Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 1
LLandnám 1 Reykjavík og þeir,
sem þar bjuggu fyrst.1
ísland er hið eina land á jarðarhnettinum, sem menn hafa glögg-
ar upplýsingar um, hvernig fyrst bygðist af mönnum; en Reykjavík
var fyrsti bærinn, sem bygður var hér á landi, og er upphaf Reykja-
víkur því merkilegra. Tildrögin til þess að lngólfur Arnarson fiutti
til Islands voru, svo sem kunnugt er, ölteiti og ástamál og vígaferli,
er af þeim leiddu.
Eftir því sem aiment er talið var það vorið 877 að Ingólfur tók
sér bústað í Reylcjavík, þar sem öndvegissúlur hans höfðu á land
komið; segir svo í Landnámu, að þær hafi enn verið til í Reykjavík,
þá er hún var rituð á 12. eða 13. öld.
Ingólfur nam land alt milli ölvusár og Hvalfjarðar, en síðan
gaf hann öðrum land það, er liggur fyrir sunnan Hraunsholtslæk og
fyrir norðan Úlfarsá, sem nú er kölluð Korpólfstaðaá; hefir hann þá
átt eftir land Seltjarnarnesshrepps og suðurhluta Mosfellssveitar,
ásamt lítilli sneið af Garðahreppi.
Svo er að sjá, sem eigi hafi þótt sem álitlegastur bústaður í
Reykjavíkj því Karli vildi eigi þar vera og hafði þau orð um: »til
ílls fórum vér um góð héruð, er vér skulum byggja útnes þetta«.
En Ingólfur var trúmaður mikill; áður en hann réðst alfarinn til
Islands hafði hann leitað sér frétta um forlög sín og fréttin vísað
þonum þangað; í þrjú ár samfleitt lét hann leita að öndvegissúlum
sínum og vildi eigi neinstaðar taka sér fastan bústað, meðan eigi var
vonlaust um að þær findust; hann mun þess vegna örugglega hafa
trúað því, að öndvegissúlurnar hafi fyrir æðri tilhlutun borið þar að
landi, er honum væri heillavænlegast að setja bústað sinn.
Kringum Reykjavík hafa að visu aldrei verið þvílíkar graslend-
ur sem fyrir austan Hellisheiði, en beitiland hefir verið þar gott, því
*) Þess skal getið, að ritgjörð þessi var samin 188ö, þá. er þess var minst að
100 ár voru liðin siðan Reykjavík fekk kaupstaðarréttindi, og er hún prentuð hér að
mestu leyti óbreytt.
1