Morgunblaðið - 15.04.1954, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 15. apríl 1954
- ÞINGSLITIN í DAG
álfdán Helgason prófasfur
Framh. af bls. 1
Jjessi mál heldur en verið hefir
til þessa.
Sett voru ný lög um brúar-
.gerðir. Sú lagasmíð ber glöggt
vilni þess, að Alþingi hefir hug
-á að greiða fyrir því, eftir því
íem unnt er, að brúa vatnsföll
landsins. Samþykkt voru lög um
að auka við fé veðdeildar Bún-
aðarbanka Islands rúmri einni
milljón króna.
Hæstvirt ríkisstjórn gaf fyrir-
heit um það meðal annars, er hún
"tók við völdum, að hún mundi
fceita sér fyrir því á næsta þingi,
-— þingi því, sem nú er að Ijúka,
— að sett yrðu ný skattalög og
*neð þeirri lagasetningu linað á
^kattheimtu til ríkisins. Einnig að
verulegum fjármunum yrði var-
áð til smáíbúðabygginga fyrir til-
^tuðlan hins opinbera, og að á
xiæstu árum yrði varið miklu fé
lil raforkuframkvæmda og dreif-
ánu raforkunnar út um byggðir
landsins.
Löggjöf um þessi efni hefir
*iú verið sett á þessu þingi.
Samkvæmt ákvæðum hinna
nýju skattalaga, er gert ráð fyrir
að tekjuskatturinn á einstakling-
um lækki að jafnaði um 29% og á
iélögum um 20%. Þá var og gerð
allinikil breyting á tollskránni.
Hafa verið lækkaðir verulega
tollar frá því, er áður var, á þeim
vörum, er iðnaðinn varða miklu:
í fyrra var lækkaður kaffi- og
aykurtollur. Slík almenn lækkun
skatta og tolla hefur aldrei átt
sér stað fyrr.
Þingið samþykkti lög um heim-
áld handa ríkisstjórninni til að
-taka allt að 20 milljón króna lán
til smáíbúðabygginga. Húsnæðis-
vandamálið er eitt af þeim erfið-
ustu vandamálum þjóðarinnar, er
leysa þarf. Og þó að þessi fjár-
hæð sé minni en þing og stjórn
hefði kosið að geta veitt í þessu
tskyni, þá er þess að vænta, að
nokkur hjálp geti að þessu orðið
ýmsum þeim, er erfitt eiga með
Æið afla sér húsaskjóls.
Samþykkt voru lög um við-
•auka við 'raforkulögin frá 1946.
Samkvæmt þessum lögum er
ákveðið að verja á árunum 1954
TRÍPÓLIBÍÓ sýnir amerísku
kvikmyndina „Fljótið", sem
hlaut 1. verðlaun á alþjóða kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum árið
1951. Myndin gerist í Indlandi,
i litum, og er efni hennar byggt
á sögu eftir Rumers Goddens.
— Aðalhlutverkin leika Patrice
"Walters, Adrienne Corrie og
Radka, þrjár ungar stúlkur.
Hg]®
PÁSKAMYND Nýja Bíós, sem
frumsýnd er á annan dag
páska er „Svarta rósin“, banda-
rísk litmynd frá 20th Century
Fox. Fara þau Tyrpne Power,
Orson Welles og Cecile Aubry
með aðalhlutverkin.
Er þetta íburðarmikil og æv-
ántýrarík mynd, gerð eftir sögu
"Tliomas B. Constain. — Gerist
myndin á 13. öld og fjallar um
"unga Englendinga, sem ekki vildu
lúta stjórn Normana á Englandi.
SKS®
| rr pjjw r* ! ,
AGRÆNNI GREIN“ heitir
páskamynd Austurbæjar-
ftíós. Er það bandarísk gaman-
mynd í eðlilegum litum með Bud
Abott og Lou Costello í aðalhlut-
•yerkum, en myndin er byggð á
ævintýrinu um Jóa og bauna-
grasið.
YNGJANDI STJÖRNUR“
heitir páskamynd Tjarnar-
6íÓ;S. Er það bandarísk söngva-
og músikmynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk leika Rosemary
Glooney, Lauritz Melchoir og
—1963 250 milljónum króna til
raforkuframkvæmda frá hinu
opinbera, auk framlags úr hlutað
eigandi héruðum. Fjárframlög
ríkissjóðs til þessara fram-
kvæmda hefir ríkisstjórnin
tryggt.
