Forvitin rauð - 01.12.1972, Blaðsíða 13

Forvitin rauð - 01.12.1972, Blaðsíða 13
er frá'brugðin sérhverri frumu í líkama karlmannsins. Þið verðið að viðurkenna að það eru konurnar, sem fæða börnin, en þið viljið kannski líka breyta því? Og þar að auki hafa konur miklu fleiri veikindadaga en karlar, svo sömu laun fyrir sömu vinnu væru óhugsandi. Og móðurtilfinningin, hún er háleitust allra tilfinninga ' 12. svar, Andlegur munur; "Maðurinn hefur líka alltaf staðið konunni dálitið ofar í þeim skilningi að konan vill D-iarnan líta upp til mannsins síns. Fæstir karlmenn vilja ráðríkar konur. Konur eru ekki heimskari en karlar, þær eru bara hæfari til annarra hluta, 13. svar. Einstök tilfelli: "Ég hef það á tilfinningunni, að Rauðsokkur séu vonsviknar konur, fráskildar og pipraðar, sem hvorki vita upp ne niður. Hefðu þær verið í hamingju— sömu hjónabandi , hefðu þær áreiðanlega ekki orðið Rauðsokkur. Það hlýtur að liggja þannig í því. Það er ekkert algilt við þetta, - þetta eru bara serstæð tilfelli. 14. svar, Pr .jálslyndi: "Þú ert frjáls og getur gert allan skrattann sem þú vilt. Velmenntaðar konur spjara sig ágætlega. Auðvitað eru margar konur, sem ekki ljúka menntun sinni af því að þær giftast, en það eru þær sjálfar sem velja. Konur hafa jafnrétti hér á landi, við höfum meira að segja kvenmann sem aðstoðarráðherra, og er ekki kvenmaður formaður Menntamálaráðs? 15. svar. Karlar eru líka kúgaðir: "Karlmenn hafa það líka djöfullegt. Það eru þeir, sem eru ávallt neyddir til að vinna. Konan hefur viss sér- réttindi, því hún getur einfaldlega verið heima með krökkunum allan daginn. Það er hlutverkaskipan, sem allir verða að beygja sig fyrir, og kúgar ekki einn fremur en annan, Það er ekkert ægilega gaman að vera alltaf sá sem ábyrgðina hefur, Konan fær alltaf innbúið og börnin við skilnað , það þykir alltaf sjálfsagt. Ætlið þið kannski líka á togarana?" 16. svar, 3amvinnan: "Mér finnst málstaður Rauðsokkanna ágætur, en það er alltof mikil þröngsýni að þetta sé einkamál kvenna. , Karlar verða að vera með svo eitthvað raunhæft gerist, Konur eru alltaf svo aðgerðalitlar. 17. svar. Menningarlegur niðurskurður: "Þið getið a.m.k. ekki neitað því, að það eru karlmenn sem hafa skapað alla menninguna. Nefndu mér einn einasta kvenlistmálara eða kventónskáld '. Konur hafa yfirleitt ekki þá skapandi eiginleika sem karlmenn hafa. Hvernig myndi aðstaða kvenna vera í dag, ef karlEir hefðu ekki fundið upp þvottavélina, ryksuguna o.s.frv. Já, það mætti lengi telja". 18. svar. Þið gleymið stéttarbaráttunni.' "Þú og ég, við stöndum sko áreiðanlega jafnfætis. Við erum námsmenn við sömu kjör. Það er enginn rnunur á okkar aðstöðu, en það er munur á þinni aðstöðu og aðstæðum ve rkamann anna. Nei, þið sem eruð forréttindakellingar ættuð heldur að hjálpa öðrum undan kúguninni. 3ú mismunun, sem konur verða fyrir, byggist á, að þetta er auðvalds- samfélag. í Rússlandi t.d. eru konurnar í framle i ð s lunn i...." 19. svar. Skilgreiningin: "Eftir því, sem ég bezt fæ séð, er þetta spurning um baráttuaðferð. Það er baráttuaðferðin sem skiptir máli. Það sem þarf að gera er að hrista upp £ konum. Ef þær hafa það slæmt, er það þeirra eigin sök, Ef ég á að viðurkenna fullyrðingar ykkar, þá verðið þið að geta leitt að þeim rök." 20. svar, Hrósið: "Mér finnst að þið séuð að gera það eina rétta. Það er gott að við höfum frísklegar stúlkur eins og ykkur. Það er léttir að hitta stúlkur, sem hafa eitthvað til málanna að leggja. Þú ættir að tala við konuna mína, það þarf að hressa soldið upp á hana. 21. svar, Yfirbótin: "Ég get vel séð, að húsverkunum hefur verið vitlaust skipt á milli okkar. En nú skal ég hjálpa til. í!g get vel skilið að við karlmenn ættum ekkert að vera að koma í hreyfinguna, því þið þurfið að læra að taka til máls sjálfar, íg hef gert margt, sem ég nú iðrast." 22. svar. Hvað eigum við að gera? "Við getum ekki ráðið fram úr því, svo nú verðið þið að útskýra fyrir okkur, hvað við eigum að gera. Það eruð þið sem gagnrýnið, svo það verða líka að vera þið, sem segir okkur hvað til bragðs á að taka. Við kárlar bxðum eftir að þið leikið fyrsta leikinn". 23.3var. 5á sem veit betur: "I?f ég má gefa ykkur gott ráð..... Það sem stúlkan meinar er ........ Eftir minni þekkingu á Rauðsokkum, er það sem þú segir alrangt".

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.