Morgunblaðið - 24.08.1945, Side 5
Fö&tudagu 24. ágúst 1945
KOBGUNBLAÐIÐ
Búmenar biðja
um hjálp
London í gærkvöldi.
MIKAEL Rúmeníukonungur
hefir snúið sjer til stjórna
bandamanna, og farið þess á
leit við stjórnir þeirra stór-
velda, hvort þau myndu ekki
vilja hjálpa Rúmenum til þess
að koma á fót í landinu stjórn,
sem gæti talist fulltrúi allrar
þjóðarinnar.
I þessu sambandi hefir Jam-
es Byrnes, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýst því yfir,
að Bandaríkjastjórn sje reiðu-
búin til þess að aðstoða Rúm-
ena í þessu efni, sem sem kunn
ugt er, hefir að undanförnu
verið hin mesta óstjórn og ein-
ræði í Rúmeníu, en manndráp
tíð. —
Stjórnmálafregnritarar hjer
í Englandi telja, að beiðni
Mikaels konungs sje að nokkru
Jeyti sprottin af ummælum Be-
vins, utanríkisráðherra Breta
nm ástandið í Rúmeníu, en
Bevin gerði það að umtalsefni
í ræðu sinni, er hann hjelt nú
nýlega. — Reuter.
Spánverjar undir-
búa sijórnarfars-
breyfingar
London í gærkvöldi.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Francostjórnarinnar sagði við
blaðamenn í San Sebastian í
gær, að verið væri nú að und-
irbúa stjórnarfarslegar breyt-
ingar á Spáni. Myndu þær
verða þannig, að fólkið gæti
notið meira frelsis, þar sem
slíkt færi nú að verða gerlegt.
Viðvíkjandi því, sem sagt
var um Spánverja í samþykt-
um Potsdamráðstefnunnar,
mótmælti ráðherrann því, að
Francostjórnin hefði komist til
valda með tilstyrk möndulveld
anna. Hann sagði, að uppreisn-
in, sem byrjaði 1936 og sem
endaði með sigri Franco, hefði
verið þjóðleg frelsishreyfing.
— Reuter.
„Áfnám láns- og
teigulaganna tíma-
bært"
— Truman forseti.
Washington í gærkvöldi.
í RÆÐU, sem Truman Banda
ríkjaforseti hjelt í kvöld, neit-
aði hann harðlega þeim orð-
rómi, að láns- og leigulögin
hefðu verið afnumin af 'fjand-
skap við stjórn verkamanna-
flokksins í Bretlandi. Sagði
forsetinn, að þetta væru hin
herfilegustu ósannindi.
Sagði forsetinn, að láns- og
leigulögin hefðu verið sett
vegna styrjaldarinnar, og hefði
þeim ekki verið ætlað að
standa lengur en hún. Sagðist
forsetinn hafa lofað öldunga-
deildinni því, er hann var for-
seti hennar og varaforseti
Roosevelts, að lögin yrðu af-
numin hið fyrsta eftir að styrj-
öldinni væri lokið. — Reuter.
Sjerkennilegt frí-
merki
Nýlega eru frímerki með mynd
inni hjer að ofan, komin út í
Bandaríkjunum. Þau eru gefin
út til minningar um hinn dýr-
keypta sigur á Iwojima. Mynd-
in á frímerkinu sýnir er amer-
ískir hermenn reistu Banda-
ríkjafánann á hæsta fjalli eyj-
arinnar.
Kaupgreiðslur sam-
ræmdar í Berlín
London í gærkveldi.
jlEHN’ÁAISKÁÐ P.eriíiiiU'
kom saman á furnl í gter, en
í'áðinu er ætlað að halda. emn
fund á 10 daga fresti.
Á fundinum var saiaþykt að,
samræma kaupgreiðslui' í borg:
inni. Ennfremur yar breska
setúliðinu leyft að táka til af-
nota Olympíuleikvöllinn til í-
þróttakappleikja milli stórveld
anna fjögurra, sem hafa her-
nám Itoorgarinnar með hönd-
um. Völlurinn er á lternáms-
svæði Preta.
• - iieuter.
Ein miljón Breia
úr herþjónustu
London í gærkvöldi.
Á FUNDI í neðri deild breska
þingsins í dag var skýrt frá
því, að um 900 þúsund bresk-
ir hermenn yrðu leystir úr her-
þjónustu á þessu ári, ennfrem-
ur meira en 100 þúsund konur.
Á næstu tveim mánuðum
verða um 150 þúsund verka-
menn við hergagnaframleiðsl-
una leystir frá störfum.
— Reuter.
Japanski uianríkis-
ráðherrann hverfnr
af þlngi
New York í gærkvöldi.
