Morgunblaðið - 24.08.1945, Síða 6
6
MORGUNBL A ÐIÐ
Föstudagú 24. ágúst 1945
Ötg.: H.í. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Augiýsingar: Árni Óla.
' Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands,
kr. 10.00 utanlands.
1 lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Togarakaup
ríkisstjórnarinnar
Á ÖÐRUM stað hjer í blaðinu er birt greinargerð frá
ríkisstjórninni, ásamt bráðabirgðalögum, sem forseti ís-
lands, eftir tillögu forsætisráðherra, gaf út í gær, en þau
heimila stjórninni að festa kaup á 30 nýjum togurum og
afla sjer lántöku í því skyni, eftir því, sem með kann
að þurfa, allt að 60 milj. króna.
★
Eins og greinargerð stjórnarinnar ber með sjer, hefir
ríkisstjórnin frá öndverðu — og síðar Nýbyggingarráð —
með einbeitni og dugnaði gengið að því, að reyna að afla
þjóðinni þessara stórvirkustu nýtísku framleiðslutækja,
togaranna, sem afkoma þjóðarinnar að undanförnu hefir
bygst á í svo ríkum mæli, og sem enn um ófyrirsjáanlega
framtíð mun verða grundvöllur undir afkomuskilyrðum
þjóðarheildarinnar.
★
Eins og að líkum ræður, var þungt undir fæti í þess-
um efnum meðan styrjaldarþjóðirnar einbeittu allri sinni
orku og getu að stríðsframleiðslunni. Samt sem áður tókst
sendiherra vorum í Washington skömmu eftir að stjórnin
tók við völdum, að tryggja samþykki amerískra stjórn-
arvalda fyrir slíkum byggingum í Ameríku, sem hafa þó
eigi enn verið bagnýttir, vegna þess, eins og segir í grein-
argerð stjórnarinnar, áð þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir
er „eigi nægilega upplýst, hvort togarar smíðaðir í Amer-
íku, henta íslendingum eins vel og þeir, sem smíðaðir
éru í Bretlandi”, auk þess sem verðlagið er almennt hærra
i Ameríku en Bretlandi.
En þrátt fyrir örðuga aðstöðu í málinu hefir nú tekist
að ná samningum við breskar skipasmíðastöðvar um smíði
allt að 30 togara, er afhendast á árunum 1946 og 1947,
með verðlagi, sem eftir atvikum þykir viðunandi. Bresk
stjórnarvöld hafa þegar veitt sex byggingarleyfi og eins
og segir í greinargerð stjó'rnarinnar: „Góðar horfur virð-
ast þó vera á því, að viðbótarleyfi fáist”.
★
Þetta eru stór tíðindi og áreiðanlega mikil gleðitíðindi
fyrir allan almenning í þessu landi, og raunar alla aðra
en þá, sem meira meta að hrakspár þeirra rætist en hitt,
að sköpuð sjeu ný atvinnuskilyrði í landinu og framtið
fólksins trygð.
Ekki eingöngu sjómannastjettin, heldur og þjóðin öll
— og þá ekki síst íbúar höfuðborgarinnar — munu af al-
hug óska þess, að ríkisstjórninni takist sem fyrst að
tryggja sem flest viðbótarleyfi í Bretlandi, og fagna því
einlæglega, að „góðar horfur” eru á að það megi takast.
★
Enda þótt sljórnarflokkarnir hafi frá öndverðu sann-
að með verkunum, að stefnuskrá þeirra var ekki innan-
tóm orð, heldur sterkur og einlægur ásetningur, til þess
,,að tryggja öllum Islendingum atvinnu við sem arðbær-
astan atvinnurekstur”, eins og segir í stefnuskránni, þá
hefir þó ríkisstjórnin nú stigið stærsta skrefið á þessari
heillabraut.
ÍÍiSliZk H iT' '* ic
Ríkisstjómin hefir skilið hlutverk sitt. Hún hikar ekki
við að gerast kaupandi togaranna, en tilgangurinn er,
eins og segir í bráðabirgðalögunum „að þeir verði seldir
einstaklingum, fjelögum, eða bæjar- og sveitarfjelögum”.
Er áreiðanlega óhætt að fullyrða, að ekki muni standa
á þessum aðilum, að kaupa skipin af ríkisstjórninni.
Hafi ríkisstjómin þökk fyrir dugnað sinn og framtak,
Megi farsæld og gifta fylgja þessu stórhuga framtaki
hennár, landi og þjóð til blessunar.
\Jíluerji ilriiar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Berklaskoðunin.
Á ÖÐRUM stað hjer í blaðinu
í d.ag eru birtar bráðabirgðatöl-
ur um berklarannsóknina hjer í
bænum, sem senn er lokið með
ágætis árangri á hvaða hlið, sem
litið er á málið. Berklasjúkling-
ar rejmdust íærri við skoðunina
en hægt var að gera sjer vonir
um. Rannsóknin gekk betur en
hinir bjartsýnustu gátu vænt og
almenningur hefir sýnt meiri
skilning á þessu nauðsynjamáli
en hægt er að ætlast til af svo
fjölmennum hóp, sem boðaðút
var til rannsóknarinnar. Aðeins
20 manns af hálfu fimtugasta
þúsundi neituðu að koma til þess
arar nauðsynlegu rannsóknar.