Þá voru sett lög um orkuver á
Vestfjörðum. Samkvæmt þeim er
ríkisstjórninni heimilt að taka
lán fyrir hönd ríkissjóðs eða
ábyrgjast lán allt að 60 milljónir
króna til þeirra framkvæmda.
Enn fremur voru samþykkt lög
um breyting á lögum frá 1952,
um ný orkuver og nýjar orku-
veitur rafmagnsveitna ríkisins,
um heimild til að virkja Lagar-
foss á Fljótsdalshéraði og leiða
orkuna til notkunar í sveitum
þar og til kauptúna á Austfjörð-
um. Með þessum lögum er og
heimilt að virkja Haukadalsá í
Dalasýslu fyrir 5 syðstu hreppa
sýslunnar.
Enn fremur er heimild til að
virkja Múlá í Geiradalshreppi
handa nálægum hreppum. Til
ofantaldra framkvæmda eru
heimildir til fjárframlaga hækk-
aðar samtals um 33 milljónir
króna frá því, sem áður var
ákveðið. Loks voru sett lög um
viðauka við lögin frá 1946, um
virkjun Sogsins. Er með þessum
lögum stjórn Sogsvirkjunarinn-
ar heimilt að taka lán til virkj-
unnar Efra-Sogsins, allt að 100
milljónir króna, með samþykki
ríkisstjórnarinnar.
Eins og sjá má af þessu yfirliti
um fyrirhugaðar raforkufram-
kvæmdir, er til þess ætlast, að
varið verði miklu fé, á okkar
mælikvarða, á næstu árum til
þeirra. Mun það greiða fyrir
margháttuðum framförum í ýmis
konar störfum og bæta aðbúð og
afkomu fjölda þegna þjóðarinn-
ar. Er vel farið og ber að fagna
því að markvíst er unnið að stór-
felldum framkvæmdum í þessum
málum, svo fljótt sem kostur er á.
íslenzka þjóðin hefir öldum
saman átt í harðri baráttu við
myrkrig og kuldann. Ég vona, að
óhætt sé að fullyrða, að hún geti
nú litið björtum augum til fram-
tíðarinnar, að innan ekki langs
Anna Maria Alberghetti. Fjöldi
vinsælla laga eru sungin í mynd-
inni, m. a. lagið Come on-a my
house, sem gerði Rosemary
Clooney fræga á einni nóttu.
NÝTT HLUTVERK“ heitir
páskamynd Stjörnubíós, og
er það íslenzk mynd, tekin af
Óskari Gíslasyni, gerð eftir sam-
nefndri sögu Vilhjálms S. Vil-
hjálmssonar. Með aðalhlutverkin
fara Óskar Ingimundarson, Gerð-
ur H. Hjörleifsdóttir, Guðmund-
ur Pálsson, Einar Eggertsson,
Emelía Jónasdóttir og Áróra
Halldórsdóttir. Leikstjóri er Æv-
ar Kvaran.
SHH
RAUÐI ENGILLINN“, heitir
páskamynd Hafnarbíós. Er
það fjörug og spennandi banda-
rísk litkvikmynd. Með aðalhlut-
verkin fara Yvonne DeCarlo og
Rock Huason. — Myndin gerist
í Bandarikjunum árið 1865.
S® H
LEIKSÝNINGASKIPIГ heitir
páskamynd Gamla Bíós. Er
það bandaríska söngvamyndin
„Show Boat“, með hljómlist eftir
þá Jerome Kern — Oscar Hamm-
erstein II., og fara þau Kathryn
Grayson, Howard Keel og Ava
Gardner með aðalhlutverkin. —
Eru í myndinni mörg af beztu
lögum þeirra félaga, t. d. Make
believe, Can’t help lovin’ dat
man, og mörg fleiri.
tíma várði sigur unninn á því
böli, sem skortur á ljósi og yl
hefur löngum bakað þjóðinni.
Mér sýnist sem starf háttvirts Al-
þingis hafi mótast af stórhug og
bjartsýni á þjóðinni og framtíð
hennar. Ég vil vona og óska, að
allir þegnar íslenzku þjóðarinn-
ar leggi sig fram um það að vinna
sem ötullegast að frama og heiðri
þjóðarinnar á komandi tímum.
Megi allir hollir vættir styðja
og styrkja íslenzku þjóðina og
vernda ættjörð vora.
