja margir að hér sé aðal- orsökin til aukningar töðufalls- ins“, segir Páll Zophoníasson í nýútkomnu búnaðarriti. Vegna þess hve túnin spruttu ört í fyrravor, og framan af sumri, mátti búast við að taðan yrði steinefnasnauð. Enda kom það fram á ýmsan hátt í van- heilsu búfjársins. Vik ég þá aftur að gefnu til- efni að því, hve margir bændur hafa ekki tekið þátt í nýrækt- inni á síðustu 30 árum, eins og kom fram í búnaðarþingsræðu Páls Zoponiassonar, er nú nýlega er prentuð í Frey, þar sem hann segir að 1801 bóndi lætur sér nægja tún sem eru aðeins eða innan við 5 hektara að stærð. Aumt ástand „TIL ERU enn allmargar jarðir þar sem engin túnauki hefur ver- ið gerður síðan jarðræktarlögin voru samþykkt 1923. Sums staðar eru bændur enn að slá karga þýfð tún allt sumarið og allt árið eru þeir með konu sinni að vinna fyrir 2—3 kúm, 40—50 ám. Til þess að koma þessum fénaði fram, verða tvær manneskjur að leggja á sig árs-erfiði“, segir Páll Zophoníasson í búnaðarritinu, og bendir síðan á til samanburðar, hver afkoma þeirra bænda er, sem bezt eiga búin. Ekki er hægt að leiða hjá sér hið mikla ósamræmi sem ríkir í hagsæld bændanna eins og sak- ir standa, sem fyrst og fremst fer eftir því, hvort þeir eru í kyrr- stöðuflokknum er gefur sig lítið við nýrækt, ellegar þeim hefur tekizt að breyta um búskaparlag sitt og allan rekstur. eftir því sem bezt er hægt að koma í fram kvæmd. Ég tek dæmi af bónda á Flóa- bússvæðinu er hefur 3648 lítra meðalársnyt mjólkurkúa sinna, en þær eru 12 að tölu. Hann hefur að meðaltali 4,38% af fitu í mjólk sinni og mikla mjólk á haustin, þegar erfiðast er að afla mjólkur, fyrir hinn almenna markað, svo mjólkurbúið kaupir haustmjólk- ina hærra verði en bændur fá á öðrum tímum árs. Að meðaltali fær hann um 9000 krónur fyrir ársnytina. Við búið vinna 3 fullorðnar mann- eskjur á ári, og geta menn þess nærri hve langt bóndi þessi kemst yfir meðalafurðir íslenzkra búa, þar eð sem fyrr segir, að um 1800 bú verða að láta sér nægja af- urðir af innan við 5 hektara mis- jafnlegra töðuvalla. Sinna enn lítt leiðbeiningum OG SVO eru ýmsir bændur svo hlálegir að þeir eru ekki enn farnir að viðurkenna í verki, að þá vanhagi nokkuð um hagnýtar leiðbeiningar í búrekstri sínum, hafa jafnvel árum saman látið leiðbeiningar sér fróðari manna að miklu leyti sem vind um eyru þjóta, eins og greinilega kemur fram í því hve lítig þeir skipta sér að ráðleggingum og leiðbein- ingum búnaðarráðunautanna. Árlega eru í búnaðarritinu merkar upplýsingar, sem fram koma á hverjum tíma viðvíkj- andi íslenzkum búnaði og bún- aðarháttum og því sem til fram- fara horfir á því sviði. En ævifélagar Búnaðarfélags íslands eru enn ekki nema um 3600, enda þótt íslenzkir bændur séu alls um 6300. Allir félags- menn fá búnaðarritið. Ævigjald félagsins var lengi ekki nema 10 krónur, en síðar 20 krónur, en nú með minnkandi verðgildi pen- inga hefur það verið hækkað í kr. 120. Að sjálfsögðu eru í búnaðarrit- inu ýmislegt það sem aðrir lands- menn láta sig varða en bændur einir. Væri- því eðlilegt að láta jafnvel ekki útbreiðslu ritsins nema staðar þegar ævifélagarnir eru orðnir jafnmargir bændun- um. Á 19. öldinni Á öldinni