JAPANSKI utanríkisráðherr
ann, Mamoru Shigemithu, hef-
ir sagt af sjer þingmensku
„vegna ríkjandi ástands'1.
Utvarpið í Tokio skýrði frá
þessu í dag. — Reuter.
Islandsmótið:
Jafnteíli Fram og Víkinys
r
Urslifaleikur á mánudaginn.
FRAM og VlKINGUR kepptu um neðsta sætið á íslandsmótinu
í gærkveldi, og skildu jöfn, skoruðu eitt mat'k hvort. Veðui'
var fremur óhagstætt, allhvass vindvtr af norðaustri og kalt.
Þar aö auki var orðið alt of dimmt síðast í leiknum, og má
mótanefnd gæta gæta sín, að það komi ekki fyrir að úr-
slitakeppni byrji ekki svo seint að hann endi í myrkri.
LEIKUR Fram og Víkings í
gærkvöldi var ekki góður, lítið
um fallegan samleik, enda gerði
veðrið sitt til að hann var lítt
mögulegur. Þó var leikurinn
mjög sæmilegur fyrsta stund-
arfjórðunginn, og auk þess allt
af hraður og spennandi, þess
vegna aldrei leiðinlegur. Liðin
voru mjög jöfn, þótt Fram væri
yfirleitt heldur meiri í sókn,
þá voru þeir — og reyndar Vík-
ingarnir líka, ákaflega slyppi-
fengir fyrir framan mark, enda
báðir markmennirnir ágætir að
vanda.
Víkingar skoruðu mark sitt
um miðjan fyrri hálfleik. Rak
Eiríkur Bergsson þar smiðs-
höggið á, en hann, ásamt Er-
lingi og Hauk, var besti mað-
ur Víkingsliðsins, auk Antons
í markinu.
I Fram var Magnús mark-
maður ágætur, Karl Guð-
mundsson langbesti maðurinn
úti á vellinum. Þá voru þeir
báðir góðir Þórhallur og Sig-
urður A.
Fram og Víkingur hafa haft
sitt stigið hvort upp úr þessu
móti, og er það lin frammistaða.
K. R. og Valur hafa fjögur stig
hvort og keppa, eins og áður
er sagt, n.k. mánudagskvöld.
J. Bn.
Flugvailargerð í
FLUGMALASTJORI hefir
boðið út að gera flugvallar-
rennibraut í Vestmannaeyjum,
og verður það verk hafið bráð-
lega, ef viðunandi boð fæst í
verkið.
Síðasta Alþingi veitti 300
þús. króna fjárveitingu til flug
vallargerðar í Eyjum, en það
myndi mjög bæta úr erfiðum
samgöngum við Ej^jar, ef þar
kæmist upp flugvöllur. Fyrst
um sinn er aðeins fyrirhugað að
gera eina rennibraut.
Bilreíð ekur á
glugga í Kafnar-
firði
Ilafnarfirði. fimtudag.
Frá frjettaritara vorum.
UM kl. 11 í gærkvöldi kom
fólksbifreiðin R. 2501 akandi (
suður Strandgötu, en er hún var j
á móts við Linnetsstíg, misti
bílstjórinn stjórn á bílnum, og
ók hann upp á gangstjettina
vinstra megin, og á einn búð-
argluggann í versl. Jóhannesar
Gunnarssonar. Gluggi þessi
stendur um 1.5 m. frá jörðu og
tók því mesta höggið af bíln-
um, en ferðin var svo mikil, að
bíllinn kastaðist um 12 m. út á
götu. Við áreksturinn tók
vinstra fram-aurbretti bifreið-
arinnar af og einnig lagðist
vinstra framhjól hennar alveg
saman.
Fjórir voru í bílnum, tvær
stúlkur og tveir karlmenn, en
þau sluppu öll ósködduð. —
Skemdir versl. urðu litlar sem
engar annað en brot rúðunnar.
Málið er í rannsókn hjá lög-
reglunni í Hafnarfirði.
Breskur itugmaður
ákærður fyrir land-
ráð
London í gærkvöldi.
1 DAG hófust í þorpi einu
í grend við London rjettarhöld
í máli Edward Ilughes. Er
hann ákærður fyrir að hafa
átt samvinnu við Þjóðverja.
Iluges var áður flugmaður
í breska flughernum. Var hann
tekinn til fanga af Þjóðverj-
um. Síðan mun hann hafa fall
ist á að flytja í útvarp áróð-
ifr f • 1‘jóðverja. Var hann
skráo ;• iista stai'fsmanna
þýska úij ii’psins.
— Reuter,
Japanír
fórust í foffárásunum
London í gærkvöldi.
