Ferðir


Ferðir - 01.03.1940, Page 17

Ferðir - 01.03.1940, Page 17
Ferðir] 15. blaðsíða leggja sig eftir slíkum athugunum, Þær muni krefjast meiri þekkingar og meiri tíma en menn eigi almennt ráð á. Satt er það að vísu, að nokkra undirbúningsþekkingu þarf, en þó ekki meiri en svo, að hennar er hægt að afla af bókum. Eg vil nú, að þessu sinni, uðeins benda á tvö viðfangs- efni, sem eru heppilegust byrjendum, þ. e. gróðurathug- anir og fugla. Til gróðurathugana eigum vér ágæta handbók, þar sem Flóra íslands er. Með lítilli æfingu má læra að hafa hennar full not. Og brátt kemst notandi hennar svo á lagið, að hann fær nafngreint flestar þær plöntutegundir, sem hér va> a. Þá er honum ráðlegt að byrja þegar á að safna plöntum og koma upp plöntusafni. Síðan, þegar tegundaþekkingin er fengin, er hægt að færa athuganasviðið út, taka þá t. d. að skoða vaxtarstaði teg- undanna, gróðurfélögin o. fl. Fuglalífið er einnig hentugt viðfangsefni. Þar hefur F. í. gefið oss ágætt tæki í hendur með hinni prýðilegu Ar- bók s. 1. ár, auk þess er til á íslenzku hin mikla fuglabók Bjarna Sæmundssonar. Með aðra hvora þessa bók í hönd- um er tiltölulega auðvelt að kynnast öllum hinum al- gengustu fuglum landsins, og athugun á háttum þeirra og lífi veitir oss margfalda ánægju. En vér gerum meira en skemmta oss sjálfum með þess- um hætti. Vér getum einnig lagt þar nokkurn skerf til þekkingarinnar á náttúru lands vors, sem enn er víða gloppótt. En þekking á náttúrunni er undirstaða þess að geta fært sér gæði landsins í nyt. Með línum þessum vil ég benda yður, góðir félagar, á verkefni, sem liggur innan verkahrings félags vors, og geta orðið yður til gagns og gleði. Ef til vill verður síðar kostur á að ræða þetta mál nánar í félagsblaði voru, en i bili vil ég aðeins geta þess, að ef einhverjir félagsmenn fyndu hjá sér hvöt, til að sinna málum þessum, mun ég fúslega veita þeim þær leiðbeiningar, sem í mínu valdi stendur. Steindór Steindórsson frá Hlöðum.

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.