Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1999, Blaðsíða 3
l l SltOk MOIi(,l \l{I AI>SI\S - MENNEVG I ISI IIi 25. TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR EFNI Hús á stultum Hollendingar verða að byggja þétt og hátt vegna landþrengsla og Ijölmennis. En það er ekki einfalt mál að byggja háa turna í Hollandi því ekki er hœgt að grafa niður á fast. Eftir því sem hærri hús eru byggð verður að reka burðarsúlur lengra niður í botnlausan sand og má segja að þessi hús standi á stultum. Hér er byggt á nýrri bók, Hoogbouw in Nederland. Gísli Sig- urðsson tók saman. Þrælasalar í norðurhöfum er heiti á grein eftir Vilhjálm Örn Vilhjálmsson dokt- or í miðaldafornleifa- fræði. Hann segir að höfundar ótal bóka um Kólumbus hafi átt erfitt með aðaátt sig á eðli verslunar á 15. öld og ekki fyrr en nýlega að fræðimenn hafi þor- að að tengja sykurframleiðslu, þrælakaup- mennsku og Kólumbus saman. Hér er einnig vikið að hugsanlegum afdrifúm nor- rænna manna á Grænlandi, en seinni hluti greinarinnar birtist í næstu Lesbók. FORSÍÐUMYNDIN Bragi Ásgeirsson heldur áfram að segja frá vöskum og hugumstórum París- arkonum í grein sem hann nefnir Valkyij- ur og hafgúur. Þar segir hann m.a. af Janet Flamner, Djunu Barnes, Adrienne Monnier, Hildu Doolittle, Giselu Freud og Nancy Gunard og einnig koma James Joyce og Esra Pound við sögu. Sumartónleikar í Skálholti eru nú haldnir í 25. sinn. Fjölbreytt dag- skrá verður í Skálholti fimm helgar í júlí- og ágústmánuði, tónlistarflutningur, fyrir- lestrar og helgihald. I grein Hrafns Svein- bjarnarsonar segir frá merku handriti, Hymni scholares - söngkveri Skálholts- sveina. Ennfremur er kynnt dagskrá fyrstu helgar Sumartónleikanna. er í tilefni af umfjöllun um háhýsi á stultum í Hollandi og sýnir módel af Renidence-samstæðunni í Haag, þar sem frægir arkitektar eins og Rob Krier, Cesar Pelli og Michael Graves hafa lagt saman. BENNY ANDERSON TILTEKT í MEÐALASKÁPNUM ÁSGEIR ÁSGEIRSSON ÞÝDDI GIös og túbur semlyktá af löngu gleymdum kvillum áburðurgegn horfnum líkþornum h'öftugar mixtúrur mót innanmeinum sem lögðust á sál og líkama jafnt á nóttu sem á degi nú horfu1 á braut afleyst af seinni tíma kvillum. Dropar tíí mýkingar ungum augum sem nú hafa séð of mikið en þó ekki nóg. Pillur sem einhverntíma hafa gagnað eða verið vita gagnslausar allavega ekki innbyrtar lengur og tilgangur þeirra orðinn óljós - rénaðar hitasóttir læknaður hósti linaður verkur Fallvaltleiki fallvaltleiki - burtmeðþaðallt Rýmið fyrír nýjum plágum. Benny Anderson er danskt skóld og mörgum vel kunnur á (slandl. Það vakti athygli og þótti einstakt þegar út kom heildarsatn af Ijóðum skáldsins i Danmörku að bókin seldist í 30 þúsund eintökum. Þýðandinn býr í Bargamesi. RABB ER ÉG BANANI? Er ég banani? er barnaspil sem sló í gegn um jólin í íyrra. Það er óneitanlega skemmtilegt að heyra fólk spyrja þessarar spurningar, - en maður á ekki von á henni í alvöru. Ég er ekki banani og þú ekki heldur. Við er- um heldur ekki tómatar, - og verðum það ekki. Jafnvel þótt við borðum erfðabreyttan tómat í hvert mál. Maður hefði haldið að þetta væri almennt á hreinu, - en svo er ekki. Það sá ég í sjónvarpinu í Svíþjóð um daginn þegar vegfarendur í þessu upp- lýsta velferðarríki voru spurðir um afstöðu til erfðabreyttra