sem leið, kom hingað til íslands nafntogaður norskur rithöfundur, er hafði fengið náin kynni af forni menningu íslend- inga og þekkti fornsögur okkar álíka vel og þær væru þjóðar- eign Norðmanna. Er hann kom heim orkti hann kvæði um áhrif þau, sem hann hafði orðið fyrir í íslandsförinni. Lýsti því m.a. hvert hlutskipti hefði orðið eftirkomenda hinna frægu víkinga er nágrannaþjóð- unum stóð stuggur af, þegar þeir nutu sin á þeirra tíma mæli- kvarða. Hann gat ekki orða bundist hví líka þolinmæði afkomendurnir hefðu til að bera, er þeir allan bjargræðistíma sinn börðust vid túnþýfið með orfi og ljá. 70—80 ár eru liðin síðan Norð - maðurinn hafði orð á þessu. Hætt er við að honum brygði í brún ef hann eða einhver samlandl hans sæi aðfarir kyrrstöðubænd- anna, er þeir hafa ekki annan Hfsveg en við annan eða þriðja mann að framfleyta lífinu með því að afla fóðurs fyrir 2—3 kýr og 40—50 sauðkindur. En þannig er ástandið í íslenzk um búskap í dag, þó menn i öðrum héruðum á sama tíma, geti haft fyrir augum fyrirmynd- arbúskap t.d. á mjólkursvæðum sunnan- og norðanlands. Það er nauðsyn að „leysa þetta fólk úr álögum“ gagnslítillar erf- iðisvinnu, og skapa því tækifæri til að bjarga sér með því að rækta jörðina, sem þeir hafa und- ir höndum. Rannsókn Búnaðarþings ÞÓ MÖNNUM kunni að sárna það, hve hægt nýræktinni hefuff' miðað áfram, síðan jarðræktar- lögin gengu í gildi fyrir 30 ár- um, að um 1800 bændur verða að láta sér nægja 5 hektara tú» eða minni, þá yrði það ekki rétt viðbrögð í þessu máli, að hreyta ónotum í þá bændur, sem hafa orðið aftur úr í nýræktinni. Enda ákvað búnaðarþing að rannsaka orsakirnar, og gerði ályktun þess efnis að hún fól stjórn Búnaðarfélagsins að hlut- ast til um að ráðunautar búnað- arsambandanna og trúnaðarmemx geri skýrslu um þau býli, er ekkt hafa a. m. k. 5 hektara af vél- tæku túni. Skulu þessi býli flokk- uð í 6 flokka með tilliti til þess, hvaða ástæður munu valda þvi, að ræktunarlönd þeirra eru ekki meiri. 6 flokkar SÚ FLOKKUN verði þannig: 1. fl. Þeir bændur er virðast hafa sæmilega aðstöðu og af- komu, þó ræktunarlönd þeirra séu ekki aukin, vegna þess að þeir hafa góð engjalönd eða aðr- ar tekjulindir. 2. fl. Þeir sem ekki hafa aö- stöðu til að auka ræktun vegna landsleysis, eða annarra ann- marka á landi. 3. fl. Þeir sem ekki virðast hafa áhuga á að auka ræktun, þó að> þeir hafi efni og aðstöðu til þess. 4. fl. Þeir sem hvorki hafa áhuga á ræktun né efni til að rækta. 5. fl. Þeir sem hafa áhuga og aðstöðu til að auka ræktunarlönd sín, en geta ekki fengið jarðrækt- arvinnu einhverra hluta vegna. Og loks 6. fl. Þeir sem hafa áhuga og aðstöðu til að auka ræktunarlönd sín, en hafa svo lítil efni að þeir treysta sér ekki til að leggja í nýrækt. Ennfremur segir í ályktuninni m. ‘ a. að skýrslur þessar skuli liggja fyrir næsta búnaðarþingi. Að sjálfsögðu verður lagt kapp á, að þetta mál fái gaumgæfilega rannsókn. En að fengnum þessum upplýs- ingum er munu liggja fyrir næsta búnaðarþingi, kemur til úrslita- álits um það, hvað gera skuli í málinu, því augljóst er, að við svo búið má ekki standa fram- vegis. Framh. á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.