Um leið og ég kveð háttvirta
þingmenn að þessu sinni og
þakka þeim innilega fyrir ágæta
samvinnu, góðgirnd og umburð-
arlyndi í minn garð, óska ég þeim
aUs hins bezta og utanbæjarþing-
mönnum fararheilla og góðrar
heimkomu. Hittumst allir heilir
á næsta þingi. Starfsmönnum
þingsins vil ég einnig þakka fyrir
vel unnin störf.
FORSETA ÞAKKAf)
Einar Olgeirsson kvaddi sér
hljóðs og þakkaði f. h. þingmanna
forseta góðar óskir. Hann kvað
Jörund Brynjólfsson nú lengur
hafa gengt forsetastörfum á Al-
þingi en nokkur annar þingmað-
ur. í meira en tvo áratugi hefði
hann gegnt forsetastörfum og
gengt því starfi með heiðri. í
meira en 20 þing hefði hann setið
í forsetastóli og stjórnað þing-
fundum — oft stormasömum.
Einar Olgeirsson þakkaði Jörunði
Brynjólfssyni fyrir hönd þing-
manna fyrir gott samstarf, dugn-
að og sanngirni. Hann óskaði hon
um langra lífdaga, góðrar heim-
komu og kvað þingmenn vonast
til að hitta hann heilan að hausti.
ÞINGI SLITIÐ
Þá tók til máls Ólafur Thors
forsætisráðherra. Las hann bréf
handhafa forsetavalds um um-
boð honum til handa til að slíta
þingi, er Alþingi hefði lokið
störfum. Sagði forsætisráðherra
að störfum væri nú lokið. Sam-
kvæmt umboði er honum hefði
verið veitt, lýsti hann þingslitum.
Forseti Sam. þings bað þing-
menn rísa úr sætum og hrópa
ferfalt húrra fyrir forseta íslands
og fósturjörð. Þar með var fundi
Sameinaðs Alþingis og fundum
Alþingis lokið.___________
Frænka (harleys
Skopleikurinn „Frænka Char-
leys“, sem Leikfélag Reykjavík-
ur hóf að sýna fyrir skemmstu,
hefur nú verið sýndur fimm sinn
um við mikla aðsókn, seinast í
gærkvöldi annað kvöld í röð fyrir
troðfullu húsi. Vegna áskoranna
um eftirmiðdagssýningu fyrir
foreldra, sem vilja fara með börn
um sínum að sjá gamanleikinn,
verður slík sýr.ing á annan páska-
dag, en kvöldsýning auk þess á
venjulegum tíma. — Myndin er
af Brynjólfi Jóhannessyni í hinu
bráðskemmtilega hlutverki Brass
etts háskólaþjóns.
f^áóhamyncLr InjihmynclaL
mijnc
'Móanna
Kveðjuorð
ÉG MÁ hiklaust fullyrða, að
séra Hálfdán Helgason prófastur
að Mosfelli, hafi orðið öllum
stéttarbræðrum sínum harm-
dauði.
Honum lukust upp allar dyr í
okkar hópi. Honum var það lag-
ið að tala hjartanlega og tala
út. Eins og ósjálfrátt og fyrir-
hafnarlaust hitti hann á réttu
strengina, því var ávallt bjart
í kringum hann. Og oft brostum
við að gamanyrðum hans og fjöri,
sem var svo sannarlega smit-
andi.
En jafnframt var hann hinn
virðulegi í hópi okkar. Hann
hafði frá þjóðkunnum forfeðr-
um hlotið í arf þá innri menn-
ingu, sem ekki varð gengið fram-
hjá; þann kirkjulega skilning og
festu, sem grundvölluð var á
sögu og reynslu aldanna.
Kirkjan var honum heilög
móðir og hann vildi eftir allri
sinni getu, reynast henni góður
sonur. Það var sannarlega eins
og talað út úr hans huga og sál
þetta erindi úr sálminum um
„kirkjuna", sem Helgi Hálfdán-
arson, afi hans hafði þýtt:
Börn sín vill hún Kristi klæða
Krists með náðarbrauði fæða
að hún loksins fái fært
Föðurnum hvert barn sitt kært.
Þjónustan var séra Hálfdani
hjartans mál, enda jós hann ávalt
sjálfur úr uppsprettunni sam-
kvæmt þessu boði postulans:
„Gjörið í öllum hlutum óskir
yðar kunnar Guði með bæn og
beiðni ásamt þakkargjörð, og
friður Guðs, sem er æðri öllum
skilningi mun varðveita hjörtu
yðar og hugsanir yðar í samfé-
laginu við Krist Jesum.“
Af þessum heilindum mótaðist
allt hans starf.
