Morgunblaðið - 23.01.1954, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.01.1954, Blaðsíða 9
Laugardagur 23. janúar 1954 MORGUNBLAfílÐ Myndir af hinu lifandi starfi í Áhaldahúsi bæjarins: Fyrst vinstra megin talið niður: 1) Úr trésmiðjunni. Unnið að smíði innanstokksmuna í Laufásborg. 2) Við aflinn í járnsmiðjunni. 3) Gert við leikvallatæki í trésmiðjunni. í miðju: 4) Eitt horn í hinni stóru birgðageymslu (lager). Þarna eru götuskilti í stafrófsröð. 5) Umferðamerki smíðuð og máluð. 6) Á gúmmíviðgerðaverkstæði. Hjólbarði tekinn af felgu. Dálkurinn til hægri: 7) Afgreiðslusalur birgðageymslu. 8) Úr vélasal trésmiðjunnar. Hraðvirkur rafknúinn þykktarhefill að verki. 9) Díselmótor gerður sem nýr. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Staðreyndir um bæjarmálastjórn Sjálfstæðismanna s Megináherzla lögð á stjórn bæjariyrirtækja I Áhaldahúsinu er miðstöð allra verklegra iramkvæmda bæjarins FROST fer úr jörðu — það er vordagur. Bæjarráð hefur tekið ákvörðun um að verk skal vinna. Gata skal lögð, eða stórt mýrarsvæði skal tekið til garðræktar, holræsi skulu lögð. Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi framkvæmd verksins. Þá fyrsta sporið, að verkstjórar hans leggja leið sína inn í Áhaldahús bæjarins. Þar segja þeir til um hvaða tæki þeir þurfa. E. t. v. tvær jarðýtur, eina loftpressu, tvær vélskóflur, vatnsdælu. Síðan koma steypuvélar, tjöruvagnar og alls kon- ar stórvirkustu vélar. Og allar þessar þarfir eru uppfylltar, vélunum er haldið í fullkomnu lagi, svo að þær séu við hendina og síðan er þeim jafnað niður á sem hagkvæmastan hátt. Starfið í Áhaldahúsi bæjarins lætur lítið yfir sér. Menn líta á það sem sjálfsagðan hlut, að öll hin stórvirku tæki og til- færingar séu i lagi. Það er ekki nema einstöku sinnum, sem menn verða varir hins örugga og hraðvirka átaks Áhalda- hússins. Menn minnast þess t. d. að á hverju sumri, daginn fyrir þjóðhátíðardag okkar, 17. júní, koma hópar manna út á göturnar og reisa flaggstengur, hljómsveitarpalla og ýmis- konar skreytingar á nokkrum klukkustundum. — Vegfar- endur hafa oft dáðst að þeim snöru vinnubrögðum, en þó er þetta aðeins eitt af óteljandi verkefnum Áhaldahússins. MIÐSTÖÐ VERKLEGKA FRAMKVÆMDA Áhaldahús bæjarins hefur bækistöð á stórri lóð á horni Skúlatúns og Borgartuns. Bygg- ingar þarna láta ekki mikið á sér bera, en þó eru þarna stórir smíðasalir, birgðageymslur, bíl- skúrar og áhaldageymslur. Er ó- hætt að segja í stuttu máli að þarna er miðstöð allra verklegra framkvæmda bæjarins. Forstjóri Áhaldahússins hefur veríð síðan 1950, Sigmundur Halldórsson. Hefur hann unnið merkilegt skipulagningarstarf, sem hefur sparað bæjarsjóði mikil útgjöld. MARGÞÆTT STARFSEMI Fréttamaður Mbl. átti samtal við Sigmund, sem skýrði stutt- lega frá rekstri Áhaldahússins og sýndi starfsemina. Hann mæiti m. a. á þessa leið: — Starfsemin hér í Áhalda- húsinu er svo margbreytileg að ógerlegt er að lýsa henni í öllum smáatriðum. En ég