Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1961, Blaðsíða 16
420
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
A A 10 5 4
♦ G 8 3 2
♦ K 10 2
♦ K 10 4
AG93
A K D 7 6
V A G 8 ,
♦ G 9 2
* K D 5
4 D 6 5
♦ 873
♦ A 8 6
♦ 9
♦ 9 7 4 3
♦ Á D 6 5
♦ 10 7 4 2
S sagði 3 grönd. V sló út lágtigli
og þarna fengu V—A fjóra slagi á
tigul í byrjun. í seinasta slaginn
verður S að fleygja af sér bæði í
borði og á hendi, og einu spilin, sem
hann má missa er la\if úr borði, en
hjarta af hendi.
V slær nú út laufi og það er drep-
ið með ás. Svo er svínað undir hjarta-
gosa og teknir slagir á K og D í
spaða. Þá er V spaðalaus. S tekur
þá slagi á L K og L D og fleygir spaða
í úr borði, en nú getur A ekki varið
bæði spaða og hjarta.
v—* y*—-
Hákonsenshús
var kallað húsið nr. 8 við Aðal-
stræti, en síðar Breiðfjörðshús, er
Valdimar Breiðfjörð hafði eignazt það
og stækkað mikið. Benedikt Gröndal
segir þessa sögu þaðan: „Þar bjó eg
eitt sumar í sömu stofunni sem Jónas
Hallgrímsson hafði búið í, og var all-
illt; allt fullt af rottum sem léku á
gólfinu eins og kettir; hinum megin
við dyrnar á norðurendanum var og
stofa og þar bjó eg um tíma og Stefán
Pétursson; eina nótt gat eg ekki sof-
ið og var að lesa í Madvigs gramma-
tík í rúminu; þá settist ein stór rotta
á mitt gólfið, en eg keyrði gramma-
tíkina í hana svo hún rotaðist og er
það eina afreksverkið sem eg hefi gert
með þeirri bók“.
Bóndinn í Bár
í sveit minni, Eyrarsveit, er bær,
NOREGSFÖR. — Fimmtudaginn 14. sept. lagði strandferðaskipið Hekia á stað
frá Reykjavík til Noregs. Þetta var söguleg ferð, því að með skipinu var 160
manns, sem ætlaði að vera við þá athöfn, er Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra afhenti norsku þjóðinni líkneski Ingólfs Arnarsonar í Hrífudal á Fjöl-
um. Sú athöfn átti að fara fram næsta sunnudag, en Hekla hreppti aftakaveð-
ur í hafi alla leið og tafðist þess vegna svo, að hátíðin á Fjölum gat ekki far-
ið fram fyr en á mánudag. — Hekla er nú á heimleið úr hinni sögulegu
för. —
sem var mjög fornfálegur. Hann hét
Bár, en fornmenn íslenzkuðu nafnið
Bari á ítalíu með Bár. í Bár heldust
ýmsar fornar venjur lengur en ann-
ars staðar, þó að víða væri leitað.
Bóndi bauð Þorra í garð, fór þá á
fætur á undan öllum öðrum. í skyrt-
unni og annari brókarskálminni hopp-
aði hann á öðrum fæti þrisvar kring-
um bæinn og fagnaði Þorra með til-
völdum orðum. Konan hans fagnaði
svo Góu á líkan hátt, hoppaði lítt
klædd kringum bæinn og hafði yfir
vísúna: Velkomin sértu, Góa mín o. s.
frv. (Dr. Jón Stefánsson; úr æsku-
minningum)
Barn fætt á víðavangi
Árið 1842 var í vist hjá séra Frið-
rik Eggerz og Arndísi í Búðardal á
Skarðsströnd, stúlka sem Jóhanna hét
Jónsdóttir. Hún var þá vanfær en
fór dult með, og hafði Arndís því
gætur á henni. Hinn 27. júlí um
sumarið kenndi Jóhanna sóttar og
ætlaði þá að komast ofan að Gröfum,
þar sem hún hafði áður verið. Arndís
saknaði hennar fljótt og sendi fólk í
allar áttir að leita hennar, en sjálf
fór hún með karlmanni niður með
ánni. Er þau komu þar sem heitir
Lambatangi, sáu þau Jóhönnu handan
árinnar í brekku. Hafði hún alið
barnið þar. Arndís skildi á milli, lét
sækja hest og reiða móður og bam
heim að Búðardal. Þetta var stúlku-
barn og var það skírt sama dag. Réð
Arndís því að telpan var látin heita
Guðbjörg, og sagðist gera það til
þess að nafnið yrði til að minna
hana og móðurina á guðs hjálp og
varðveizlu. — Guðbjörg þessi varð
gömul kona og dó 15. júní 1917 á
Tindum á Skarðsströnd. Hún hafði
ekki gifzt.
LEIÐRÉTTINGAR
í 24. tbl. varð sú villa, að sagt val'
að félagsheimili KFUK í Vindáshlíð
væri fyrir sunnan Laxá — það er
fyrir norðan ána. — í seinasta tbl.
varð villa 1 fyrirsögn á bls. 401; þar
stóð Líkingareikningur, en átti að
vera Líkindareikningur.