matvæla. Þó nokkrir höfðu áhyggjur af því að nýju genin í sojabaunum og tómötum gætu breytt þeim, - og ein kona sagðist aldrei ætla að leggja sér gen til munns. Það verður lítið í matinn hjá henni blessaðri, - nema kannski gerilsneytt sykur- vatn, og ekki fer hún langt á því. Spurningin um erfðabreyttu matvælin er flókin, - einfalt svar er ekki til. Þessi aðferð við ræktun hef- ur bæði kosti og galla og menn verða að fara varlega inn á þetta svið, skref fýrir skref. Hvers vegna vilja menn vera að fikta við genin í matnum? Maðurinn hefur stundað kynbætur frá ómunatíð til þess að fá betri uppskeru. En erfðabreytt matvæli eru ólík venjulegum kynbættum afurðum, því í þeim hefur hluta af erfðaefni óskyldrar lífveru, ofl> ast örsmárrar, verið komið fyrir til þess að breyta eiginleikum. Nýja erfðaefnið gerir að verkum að lífveran, - sem oftast er planta en getur líka verið dýr, - getur nú framleitt eitt- hvert ákveðið prótín eða hvata fyrir efnaferli, sem hún gat ekki framleitt áður. Með þessu móti má gæða plöntur ýmsum eiginleikum, til dæmis þeim að þær nýti sólarljósið betur, séu saltþolnari, þurfi minna vatn, vaxi hraðar, geymist lengur, fæli frá sér skordýr eða þoli betur skordýraeitur, beri fleiri ávexti, séu bragðbetri, - og jafnvel hollari. Þetta er ekki Útils virði í veröld sem býr við sívaxandi fjölda svangra munna, samhliða sí- fellt minnkandi ræktunarlandi. Á hverri mín- útu bætast við 170 manns á þessari plánetu, - og hvað á þetta fólk að borða? Höfum við ekki alltaf treyst því, þegar þessar ógnvænlegu töl- ur hefur borið á góma, - tölur sem maður varla skilur, - að þetta hljóti að bjargast ein- hvern veginn - vísindin finni einhverja leið. Því ekki gerum við það með þeim aðferðum sem notaðar hafa verið hingað til í landbúnaði. Ræktarlandið sem til er dugar ekki. Þar að auki fer það land minnkandi. Þær eru ógn- vænlegar tölurnar um eyðingu gróðurlands, hvort sem er af völdum uppblásturs eða byggðar, sem krefst sífellt meira svæðis undir götm- og hús. Hvaða land fer undir borgir og þorp? Oftast ræktarland, eða að minnsta kosti ræktanlegt land - því menn eru ekki að byggja borgir uppi um kletta og klungur, í eyðimörkum, á hraunflákum eða jöklum. Byggð eykst venjulega þar sem hún var fyrir og þrengir að skógum og ökrum. Svo eru tak- mörk fyrir því hvað lengi er hægt að yrkja sama akurinn án þess að hvíla hann. Sífellt stærri landsvæði verða ónýt vegna ofnotkun- ar. Þar við bætist allt sem fýkur með veðri og vindum, - rykið af ökrunum er í raun dýr- mætur jarðvegur sem fýkur í tugmilljóntr onnatali út í buskann á hverju ári. Akurlendið minnkar og minnkar, meðan við stöndum frammi fyrir því, að verða að tvöfalda mat- vælaframleiðslu í heiminum á næstu 30 árum. Hvemig förum við að því? Er svarið ekki einfalt? Vísindin búin að leysa vandann með erfðabreyttum matvælum sem stórauka framleiðsluna? Því miður er svarið ekki einfalt. Erfðabreytt matvæli hafa vanda í för með sér, sem er ólíkur öllu sem maðurinn hefur tekist á við til þessa. Hann er ekki sá, að neytandinn verði skrítinn af að borða nýtt erfðaefni - kúafárið í Bretlandi varð ekki vegna erfðabreyttra matvæla held- ur vegna þess að úrgangur úr sjúkum skepn- um var notaður í fóður. Líkurnar á því að ný prótín fari illa í fólk eru hverfandi, og meira að segja