skal segja frá helztu þáttum: Hérna er járnsmiðja, trésmíða verkstæði, bifreiða- og véla- verkstæði, smurstöð, gúmmí- vinnustofa fyrir hjólbarða, mjög stór birgðastöð, benzín- afgreiðsla, áþaldavarzla, svo sem geymslúr fyrir veghefla, jarðýtur o. s. frv. Hér eru bækistöðvaíi fyrjr sorphreins- unarbílana og hér háfa verk- stjórar í bæjarvinnunni bæki- stöðvar sínar. — Hvað eru starfsmennirnir margir? — Þeir eru nú um 75. Þar af eru flestir á trésmíðaverkstæð- inu eða 37 starfandi trésmiðir. TRESMIÐAVERKSTÆÐIÐ EFLT — Hver eru helztu verkefni á trésmíðaverkstæðinu? — Sumarið 1952 var trésmíða- verkstæðið mikið stækkað og full komnað. Fór þá fram allsherjar samræming og skipulagning á trésmíðaverkefnum bæjarins. Síðan hefur Áhaldahúsið haft eftirlit og allt viðhald á húseign- um bæjarins. Þarna eru smíðuð húsgögn í skóla, áhöld á leikvelli, smíði vinnuskúra og hverskonar viðgerðir sem hugsast getur. Þarna eru smíðaðar hurðir, gluggakarmar, skápar, stólar og borð. Auk þess höfum við haft með höndum sjálfstæð verk eins og aila innréttingu í Laufásborg og nú síðast í Bæjarbókasafnið o. fl. Næst komum við inn í járn- smíðaverkstæðið, sem er i skála á baklóð Áhaidahússins. Þar er verið að klassa algerlega upp eina af hinum geysistóru vélskóflum bæjarins. Þetta tæki vegur yfir 20 smálestir en er hreyfanlegt og gengur á metersbreiðum stálbelt- um. Þessi vélskófla hefur einkum verið notuð í sandnáminu við Sigmundur Halldórsson, forstjóri Áhaldahússins. Elliðaár og þó kemur fyrir að hún er færð til ef meira gagn er að henni annarsstaðar. HINN MIKLI VÉLAKOSTUR BÆJARINS — Hvað er vélakostur bæjar- ins mikili um þéssar mundir? — Viff höfum t. d. f jóra veg- hefla, 7 valtara, 10 vélskóflur, 11 jarðýtur, 20 loftpressuí, 6 stórar steypuhrærivélar, 9 stórar vatnsdælur, 7 vatns tanka til að setja á vörubíls palla, 4 vagna með stórum tjörupottum til malbiknnar, 1 malbikunarvél og 4 kranabíla. Viff þetta bætast allskonar minni vélar og tæki. Hér erú bækistöffvar allra sorphreins- unarbílanna og bílskúrar fyrir þá. — Það er vissulega önnur öldin nú en fyrir fáeinum árum, þegar helztu vinnutækin voru haki og skófla. Enda er annar bragur á allri bæjarvinnu. Þessar stór- virku vélar eru eins og ramefld tröll sem mennirnir hafa tamið og tekið í þjónustu sina, svo að ekkert bjarg getur staðizt fyrir. ALLT SEM ÞARF TIL VIÐHALDS TÆKJANNA Og Sigmundur heldur áfram: — Hér er benzínafgreiðsla. Frá henni er sent benzín á allar vinnuvéiar bæjarins. Hér er einn- ig smurstöð og við höfum sér- stakan smurningsvagn, sem ekið er á vinnustaði og vélarnar vand- lega smurðar með loftþrýstitækj- um. Hér í Áhaldahúsinu sjáum við um allt viðhald þessara marg brotnu véla, og höfum öll tæki, sem til þess þarf, logsuðu, véla- viðgerðir og er að sjálfsögðu hér eins og jafnan í þekstrinum leit- ast við að stilla rekstur.skosnað- inum í hóf, •— Við tökum leigu fyrir notk- Frh. á bls. 11,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.