Níels Dungar~þrófessor skrif-
aði hjer í' blaðið í gær rjettmæta
frásögn af þýðingu þessarar stór
feldu heilsuverndarráðstöfunar,
og gat Sigurðar Sigurðssonar
berklayfiriæknis í þeirri grein
að maklegleikum fyrir hans frá
bæra starf. Verður því ekki far-
ið langt út í þá sálma hjer. En
það er margt, sem geta má og
minnast má á í sambandi við
berklarannsóknina.
•
Gerir garðinn fræg-
an.
ÞAÐ ER t. d., að berklarann-
sóknin mun verða Islendingum
yfirleitt og Reykvíkingum sjer-
staklega, til mikils álitsauka er-
lendis. Það fer ekki hjá því, að
það verður tekið eftir þeim
menningarbrag, sem verið hefir
á þessari berklarannsókn. Sem
dæmi um' hverja athygli berkla-
skoðunin hefir vakið erlendis,
má geta þess, að íslenskur kaup-
sýslumaður, sem nýlega var á
fefð í Svíþjóð, segir frá því, að
í Svíþjóð hafi fyrst og fremst
verið spurt um tvö íslensk mál-
efni: Hitaveituna og berklaskoð
unina í Reykjavík. Eftir því,
sem best er vitað, hefir það
aldrei komið fyrir áður, að jafn
nákVærn berklarannsókn hafi
verið framkvæmd á íbúum heillr
ar borgar. Hjer hefir Reykja-
vík orðið brautryðjandi svo að
um munar, og eftir verður tek-
ið. Það haía margir lagt hönd
á plóginn til þess að rannsókn-
in mætti takast og það hefði ekki
verið hægt nema með góðum
undirbúningi og samvinnu bæj-
arbúa í heild. Og hvorttveggja
var fyrir hendi.
Samvinna bæjar-
búa.
ÞAÐ MÁTTI heita undantekn-
ingarlaust, að menn mættu á til-
skyldum • tíma þegar þeir voru
boðaðir til berklarannsóknarinn
ar. Hefði orðið eitthvað ólag á
því, er hætta á, að skoðunin
hefði farið út um þúfur. Þetta
sýnir, að fólkið hefir skilið hvað
um var að vera og hve nauð-
synlegt það var, að skoðunin
hepnaðist.
En þá má ekki heldur gleyma
því, að skoðunin var þannig und
irbúin af hendi læknanna og
hjúkrunarkvenna, sem að henni
stóðu og störfuðu, að menn
þurftu aldrei að bíða neitt að
ráði. Þetta spurðist út um bæ-
inn og fólk varð fúsara að koma
til skoðunar en ella.
Aldrei kom |>að fyrir að tæk-
in, sem notuð voru við skoðun-
ina biluðu, eða tefðu fyrir og
var það og mikilsvert atriði. —
Mjög fáa þurfti að kalla aftur
til skoðunar sökum þess, að
myndir misheppnuðust.
•
Mikilsvert atriði.
ÞAÐ ER EKKI nokkur vafi á,
að berklaskoðunin verður til
mikils gagns og mun koma í veg
fyrir, að fjöldi manns taki
berklaveiki hjer í bæ, eða þurfi
að heyja helstríð við hvíta dauð-
ann.
En vel ættu menn að taka eftir
þeirri aðvörun berklayfirlæknis-
ins, að þessi skoðun sýnir aðeins
ástandið eins og það var, er
skoðun fór fram, en ekki nauð-
synlega eins og það verður eftir
nokkurn fíma. Það er rjett, að
minni líkur eru til þess, að heil-
brigt fólk smitist af berklaveiki
þegar þeir, sem hafa smit, hafa
verið settir tií lækninga á hæli.
En berklaveiki er skæður sjúk-
dómur og fjöldi manns gengur
með berklasýkilinn án þess, að
verða sjúkur, en veikin getur
blossað upp þá og þegar í þess-
um mönnum. Þess vegna er
nauðsynlegt að vera vel á verði,
þó menn hafi verið skoðaðir og
leita tafarlaust læknis, ef vart
verður einhverra einkenna veik-
innar.
Bæjarbúar mega svo þakka af
alhug Sigurði Sigurðssyni berkla
yfirlækni og aðstoðarfólki hai^s
fyrir það mikla og göfuga starf,
sem int hefir verið af hendi með
þessari merkustu heilsuverndar
tilraun, sem nokkru sinni hefir
verið framkvæmd hjer á landi,
og jafnvel þó víðar væri leitað.
•
Logsuða — rafsuða.
OG HJER að lokum, kem jeg
aðað mjög óskyldu efni, en eigi
að síður merkilegu efni á sínu
sviði. Fyrir nokkru birti jeg
brjef frá iðnnema, sem benti á,
að gott væri og heppilegt, að fá
kenslu í logsuðu og rafsuðu í
Iðnskólanum.