10 MILJÓNIR manna, einn
sjötti hluti íbúafjöldans á Jap-
anseyjum, fórúst, særðust eða
urðu heimilislausar í loftárás-
um bandamanna, að því er seg
ir í tilkynningu frá Domei-
frjettastofunni.
260 þúsundir manna fórust,
þar af 90 þúsund í atóm-
sprengjuárásunum tveim. 412
þúsundir særðust, þar af 180
þúsund í atómsprengjuárásun-
um. 9 miljónir og 200 þúsund-
ir urðu heimilislausar.
Alls munu 2 miljóriir og 210
þús. húsa hafa hrunið til
grunna eða brunnið til kaldra
kola. Af 206 borgum í Japan
má heita, að 44 hafi verið al-
gerlega jafnaðar við jörðu. í
37 öðrum, þar á meðal Tokio,
hefir þriðjungíir bygginganna
eyðilagst. — Reuter.
Hraðkeppnií hand-
knattieik kvenna
Verður háð í Hafnarfirði
á laugardag og sunnu-
dag.
Frá frjettaritara vorum.
Hafnörfirði, fimtud.
Á MORGUN hefst á Sýslu-
mannstúninu í Hafnarfirði hin
árlega hraðkeppni í hanknatt-
leik kvenna.
I keppni þessari er keppt unr
fagran silfurhikar, er Jón Mat-
hiesen kaupmaður gaf. Er öll-
um íþróttafjelögum í Sunnlend
ingafjórðungi og Vestmanna-
eyjum heimilt að senda flokka
til keppninnar.
Þetta er í þriðja sinn, sem
keppni þessi fer fram. KR vann
hana 1943, en Haukar 1944. -—
Bikarinn vinst til eignar, ef.
hann er unninn þrisvar í röð
eða fimm sinnum alls.*
Þátttakendur í ár eru með
mesta móti, því Ármannsstúlk-
urnar eru nú með í fyrsta sinn.
Hinir flokkarnir eru sem áður
F. H., Haukar og K. R. Hefði
verið gaman að sjá Vestmanna
eyjastúlkurnar í þessari keppni,
en því miður hafa þær ekki
sjeð sjer fært að koma.
Keppnin hefst kl. 5 e. h. á
morgun, og eins og áður er sagt
fer hún fram á Sýslumanns-
túninu í Hafnarfirði, en ekki í
Engidal, eins og undanfarin ár.
Keppnin hefst með kappleik
milli F. H. og K. R., en síðan
keppa strax á eftir Haukar og
Ármann. Keppni þessi er úr-
fellniskeppni (fjelag er úr, er
það, hefir tapað einum leik).
Venjan hefir verið sú, að keppt
hefir verið til úrslita strax
sama daginn, en nú hefir verið
horfið frá því, og fer úrslita-
leikurinn fram daginn eftir, þ.
e. á sunnudag. Þessi keppni hef
ir ávalt vakið mikla athygli,
og fjelögin náð sjerstaklega góð
um leik, enda áliðið sumars og
því öll í fullkominni æfingu, og
nú í ár nýkomin frá keppni í
íslandsmóti, nema flokkur KR.
Er ekki að efa, að bæði Reyk
víkingar og Hafnfirðingar fjöl-
menna til keppninnar, sem
vafalaust verður bæði jöfn og
spennandi.
Dómari keppninnar verður
Baldur Kristjánsson íþrótta-
kennari. Knattspyrnufjelagið
Haukar sjer um keppnina að
þessu sinni.
Hernáimforingjum
fagnað í Vín
London í gærkvþldi.
ÝFIRMENN hernámssveita
stórveldanna fjögurra í Vín
koui(t .\\\, lþ.rg;y;ivuai' i dag.
Var hiU'iö n\n dýrðir í tileíni
komu þeirra, m. a. voru þaliar
stórkostlegar hersýiúngar. .
Enginn fjekk verðlaunin.
LONDON A. P. — Hitler hjet
225.000 dollurum og æðstu heið
ursmerkjum þeirri kafbáts-
áhöfn. sem sökt gæti* „Queen
Mary“ eða „Queen Elizabeth1*,
stærstu farþegaskipum Bret-
•lands, að því er breska blaðið
„Daily Expr'ess“ hermir.
Stór neðanjarðar-
verksmiðja.
LONDON A. P.: — Á styrj-
aldarárunum voru margar verk
j smiðjur í Bretlandi bygðar neð
I anjarðay,.,§ú.. staej'§ta yai' .bygð
i í gamalii kolanámu, og ey-svæð
| ið, sem hún stendur á, 8Gt ekr-
i ur að flatarmáli.
HjtísiwiíiSHiH.ímuinmnim
‘ifÆitííl!
h’,; r.á