má nota þessa tækni til að draga úr ofnæmisvaldandi efnum í matnum. Eins og málum er háttað nú snýr höfuðvandinn því ekki beint að neytandanum. Hann snýr að jafnvægi í lífkeðjunni. Ef á akrinum vaxa jurt- ir sem skordýr geta ekki gætt sér á, hvað verður þá um þau? Drepast þau úr hor eða fara að éta eitthvað annað? Ef þau drepast hvað verður þá um dýrin og fuglana sem lifðu á þessum skordýrum, og hvaða áhrif hefur það, ef þau snúa sér annað? Og svo koll af kolli. Nú er talað um að gera að skyldu að rækta „venjulegt" grænmeti jafnhliða hinu, - beinlinis sem skordýrafóður. Þá má spyrja, hvað gerum við í dag? Við eitrum fyrir skordýr. Er það skárra? Nú er hægt að búa til erfðabreyttar plöntur sem þola eitur mun betur en áður, svo að það er hægt að eitra hvem akur miklu meira og fá prýðisuppskeni. Skordýrin öll dauð og illgres- ið líka. En hvað um jarðveginn? Hvert skolast allt þetta eitur? Hvaða áhrif hafa nýju plönt- umar ef þær komast út fyrir akurinn? Era þær hæfari til að lifa og ryðja öðmm úr rúmi? Það er ekki ætlast til þess að þessar plöntur fari á flakk, en eina leiðin til að koma í veg fyr- ir það, er að þær séu ófijóar, þvi vindurinn spyr ekki um landamæri þegar hann feykir fræjum. Plöntumar em ekki ófrjóar og fræin munu fjúka. Bændum er hins vegar bannað að safna fræjum, - ekki af tillitssemi við náttúr- una heldur við einkaleyfishafana. Þeir vilja selja fræ á hverju ári. Nú óttast menn að bændur sjái sér hag í að framleiða þessar auð- ræktanlegu gróskumiklu plöntur sem með vaxandi hraða útrými þeim gömlu. Eiginleik- ar nýju tegundanna ráðist af gróðasjónarmið- um þeirra sem aflað hafa sér einkaleyfa á þró- un þeirra, án tillits til víðtækari hagsmuna, - án tillits til lífkeðjunnar. Það sem hefur gerst er framþróun á ákveðnu sviði sem er úr takti við umhverfi sitt. Tæknin við erfðabreytingar hefur farið fram úr almennri líffræði, siðfræði, upplýs- ingu og opinni umræðu, löggjöf og varúðar- reglum. Neytendur standa skyndilega frammi fyrir orðnum hlut án þess að hafa fylgst með og verið upplýstir um kosti og galla. Þeir sjá, að matvælaframleiðsla er að færast undir yfir- ráð stórra auðhringja, sem virðast svífast einskis til að hámarka hagnað sinn. Æpandi dæmi um eitruð matvæli mitt í siðmenntaðri Evrópu hafa eyðilagt traustið milli framleið- enda og neytenda. Erfðabreytt matvæli lenda mitt inni í þessari umræðu. Viðbrögðin era hörð, - stórar verslunarkeðjur í Bretlandi auglýsa að hjá þeim sé ekkert Frankenstein- fóður á boðstólum. Næsta skref er að banna innflutning á Frankensteinfóðri. Þetta mun hafa áhrif á alla framleiðendur matvæla, - stórauka kröfur um upplýsingar um upprana vörunnar, framleiðsluJferil hennar, heilnæmi og hollustu. Þetta getur bæði orðið ógn, en ekki síður tækifæri fyrir íslenska framleið- endur ef rétt verður á málum haldið. Hræðslan við erfðabreytt matvæli hefur breiðst út eins og eldur í sinu og þá er hætt við að barninu verði fleygt með baðvatninu, nema menn hægi á og íhugi næstu skref. Spurninguna um það hvernig hægt verður að koma böndum á galla þessarar tækni til þess að hún megi nýtast til að seðja þann mikla mannfjölda sem aldrei hefur fengið málungi matar. GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JÚLÍ1999 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.