í gær hitti jeg Helga H. Ei-
ríksson skólastjóra, en hann var
ekki í bænum á dögunum, þegar
brjefið kom. Hann sagði mjer,
að Landsamband iðnaðarmanna
hefði í undirbúningi samrtingu
á handbókum og kenslubókum í
þessum iðngreinum og muni
verða komið upp námskeiðum
innan skólans í þeim undir eins
og húsnæði fengist,
•
Skrítin venja.
ÞAÐ ER skrítin venja, sem
tíðkast við jarðarfarir hjer í bæ,
en það er að þekja alla bekki
kirkna með sjerprentuðum út-
fararsálmum, sem venjulega eru
endurprentaðir úr sálmabókinni.
Það er dálítið kjánalegt að koma
í kirkju þai' sem jarðarför er fá-
menn, en öll kirkjan er þakin
þessum sjerprentuðu Ijóðum. —
Það er alveg eins og búist hafi
verið við fullri kirkju fólks, en
þátttaka í jarðarförinni hafi svo
orðið minni en vænst var.
Það er ekkert við því að segja
þó fólk láti prenta þá sálma,
sem syngja á sjerstaklega, ef það
vill leggja í slíkan kostnað. —
Slíkt verður hver og einn að
ráða við sig, en það er óþarfi
að hafa þessa aðferð til að láta
kirkjufólk fá eintak.
Einfalt og smekklegt ráð væri
að hafa lítið borð í kirkjugang-
inum, þar sem menn geta fengið
sjer eintak af útfararsálmunum
um leið og gengið er inn i kirkj-
una. Það er líka miklu minni
fyrirhöfn í alla staði, en gerir
sama gagn.
Um jarðarfararsiði almennt
mætti skrifa langt mál einu sinni
enn, en verður látið bíða að
sinni.
Á ALÞJÓÐA VETTVANGI
Einkaskeyti frá Reuter. —
Eftir stjórnmálafrjettaritara
Daily Telegraph.
MEÐ hinni skarpyrtu orðsend
ingu bresku stjórnarinnar til
búlgörsku stjórnarinnar, hefir
stjórn Breta sýnt, að hún er á
einu máli og Bandarikjastjórn í
viðhorfi sínu til núverandi stjórn
arfyrirkomulags í Búlgaríu. S.l.
laugardag var það tilkynt, að
Bandaríkjastjórn hefði sent Búl
garíustjórn mótmæli. Nú hafa
Bretar gert það sama. Stjórnir
beggja þessara stórvelda hafa að
fullu útskýrt skoðun sína fyrir
Sovjetstjórninni, og sent eftir-
rit af orðsendingum sínum til
Moskva. — Báðar stjórnirnar
vinna af einurð saman til þess
að komá því til leiðar, áð grund-
valafatriðum frelsisins, éfrís og
þaú Vóru ákveðin á Yaltaráð-
W
Astandið í Búlgaríu
stefnunni, verði ekki traðkað i
Búlgaríu.
Menn eru ekki í neinum vafa
um það í London, eftir að hafa
fengið frjettir frá Sofía, að einn
flokkur, kommúnistaflokkurinn,
ræður öllu i Búlgaríu. Einnig
hefir hann náð svo mikium á-
hrifum í þrem öðrum stærstu
flokkunum, að þeir geta ekki
lengur talist annað en leppflokk
ur hans. — Reynt hefir verið
að sýna stjörnarandstöðu, t. d. af
Petkov, leiðtoga bændaflokksins,
sem nýlega lýsti því yfir, að
kommúnistar væru að reyna að
gegnsýra flokk hans af skoðun-
um sínum. Var Petkov þá rek-
inn úr stöðu sinni, en ritara hans
fleygt út um glugga, eftir að
húrí hafði veríð pyhtuð, vegna
þess, áð hún Var á söfnu skoðun
og hann. — Varðlíðið tékur
ménrí unnvörþum fasta án nokk
urra saka, og enginn sleppur
við fangelsun, ef hann segir svo
mikið sem eitt orð gegn einræði
því, sem ríkir í landinu. Stjórn-
arandstaðan fær ekki að gefa út
nema eitt einasta blað, og eru
greinar þær, sem stjórnin er
gagnrýnd í, bannaðar af ritskoð-
urum kommúnista.
Það er álit manna í opinber-
um stöðum hjer í London, að
breska stjórnin þoli ekki, að
troðið sje á frumatriðum lýð-
ræðisins, sem stórveldin höfðu
komið sjer saman um að við-
höfð yrðu í sigruðum löndum. —
Athygli heimsins beinist mjög að
Búlgaríu um þessar mundir,
vegna þess að þar fer nú að líða
að kosningum. — Líkar Bretum
og Pandarfkjamönríum iila,
hvernig ástatt er I landinu, og
getur; þáð váldið érfiðleikum í
Framh. á bls. 7.