Við allir, sem í mörg ár nutum
forystu séra Hálfdans í Presta-
félagi Suðurlands — og raunar
prestastéttin öll — heiðrum minn
ingu hans og munum ávalt geyma
mynd hans skíra í hjörtum okk-
ar.
„Integer vitae
scelerisque purus.“
Þau orð voru ósýnilegu letri
skráð á hans manndómsskjöld.
Garðar Svavarsson.
ÞEGAR sú fregn barst okkur hér
á Mosfelli, að séra Hálfdan væri
lStinn gátum við naumast trúað
því, þar sem hann hafði farið að
heiman tæpum sólarhring áður,
kátur og hress. Oftast höfum við
orðið hans vör árla morguns þó
hann hefði komið seint heim
kvöldið áður.
Nú var jeppinn hans ókominn,
og fannst okkur það einkenni-
legt, þar sem hann hafði ákveðið
að koma heim um kvöldið.
Nokkrum mínútum eftir að við
höfðum athugað að hann var ó-
kominn, kemur lítill skóladreng-
ur hlaupandi inn og segir að séra
Hálfdan sé dáinn. Við urðum að
trúa því þótt við trúum því tæp-
lega enn.
Það þarf tíma til að átta sig
á svo snöggum umskiftum, þau
krefjast umhugsunar, en ekki er
um að sakast, þetta er skeð, séra
Hálfdan er dáinn.
Það er ekki meining mín að
fara að rekja æfiferil séra Hálf-
dans, né tala neitt um störf hans
hér í Lágafellssókn og Mosfells-
hreppi. Störf hans eru mörg og
margbrotin, og hafa öll verið
unnin af áhuga og sérstakri sam-
vizkusemi. Um það munu vafa-
laust aðrir skrifa.
Við höfum þekkst í 28 ár, fyrst
á Lágafelli og síðan hér á Mos-
felli, þar sem ég hef verið land-
seti hans í 18 ár.
Með þessum fáu línum vildi ég
meiga þakka þá framúrskarandi
góðu viðkynningu, óeigingirni og
sangirni í margs konar sam-
starfi, það væri hægt að endur-
« ' «
O
greiða á margan hátt, en ég á
ekki við það hér.
Fyrir hönd barnanna okkar
þökkum við hjónin honum og
fjölskyldu hans innilega. Þau
hafa verið þeim sem foreldrar
væru, og þau munu sakna hans,
eins og hans eigin börn.
Við hefðum öll viljað gefa
honum hlýtt skilnaðarhandtak,
en til þess gafst ekki tækifæri og
verða því fá og fátækleg orð að
nægja.
Sé hann svo að endingu kvadd-
!ur af minni fjölskyldu hér á Mos-
felli innilegri kærleikskveðju og
alúðarþökk fyrir allar samveru-
stundir og góðar minningar er við
geymum.
Kristinn Guðmundsson.
Ungur lislamaður
opnar málverkasýn-
ingu í dag
í DAG kl 5 opnar ungur lista-
maður Benedikt Gunnarsson, mái
verkasýningu í Listamannaskál-
anurj. Er þetta í fyrsta skipti,
sem hann hefur sjálfstæða sýn-
ingu hér á landi. Á sýningunni
verða 75 vatnslitamyndir og 45
olíumálverk. Málverkasýningin
mun standa yfir út þennan mán-
uð og verður opin daglega frá kl.
1 e. h. til 10 á kvöldin. Öll mál-
verkin sem á sýningunni eru,
verða til sölu.
Þetta er í annað skipti, sem
Benedikt heldur sjálfstæða mál-
verkasýningu, en hann hafði sýn-
ingu í haust í París og hafa þau
málverk, sem á þessari sýningu
eru flest verið sýnd þar. Öll mál-
verkin hafa verið gerð á tveim
síðastliðnum árum. Einnig hafa
þrjú málverk hans verið á mál-
verkasýningu þeirri, sem staðið
hefur yfir í ráðhúsi Kaupmanna
hafnar, og er nú nýlokið.
Benedikt, sem er rúmlega tví-
tugur, hóf myndlistarmán í kon-
unglega listaháskólanum í Kaup-
mananhöfn, og dvaldi við það I
tvö ár. Síðan hélt hann náminu
áfram í París og var þar á ýms-
um myndlistaskólum í þrjú ár.
Vísifalan óbreylt
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. apríl s.l.
og reyndist hún vera 158 stig, eða
óbreytt.